Bændablaðið - 01.04.2008, Blaðsíða 21
Bændablaðið | Þriðjudagur 1. apríl 200821
www.bbl.is
Páskarnir eru nýliðnir og allir vel
úttroðnir af páskaeggjum og páska
lambi. Í mínum augum eru pásk
arnir orðnir að góðu og afslöppuðu
fríi. Það er ekkert endilega verið að
hafa of mikið fyrir því að hitta stór
fjölskylduna eða halda sig við ein
hverjar ákveðnar páskahefðir í mat.
Nema hvað varðar páskaeggin…
Týnt í pósti
Ég hef aldrei getað hugsað mér
pásk ana án þess að fá páskaegg
og að sjálfsögðu bara frá Nóa
og Síríusi. Eitt sinn dvaldist ég í
Þýska landi yfir páskana og bað
móður mína um að senda mér egg
út. Skemmst er frá því að segja
að páskaeggið skilaði sér aldrei til
Þýskalands og kom í leitarnar á
Ís landi um svipað leyti og ég kom
heim í sumarvinnuna. En í staðinn
fékk ég að upplifa þýska páska með
gestgjöfum mínum. Við máluðum
hænuegg og hengdum á greinar og
í staðinn fyrir súkkulaðiegg fékk ég
körfu með súkkulaðikanínum (sem
smökkuðst svo sem ágætlega, en
ekki eins og Nói og Síríus).
En hvernig upplifa útlendingar
íslenska páska? „Mér bauðst að taka
aukafrí þarna um páskana og ætlaði
að kíkja aðeins út á föstudeginum,
en það var bara allt lokað,“ sagði
John frá Englandi. „Varla hægt
að redda sér matarbita og bærinn
alveg steindauður.“
Verpa kanínur eggjum?
En hvernig er þetta í öðrum lönd
um? „Á páskunum er hefð fyrir
því að heilsa vinum og ættingjum
með því slá þá létt með greinum á
pálmasunnudag. Í staðinn fá þeir
síðan gjöf, t.d. egg eða sælgæti.
Lengi vel var allt bannað á föstu
daginn langa og aðeins nýlega hafa
reglur um opnun skemmti og veit
ingastaða rýmkast. Egg eru líka til
tölulega nýleg hefð,“ sagði Anu frá
Finnlandi.
Páskakanínan er þýsk að upp
runa og tengist vorhátíðinni og
frjósemi kanínunnar. Tengslin við
páskana má rekja aftur til 16. aldar
og fyrstu páskakanínurnar sem
hægt var að borða komu fram í
byrjun átjándu aldar. Kanínan flutt
ist síðan til Bandaríkjanna með
þýskum innflytjendum þar sem
páskakanínan verpir enn lituðum
eggjum fyrir góð börn.
Þaðan er leitin eftir páskaeggj
unum komin. „Við vöknuðum eld
snemma og þeyttumst út um allt
hús og garðinn í leit að páskaeggj
um. Foreldrar mínir voru oft búnir
að skipuleggja vísbendingar og við
reyndum að finna sem flest. Eggin
voru yfirleitt lítil súkkulaðiegg og
svo úðaði maður þessu í sig allan
liðlangan daginn,“ sagði Florian
frá Þýskalandi.
Vorið nálgast
Páskarnir eru því mjög tengdir
vor inu og minnir okkur á að brátt
fara lömbin að fæðast og fyrstu
ferða mennirnir að birtast í leit að
íslenskri náttúru og kjötsúpu.
Og þá þurfum við fullt af starfs
fólki af Evrópska efnahagssvæðinu.
Páskar án páskaeggja
Eygló Harðardóttir
Ráðningaþjónustunni Nínukoti
eyglo@ninukot.is – www.ninukot.is
Erlendir starfsmenn í sveit
Samband garðyrkjubænda auglýsir eftir
umsóknum um styrki til þróunar- og
rannsóknaverkefna vegna 5. gr.
Aðlögunarsamningsins
Samband garðyrkjubænda auglýsir eftir umsóknum
um framlög til þróunar- og rannsóknaverkefna vegna
ársins 2008, samkvæmt 5. gr. Aðlögunarsamningsins
milli ríkisstjórnar Íslands og Bændasamtaka Íslands/
Sambands garðyrkjubænda.
Viðmiðunarreglur um kröfur til styrkumsókna og verk-
lagsreglur um úthlutun og afgreiðslumáta umsókn-
anna má finna á heimasíðu Sambands garðyrkju-
bænda, www.gardyrkja.is
Þar eru einnig umsóknareyðublöð til útfyllingar.
Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Sambands
garðyrkjubænda á netfanginu bjarni@gardyrkja.is
Umsóknarfrestur er til 1. maí 2008.
Stjórn Sambands garðyrkjubænda
Fundarboð
Aðalfundur Búsældar ehf verður haldinn Á
hreindýraslóðum að Skjöldólfsstöðum á Jökuldal
laugardaginn 19. apríl næstkomandi og hefst kl. 13.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Hluthöfum skal bent að hægt er að senda umboð
til fundarins. Stjórnarmenn og varastjórnarmenn
Búsældar hafa eyðublöð fyrir umboð og einnig er
hægt að tölvusenda þau til allra er vilja.
Stjórn Búsældar ehf.
Mikill vöxtur er í ræktun erfða
breyttra jurta í heiminum þessi
misserin. Samkvæmt skýrslu
frá alþjóðlegri þjónustumið
stöð ræktenda erfðabreyttra
jurta jókst hektarafjöldinn
sem undir slíka ræktun fer um
12% á árinu 2007. 12,3 millj
ónir hektara bættust við rækt
unarsvæðið sem nú telur 114,3
milljónir hektara. Ræktunin
fer fram í 23 löndum en lang
stærsti hluti hennar, eða 86,4%,
á sér þó stað í fjórum ríkjum
Ameríku.
Bandaríkjamenn eru lang
stærstir í erfðabreyttri ræktun
en þar í landi eru erfðabreyttar
jurtir ræktaðar á 57,7 milljónum
hektara, eða um helmingi þess
landrýmis sem undir þessa rækt
un fer í heiminum. Næst koma
Argentína (19,1 milljón hektara),
Brasilía (15) og Kanada (7).
Tvö fjölmennustu ríki heims,
Indland og Kína, hafa sótt í sig
veðrið í ræktun erfðabreyttra
jurta að undanförnu og það
sama má segja um Paraguay og
SuðurAfríku. Í öðrum löndum
er ræktunin mun minni. Á lista
skýrslunnar eru átta Evrópuríki
en í þeim er í raun sáralítil rækt
un, þau eru öll með undir 50.000
hektara nema Spánn sem er með
rúmlega 100.000 hektara. Þetta
endurspeglar þá andstöðu sem
verið hefur ríkjandi í Evrópu
gegn ræktun erfðabreyttra jurta.
Þær tegundir sem algeng
ast eru í erfðabreyttri ræktun eru
maís, baðmull og sojabaunir.
Tegundunum fer þó fjölgandi og
má nefna sem dæmi að í Kína eru
töluverð ræktun á erfðabreyttum
tómötum, auk þess sem þar voru
gróðursettar 250.000 aspir á síðasta
ári en þær eiga að geta varist skor
dýraplágum betur en venjulegar
aspir.
16% heimsviðskipta
Í skýrslunni kemur fram að mestu
vöxtur í ræktun erfðabreyttra
jurta hafi að undanförnu verið í
þróunarríkjunum. Þau 23 ríki sem
stunda slíka ræktun skiptast þann
ig að 12 teljast til þróunarríkja
og 11 til iðnríkja. Verðmæti og
umfang uppskerunnar er þó mun
meira í iðnríkjunum, þar urðu
þrjár af hverjum fjórum krónum
til.
Heildarverðmæti uppskerunn
ar í erfðabreyttri ræktun var tæp
lega sjö milljarðar Bandaríkjadala
á árinu sem leið en það samsvarar
um 16% heimsviðskiptanna með
viðkomandi tegundir sem talin
eru hafa verið 42,2 milljarðar
Bandaríkjadala. Af þessum sjö
milljörðum voru 3,2 milljarðar
maís, 2,6 milljarðar baðmull og
0,9 milljarðar sojabaunir.
isaaa.org
Erfðabreytt ræktun vex
hratt og víða
Notaðar
vélar
á tilboðsverði
Símar 568-1500 / 461-1070
Sjá einnig nánari upplýsingar á www.thor.is
Case 4230 RXL, 4x2
Nýskr. ‘95. 82 hö, 4 cyl. 6986 vst.
Tilboðsverð kr. 825.000 án vsk
Steyr 970A, 4x4
Nýskr. ‘95. 75 hö, 4 cyl., 6250 vst.
Tilboðsverð kr. 1.150.000 án vsk
Steyr 970A, 4x4
Nýskr. ´95, 75 hö, 4 cyl., 4700 vst.
Tilboðsverð kr. 980.000 án vsk.
KUBOTA M105s, 4x4
Nýskr. ‘07. 105 hö, 4 cyl. 250 vst.
Tilboðsverð kr. 4.250.000 án vsk
KUBOTA ME9000, 4x4
Nýskr. ‘06. 94 hö, 4 cyl TDI. 550 vst.
Tilboðsverð kr. 3.450.000 án vsk
Deutz-Fahr Agroplus 95, 4x4
Nýskr. ‘06. 103 hö, 4 cyl., 310 vst.
Tilboðsverð kr. 4.400.000 án vsk
Case Maxxum 100C, 4x4
Nýskr. ´00, 100 hö, 4 cyl., 5400 vst.
Tilboðsverð kr. 2.250.000 án vsk.
CASE MXU 125 Maxxum, 4x4
Nýskr. ‘06. 125 hö, 6 cyl TDI. 500 vst.
Tilboðsverð kr. 4.600.000 án vsk
www.bbl.is