Bændablaðið - 24.02.2006, Side 35

Bændablaðið - 24.02.2006, Side 35
35Þriðjudagur 28. febrúar 2006 Umhverfisráðuneytið hefur ákveðið að leggja fram, í ár og næstu tvö árin, aukið fjármagn til eyðingar minks á þremur sér- staklega völdum svæðum. Ráðu- neytið skilyrðir fjárveitinguna því að mynduð verði stór veiði- svæði sem hafi samvinnu um verkefnið. Jón Jónsson, formaður atvinnu- málanefndar Eyjafjarðar, sagði í samtali við Bændablaðið að verið sé að vinna að því að sveitarfélög- in á svæðinu frá Tröllaskaga að Jökulsá á Fjöllum taki upp sam- vinnu um veiðihætti og fleira varð- andi þetta verkefni. Þannig væri hægt að fá aukafjárveitingu til verksins. Mjög mikið er af mink í Eyja- fjarðarsveit og þá einkum með- fram Eyjafjarðará. Jón sagði að minkurinn fari illa með fuglalífið á svæðinu og bleikjuna í ánni. Tugir minka eru veiddir árlega í Eyja- fjarðarsveit, bæði í gildrur og eins eru notaðir minkahundar. Bjarni Kristinsson, bóndi á Rif- kelsstöðum, hefur séð um minka- veiðina í Eyjafjarðarsveit. Hann segist hafa náð um 60 minkum á síðasta ári en nokkuð erfitt sé að fást við veiðarnar vegna þess að mýrarnar eru illfærar. Meðfram ánni sé hins vegar betra að athafna sig og þar er töluvert um mink. Gildrur og hundar Hann segist nota bæði gildrur og hunda við veiðarnar. Á vorin segist hann fara í sérstaka leit með hund- ana og leggja gildrur. Svo segist hann fara aftur á haustin, þegar hvolparnir eru komnir á stjá. Hann segir að það þurfi að leggja mun fleiri gildrur en hann er með en þar sem hann hefur bara ákveðna upphæð til að spila úr get- ur hann ekki fjölgað gildrunum. „Það er mjög erfitt að nota gildrur á haustin því þær virka ekki þegar komið er frost og snjór. Sömuleið- is er hætta á að tapa þeim sem lagðar eru við ána því vatnsborð hennar er svo misjafnt. Þess vegna nota ég mikið hunda við veiðarn- ar,“ segir Bjarni. Aukið fjármagn til eyðingar á mink Hér má sjá veiðimenn við Eyjafjarðará - og annar þeirra er búinn að setja í fisk sem spriklar í ánni. Bjarni á Rifkelsstöðum segir talsvert af mink meðfram Eyjafjarðará. Kaupfélag Króksfjarðar óskar eftir tilboðum í fjárflutninga fyrir haustið 2006 Fjárbíllinn þarf að geta flutt a.m.k. 250 fjár og hann þarf að standast reglugerðir landbúnaðarstofnunar. Til greina kemur leigja bíla án bílstjóra. Tilboð sendist til: Kaupfélags Króksfjarðar 380 Króksfjarðarnes Eða hafið samband við Magnús í síma 434-7702/899-2938

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.