Bændablaðið - 24.02.2006, Side 25

Bændablaðið - 24.02.2006, Side 25
25Þriðjudagur 28. febrúar 2006 FRAMLEIÐNISJÓÐUR LANDBÚNAÐARINS AUGLÝSIR: Framleiðnisjóður landbúnaðarins styður með styrkjum og lánum verkefni til nýsköpunar og framleiðniaukningar í landbúnaði og við aðra eflingu atvinnu í dreifbýli, sbr. lög nr. 89/1966. Framleiðnisjóður leggur áherslu á að fjármagn sjóðsins verði til viðbótar framlögum frá ábyrgðaraðilum verkefnanna, bæði eigin fjár og því sem þeir kunna að afla frá öðrum. Framleiðnisjóður leggur áherslu á að verkefni feli í sér nýsköpun í landbúnaði, auki fjölbreytni hans og séu líkleg til þess að skila arði. Með hliðsjón af þessu býður Framleiðnisjóður á árinu 2006 fram stuðning við vel undirbúin verkefni innan efrirtalinna flokka: a. hagnýt rannsókna- og þróunarverkefni á vegum stofnana, búgreina og einstaklinga. b. nýsköpun atvinnu á bújörðum, hópverkefni bænda og fyrirtæki í dreifbýli c. endurmenntun og þekkingarauka í landbúnaði d.markaðsöflun fyrir afurðir landbúnaðar Framleiðnisjóður hefur tekið við því hlutverki sem Smáverkefnasjóður sinnti áður. Framleiðnisjóður hvetur jafnt konur sem karla til að senda umsóknir um fýsileg verkefni til sjóðsins. Framleiðnisjóður vill stuðla að virku samstarfi við aðrar stofnanir sem styðja þróun og nýsköpun í sveitum landsins. Almennar ábendingar varðandi frágang umsókna: Mikilvægt er að í umsókn sé • markmið verkefnis sett fram með skýrum og mælanlegum hætti, • sýnt fram á faglega og fjárhagslega möguleika umsækjanda til þess að leysa verkefnið af hendi, • glögg grein gerð fyrir kostnaði við verkefnið og hvernig það skuli fjármagnað; einkum er mikilvægt að gera grein fyrir eigin framlagi umsækjanda til verkefnisins. • sýnt fram á fýsileika verkefnis og áætlaðan ábata af því á fyrirsjáanlegum tíma. Framleiðnisjóður landbúnaðarins áskilur sér rétt til þess • að meta með sjálfstæðum hætti getu umsækjenda til þess að standa undir fyrirætlunum sínum og taka tillit til hennar við úthlutun styrkja, einkum hvað snertir faglega kunnáttu/færni á sviðinu og fjárhagslega burði/möguleika/stöðu, auk forgangsröðunar að teknu tillliti til ráðstöfunarfjármuna sjóðsins á hverjum tíma; • að meta framvindu og árangur verkefnis, sem styrkur hefur verið veittur til og haga greiðslu hans samkvæmt niðurstöðu slíks mats. Í því sambandi er styrkþegum skylt að veita sjóðnum þær upplýsingar sem hann telur sér nauðsynlegar í allt að fimm ár frá lokaúthlutun. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyri, 311 Borgarnes. Sími 430-4300 / myndsími 430-4309 / netfang fl@fl.is Mikill áhugi er fyrir byggingu reiðhallar í Grundarfirði. Ólaf- ur Tryggvason, formaður Hest- eigendafélags Grundafjarðar, sagði að Hestamannafélagið Snæfellingur væri félag sem tæki til alls Snæfellsness en Hesteigendafélögin væru eins konar hverfafélög. Þau hafi ekki rétt til að sækja um styrk til byggingar reiðhallar en það hef- ur Snæfellingur. Þess vegna hef- ur Hesteigendafélag Grundar- fjarðar boðið Snæfellingi að byggja reiðhöll í Grundarfirði fyrir félagið. Málið var tekið fyrir í bæjar- stjórn Grundarfjarðar og lýsti bæj- arstjórnin yfir stuðningi við bygg- ingu reiðhallar. Ólafur bendir á að Grundarfjörður sé miðsvæðis á Snæfellsnesi og þar séu nú þegar tveir menntaðir reiðkennarar. Ann- ar er Ísólfur Þórisson, sem fékk hæstu einkunn í reiðkennaraprófi á Hólum í fyrra. Hann býr í Grund- arfirði og hefur haldið þar reið- námskeið. Hinn heitir Illugi Páls- son. Ólafur segir að Hesteigendafé- lagið hafi þegar sótt til umhverfis- nefndar Grundarfjarðar um lóð undir reiðskemmuna. Skýrsla var unnin í landbúnaðarráðuneytinu um reiðskemmu á Snæfellsnesi og í henni er bent á Grundarfjörð sem besta kostinn. En það verður Snæ- fellingur sem tekur endanlega ákvörðun um staðsetningu reið- hallarinnar. Mikill áhugi fyrir byggingu reiðhallar í Grundarfirði Til á lager á hagstæðu verði. Joskin haugsuga 8400 L galv……………………………… Reck mykjuhræra TRY 500-T55………………………… Reck mykjuhræra TRE-Z 5-T55…………………………. Álrampar fyrir minivélar……………………………………… Maschio tætari 235-260-285-300 cm………………… Nardi fjórskera plógur 140-160 cm……………………. Nardi MRAP70 einskorinn brotplógur 52x55……… GS 300 flaghefill lyftutengdur. 3 m................... Lyftu tengdir dráttarkrókar…………………………………. Vökva yfirtengi margar gerðir……………………………… 12/24V dieselolíu dælur 45/60 l/min…………………… LACOTEC kornmylla PTO 540 ca. 10 t/klst…………. Ávinnsluherfi (slóðar) 4 mt………………………………….. Gaspardo sáðvél með áburðarskamtara 3mt…….. Tonutti hjólrakstrarvélar 2,8mt – 6mt………………… Otma M/551 einskorinn brotplógur 58x63………….. Michelin traktors dekk 540/65 x 30……………………. Europower traktotrsrafstöðvar 38 kvA……………… Europower ferðarafstöðvar 1-1,7 kvA……………….. Kanadískir snjóblásarar 2,29mt………………………….. Haugsugudælur 6150-7000-8100-10490 l/min…. Niemeyer sláttuvélar, heytætlur, rakstrarvélar…… Skotbómulyftari með þrítengibeyzli og aflúttaki… Same traktor 135 hö. með ámoksturstækjum….. Crosmec 2,2mt. safnkassasláttuvél……………………. Trjáplöntustafir, bakkabelti og bakkahaldarar……… Lambhelt girðinganet og gaddavír………………………… O R K U T Æ K N I e h f. S ím i: 5 8 7 6 0 6 5 . Endurmenntunarnámskeið Skipulag beitar fyrir mjólkurkýr og geldneyti Ætlað ráðunautum Umsjón: Þóroddur Sveinsson tilraunastjóri Landbúnaðarháskóla Íslands á Möðruvöllum. Tími: Mán. 6. mars, kl. 10:00-18:00 á Hvanneyri. Verð: 16.600 kr. Málmsuða – grunnnámskeið Ætlað þeim sem hafa litla reynslu af málmsuðu. Kennari: Jóhannes Ellertsson vélvirki og kennari við Landbúnaðarháskóla Íslands. Tími: Þri. 7. mars, kl. 10:00-18:00 og mið. 8. mars, kl. 9:00-17:00 á Hvanneyri. Verð: 29.900 kr án efniskostnaðar (19.400 kr til bænda). SÉRSTAKUR UMSÓKNARFRESTUR TIL RANNSÓKNA- OG ÞRÓUNARVERKEFNA: Með vísan til a-liðar stefnumörkunarinnar hér að ofan hefur stjórn Framleiðnisjóðs ákveðið að auglýsa frest til 20. apríl 2006 til að leggja inn styrkumsóknir til rannsókna- og þróunarverkefna. Stefnt verður að því að ljúka afgreiðslu umsóknanna innan sex vikna frá þeim degi. Umsóknum skal skilað til skrifstofu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyri - 311 Borgarnes, á umsóknareyðublöðum sem þar fást. Umsóknareyðublöð fást einnig á skrifstofum búnaðarsambandanna og á heimasíðu sjóðsins, veffang: www.fl.is

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.