Bændablaðið - 01.04.2008, Síða 17
Bændablaðið | Þriðjudagur 1. apríl 200817
Landbúnaðarsafn Íslands hefur
opnað nýja heimasíðu, www.
land bunadasafn.is Land bún að
ar safnið er sjálfseignarstofnun
sem hefur tekið við starfi Bú véla
safnsins á Hvanneyri. Heimasíða
Landbúnaðarsafnsins leysir af
hólmi heimasíðu Búvélasafnsins
sem haldið hefur verið úti í hart
nær 10 ár. Hafði hún eignast
drjúgan hóp tryggra lesenda.
Fyrirtækið Vélaver hf., eitt þekkt
asta þjónustufyrirtæki landbúnaðar
ins um langt árabil, hefur veitt safn
inu mikilvægan stuðning við gerð
hinnar nýju heimasíðu. Síðan er
vistuð hjá Nepal í Borgarnesi sem
einnig hefur annast gerð hennar.
Á heimasíðu Landbúnaðarsafns er
að finna fréttir af safninu og ýmsan
fróðleik um það á svipuðu formi
og var á hinni eldri síðu. Myndefni,
bæði almenns eðlis og af safngripum,
hefur verið aukið og endurbætt.
Helsta nýjungin á nýju heima
síðunni er Vefritið Plógur sem
Landbúnaðarsafn hleypir nú af
stokkunum. Vefritinu er ætlað að
vera vettvangur greina og annars
efnis um íslenska búnaðarsögu eða
viðfangsefni tengt henni. Vefritið
á að varðveita og miðla lýsandi,
greinandi, fræðandi og skemmtandi
efni um einkenni, þróun og stöðu
íslensks landbúnaðar á ýmsum
tímum og á ýmsum svæðum.
Vefritið kemur út eftir efnum
og ástæðum. Efni ritsins verður
eingöngu birt þar. Eftir ástæðum og
því, sem við á, er þó gert ráð fyrir
að efni þess birtist á öðru formi, t.d.
prentað. Það er Landbúnaðarsafni
sérstakur heiður að fyrsta grein
vefritsins er eftir einn helsta fræði
mann og fræðara bænda á tuttug
ustu öld – hann Magnús Óskarsson
frá Hvanneyri. Grein Magnúsar
fjallar um engjarækt og áveitur.
Þá er tekið í notkun merki
Landbúnaðarsafns Íslands. Merkið
vann Berglind Gunnarsdóttir,
grafiskur hönnuður á Akureyri,
eftir hugmyndum vinnuhóps.
Meginhluti merkisins er vagnhjól,
sem bæði á að minna á hina eilífu
hringrás sem landbúnaðurinn er
og á þá sífelldu þróun greinarinn
ar sem hjólið í sínum fjölmörgum
myndum – stórum og smáum –
hefur átt hlut að.
Annars er ekki ástæða til þess að
fjölyrða um hina nýju heimasíðu:
Lesendur eru hvattir til þess að
kíkja á hana og nota sér eftir þörf
um og hætti. Fróðlegt væri líka að
heyra frá lesendum bæði um efni
síðunnar og form hennar.
Bjarni Guðmundsson
Hvanneyri s. 433 5000 / 894 6368
Gúmmívinnslan á Akureyri tók nýverið yfir allan
rekstur Alorku í Reykjavík, sem er ört vaxandi fyrir-
tæki sem hefur sérhæft sig í sölu á hjólbörðum og
flutningatækjum. Í kjölfarið var ákveðið að sameina
alla hjólbarðasölu og hjólbarðaþjónustu félagsins
undir nafni og vörumerki Alorku.
Með þessum breytingum verður til eitt öflugasta
félag landsins á sviði hjólbarðaþjónustu. Alorka er
með starfsstöðvar á Akureyri og í Reykjavík og
býður breiða vörulínu af hjólbörðum fyrir flestar
gerðir farartækja. Hjólbarðaverkstæði Alorku að Rétt-
arhvammi 1 á Akureyri og Tangarhöfða 15 í Reykja-
vík hafa á að skipa traustum fagmönnum með mikla
reynslu.
Gúmmívinnslan verður áfram í fullum rekstri en mun
fyrst og fremst sjá um framleiðslu á sóluðum hjól-
börðum og ýmsum vörum úr endurunnu gúmmíi.
Þessar breytingar gera okkur kleift að veita enn betri
þjónustu og meira vöruúrval á samkeppnishæfu
verði. Þannig viljum við styrkja tengsl okkar við
núverandi viðskiptavini ásamt því sem við bjóðum
nýja viðskiptavini velkomna í hópinn.
Réttarhvammi 1 • Akureyri • Sími 464 7900
Tangarhöfða 15 • Reykjavík • Sími 577 3080
Vagnhöfða 6 • Reykjavík • Sími 577 3080 www.alorka.is
Alorka er nafnið á sameinuðum félögum Gúmmívinnslunnar
og Alorku á sviði hjólbarðaþjónustu
Alorka er umboðsaðili á Íslandi fyrir:
Fljótandi vítamín
með seleni
TRANOL 16%
Efnainnihald:
Leiðbeiningar:
A-Vítamín
D3-Vítamín
E-Vítamín
E-Vítamín
Selen
3200 IE/g
320 IE/g
11200 mg/kg
10182 mg/kg
20 mg/kg
Kýr
Kálfar
Kindur
Gyltur
Grísir
Hestar
25 ml/dag
7 ml/dag
7 ml/dag
10 ml/dag
3 ml/dag
10 ml/dag
Geymið á köldum og dimmum stað
20
Korngörðum 5 104 Reykjavík
Sími: 540 1100
ATHUGIÐ!
Röng notkun selens
getur leitt til eitrunar( )
tranol5litra.pdf 5.3.2008 15:43:13
Starfsmenntanám
· Blómaskreytingar
· Búfræði
· Garðyrkjuframleiðsla
· Skógur og umhverfi
· Skrúðgarðyrkjubraut
www.lbhi.is
Háskóli
lífs og lands
Umsóknarfrestur um skólavist
er til 4. júní
Landbúnaðarsafn Íslands:
Ný heimasíða – nýtt vefrit – nýtt merki
Þéttbýlið í Hörgárbyggð heitir
Lónsbakki, samkvæmt nýlegri
ákvörðun sveitarstjórnar, en til
laga um það kom frá skipulags
og umhverfisnefnd sveitarfélags
ins. Þéttbýlið nær yfir göturnar
Skógarhlíð og Birkihlíð, ásamt
Lóni, Lónsá, Berghóli I og II,
Húsasmiðjulóðinni, lóð Þórs og
DNGhúss og lóð leikskólans
Álfasteins.
Svæðið með íbúðagötunum hefur
ýmist verið nefnt Spyrnuhverfi,
Skógarhlíð eða Skógarhlíðarhverfi,
en flestar atvinnulóðirnar hafa verið
kenndar við Lónsbakka. Nú hefur
sem sé verið ákveðið að allt svæðið
fái heitið Lónsbakki. Hagstofunni
hefur verið tilkynnt um þessa nafn
gift og er þess vænst að hún festist
í sessi. Frá þessu er skýrt á heima
síðu Hörgárbyggðar.
Þéttbýlið heitir Lónsbakki