Bændablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 26
Bændablaðið | Þriðjudagur 1. apríl 200826 Kæru­lesendur, þótt úti sé enn heldur marga snjó­ skafla á að líta, í það minnsta hér Norðanlands, þá er það nú þannig að brátt gengur sá tími í garð, þegar hægt verður að hefjast handa við að nýta sér þær jurtir sem villt íslensk náttúra býður upp á. Margar þess­ arra jurta vaxa svo að segja í tún­ garðinum hjá okkur og það alveg sjálfar! Það eina sem við þurfum að gera er að skreppa í grasaferð, tína eða taka nokkrar þeirra og nýta okkur á heimilinu. Athuga þarf vel hvar gott er að ná í einstaka jurtir, hvenær um sumarið er best að taka þær og hvernig gott er að standa að því. Það er einnig mikilvægt að huga vel að þurrkun og geymslu jurtanna. Birki (Betula pubescens) er hægt að safna nærri allt sumarið, en best eru nýju og fersku blöðin sem er auðvitað allramest af fyrst á sumrin, en taka má ný blöð allt árið. Birkið vex um allt land og auðvelt að nálgast. Það er talið vera blóðhreinsandi, blóðþrýstingslækk­ andi og bjúgeyðandi. Það er mjög gott í te og virkar einnig ljómandi sem kryddjurt í matargerð. Bláberjalyng (Vaccinium ulig­ inosum) vex í móum og fjallshlíð­ um um allt land. Af þessarri jurt eru það ekki bara berin sem eru svo ljúffeng að hausti heldur einnig sætukopparnir að vori eða snemma sumars. Þeir eru þá teknir í maí eða júní og þurrkaðir eða notaðir fersk­ ir í te og salöt. Sætukopparnir gefa teblöndu sætan blómakeim sem er alveg yndislegur. Ég læt mig dreyma um að gera af þeim síróp einn daginn, eins og gert er með sæt blóm yllisins á meginlandi Evrópu. Blóðberg (Thymus praecox) er ein þeirra jurta sem fólk hér á landi hefur nýtt til lækninga og í mat­ argerð í margar aldir. Blóðberg vex nánast um allt land, helst á melum eða í þurru mólendi. Rétt er að týna það þegar litlu fjólubláu blómin eru útsprungin, en það er fyrri hluta sumars, í júní og júlí. Jurtin vex í jarðrenglum, sem liggja nokkuð þétt að jörðinni. Gæta verðu að því við tínslu að slíta ekki upp heilu blóðbergsjurtirnar, heldur klippa, skera eða klípa varlega eina og eina grein af hverri jurt. Þetta á reyndar við um fleiri jurtir. Tekin eru bæði blóm og blöð blóðbergsins. Það er sérlega gott í te, eitt og sér en einnig með öðrum jurtum eins og vallhumli og mjaðurt. Það er talið lækna lungnamein og magakveisur. Blóðbergið er auðvitað frábært á lambasteikina og sem krydd í fleiri rétti, svo sem indverska lambarétti, á silung og í grænmetisrétti. Mjaðjurt (Filipendula ulm­ aria) vex aðallega á Suðvesturhorni landsins en einnig á hlýrri stöðum annars staðar á landinu, enda frekar hitakær jurt. Mjaðurtin kýs rakan jarðveg og er því helst að finna þar sem því er fyrir að skipa eins og við lækjarbakka og í mýrum. Jurtin er tekin í fullum skrúða, þegar hvít­ ir blómskúfarnir teygja sig allt að meter upp í loftið. Þá er besta að skera heilu jurtirnar úr breiðunum og safna þeim saman í vendi. Þetta er gert seinni hluta sumars, en mjaðurtin blómstar í júlí til ágúst. Hún er frábær tejurt og margra meina bót þegar kemur að verkjum og krömpum. Þá eru notuð bæði blöðin og blómin sem hafa verið þurrkuð, en ekki stönglarnir. Skarfakál (Cochlearia officinal­ is) er fjörujurt og því helst að finna milli kletta og klappa í sjávarkamb­ inum víða um land. Af skarfakál­ inu eru blöðin tekin eftir að jurtin hefur blómstrað snemma sumars, í maí og júní. Þau eru notuð fersk í salöt en einnig þurrkuð og gerð af þeim urtaveig. Skarfakálið er afar C­vítamínríkt. Vallhumall (Achillea millefoli­ um) er ein helsta villta nytjajurtin okkar. Hann vex mjög víða um land í frekar þurrum jarðvegi. Gæta þarf við söfnun að jurtirnar séu nægi­ lega hreinar og ómengaðar því vall­ humallinn vex gjarnan í vegköntum og við mannabústaði. Vallhumli er best að safna fyrri hluta sumars þegar hann er í blóma og eru þá heilu jurtirnar teknar úr breiðum og þær þurrkaðar í vöndum, líkt og með mjaðjurtina. Vallhumallinn er þekkt alhliða lækningajurt og er meðal annars notuð í græðissmyrsl á sár og útbrot. Hann er fín tejurt og er góður ásamt blóðberginu og birkinu á lambasteikina, en einnig í kartöflurétti. Það hefur töluvert að segja að standa vel að söfnun jurtanna og umgangast þær af virðingu á þeirra heimaslóðum. Passa þarf vel upp á að taka ekki of mikið af sömu jurt á litlu svæði, heldur tína smá hér og aðeins þar. Mikilvægt er að tína jurtir í taupoka eða ílát sem loft­ streymi er um og henta plastpoka illa. Jurtirnar eru svo þurrkaðar um leið og heim er komið (eða í sumar­ bústaðinn). Þá er þeim dreift á tau­ klúta á borði eða hillu eða hengd­ ar upp sem vendir þar sem ekki er fengist við matargerð. Þurrkunin tekur tíu daga til þrjár vikur, eftir tegundum og auðvitað verða jurt­ irnar að vera orðnar skraufþurrar áður enn þær eru settar í krukkur til geymslu. Þær eru svo geymdar á skuggsælum stað og nýttar sem fyrst. Kristín Þóra Kjartansdóttir sagnfræðingur og garðyrkjunemi kristinkj@gmx.net Gróður og garðmenning Nú er góður tími til að ganga­ í­ skógræktarfélag­ eða önnur slík samtök og láta þann­ ig gott af sér leiða í þágu rækt­ unar í landinu. Skarfakálið er gömul íslensk nytjajurt. Skarfakálsbreiður vaxa víða við sjávarsíðuna. Hér sést ein slík á klettabrún í Grímsey innan um lundaholur. Villtar íslenskar jurtir nýttar til heimilishalds Leiðrétting á myndatexta. Í myndatexta með mynd af handhöfum Landbúnaðarverðlaunanna 2008 sem birt var í síðasta blaði varð nokkur ruglingur á nöfnum. Myndin er því birt hér aftur og vonandi rétt röð á verðlaunahöfum. Talið frá vinstri eru á myndinni hjónin Guðni Einarsson og Halla Ólafsdóttir og Grétar Einarsson og Sædís Íva Elíasdóttir, öll frá Þórisholti í Mýrdal, Þórður Jónsson og Ása Björg Stefánsdóttir, Árbæ í Reykhólasveit, Sigfríður Magnúsdóttir frá Stað í Reykhólasveit og að baki henni sér í eiginmanninn Eirík Snæbjörnsson. Þá kemur Einar Kr. Guðfinsson landbúnaðarráðherra og honum á vinstri hönd eru hjónin tvenn í Möðrudal á Efra Fjalli: Vilhjálmur Vernharðsson og Elísabet Kristjánsdóttir, Anna Birna Snæþórsdóttir og Vernharður Vilhjálmsson. Við biðjumst velvirðingar á þessum mistökum. Blóðsermi sem sprautað er í nýfædd lömb, og er gegn lamba­ blóðsótt, sem er baktería í görn­ um lambanna og fer að mynda eiturefni þar ef ekki er bólusett gegn þessu. Nú er blóðsermi að mestu að hverfa og nýtt bóluefni notað í staðinn en því er sprautað í ærnar skömmu fyrir burð. Eggert Gunnarsson, dýralækn­ ir á Keldum, sagði að það færist í vöxt um allan heim að bólusetja frekar ærnar og láta þær framleiða mótefni sem þær skila svo yfir í ófædd lömbin frekar en að nota sermi. Aðferðin við að búa það til hefur mætt aukinni andstöðu. Hrossablóð Efnið sem ærnar eru nú bólusettar með er unnið úr sýklum sem mynda mótefni og kallast Blandað bóluefni gegn lambablóðsótt, bráðapest og garnapest og eru ærnar bólusettar einu sinni eða tvisvar fyrir burð. Eggert segir að þeir hafi í vetur framleitt lítið eitt af blóðsermi til að nota í neyð hafi bændur ekki bólusett ærnar. Til þess að framleiða sermi þarf að sprauta ákveðnum eiturefnum sýkla í hross. Þau framleiða þá mótefni og síðan er tekið úr þeim blóð og sermi er unnið úr hrossa­ blóðinu. Þetta hefur verið notað til að sprauta lömb en ókosturinn við þetta er að það þarf að sprauta þau alveg nýfædd þannig að það getur verið æði erfitt um miðjan sauð­ burð. Eggert segir það líka mun hagkvæmara að sprauta bara ærnar fyrir burð og láta þær skila efninu til lambanna. Óhagkvæmt Hann segir að þeir á Keldum séu að mestu hættir að framleiða blóð­ sermi enda sé sú framleiða mjög óhagkvæm á margan hátt. Það þurfi að vera með hross í þessu, sprauta þau reglulega og taka úr þeim blóð. Frá dýraverndarsjónarmiði er óþarfi nú orðið að nota dýr til svona fram­ leiðslu þegar hægt er að gera þetta öðruvísi. Sumir halda því fram að ef menn hafi hvorki þetta bóluefni fyrir ærnar né blóðsermi geti AB mjólk komið að gagni. Eggert segir að AB mjólkin geti aldrei komið í stað þessara efna en hún geti gert eitthvert gagn. S.dór Blóðsermi er aðeins notað í neyðartilfellum Blandað bóluefni gegn lambablóðsótt, bráðapest og garnapest er nú notað til bólusetningar á ánum fyrir burð Áskorun Hér með er skorað á þá, sem hafa tekið að sér bólusetningu ásetningslamba gegn garna­ veiki og ekki hafa gert skil á bólusetningarskýrslum til réttra aðila, að gera það strax og láta vita um fjáreigendur á svæði sínu, sem ekki hafa enn látið bólusetja. Það er hægt að útrýma garnaveiki úr landinu, ef engin vanræksla á sér stað varð­ andi bólusetninguna. Vanskil á skýrslum getur tafið það að hægt verði að hætta bólusetn­ ingu á viðkomandi svæði. Sigurður Sigurðarson dýralæknir

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.