Bændablaðið - 01.04.2008, Side 28

Bændablaðið - 01.04.2008, Side 28
Bændablaðið | Þriðjudagur 1. apríl 200828 Birtan og hlýindin hafa góð áhrif á marga landsmenn og kemur það ekki hvað síst fram í árs­ tíðabundnum matarvenjum, en líkaminn kallar á léttara fæði á þessum árstíma. Þá er gott að hvíla sig á þungu, fljótmettandi vetrarfæði og fara yfir í léttari rétti og kjörið að hafa suðrænt ávaxtasalat með sætri hunangs­ sósu í eftirrétt. Nauta­fajitas 400­500 g fitulítill nautavöðvi 1 msk. hvítlauksduft 1 msk. laukduft 2 tsk. paprikuduft 1 tsk. chiliduft salt pipar 8 tortillakökur 4 msk. rifinn ostur Grænmetisfylling 1 rauðlaukur 1 græn paprika 1 rauð paprika olía til steikingar ½ tsk. kúmenduft 2 hvítlauksrif 1 dl salsasósa Aðferð: Skerið kjötið í hæfilega bita til steikingar á pönnu. Blandið öllu kryddinu saman í skál og kryddið kjötið vel á öllum hliðum. Látið standa á meðan meðlætið er und­ irbúið. Skerið rauðlaukinn og papr­ ikuna í þunnar sneiðar og snögg­ steikið grænmetið á pönnu við mikinn hita í örlítilli olíu. Kryddið með kúmendufti og kreistið hvít­ lauksrifin yfir. Hellið salsasósunni yfir grænmetið og takið af hitanum. Snöggsteikið kjötið á vel heitri pönnu, kælið og skerið í þunnar sneiðar eða strimla. Hitið tortilla­ kökurnar örlítið og síðan getur hver og einn fengið sér kjöt og grænmeti að eigin smekk á kökurnar. Gott er að útbúa sitt eigið Guaca­ mole­mauk með réttinum. Guacamole­mauk 1 avókadó ½ laukur 1 hvítlauksrif 2 tsk. sítrónusafi ¼ tsk. kúmenduft ½­1 tsk. tabasco­sósa eða ¼ tsk. cayenne­pipar Aðferð: Skerið avókadóið í tvennt, fjarlæg­ ið steininn og flysjið. Setjið ald­ inkjötið í matvinnsluvél og hrærið. Saxið laukinn og hvítlaukinn og bætið honum út í ásamt sítrónusafa og kryddi. Hrærið vel og geymið í lokuðu íláti fram að framreiðslu. Suðrænt ávaxtasalat Fyrir 4­6 3 ferskjur 3 kíví 2 perur 2 bananar 1 stór, þroskaður mangóávöxtur Hunangssósa: 1 msk. fljótandi hunang 3 msk. sítrónusafi kókosflögur eða ristaðar hnetur til að strá yfir Aðferð: Flysjið alla ávextina, skerið í bita og setjið í falleg glös eða skálar fyrir hvern og einn. Blandið öllu sem á að fara í hunangssósuna saman og dreypið yfir ávextina. Stráið að endingu kókosflögum eða hnetum yfir. (Uppskriftir og mynd fengið úr bókinni Lærum að elda hollt og gott úr bóka­ klúbbi Eddu útgáfu). ehg MATUR Létt og hollt í vetrarlok 9 5 2 7 9 1 4 6 8 6 4 4 3 9 2 8 8 9 2 8 1 6 3 5 3 6 5 4 2 9 7 2 6 8 1 4 4 9 7 2 6 1 7 5 9 8 8 4 2 7 3 5 1 8 5 1 8 6 4 7 3 4 7 9 5 2 3 6 Sudoku Galdurinn við Sudoku­þrautirnar er að setja réttar tölur frá 1­9 í eyðurn­ ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem er lengst til vinstri er léttust og sú til hægri þyngst en sú í miðjunni þar á milli. Hægt er að fræðast nánar um Sudoku­þrautirnar á vefsíðunni www.sudoku.com og þar er einn­ ig að finna fleiri þrautir ef þessi skammtur nægir ekki. Líf og lyst Nauta-fajitas er léttur og bragðgóður réttur sem hentar vel nú á vormán- uðum, áður en farið er í tilraunir með sumarsalötin. (Mynd: Kristján Maack.) Aðalfundur Félags kúabænda í Skagafirði var haldinn fyrir skömmu. Þar voru samkvæmt venju veitt verðlaun fyrir afurða­ hæstu kýr á síðasta ári. Þar stóð efst Dolla 218 í Sólheimum í Sæmundarhlíð, hún skilaði 813 kílóum verðefna mjólkur, þ.e. samanlagt magn mjólkurfitu og mjólkurpróteins. Dolla var á sínu þriðja mjólkurskeiði. Næst varð Björg 174 á Ytri-Hof- dölum með 807 kg. Björg var á sínu níunda mjólkurskeiði og hefur um árabil verið meðal afurðahæstu kúa í héraðinu. Þriðja í röðinni varð svo Smella 181 á Hlíðarenda með 804 kíló verðefna en hún skilaði mestu mjólkurmagni kúa í héraðinu 11.798 lítrum. Þyngsti sláturgripur á árinu var frá Hamri í Hegranesi, hann vó 461 kíló og flokkaðist í UNI úrval B. Hæstu meðalafurðir eftir hverja kú voru á Hlíðarenda 7.242 kg. Næst var Tunguháls II með 7.066 kg og þriðja í röðinni var Flugumýri með 6.948 kg eftir hverja kú. Gestir á aðalfundinum voru Ólafur Jónsson héraðsdýralækn­ ir og Baldur Helgi Benjamínsson framkvæmdastjóri Landssambands kúabænda. Miklar umræður urðu um afkomu og horfur í búgrein­ inni og þær miklu hækkanir sem komnar eru fram eða fyrirsjáanleg­ ar á ýmsum rekstrarvörum búanna. Eru menn mjög uggandi í þessum efnum, ekki síst þeir sem hafa stað­ ið í framkvæmdum undanfarin ár og eru skuldsettir. Ein breyting varð á stjórn félagsins á aðalfundinum. Ingibjörg Hafstað í Vík kom inn í stað Bjarna Þórissonar á Mannskaðahóli. Aðrir í stjórn eru nú Guðrún Lárusdóttir Keldudal, Jón Einar Kjartansson Hlíðarenda, Ómar Jensson Gili og Valdimar Sigmarsson Sólheimum sem er formaður félagsins. ÖÞ Kúabændur verðlaunaðir á aðalfundi Sævar Einarsson á Hamri með far- andgrip sem veittur er þeim sem á þyngsta sláturgripinn í héraðinu ár hvert. Hér eru þeir sem hlutu viðurkenn- ingar fyrir nythæstu kýrnar. Frá vinstri Halldór Jónasson Ytri- Hofdölum, Jón Einar Kjartansson Hlíðarenda, Valdimar Sigmarsson Sólheimum, með þeim er Steinunn Halldórsdóttir ráðunautur sem afhenti viðurkenningarnar. Stofnað landgræðslufélag í Hrunamannahreppi Í lok febrúar var á Flúðum stofnað Landgræðslufélag Hruna­ manna en félagssvæði þess er Hrunamannahreppur og afrétt­ ur hreppsins. Tilgangur félagsins er fyrst og fremst að stuðla að uppgræðslu lands og stöðvun á jarðvegs­ og gróðureyðingu innan félagssvæðisins. Á fundinum kynnti Sigþrúður Jónsdóttir héraðsfulltrúi fjölþætt starf svið landgræðslunnar og verkefnisins Bændur­græða­ landið. Dr. Sig urður H. Magnússon gróðurvistfræðingur frá Bryðjuholti lýsti í máli og myndum því árangursríka landgræðslustarfi sem fram hefur farið á afréttinum. Farið var að dreifa áburði úr flugvél árið 1970 og allstórt landsvæði friðað að mestu. Markvisst uppgræðslustarf hefur verið unnið eftir tillögum Sigurðar síðan árið 1992 sem borið hefur góðan árangur. Hann hefur verið mikil driffjöður enda gjörkunnugur afréttinum allt frá því að hann fór að fara á fjall sem unglingur. Margir hafa komið að uppgræðslustarfinu í sjálfboðavinnu af dugnaði sem borið hefur ágætan árangur. Alltaf er þó hægt að gera betur en það er einmitt tilgangurinn með stofnum þessa félags. Um 20 manns tóku þátt í að stofna félagið en vitað er að fjölmargir munu bætast í hópinn. Í stjórn voru kjörin Unnsteinn Hermannsson, Sigurður H. Magnússon, Svanhildur Pétursdóttir, Jón Óli Einarsson og Sigríður Jónsdóttir.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.