Bændablaðið - 22.10.2009, Qupperneq 12
12 Bændablaðið | fimmtudagur 22. október 2009
G S Solver er heiti á nýju fyrir-
tæki sem þau Bryndís Péturs-
dóttir á Laugum í Reykjadal og
Garðar Héðinsson á Laxár virkj-
un hafa stofnað, en markmið þess
er að þróa og smíða svonefndan
„mótvægiskubb“ við jarðgeislum
og vinna að rannsóknum á áhrif-
um þessara jarðgeisla og reyna að
greina afleiðingar þeirra á menn
og búfénað. Þau hafa sótt um
einkaleyfi á uppfinningu sinni og
er umsókn þeirra nú í vinnslu hjá
Einkaleyfastofu. Fáist leyfið munu
þau nota tímann sem það er í gildi
til frekari rannsókna og þróun-
arstarfa, sem og að safna reynslu
á þessu sviði. Bryndís er garð-
yrkjufræðingur og bowentæknir,
Garðar rafvirki og vélfræðingur
við Laxárvirkjun.
Starfsemin hófst af fullum krafti
síðastliðið sumar og voru fyrstu
„mótvægiskubbarnir“ settir upp í lok
júlí og síðan þá hafa þau vart haft
undan, en búið er að koma fyrir um
50 kubbum víðs vegar um landið.
Kubbur þeirra Bryndísar og
Garðars er notaður á svonefnd-
um streitusvæðum í jarðlögum, oft
kallaðað jarðárur eða jarðgeislar
(geopathic stress á ensku) en þessi
fyrirbæri eru af ýmsum gerðum og
því afar misjafnt hvað hentar best
til að vinna bug á neikvæðum áhrif-
um þeirra. Þá segja þau Bryndís
og Garðar og það sé líka misjafnt
hversu næmir einstaklingar eru
varðandi það að finna áhrif þessara
geisla. Þeir sem eru hvað næmastir
verða jafnan fyrir miklu heilsutapi,
oft hrakar heilsunni og ekkert finnst
að viðkomandi þrátt fyrir rannsókn-
ir.
Bryndís finnur út hvar þessi
streitusvæði eru en mælingar hennar
fara fram með svokallaðri „prjóna-
mælingu“ sem er aldagömul aðferð
við leit að vatni, jarðgeislum og nú
hin síðari ár hefur aðferðinni verið
beitt til að staðsetja jarðstrengi og
lagnir áður en grafið er. Margt bend-
ir til að það sem Bryndís mælir sé
bergsegulssvið og eru þau því að
leita samstarfs við aðila úr heimi vís-
indanna, bæði hér á landi og erlend-
is. Einkum horfa þau til Danmerkur
í þeim efnum, en Danir eru langt
komnir varðandi mælingar af þessu
tagi.
Góð viðbrögð strax í upphafi
„Þetta byrjaði allt fyrir 4-5 árum,
þá flutti ég í nýtt íbúðarhús og
á skömmum tíma varð ég fyrir
miklu heilsutapi sem engin skýr-
ing fannst á, ég hafði ekki breytt
neinu varðandi mataræði eða annað
slíkt,“ segir Bryndís. Loks kom í
ljós að ekki var búið að jarðbinda
húsið sem hún bjó í. Það var gert
og Bryndís náði fullri heilsu á ný
eftir nokkurn tíma. Eftir þetta fór
hún að hugleiða þessi mál og nú er
svo komið að hún og Garðar hafa
stofnað eigið fyrirtæki um smíði
mótvægiskubbsins og frekari rann-
sóknir á áhrifum jarðfræðilegra
streitusvæða á heilsufar fólks og
búfénaðar.
Viðbrögðin hafa ekki látið á
sér standa, þó svo að starfsemin
hafi ekki verið auglýst og er í raun
nýhafin. „Við notuðum sumarið í
að prufa okkur áfram, settum niður
nokkra kubba hér og þar og víða
hefur árangur verið góður að mati
þess fólks sem þá hefur notað,“
segja þau Bryndís og Garðar.
Hlutverk Bryndísar er að finna
úr ákveðna gerð af streitusvæð-
um með mælingum og Garðar sér
um smíði á mótvægiskubbunum,
en bæði komu þau að þróun hans.
Kubburinn er mjög öflugur en áhrif
hans ná í um 150 metra radíus.
Jákvæður árangur komið í ljós
Í ljós hefur komið að þau svæði
sem Bryndís hefur mælt hafa truflað
heilsufar fólks og þó ekki sé langt um
liðið frá því fyrstu kubbarnir komu
á markað hefur jákvæður árangur
þegar komið í ljós, heilsufar hefur
batnað til muna eftir að það hefur
fengið mótvægiskubbinn í námunda
við híbýli sín, inn á svæði sem mæld-
ist sem jarðfræðilegt streitusvæði.
Einnig eru þess dæmi að veikindi í
búfénaði hafa lagast með tilkomu
kubbsins. „Við þurfum að afla
okkur meiri reynslu, en vissulega er
ánægjulegt að þessi jákvæðu við-
brögð eru þegar komin fram. Eins
erum við mjög þakklát fyrir þann
áhuga sem fólk hefur sýnt okkur,
ekki síst bændur, enda er mikið í húfi
fyrir þá að heilsufar bústofnsins sé
sem allra best,“ segir Bryndís.
Hún segir að mælingar sýni að
streitusvæði í jörð séu misbreið
og þau liggi ýmist bein eða beygi,
sum krossist, en öll eigi þau það
sameiginlegt að í þeim er nokkurs
konar kjarni eða miðja sem þurfi
að finna út hvar sé og koma mót-
vægiskubbnum fyrir á þeim stað.
Honum þarf svo að snúa á ákveð-
inn hátt gagnvart höfuðáttum til að
virkni hans verði sem best. Í ljós
hefur komið að ef hann er færður út
úr þessum kjarna breytist heilsufar
skepna aftur til hins verra.
Þau Bryndís og Garðar segja
að í áranna rás hafi ýmislegt verið
reynt til að vinna á misjöfnum
streitusvæðum, smíðaðar spólur,
steyptir veggir niður í jörð, krist-
allar settir inn í geisla til að bægja
honum frá og settar upp gildrur til
að beina geislum frá íbúðar- og úti-
húsum. „Það hafa margir verið að
skoða þessa hluti og þetta er þekkt
fyrirbæri. Við vonum að okkar við-
bót á þessum markaði sé jákvætt
innlegg og verði til þess að þoka
málum áleiðis í jákvæða átt,“ segir
Bryndís.
Nokkur rannsóknarverkefni í
gangi
Nú vinna þau að rannsóknarverk-
efnum á nokkrum sveitabýlum þar
sem fósturlát hefur verið óvenju-
mikið, bæði í kindum og kúm og
eins er hafið samstarf við Fiskeldi
Eyjafjarðar. „Það er margt í gangi
hjá okkur og ýmislegt í farvatninu,
og því höfum við sótt um styrki til
að geta haldið starfseminni áfram
af fullum krafti. Það er afar mik-
ilvægt þegar um er að ræða ný
fyrirtæki og nýjar hugmyndir að
fá stuðning. Það getur verið mjög
erfitt að hefja starfsemi, af því fólk
hefur ekki pening til að koma sér
af stað, margir frumkvölaðar hafa
því hætt í miðjum klíðum,“ segja
þau og eru bjartsýn á að takist að
afla styrkja svo hægt verið að halda
áfram með frekari rannsóknir.
Þau nefna sem dæmi að lögregl-
an á Húsavík og í Reykjanesbæ séu
í samstarfi við þau, en á þjóðveg-
um eru á ákveðnum svæðum svo-
nefndir svartblettir, svæði þar sem
fólki hættir umfram önnur til að
sofna undir stýri. Þessir blettir eru
víða þekktir. ;eð því að setja upp
mótvægiskubbar á þessum svæðum
er ætlunin að kanna hvort þeir hafi
áhrif á aksturlag, hvort slysatíðni
minnki og annað í þeim dúr.
„Allt er þetta langtímaverkefni
hjá okkur, við þurfum tíma til að
stunda rannsóknir og sjá hver nið-
urstaðan verður, við höfum fullan
hug á að afla okkur meiri þekk-
ingar og koma á samvinnu þeirra
sem telja sig hafa hag af úrræðum
í þessum málum,“ segja þau og
benda á að spennandi sé að fylgjast
með hversu langt Kanadamenn og
Nýsjálendingar eru komnir í þess-
um efnum.
„Árangurinn sem við höfum
þegar séð lofar góðu og hvetur
okkur áfram. Það að sjá að fólk og
búfénaður hefur náð betri heilsu
eftir að mótvægiskubburinn var
settur upp eru okkar laun,“ sagja
þau Garðar og Bryndís. MÞÞ
Tveir Þingeyingar stofna fyrirtæki um smíði mótvægiskubbs við jarðárum
Markmiðið að bæta heilsu-
far fólks og búfénaðar
„Undanfarin ár hef ég þjáðst af
síendurteknum raddmissi auk
verkja í mjöðm. Verkirnir voru
að vísu mismiklir án þess að
ég gæti tengt það við eitthvað
ákveðið. Þessu til viðbótar upp-
lifði ég mig síþreytta og þurfti
iðulega að leggja mig um miðj-
an dag. Allt þetta ágerðist síðan
þegar við hjónin færðum okkur
á milli herbergja í húsinu okkar
í vor. Gekk þetta svo langt að á
tímabili var rætt um að ég þyrfti
í mjaðmakúluskipti,“ segir einn
viðskiptavina G S Solver um
reynslu sína.
Það var svo einn dag í águst að
Bryndís kom í heimsókn og með
prjónana í bílnum. Eftir smá spjall
bauðst hún til þess að mæla út
húsið og komst að því að þá lá eitt-
hvað sem hún nefndi jarðáru þvert
í gegnum húsið og það í gegnum
herbergið sem við hjónin sváfum
í. Hún mætti síðar með kubb sem
við höfðum inni til að byrja með
en grófum síðan fyrir utan húsið.
„Breytingarnar urðu ótrúlegar.
Mjög fljótlega, sennilega á öðrum
eða þriðja sólarhring breytt-
ist svefninn hjá mér og ég bæði
svaf dýpri svefni og samfelldari
en áður. Verkirnir í mjöðminni
hurfu smám saman og nú hef ég
verið verkjalaus í margar vikur og
röddin eins og best verður á kosið.
Þegar heilsa manns er annars
vegar hlýtur maður að skoða alla
möguleika og reyna að vera ekki
fordómafullur út í hluti sem maður
skilur ekki til fulls, eins og t.d. í
þessu tilviki. A.m.k. var það ekki
spurning um að prófa þetta þó
svo að ekki væri hægt að sjá fyrir
um árangur. Ég hef svo sem enga
sönnun fyrir því að það hafi verið
akkúrat þetta sem breytti öllu fyrir
mig, en ég trúi að svo sé.“
Heilsufar kálfanna batnaði til
mikilla muna
Ábúendur á Stórutjörnum í Ljósa-
vatnsskarði, þau Laufey Skúla-
dóttir og Ásvaldur Ævar Þor-
móðs son, tóku í notkun nýtt fjós
vorið 2008 og gekk allt sem best
verður á kosið til að byrja með.
„En svo fór að halla undan fæti,
það kom upp þrálát júgurbólga og
hærri frumutala, kálfarnir veikt-
ust og urðu vægast sagt fárveikir,“
segir Laufey. Þau misstu tvær kýr
vegna veikinda og leist alls ekki á
blikuna, en mesta breytingin varð
þó á kálfunum, þeir voru alveg
ómögulegir, lágu fyrir í nokkra
daga án þess að standa á fætur.
„Þetta höfðum við aldrei séð í
gamla fjósinu og þótti þetta mjög
undarlegt, kálfarnir höfðu vissu-
lega veikst þar líka, en aldrei oðrið
svona ofboðslega slappir.“
Laufey segir að einhverju sinni
í sumar hafi Bryndís átt leið um,
var raunar að fara í næsta hús, en
kom við og prófaði prjóna sína
inni í fjósinu. Þá kom í ljós að
ekki hafði verið gengið frá jarð-
tengingu í kringum hólfið sem
kálfarnir voru í, það var snarlega
gert og eins var settur upp mót-
vægiskubbur á ákveðnum stað.
Þetta var í lok júlí á liðnu sumri,
en eftir þessar aðgerðir hefur
heilsufar kálfanna batnað til mik-
illa muna og una þeir hag sínum
vel, eru heilsuhraustir og hið sama
gildir um kýr í fjósi.
Þegar heilsan er annars vegar skoðar maður alla möguleika
Bryndís Pétursdóttir, á Laugum í Reykjadal og Garðar Héðinsson á Laxárvirkjun hafa stofnað fyrirtækið G S
Solver, en markmið þess er að þróa og smíða svonefndan „mótvægiskubb“ sem nýtist á jarðfræðilegum streitu-
svæðum. Hér eru þau við vélina þar sem Garðar smíðar mótvægiskubbana.
Bryndís sér um mælingar og notar til þess aldagamla aðferð, „prjónamæl-
ingu“. Þau hyggjast vinna áfram að rannsóknum á áhrifum jarðgeislanna
og reyna að greina afleiðingar þeirra á fólk og fénað.
Gisting í Reykjavík
á besta stað í bænum
Hvor íbúð er búin eldhúsi, tvöföldu rúmi,
sjónvarpi og sameiginlegu baðherbergi.
Íbúðirnar eru í rólegu og fallegu hverfi.
Sundlaug, verslun og önnur þjónusta er í
þægilegu göngufæri.
Sími: 896 0587 eða email: leigulidinn@internet.is
Verð, ein nótt:
7.500 kr. (minni íbúð)
9.500 kr. (stærri íbúð)
Afsláttur er gefinn
ef gist er þrjár
nætur eða meira.