Bændablaðið - 01.04.2008, Page 19
Bændablaðið | Þriðjudagur 1. apríl 200819
Fr
u
m
Vélfang – Notaðar vélar
Nánari upplýsingar veita sölumenn okkar
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200 • www.velfang.is • velfang@velfang.is
VERKIN TALA
Case MXU 110pro
Árg: 2006
Notkun: 900 vst.
Stærð: 110-137 hö
Búnaður: Ámoksturstæki
DEUTZ FAHR
AGROTRON 110
Árg: 2007
Notkun 500 vst.
Búnaður: Ámoksturst,
3 vökvamilligírar
og vökvavendigír.
Ford 6640
Árg: 1996
Notkun: 4.000 vst.
Stærð: 85 hö
Landini Gibli 100
Árg: 2001
Notkun: 1.100 vst.
Stærð: 100 hö
Búnaður: Trima
John Deer samstæða
Árg: 2006
Notkun: 6.700 rúllur
Case 895 XL
Árg: 1993
Notkun: 3.900 vst.
Stærð: 85 hö
Búnaður: Vökvamilligír
MacHale 991BE
Árg: 1999
Búnaður: Barkastýrð
Conor pökkunarvél
Árg: 2003
Búnaður: 75 cm barkastýrð
og teljari
Case 4240 XL
Árg: 1995
Notkun: 2.706 vst.
Stærð: 82 hö
Búnaður: Vetö FX-16
Iveco Euro
120E23 R/FP vörubíll
Notkun: 250.000 km.
Árgerð: 1997
Framkvæmdir við gerð Héðins
fjarðarganga eru í fullum gangi,
en þeim áfanga var náð að kveldi
föstudagsins langa að bormenn
sprengdu síðasta haftið í göng
unum, þ.e. þeim hluta þeirra
sem liggur frá Siglufirði og út í
Héðinsfjörð. Ólafsfjarðarmegin,
frá Ólafsfirði og í Héðinsfjörð
hefur gengið hægar, en þar hefur
vatnsagi gert mönnum lífið leitt
og gerir að verkum að hægar
gengur þar sem vinna þarf við
bergþéttingar. Sá hluti ganganna
er nú rétt um 3 kílómetrar að
lengd.
Björn A. Harðarson hjá GeoTek
ehf. sem hefur umsjón og fram
kvæmdaeftirlit með framkvæmdum
fyrir Vegagerðina segir að menn
hafi vissulega fagnað því að kom
ast út í Héðinsfjörð, það sé merkur
áfangi í verkinu. Ekki fékkst leyfi
til að sprengja á móti bormönnum
úr Héðinsfirði, þannig að farið var í
eina átt og segir Björn það nokkuð
sérstakt en allt gengið að óskum.
Björn segir að framkvæmdir við
verkið hafi gengið mjög vel og ekk
ert óvænt komið upp á enn. Aðstæður
séu almennt mjög hagstæðar en
til að mynda hafi hiti í göngunum
frá Siglufirði verið mjög góður,10
til 15 gráður. Það megi þakka
nálæg við hitasvæði Siglfirðinga í
Skútudal. Kaldara er hins vegar á
þeim sem starfa við sprengingarnar
í Ólafsfjarðarhluta ganganna þar sem
hitans nýtur ekki við.
Búist er við að töluverðan tíma
taki að ganga frá munnanum í
Héðinsfirði og gera hann örugg
ann en þegar því lýkur munu gest
ir streyma til Siglufjarðar og taka
þátt í formlegu gegnumslagi með
mikilli viðhöfn. Bormenn munu
svo innan tíðar hefja undirbúning
að gangasprenginum í austurhlíð
Héðinsfjarðar og sprengja sig á
móti þeim sem koma frá Ólafsfirði.
Hafist var handa við fram
kvæmdir Héðinsfjarðarganna
haustið 2006 og er áætlað að verk
inu ljúki í lok árs 2009. Göngin
eru tvíbreið og í tvennu lagi,
3,7 kílómetrar frá Siglufirði til
Héðinsfjarðar og svo 6,9 kílómetr
ar úr Héðinsfirði til Ólafsfjarðar,
samtals um 11 kílómetrar að lengd.
Við alla gangamunna verða steyptir
vegskálar. Þá verður lagður vegur,
um 600 metra langur í Héðinsfirði
á milli gangaopanna og að auki nær
verkið einnig til lagningar vega að
göngunum frá báðum þéttbýlis
stöðunum
Verktakasamsteypan sem vinn
ur verkið er Metrostav í Tékklandi
og Háfell. Samsteypan átti lægsta
boð í verkið, um 5,7 milljarða
en áætlaður verktakakostnaður
Vegagerðarinnar var tæplega 6,5
milljarðar. Áætlaður heildarkostn
aður verksins með öllu er um 7
milljarðar. Þetta er stærsta einstaka
vegaframkvæmd sem Vegagerðin
hefur ráðist í.
Markmið með gerð Héðins
fjarð arganga er að bæta samgöng
ur, auka umferðaröryggi og tengja
Siglufjörð við Eyjafjarðarsvæðið
og styrkja þannig búsetu á svæðinu.
Með tilkomu ganganna styttist leið
in milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar
um 47 kílómetra, úr 62 kílómetr
um nú í um 15 kílómetra og er þá
miðað við að farið sé um Lágheiði,
en í þeim tilvikum sem hún er ófær
og aka þarf um Öxnadalsheiði og
Skagafjörð nemur stytting á leið
inni milli þéttbýlistaðanna tveggja,
Ólafsfjarðar og Siglufjarðar um
219 kílómetrum. MÞÞ
Góðum áfanga náð í gerð
Héðinsfjarðarganga
Fylgst með þegar síðasta haftið Héðinsfjarðarmegin er sprengt í burtu.
Hér að neðan má sjá stöðu framkvæmda um páskana, gulu línurnar sýna
hvert bormenn eru komnir, tæplega hálfnaðir með Ólafsfjarðarlegginn.
Glaðbeittir bormenn búnir að opna sér leið til Héðinsfjarðar.