Bændablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 23

Bændablaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 23
25 Bændablaðið | fimmtudagur 22. október 2009 Fólkið sem erfir landið Fer á lúðrasveitamót í Eyjum Guðmundur Elí Jóhannsson er 10 ára atorkusamur nemandi við grunnskólann á Hólum í Hjaltadal. Hann spilar á fiðlu og kornett og æfir fótbolta en þess á milli hefur Guðmundur Elí mjög gaman af að hlusta á Ljótu hálfvitana og leika sér í Google SketchUp í tölvunni. Nafn: Guðmundur Elí Jóhannsson. Aldur: 10 ára. Stjörnumerki: Ljón. Búseta: Nátthaga 10, Hólum í Hjaltadal. Skóli: Grunnskólinn að Hólum. Hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? Íþróttir. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hundur. Uppáhaldsmatur: Taco. Uppáhaldshljómsveit: Ljótu hálf- vitarnir. Uppáhaldskvikmynd: Happy Gilmore. Fyrsta minningin þín? Úti að leika mér. Ég var að grafa holur í malarhrúgu með stóra bróður mínum. Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á hljóðfæri? Bæði, ég spila á fiðlu og kornett og æfi fótbolta. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í tölvu? Að vera í Google SketchUp. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Leikari. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Stokkið niður af svöl- um með regnhlíf, en það virkaði ekki þannig að ég mæli ekki með því. Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Man ekki eftir neinu leiðinlegu. Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt í vetur? Fara á lúðrasveitamót í Vestmannaeyjum. ehg Guðmundur Elí ætlar að verða leikari þegar hann verður stór. Hin árlega Uppskeruhátíð hesta- manna fer fram á Broadway í Reykjavík laugardaginn 7. nóvember nk. Að venju verður boðið upp á glæsilegan kvöld- verð, skemmtidagskrá og dans- leik, auk þess sem hefðbundin verðlaun eru veitt þeim knöpum og hrossaræktendum er þykja hafa skarað fram úr á árinu. Hátíðin er haldin af Félagi hrossabænda og Landssambandi hestamannafélaga og hafa félögin, ásamt Broadway, tekið höndum saman um að lækka miðaverð svo að sem flestir geti tekið þátt í gleðinni. Viðbrögð hafa verið mjög góð og miðasala gengið vel og því ljóst að hestamenn ætla að gleðjast saman eins og þeim einum er lagið. Enn er hægt að fá miða, en þeir eru seldir hjá Broadway í Ármúla. Í tengslum við hátíðina eru einnig hinir hefðbundnu fundir hestamanna og hrossaræktenda. Formannafundur LH og aðal- fundur Félags hrossabænda fara fram föstudaginn 6. nóvember og laugardaginn 7. fer hin árlega hrossaræktarráðstefna fagráðs fram á Hótel Sögu. Þar verða að vanda flutt ýmis fróðleg erindi er varða kynbótastarfið og rannsóknir í greininni, en dagskrá ráðstefnunnar verður nánar kynnt er nær dregur. HGG Hestamenn fagna góðri uppskeru Fjölskyldan í Auðsholtshjáleigu hampaði verðlaunum á Uppskeruhátíð 2008 fyrir hrossaræktarbú ársins. Ljósm.: HGG Til sölu grind fyrir slóðadragara (án Keðju) Breidd 5 metrar. Verð 40.000,- kr. Uppl í síma 893-0609 Bændur / Verktakar                   !" #$ &    ' ($ (  )   *  ++ %           ,      * -   (,  ,*%.  % Sími: 8924163 - E-mail: jonsihh@internet.is Hestamannafélagið Sörli óskar eftir tilboðum í 5 stk. dómhús. Húsin eru ca. 2x3 metrar að    klædd með rásuðum krossviði og bárujárni á þaki. Húsin eru til sýnis            Tilboð óskast send til Sörla á netfangið sorli@sorli.is                      

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.