Bændablaðið - 24.02.2006, Page 29

Bændablaðið - 24.02.2006, Page 29
29Þriðjudagur 28. febrúar 2006 Á fundi Sauðfjárræktarfélags Álftaneshrepps í Borgarbyggð var samþykkt ályktun þar sem lýst er áhyggjum yfir að ekki skuli nást að hreinsmala á eðli- legum tíma á vissum svæðum í sveitarfélaginu. Guðrún Sigurðardóttir á Leiru- læk er formaður Sauðfjárræktarfé- lagsins. Hún sagði að bændur væru orðnir of fáir og höfuðborgarbúar, sem keypt hafa jarðir til að mynda í Norðurárdal og Stafholtstungum, smali ekki jarðir sínar. Einnig er erfitt að smala fjöllin og menn of fáir við smölun. Fyrir bragðið eru kindur að tínast til byggða fram eftir öllu hausti. Hún segir að hún hitti varla mann án þess að farið sé að tala um að svo og svo margar kindur hafi fundist á dögunum og hve margra sé saknað. Sauðfjárræktarfélagið sendi þessa ályktun sína til bæjarráðs Borgarbyggðar sem fjallaði um hana nýlega. Páll S. Brynjarsson bæjarstjóri sagði að í erindinu hafi einnig verið óskað eftir því að gerður yrði samningur milli Borg- arbyggðar og Dalabyggðar um samstarf við smölun. Bæjarráð vís- aði málinu til fjallskilanefndar Mýrasýslu og verður þetta eitt af síðustu málum sem hún fær til um- fjöllunar áður en stóra sameiningin á Vesturlandi tekur gildi í vor. Borgarbyggð Ekki næst að hreinsmala á eðlilegum tíma á vissum svæðum Aðalfundir búnaðar- sambanda Búnaðarsamband Suðurlands Aðalfundur Búnaðarsam- bands Suðurlands verður hald- inn í Félagsheimilinu á Flúðum föstudaginn 21. apríl næstkom- andi og hefst kl. 11.00 Aðalfundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar Aðalfundur Búnaðarsam- bands Eyjafjarðar verður hald- inn þriðjudaginn 11. apríl næst- komandi. Tillögur sem leggja á fyrir aðalfund skal skilað til stjórnar í síðasta lagi 31. mars. Í fréttabréfi BSE er auglýst er eftir tilnefningum til Hvatn- ingarverðlauna BSE árið 2005, en BSE veitir árlega viðurkenn- ingu fyrir sérstakt framtak í landbúnaði og/eða úrvinnslu landbúnaðarafurða. Viðurkenn- ingin getur verið fyrir vel unnin störf, athyglisverða nýjung eða einstakan árangur. Viðurkenn- inguna geta einstaklingar, félög og stofnanir hlotið. Tilnefning- um skal komið til fram- kvæmdastjóra. Aðalfundur BSSÞ Aðalfundur BSSÞ verður haldinn að Stöng í Mývatns- sveit laugardaginn 22. apríl og hefst kl. 10.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðal- fundarstörf. 2. Breyting á lög- um búnaðarsambandsins. Til- laga að breytingu verður send aðildarfélögunum. 3. Sam- kvæmt ákvörðun stjórnar BSSÞ á fundi hinn 19. janúar sl. fer fram á aðalfundinum kjör tveggja aðalmanna og tveggja varamanna til setu á Búnaðar- þingi næstu þrjú ár, nema að fram komi krafa um almenna kosningu frá að lágmarki 10% atkvæðabærra félagsmanna ekki síðar en 6 vikum fyrir að- alfund. Búnaðarsamband Austurlands Aðalfundur Búnaðarsam- bands Austurlands verður hald- inn laugardaginn 22. apríl. Fundarstaður hefur ekki verið ákveðinn en gert ráð fyrir að Reyðarfjörður verði fyrir val- inu. Dagskrá verður auglýst síðar. Búnaðarsamband Skagafjarðar Aðalfundur Búnaðarsam- bands Skagafjarðar verður haldinn mánudaginn 24. apríl. Fundarstaður hefur ekki verið ákveðin en hann og dagskrá fundarins verður auglýst þegar nær dregur.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.