Bændablaðið - 22.10.2009, Síða 19
21 Bændablaðið | fimmtudagur 22. október 2009
ÁHUGASAMT FJÁRRÆKTARFÓLK á
Snæ fellsnesi kom fyrir nokkrum
árum á reglulegum héraðssýning-
um á lambhrútum í fjárskipta-
hólfinu vestan varnargirðingar á
Nesinu. Haustið 2008 var ákveðið
að auka þetta sýningahald þannig
að það yrði héraðssýning fyrir alla
Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu.
Um leið var tekin ákvörðun af
Búnaðarsamtökum Vesturlands um
að setja hinn veglega verðlauna-
skjöld frá héraðssýningum fyrri ára
að nýju í umferð sem farandgrip
vegna besta lamhrútsins á þessum
sýningum á hverju ári.
Laugardaginn 17. október var
þessi sýning haldin vegna haustsins
2009.
Sýningin austan girðingar var
haldin í Mýrdal fyrir hádegi og
voru þar mættir til sýningar 18
lambhrútar, sem er nokkru fleira
en á síðasta ári, þegar þessi sýning
var þar fyrsta sinni. Þarna hlýtur
samt að eiga að vænta stóraukinnar
þátttöku á næstu árum ætli þeir að
standa félögum sínum vestan girð-
ingar á sporði í ræktunarstarfinu.
Eftir hádegið var sýningin vest-
an girðingar haldin í reiðhöllinni
að Bergi í Grundarfirði. Þarna var
feikilega mikil mæting eða samtals
65 lambhrútar. Sýningaraðstaða var
frábær og var jafnframt sölusýn-
ing og uppboð á lömbum, bæði
gimbrum og hrútum. Sýningin var
ákaflega vel sótt.
Eins og áður þá var sýningagrip-
um skipað í þrjá flokka. Mislita
hrúta. Hvíta hrúta, kollótta og hvíta
hrúta hyrnda. Í heild var hópurinn,
sem þarna var mættur til sýning-
ar, frábær. Lömbin á þessu svæði
komu í samanburði við fyrri ár
ákaflega vel fyrir í haust og minnist
ég þess ekki að hafa áður komist í
slíkt lambaval sem þarna var mætt.
Við Lárus G. Birgisson höfum
dæmt á þessum sýningum frá byrj-
un og okkar mat var að þarna væri
ótrúlega mikill fjöldi lamba sem að
gæðum stæðu framar því sem verið
hefur á fyrri sýningum.
Í hópi mislitu hrútanna voru
mættir til leiks 19 hrútar. Á slík-
um sýningum hefur þessi hópur oft
viljað einkennast af misjöfnu fé, en
hópurinn á þessari sýningu var með
ólíkindum öflugur. Þetta skýrist af
því að sumir af bestu hrútum sæð-
ingastöðvanna eru að skila mörg-
um lituðum lömbum auk þess sem
mjög mikið hefur komið af öflugu
mislitu fé úr hjörðunum bæði á
Hjarðarfelli og í Mávahlíð á allra
síðustu árum. Efsta sæti í þessum
hópi skipaði lamb 128 á Bergi sem
var svartur hrútur, samanrekinn
og feikilega vel holdfylltur og vel
gerður. Þetta lamb er undan Bjarti
08-202, en það er sami hrútur og
skipaði efsta sæti sýningarinnar á
Snæfellsnesi 2008 en móðurfaðir er
Ljóri 95-828. Í öðru sæti var svart-
ur lamhrútur númer 59 á Álftavatni,
en hann hafði gríðarlega þykkan
bakvöðva og líkt og mörg lömb
undan Kveiki 05-965 vann hann
gríðarlega á við nánari skoðun þó
að hann léti lítið yfir sér. Segja
verður að þetta hafi verið í vissum
skilningi svartur dagur fyrri þennan
hóp þar sem í þriðja sæti var svart-
ur hrútur númer 49 í Mýrdal. Þessi
hrútur líktist hinum tveim mikið
með feikilega þétt hold og góða
gerð og mikinn vænleika miðað
við stærð. Hrútur þessi er sonur
Prjónns 07-812 og móðurfaðir hans
Fróði 04-963. Á sýningunni vestan
girðingar, sem einnig var sjálfstæð
sýning, kom í þriðja sætið þar lamb
695 á Hjarðarfelli. Þetta er svarbíl-
dóttur, kollóttur hrútur meðan hinir
þrír sem áður eru nefndir eru allir
hyrndir. Hann er mjög bollangur,
vel gerður með mikla vöðvafyll-
ingu. Þessi hrútur er sonur Magna
06-730, sem átt hefur marga úrvals-
syni á sýningunum síðustu þrjú
árin.
Fæstir voru hrútarnir í flokki
hvítu, kollóttu hrútanan eða sam-
tals 15 og eru það miklar breyt-
ingar frá því þegar héraðssýningar
á Snæfellsnesi fyrir nokkrum ára-
tugum voru að meirihluta kollóttir
hrútar. Í þessum flokki skipaði efsta
sætið lamb 339 hjá Eiríki Helgasyni
í Stykkishólmi. Hrútur þessi er
hreinhvítur, mjög jafnvaxinn og vel
gerður og einstaklega lagðprúður
og föngulegur á velli. Faðir hrúts-
ins er Bogi 04-814 en móðurfaðir
hans Bjartur 00-641 á Berserkseyri
var um árabil einn öflugasti koll-
ótti kynbótahrúturinn á Nesinu.
Annað sætið féll í hlut hrúts 591
á Hjarðarfelli, sem er ákaflega vel
gert og mjög vel vöðvafyllt og þétt-
vaxið lamb. Faðir hans er Magni
06-730 og hann því hálfbróðir
svarbíldótta hrútsins sem að fram-
an er fjallað um. Í þriðja sætinu var
síðan lamb 92 á Hraunhálsi sem er
feikilega þéttvaxið og vel gert lamb
með mjög góð lærahold. Faðir hans
er Völundur 07-442 en móðurfaðir
Máni 03-975.
Langsamlega stærsti hópurinn
voru hvítir, hyrndir hrútar en þar
voru samtals 49 lambhrútar skráðir
til leiks. Kostir lambanna í þessum
hópi voru með fádæmum miklir.
Fyrsta sætið skipaði lamb 651 á
Hjarðarfelli. Hrútur þessi var feiki-
lega þroskamikill, með frábæra bol-
lengd og sterkbyggður. Hann hefur
einstaklega breitt og vel vöðvað
bak (38 mm) og ákaflega vel gerð-
ur að öllu leyti. Faðir hans Kvistur
08-748 er sonur Rafts 05-966 en
móðurfaðir lambsins Ylur 05-805.
Annað sætið skipaði lamb 105 í
Mýrdal en sá hrútur líkist um margt
hrútunum í fyrsta sætinu, hann er
gríðarlega þroskamikill með ein-
staklega mikla bollengd, ákaflega
vel gerður með feikilega mikla
vöðvafyllingu. Þessi föngulegi
hrútur er sonur Prjóns 07-812 en
móðurfaðir hans Kóngur 97-847.
Þriðja sætið féll síðan í hlut lambs
númer 7 á Hjarðarfelli en sá hrútur
er frábærlega vel gerður, gríðarlega
vöðvaþykkur og með enn öflugri
lærahold en hrútarnir sem ofar
stóðu. Faðir hans er Klaufi 08-750
sem er sonarsonur Kveiks 05-965
en móðurfaðir er Kækur 03-961 og
er lambið fætt sem þrílembingur
undan tvævetlu. Hrútlambið sem
skipaði þriðja sætið í þessum flokki
á sýningunni vestan girðingar var
númer 44 á Fáskrúðarbakka sem
er einstaklega glæsilegt lamb með
frábær lærahold, en faðir þess er At
06-806. en móðurfaðir hans er aftur
á móti Hvellur 05-969.
Besti hrútur sýningarinnar var
dæmdur 651 á Hjarðarfelli og
varðveitir Harpa Jónsdóttir sem er
eigandi hrútsins því héraðssýning-
arskjöldinni til næsta hausts.
Eins og fram kemur á ættern-
isupplýsingum topplambanna þá
eru þau afsprengi margra ára skipu-
legrar og öflugrar ræktunar á þeim
búum sem þessi lömb komu frá.
Þegar ætterni sýningarlambanna
er skoðað nánar koma mikil áhrif
sæðinganna skýrt fram. Kveikur
05-965 átti þarna átta syni, Prjónn
07-812 sex syni og Púki 06-807
fjóra syni og hjá kollóttu lömb-
unum voru áhrif Boga 04-814 mikil
þar sem sex þeirra voru synir hans.
Þessi glæsilega sýning bar vitni
um þróttmikið og sterkt ræktunar-
starf í sauðfjárrækt á Snæfellsnesi.
Framkvæmd sýningarinnar var
sýningarhöldurum einnig til ein-
staks sóma.
JVJ
Héraðssýning lambhrúta á Snæfellsnesi haustið 2009
Námskeið í gæðastýr-
ingu í sauðfjárrækt
Nýir þátttakendur í gæðastýringu í sauðfjárrækt þurfa að sækja um
það til Matvælastofnunar á þar til gerðum umsóknareyðublöðum.
Umsóknarfrestur er til 20. nóvember ef framleiðandi óskar eftir álags-
greiðslum fyrir næsta almanaksár.
Námskeið:
Eitt af grunnskilyrðum fyrir þátttöku í gæðastýringu í sauðfjárrækt er að
hafa sótt undirbúningsnámskeið.
Námskeið verður haldið í Bútæknihúsinu á Hvanneyri
mánudaginn 9. nóvember, frá kl 10-18.
Skráning:
Þeir sem óska eftir að sækja námskeiðið eru vinsamlegast beðnir að skrá
þátttöku til Bændasamtaka Íslands sem fyrst en í síðasta lagi fyrir fyrir 4.
nóvember. Unnt er að skrá þátttöku í síma 563 0300 eða á tölvupósti til
bella@bondi.is
Námskeiðið uppfyllir kröfur Starfsmenntasjóðs BÍ og verður nám skeiðs-
gjaldið því greitt af sjóðnum.
Bændasamtök Íslands
Eigendur verðlaunahrúta á sýningunni, frá vinstri: Guðlaug á Hraunhálsi,
Harpa á Hjarðarfelli, Eiríkur Helgason, Stykkishólmi, Anna Dóra á Bergi,
Gísli í Mýrdal, Guðbjartur á Hjarðarfelli og Gísli á Álftavatni.
Harpa og Guðbjartur á Hjarðarfelli
með hrútinn sem efstur stóð, 651,
og hinn glæsilega verðlaunaskjöld
héraðssýningarinnar.
Bárður Rafnsson í Grundarfirði, en höfuðdjásnið var einkenni stjórnenda
sýningarinnar. Næst honum stendur Hrafnhildur Bárðardóttir og að baki
henni Eiríkur Helgason í Stykkishólmi sem er frumkvöðull þessa sýninga-
halds á Snæfellsnesi.
GÓÐ KAUP
SP-902B, stærð 107x107 sm.
sturtuklefi - margar gerðir
2ja manna nuddbaðkar,
stærð 180x120x75 sm
SP-20SN, stærð 123x123 sm
Infra rauður saunaklefi
GODDI.IS
Auðbrekku 19, 200 Kóp.
S. 5445550
Möguleiki á að taka reykrör
upp úr vél eða aftur úr henni.
Öryggisgler fyrir eldhólfi.
Trekkspjald fylgir.
Sp-302C,
90x90 sm. og 96x96 sm.
MA-420 slöngubátur
m/álgólfi, stærð 430x202 sm
Roro bjálkasaunaklefi,
stærð 205x174 sm.