Bændablaðið - 01.04.2008, Qupperneq 14
Bændablaðið | Þriðjudagur 1. apríl 200814
Það er mikill og vaxandi áhugi
á því meðal bænda að fram
leiða ýmsar vörur og selja beint
frá býli. Eymundur Magnússon,
bóndi í Vallanesi á Héraði, er
frumkvöðull í því að mark
aðssetja afurðir sínar sjálfur
undir eigin vörumerki og hefur
stundað það í meira en 20 ár.
Bændablaðið ræddi við hann um
bygg sem hann pakkar í neyt
endaumbúðir, ásamt fleiru, og
selur til manneldis undir merk
inu Móðir jörð.
„Ég er bæði með bankabygg,
sem er heilt, slípað bygg, og svo
byggmjöl. Ég hefur verið að kenna
fólki að nota bankabygg í pottrétti,
grauta, súpur og salöt, sem með
læti með öðrum mat, sem heilkorn
í brauð og sem byggmjöl í bakst
ur og eins er gott að nota það sem
rasp til að steikja upp úr. Við fram
leiðum einnig tilbúna, frysta rétti;
baunabuff, byggbuff, rauðrófubuff
og byggsalat/tabúle, allt úr lífrænt
ræktuðu hráefni,“ segir Eymundur.
Megnið af hráefninu er lífrænt
ræktað í Vallanesi, svo sem banka
bygg, kartöflur, rófur, hnúðkál,
rauðrófur, hvítkál, púrra og stein
selja. Aðfengið efni, eins og krydd
og baunir, er líka ræktað á vottaðan,
lífrænan hátt. Hjá Móður jörð eru
einnig framleiddar þrjár tegundir
af húðolíum og nefnast þær lífolía,
birkiolía og blágresisolía.
Jurtaeldhúsið
Eymundur kallar eldhúsið sitt
Jurtaeldhúsið og er um þessar
mundir með fimm konur í vinnu við
að framleiða buff, því nú er buff
törn, en allt er unnið í törnum hjá
Móður jörð. Eymundur segir mark
aðinn ekki svo stóran að um gang
andi verksmiðju geti verið að ræða.
Hann segist framleiða inn á lager
og þegar lagerinn fari að minnka
hefjist ný törn við framleiðsluna.
„Ég hef verið að kenna þjóð
inni að borða bygg í ein 15 ár. Það
var dálítið erfitt í byrjun og fólk
spurði: ,,Er þetta ekki bara handa
svínum?“, og þótti það rosalega
fyndið. Nú eru breyttir tímar og
allir vilja borða bygg, enda hefur
verið sýnt fram á þá miklu hollustu
sem því fylgir. Ég er stundum með
kynningar í verslunum í Reykjavík
og gef fólki að smakka á buff
unum og bygggraut, sem ég kalla
Morgungraut Gabríels og nýtur
vaxandi vinsælda. Fyrst þegar ég
var með þessar kynningar var fólk
hálf tregt til að prófa. En smátt
og smátt kom þetta og nú er fólk
ekki eins tortryggið, hefur mikinn
áhuga og smakkar hjá mér. Margir
segjast vera farnir að nota banka
bygg alfarið í stað hrísgrjóna. Það
er staðreynd að bygg og byggmjöl
er mjög gott fyrir magann og melt
inguna og fólk finnur það strax,“
segir Eymundur.
Eymundur ræktar allt byggið
sjálfur og aðspurður, hvort hann
gæti ekki lent í erfiðleikum ef kæmi
mjög vont sumar til korn og bygg
ræktar, svarar hann á þessa leið:
„Takmarkið hjá mér er að eiga alltaf
tveggja ára birgðir, og bygg geym
ist mjög vel. Það er til að mynda
notað af fornleifafræðingum við
aldursgreiningu í rústum. Eftir alla
þá vinnu og peninga sem ég hef sett
í markaðssetningu, þá má ég alls
ekki missa ár úr,“ segir Eymundur
Magnússon.
S.dór
Guðni Einarsson, bóndi í Þóris
holti í Mýrdal, segist telja víst að
hagur þeirra, sem stundi lífræna
ræktun, hljóti að batna við hinar
miklu verðhækkanir á tilbúnum
áburði sem átt hafa sér stað í
vetur og ekki er víst að sjái fyrir
endann á. Guðni býr félagsbúi
með Grétari bróður sínum. Þeir
hafa í mörg ár verið stórtæk
ir í gulrófnarækt en voru líka
með sauðfé og kýr og var sauð
fjárrækt þeirra lífræn ræktun.
Guðni segir þá hafa fargað fé
sínu í haust er leið, en bendir á
að landið sem sauðféð hafi verið
á sé enn lífrænt vottað. Hvorki
kýrnar né gulrófnaræktin hafa
lífræna vottun.
Ástæðan fyrir því að þeir förg
uðu öllu sínu fé var sú, að þeir
ætla að auka gulrófnaframleiðsl
una í framtíðinni. Aðspurður hvort
hann telji mögulegt að fara með
gulrófnaræktina út í lífræna ræktun
segist Guðni telja það mjög erfitt,
en það sé samt hægt og sjálfsagt
hugsi menn sig um ef áburðarverð
haldi áfram að hækka.
„Svo er það spurning hvort
ríkið er tilbúið til að styðja eitt
hvað við þessa búgrein eins og
aðrar. Við höfum vissulega verið
að kalla eftir slíkri aðstoð og því,
að einhver hluti þess fjár sem fer til
landbúnaðarins fari til þessa geira
sem gulrófnaræktin er. Þetta hafa
Norðmenn gert og kallað aðlög
unarstuðning. Þá gætu menn farið
út í þessar grænu greiðslur, þar sem
bæði er greitt fyrir land og gripi. Þá
er ég viss um, að fleiri væru tilbúnir
til að fara út í lífræna ræktun,“ segir
Guðni Einarsson.
S.dór
Bygg – Ottó
3 dl bankabygg
1 msk. jurtasalt
150300 ml sólþurrkaðir tóm
atar
34 msk. grænt pestó
9 dl vatn
Aðferð:
Byggið er soðið með jurtasalti
í u.þ.b. 40 mínútur, eða þá 15
mínútur t.d. að kvöldi, því næst
slökkt undir og látið standa á
hellunni yfir nóttina.
Þegar byggið er soðið eru
tómatarnir skornir smátt og
þeim blandað í ásamt pestóinu.
Borið fram heitt eða kalt,
sem meðlæti með öllum mat
eða létt máltíð.
Morgungrautur
Gabríels
5 dl bankabygg
20 dl vatn
2 epli, skorin í litla teninga
12 dl rúsínur
1 msk. kanill
2 tsk. salt
12 dl fræ eftir smekk, t.d.
sólblómafræ og/eða gras
kersfræ
(+ 2 tsk. hunang og 1 dl döðlur
fyrir sælkerana)
Aðferð:
Hráefnið er allt sett í pott, t.d.
að kvöldi og látið sjóða í u.þ.b.
5 mínútur, síðan slökkt undir,
lokið sett á pottinn og farið að
sofa. Að morgni má hita graut
inn upp en þó er ekki síðra að
borða hann kaldan, t.d. með
mjólk eða nota sem múslí á
súrmjólkina. Grauturinn þolir
vel geymslu í kæli, svo tilval
ið er að sjóða hann til nokkurra
daga í einu.
Eymundur Magnússon, bóndi í Vallanesi á Héraði
„Er þetta ekki bara handa svínum?“
– spurði fólk, þegar ég byrjaði með byggframleiðsluna og bauð
fólki til matar
Guðni Einarsson, bóndi í Þórisholti í Mýrdal:
„Hagur þeirra sem stunda lífræna ræktun hlýtur að batna
– þegar verð á tilbúnum áburði hækkar svona mikið“
Nýtt merki fyrir
lífrænar vörur
í ESB
Evrópusambandið hefur tekið
upp nýtt merki fyrir lífræn mat
væli, sem framleidd eru í lönd
um sambandsins. Skylda verður
frá og með næstu áramótum að
nota merkið á slík matvæli, en
jafnframt verður aðildarlönd
um frjálst að nota einnig eigin
merki.
Landsbygdens Folk
Lífolían er mjög góð nuddolía;
djúpvirk, bólgueyðandi og hreins
andi.
Hún er góð fyrir vöðva, liði
og gegn bjúg og sérlega góð fyrir
sogæðakerfið.
Ófrískar konur með bjúg á
fótum hafa góða reynslu af líf
olíunni og er besta aðferðin sú
að rétta karlinum lífolíuflösku og
fæturna á eftir. Auk þess að gera
konunni gott fá karlarnir við þetta
mjúkar hendur.
Lífolían er mýkjandi og græð
andi og hentar vel á skorpna og
sprungna húð, t.d. á fótum, en
gott er að bera hana á þreytta
fætur eftir langan vinnudag.
Einnig er gott að nota hana á
viðkvæma húð eftir rakstur.
Lífolían hefur verið notuð með
góðum árangri á sauma eftir upp
skurð til að fyrirbyggja ofholdg
un.
Birkiolían er mýkjandi og græð
andi og góð fyrir þurra húð,
barnaexem, unglingabólur og
kláða. Hún hefur mild, slakandi
áhrif og er því tilvalin á maga
og brjóst verðandi mæðra til að
mýkja húðina, sem bossakrem
á bleiubörnin og til ungbarna
nudds.
Birkiolían er alhliða mýkjandi
og græðandi olía á allan líkam
ann og tilvalið að taka hana með
til sólarlanda til að næra húðina
eftir sólböð.
Blágresisolían hefur reynst vel
á mjög þurra húð, psoriasis, sól
arexem og viðkvæma slímhúð,
svo sem kynfæri og endaþarm.
Hún er bólgueyðandi og góð til
að styrkja og byggja upp húð
ina, hefur verið notuð við vægri
sveppasýkingu og til að byggja
upp slímhúðina eftir lyfjameð
ferð.
Blágresisolían er mjög nær
andi og sérlega góð fyrir andlitið
eftir mikla útiveru.
Það er mjög mikilvægt nú á
tímum ofnæmis og óþols að
neytendur geti treyst því að allar
framleiðsluvörur Móður jarðar
séu úr 100% lífrænt ræktuðu hrá
efni, en því til staðfestingar er öll
framleiðslan vottuð af vottunar
stofunni Túni.
Olíur frá Móður jörð í Vallanesi á Héraði
Leiðrétting
Mishermt var í myndatexta með
viðtali við Óskar Guðmundsson
sagnfræðing í síðasta Bændablaði
að Garðar sá sem flutti mjólk í
mjólkurstöðina við Snorrabraut
hafi verið eigandi jarðarinnar Múla
í Laugardal. Hann var ráðsmað
ur en eigandinn hét Guðmundur
Jónsson sem reisti bæinn Múla við
Suðurlandsbraut. Við biðjumst vel
virðingar á þessu.
Ábúendur í Þórisholti taka við Landbúnaðarverðlaununum á Búnaðarþingi,
talið frá vinstri: Sædís Eva Elíasdóttir, Grétar Einarsson, Halla Ólafsdóttir,
Guðni Einarsson og Einar K. Guðfinnsson landbúnaðarráðherra.
Það er blómlegt heim að sjá í Vallanesi. Hér er Eymundur Magnússon með dótturdóttur sína, Gígju Helgadóttur.
Lífrænræktuníbrennidepli