Bændablaðið - 12.12.2006, Page 23
23Þriðjudagur 12. desember 2006
Árlegur jólaþemadagur var
haldinn í Grunnskóla Mýrdals-
hrepps nú fyrir skömmu og var
margt um manninn og heilmikil
jólastemning. Sú hefð hefur skap-
ast í skólanum að starfsfólk hans
undirbýr vinnu á fjölbreyttum
verkstæðum og nemendur bjóða
foreldrum og systkinum, öfum
og ömmum með sér í skólann,
en í raun eru allir velkomnir til
að taka sameiginlega þátt í und-
irbúningi jólanna. Öllum þykir
notalegt að eiga góða samveru-
stund skömmu fyrir jól, sitja
saman í rólegheitum og vinna að
ýmsum verkefnum sem tengjast
jólunum. Fyrir skólanum vakir,
að sögn Kolbrúnar Hjörleifsdótt-
ur skólastjóra, að stuðla að nánu
samstarfi við fjölskyldurnar og
skapa vettvang til að fólk á öll-
um aldri geti komið saman til að
njóta uppbyggilegrar samveru.
Skólanum var breytt í svonefnd-
an Grýluhelli á meðan á þemadeg-
inum stóð og honum var skipt upp í
ýmsar stöðvar. Þannig var verið að
grúska og bralla eitthvað skemmti-
legt í hverju horni. Laufabrauðs-
bakstur stóð yfir við hlóðirnar og
þar höfðu þeir góðu sveinar, Potta-
skefill og Þvörusleikir, verkstjórn
með höndum og fórst vel úr hendi.
Þá var boðið upp á að útbúa eigin
jólakort og saumakonur Grýlu voru
í óðaönn að föndra úr filti en Gilja-
gaur bauð upp á leiðsögn í vinnu
með trjábúta, hvernig hægt er að
hagnýta þessa afurð skógarins til
jólaskreytinga. Völustakkur og
Bóla voru ekki langt undan, en þau
buðu upp á ýmsar stærðir og gerð-
ir af steintröllum sem skreytt voru
á fjölbreyttan hátt. Þrautahringur
var settur upp niðri við læk og þar
voru það bræðurnir Hurðaskellir
og Stekkjastaur sem sýndu hvað
í þeim býr, en á dekurstofu Grýlu
var norrænt þema, ívafið sænskt
og færeyskt, og þar gátu þátttak-
endur slakað á og hlýtt á upplestur
eða tónlist.
Tinna Elíasdóttir, Guðmundur Elíasson, Björk Smáradóttir og Vilborg
Smáradóttir niðursokkin í vinnu sína. Það er Svanhvít Sveinsdóttir sem
aðstoðar börnin við laufabrauðsgerðina.
„Við vissum auðvitað ekkert
hvernig viðtökurnar yrðu og vor-
um því hálfhissa á því að við höfð-
um bara ekki undan, ísinn rann
út eins og heitar lummur,“ segir
Guðrún Egilsdóttir í Holtsseli, en
hún og eiginmaður hennar, Guð-
mundur J. Guðmundsson, tóku
í notkun ísgerðarvél heima á búi
sínum á liðnu sumri. Þau hafa
tekið þátt í verkefninu „Beint frá
býli“ sem hrundið var af stað vor-
ið 2005 en í því er lögð áhersla á
að fullunnar afurðir verði á boð-
stólum heima á búunum án allra
milliliða.
Í allt sumar og fram á haust var
allt á fullu í ísgerðinni en auk þeirra
hjóna starfaði dóttir þeirra, Anna
Mjöll, við ísgerðina og líka frænka
hennar. „Við áttum dálítinn lager í
haust en hann er horfinn, þetta rýk-
ur út,“ segir Guðrún. Þau hófu end-
urbætur á húsnæðinu þegar liðið
var á haustið en hefjast svo handa
af krafti nú fyrir jólin. „Við ætlum
að prófa að bjóða upp á jólabúðing
auk íssins,“ segir Guðrún. Hægt
er að velja milli 400 uppskrifta
við ísgerðina og allar hugsanlegar
bragðtegundir. Ein þeirra sem þau
voru að prófa nú nýlega var epla-
og kanilís með rúsínum. „Það er
jólalegur ís og alveg ágætur.“
Ísinn er eingöngu búinn til úr
mjólk og rjóma og í honum eru
engin aukaefn. „Engin E-efni og
svoleiðis drasl, svo hann er eins
náttúrulegur og hægt er að hugsa
sér,“ bætir hún við. Það virðist
falla í kramið hjá landanum. „Það
er allir brjálaðir í þetta,“ segir Guð-
rún. Áður en þau hófust handa
hafði þeim verið bent á að líklega
þyrftu þau að verja um tíu milljón-
um króna í auglýsingar, „en höfum
ekki eytt einni einustu krónu,“ seg-
ir hún. Varan selur sig sjálf og mik-
ið var um það í sumar að fólk kom
heim á bæ til að kaupa ísinn og auk
þess er Holtsel orðið vinsæll við-
komustaður íbúa á Akureyri; þang-
að streymir fólk í óvissuferðum
vinnustaða, félagasamtök leggja
þangað leið sína og þannig mætti
lengi telja. Þau hafa því tekið á
móti fjölda fólks sem fengið hefur
að smakka og svo vel líkar varan
að Holtsselshnossið, eins og vöru-
merkið þeirra nefnist, rennur út.
Nóatún hefur pantað 500 lítra
fyrir jólin og þeir verða seldir í
sérstöku sælkerahorni í Smáralind,
en Holtsselsísinn er markaðssettur
sem gæðavara.
„Við höfum í raun ekki undan,
við erum auðvitað að reka hérna
kúabú, erum með 60 mjólkandi kýr.
Ég hugsa að þetta gæti orðið ágætt
ef að þessu stæðu tvær fjölskyld-
ur,“ segir Guðrún en nú í vetur eru
tvær sænskar stúlkur á bænum til
aðstoðar og hafa þær verið liðtækar
í ísframleiðslunni milli mjalta.
Þær sökktu sér ofan í vinnu sína, þær Guðlaug Lilja Sævarsdóttir og Krist-
ín Erla Benediktsdóttir.
Holtsselsísinn þykir mikið hnossgæti, hér setur Guðmundur ís í pakkn-
ingu.
Jólastemning í Grunnskóla Mýrdalshrepps
Njóta uppbyggilegrar samveru
Holtsselshnossið rennur út eins og heitar lummur!
Það eru allir brjálaðir í þetta
Tvær sænskar stúlkur vinna á Holtsseli í vetur, þær Sofie og Malin sem hér eru með þeim hjónum, Guðrúnu og
Guðmundi.
Hjónin í Holtsseli, Guðrún Egilsdóttir og Guðmundur J. Guðmundsson.