Bændablaðið - 01.04.2008, Side 23
Bændablaðið | Þriðjudagur 1. apríl 200823
Meginniðurstöður
ársreiknings 2007
Yfirlit um breytingu á hreinni eign til greiðslu
lífeyris 2007:
Efnahagsreikningur 31. desember 2007:
Í milljónum króna 2007 2006 Í milljónum króna 2007 2006
Iðgjöld 469 437 Verðbréfasj. og hlutabréf 17.120 16.690
Lífeyrir -752 -698 Markaðsverðbréf 3.655 3.360
Fjárfestingartekjur 1.045 3.011 Veðlán 352 368
Fjárfestingargjöld -28 -46 Önnur útlán 380 436
Rekstrarkostnaður -36 -35 Kröfur 71 61
Aðrar eignir 45 32
Hækkun á hreinni eign á árinu 698 2.669 Eignir alls 21.623 20.947
Hrein eign frá fyrra ári 20.905 18.236 Skuldir -20 -42
Hrein eign til greiðslu lífeyris 21.603 20.905 Hrein eign 21.603 20.905
Tryggingafræðileg staða
Gerð var tryggingafræðileg úttekt á sjóðnum miðað við árslok 2007. Endurmetin hrein eign sjóðsins miðað við 3,5% ávöxtun nemur í
árslok 2007 23.016 mkr. og verðmæti framtíðariðgjalda 5.329 mkr. eða samtals 28.345 mkr. Heildarskuldbindingar nema 25.950
mkr. Sjóðurinn á því 2.395 mkr. umfram heildarskuldbindingar. Áfallnar skuldbindingar nema 19.065 mkr. og eignir umfram áfallnar
skuldbindingar eru því 3.951 mkr.
Lífeyrisskuldbindingar
2007 2006 2007 2006
Hlutfall eigna af Hlutfall eigna af
heildarskuldbindingum 109,2% 109,8% áföllnum skuldbindingum 120,7% 122,1%
Fjárfestingarstefna
Samkvæmt fjárfestingarstefnu sjóðsins 2008 skal samsetning eigna vera sem næst eftirfarandi hlutföllum: Skuldabréf með
ríkisábyrgð 40%, önnur skuldabréf 25%, erlend hlutabréf 25% og innlend hlutabréf 10%.
Kennitölur
2007 2006 2007 2006
Nafnávöxtun 4,90% 16,19% Eignir í íslenskum krónum 76,81% 75,44%
Hrein raunávöxtun -1,07% 8,64% Eignir í erlendum gjaldm. 23,19% 24,56%
Meðaltal hrein raunávöxtun sl. 5 ár 6,87% 5,98% Fjöldi virkra sjóðfélaga 3.117 3.186
Meðaltal hrein raunávöxtun sl. 10 ár 4,16% 5,21% Fjöldi lífeyrisþega 3.606 3.619
Sjóðfélagalán
Virkir sjóðfélagar eiga nú rétt á lánum í samræmi við veðmörk eigna, þó að hámarki 25 mkr., til allt að 40 ára. Vextir breytast 15.
hvers mánaðar og eru 70 punktum hærri en meðaltalsávöxtun á nýjasta flokki íbúðabréfa til 30 ára, þó ekki lægri en 5%.
Aldurstenging réttinda og hækkun mótframlags 1. janúar 2007
Aldurstenging réttinda var tekin upp 1. janúar 2007. Mikill fjöldi sjóðfélaga á þó rétt á að greiða áfram í jafna réttindaávinnslu eftir
ákveðnum reglum. Réttindi eru nú reiknuð í krónum sem gefa til kynna væntanlega upphæð ellilífeyrisgreiðslu á mánuði miðað við
gildandi verðlag. Mótframlag hækkaði 1. janúar 2007 úr 6% í 8%.
Ársfundur
Ársfundur sjóðsins verður haldinn í Bændahöllinni mánudaginn 21. apríl n.k., sjá sérstaka auglýsingu hér í blaðinu.
LÍFEYRISSJÓÐUR BÆNDA Stjórn Lífeyrissjóðs bænda
Skrifstofa sjóðsins er til húsa á 3. hæð í Skúli Bjarnason, formaður
Bændahöllinni við Hagatorg, 107 Reykjavík Lilja Sturludóttir
Afgreiðslutími er frá kl.10 - 16. Loftur Þorsteinsson
Sími 563 0300 og myndsendir 561 9100 Guðmundur Grétar Guðmundsson
Örn Bergsson
Heimasíða lífeyrissjóðsins er www.lsb.is
Netfang: lsb@lsb.is Framkvæmdastjóri er Sigurbjörg Björnsdóttir
Háskólanám
· Búvísindi
· Hestafræði
· Náttúru- og umhverfisfræði
· Skógfræði og landgræðsla
· Umhverfisskipulag
www.lbhi.is
Háskóli
lífs og lands
Umsóknarfrestur um skólavist
er til 4. júní
�������
�����
����������������������������
����������������������������
����������������������������
������������
������������
����� ����������
��������������
��������������
����������������������������������������������
�� �������������������������������������������
�������������
������������������
����������������������������
�����
�������������
Hefurðu brennandi áhuga á að
kynna þér sauðamjólkurfram
leiðslu og framleiðslu á sauða,
geita, og kúaostum, þá áttu
kost á náms og kynnisferð til
hjónanna Kristina og Robert
Åkermo sem búa á býlinu Åkern
sem er nálægt bænum Heggen i
Oviken í Svíþjóð.
Þannig hefst auglýsing frá
Halldóri Gíslasyni, ráðunaut hjá
Búnaðarsambandi Austurlands.
Hann sagði í samtali við
Bændablaðið að hér væri ekki bara
um auglýsingu fyrir Austfirðinga
að ræða heldur geta allir áhugasam
ir landsmenn komið með. Þetta hafi
verið kynnt á stofnfundi Beint frá
býli og þar kom í ljós nokkur áhugi
fyrir þessu og all margir skrifuðu
sig í ferðina þar. Þá var ákveðið að
reyna að auglýsa ferðina á lands
vísu og þegar hafa borist viðbrögð
úr öllum landshlutum.
Íslenski hópurinn vildi vera einan
,,Það eru á milli 15 og 20 manns
sem hefur sýnt þessu alvarlegan
áhuga en við hefðum farið þó þátt
takendur hefðu ekki berið nema
tveir eða þrír. Upphafið að þessari
ferð var það að Norðmenn sem ég
þekki höfðu samband og spurðu
hvort Íslendingar hefði áhuga á
að koma með þeim í kynnisferð
til þessara hjóna. En að athuguðu
máli leist okkur betur á að fara bara
með sér hóp Íslendinga og það varð
úr,“ sagði Halldór.
Hjónin sem til stendur að
heimasækja, Kristina og Robert eru
þekkt ostagerðarfólk og hafa meira
að segja verið fengin til að koma
til Noregs og kynna ostagerð sína
þar. Í framhaldi af því var ákveðið
að fara til þeirra í náms og kynn
isferð.
Kristina og Robert eru með ca
250 mjólkurær og eru með eigin
mjólkurvinnslu heima á býlinu og
taka líka á móti geita og kúamjólk
til að framleiða osta. Þessi fram
leiðsla og sala á afurðunum gengur
mjög vel og hafa þau öðlast mikla
reynslu á þessu sviði. Ferðatími er
áætlaður seinni hlutan í ágúst næst
komandi. Nánari upplýsingar verða
veittar þegar þar að kemur.
Þeir sem kunna að hafa áhuga,
þá vinsamlega hafi samband
við Halldór Gíslason í síma
4711161/4711226 eða með tölvu
pósti til hg@bondi.is S.dór
Hópferð til að kynna sér Sauða
og geitaostaframleiðsla í Svíþjóð