Bændablaðið - 22.10.2009, Page 20
22 Bændablaðið | fimmtudagur 22. október 2009
Kæri lesandi.
Reynitré hafa um nokkuð lang-
an aldur verið sveipuð ákveðinni
dulúð bæði hérlendis og erlendis,
um þau hafa sprottið sagnir sem
enn lifa jafnvel góðu lífi. Það hlýtur
að vera merki um breytta tíma eða
táknrænt fyrir hræringar samtímans
að nú er talið að hin frægu reynitré
á Skriðu í Hörgárdal séu öll. Eða
hvað?
Lifði í þjóðsögu og ljóðum
Þekktasta íslenska þjóðsagan tengd
reyniviði hlýtur að teljast vera sú
um reyniviðinn í Möðrufellshrauni
í Eyjafirði, en sá hefur einnig feng-
ið heitið meiðurinn helgi. Í hraun-
inu er í dag ekki vitað um lifandi
reynivið en „hraun“ þetta er þó
reyndar frekar hrun eða grjótskriða
úr fjallshlíðinni og því líka talað
um Möðrufellsskriðu. Þarna á einu
sinni að hafa vaxið upp forkunn-
arfagurt reynitré sem enginn vissi
hvaðan kom og spratt upp af því
eftirfarandi saga, sem birtist árið
1961 í Ömmu og Árni Bjarnarson
hafði skrásett:
„Endur fyrir löngu bjuggu systk-
in tvö í Eyjafirði. Var ástríki þeirra
mikið, svo að af leiddi óleyfileg-
ar ástir, og varð systirin þung-
uð af völdum bróður síns. Þá var
Stóridómur í lögum, og áttu systk-
inin samkvæmt honum að líflátast
fyrir brot þetta. Tóku þau til þess
ráðs að flýja í Möðrufellshraun í
fylgsni, er þar var, og höfðust þau
þar við um skeið. Gat kona ein í
Möðrufelli, húsfreyja þar eða hús-
kona, pírt í þau mat á laun, og segja
sumir, að gegnt hafi verið í fylgsnið
úr búrinu. En svo fór, að kona þessi
dó, og urðu systkinin skömmu
síðar hungurmorða, en upp af leif-
um þeirra óx reyniviður mikill og
fagur, sem lengi lifði þar í hraun-
inu, og fundust tvær beinagrind-
ur undir rótum hans. Önnur sögn
hermir, að systkinin væru háls-
höggvin og dysjuð, og yxi hríslan
upp af dysinni.“
Tvö kvæði eru þekkt um þenn-
an sama reynivið. Annað þeirra er
eftir Gísla Brynjólfsson og á að
hafa birst í Nýjum félagsritum árið
1847. Það hefst á þessa leið:
Í Eyjafirði aldinn stendur reynir
í auðri kleif, í laungum fjalladal,
þar sem að bruna bunulækir hreinir
um bjarta grund úr dimmum
hamrasal,
þar sem að autt er allt, og naktir
klettar,
og aldrei heyrist neinna manna tal.
Hitt kvæðið var víst prent-
að í Norðra árið 1856 og er talið
vera eftir mann að nafni Friðrik
Daníelsson frá Skáldstöðum í
Saurbæjarhreppi, en það hefst á eft-
irfarandi hátt:
Reyniviðarrunnur græni
rósin fagra, blíð og trú,
innra hrærður augum mæni
á þann stað, hvar fyrri þú
stóðst á grundu föstum fótum,
fagurlima prýði há,
nægum ástum nærður hótum
náttúrunnar hendi frá.
...og í líklegum afkomendum
Steindór Steindórsson frá Hlöðum
er á því að meiðurinn helgi hafi
orðið þannig til að þegar hlíðar
Eyjafjarðar hafi verið skógi vaxn-
ar hér í öndverðu þá hafi á víð og
dreif staðið eitt og eitt reynitré.
Þegar skógurinn hafi eyðst hafi
svo þessi eini reynir staðið eftir
eða vaxið aftur upp af rótunum
sem lifðu í jarðveginum. Þar sem
skógurinn var horfinn, hafi fólk
þá farið að líta á þetta eina tré sem
helgidóm og átrúnaður skapast í
kringum það. Því er lýst svo að
hjátrú í kringum meiðinn helga hafi
síðan orðið svo mikil að fólk hafi
flykkst að viðnum með gjafir og
ljós og hafi ýmiss konar helgisiðir
fylgt þessum heimsóknum. Hjátrú
þessi fór víst mikið fyrir brjóstið
á kirkjuyfirvöldum og er talið að
viðurinn hafi svo verið höggvinn
fyrir þeirra tilstilli. Önnur kenning
er sú að hreinlega hafi skort við og
þessi verið nýttur í dráttarvagn, þar
sem ekki hafi annar viður verið við
höndina.
Talið er nokkuð víst að umrædd
reynitré á Skriðu í Hörgárdal séu
komin af þessum fræga reynivið,
meiðnum helga. Síðan á fólk að
hafa tekið af þeim trjám hríslur og
að þaðan séu gömlu reynitréin á
Akureyri komin. Þar á meðal á að
vera reyniviðurinn fyrir framan
Laxdalshús á Akureyri sem þekktur
er af gömlum myndum. Þær hug-
myndir bera jú þess merki að meið-
urinn helgi lifi enn góðu lífi ein-
hvers staðar í hugarfylgsnum okkar
samtímafólks.
Heimildir og heimildafólk:
Jóhann Thorarensen, garðyrkjufræðingur.
Unnar Örn J. Auðarson, myndlistarmaður.
Steindór Steindórsson: „Reynirinn í
Möðru fellshrauni.“. Amma - Þjóðleg
fræði og skemmtun. Bókaútgáfan þjóð-
saga. Akureyri, 1961. Bls. 430-435.
„Systkinin í Möðrufellshrauni“. Árni
Bjarnarson skrásetti. Amma.- Þjóðleg
fræði og skemmtun. Bókaútgáfan þjóð-
saga. Akureyri, 1961. Bls. 426-429.
Meiðurinn helgi
og önnur reynitré
Nú er góður tími
til þess að safna fræjum. Þó
hafa þrestirnir víðast hvar lík-
lega klárað flest reyniber, en þar
sem eitthvað er eftir, má kippa
slatta inn, taka berin af grein-
unum, merja vel í berjapressu
(líkt og fer fyrir berjunum í
fuglsmaga) og dreifa á slatta af
moldar-sandblöndu í sáðbakka.
Nokkru af sandi er sáldrað yfir,
til að halda fræjunum á sínum
stað. Bakkanum er síðan stillt
út til að vetrast þar, en verja
þarf berjamaukið í honum fyrir
fuglum, til dæmis með glerplötu
eða með því að stilla bakkanum
inn í kaldan ræktunarkassa. Fræ
birkis og elris eru víðast hvar
nú þroskuð og eru fræreklarnir
teknir beint af trjánum. Fræin
eru dregin af þeim eða hrist úr
reklunum og þeim dreift yfir
moldar-sandblöndu og fá þau
svo álíka meðferð og reyni-
berjamaukið. Og þá eru ekki öll
fræ upptalin.
Talið er að reynitrén á Skriðu í Hörgárdal séu upprunalega komin af meiðnum helga, reyniviðnum í Möðru-
fellshrauni inni í Eyjafirði, en að eldri reynitré á Akureyri hafi verið tekin af trjánum á Skriðu. Álíka og afkomendur
meiðsins helga, þá hefur þjóðsagan um hann lifað góðu lífi og borist manna á milli. Myndin hér er af póstkorti
sem líklega er prentað um 1920 og er úr póstkortasafni Unnars Arnar, myndlistarmanns.
Kristín Þóra Kjartansdóttir
sagnfræðingur og garðyrkjunemi
kristinkj@gmx.net
Gróður og garðmenning
TÍÐNI HJARTA- og æðasjúkdóma er
há hér á landi líkt og í mörgum
öðrum löndum í hinum vestræna
heimi. Þessir sjúkdómar eru að
miklu leyti tengdir óheilbrigðum
lífsstíl og mataræði. Meðal annars
eykur neysla á of mikilli harðri fitu
og salti líkurnar á slíkum sjúkdóm-
um. Neysla á salti á Íslandi er mun
meiri en ráðleggingar segja til um
en talið er að um 80% af saltinu
sem við neytum komi úr unnum
matvörum. Unnar kjötvörur inni-
halda oft mikið af bæði harðri fitu
og salti. Í könnun Manneldisráðs
árið 2002 á mataræði Íslendinga
kom í ljós að kjöt og kjötvörur
lögðu til 19% af neyslu mettaðrar
fitu og u.þ.b. 16% af neyslu salts.
Því má ætla að með því að þróa
kjötvörur sem innihalda minna af
harðri fitu og salti sé hægt að hafa
áhrif á neyslu almennings og þar
með stuðla að fækkun tilfella af
hjarta- og æðasjúkdómum.
Matís ohf. hefur unnið að
slíkri vöruþróun í samvinnu við
Norðlenska ehf. með styrk frá
Tækniþróunarsjóði. Þróaðar voru
fitu- og saltminni kjötbollur og vín-
arpylsur auk fituminni spægipylsu.
Gerðar voru ýmsar rannsóknir á
vörunum en meðal annars voru
gerðar neytendakannanir til að
athuga hvernig neytendum líkuðu
vörurnar. Einnig var spurt út í við-
horf tengd fituskerðingu á kjötvör-
um, lífsstíl og hvaða upplýsingum
neytendur leita eftir á pakkningum.
Í ljós kom að neytendur hafa
almennt mikinn áhuga á fituminni
kjötvörum, þó er áhuginn mismikill
eftir tegundum kjötvara. Neytendur
virðast jákvæðari fyrir fituskertum
kjötbollum en fituskertum vín-
arpylsum og frekar neikvæðir fyrir
fituskertri spægipylsu. Þetta gæti
tengst því að notkun þessara vara
er ólík. Flestir telja kjötbollur vera
venjulegan heimilismat en vín-
arpylsur hafa frekar á sér skyndi-
bitastimpil þó að neysla þeirra sé
jafnvel meiri en neysla á kjötboll-
um. Bragðgæði spægipylsu virðast
skipta mun meira máli en hollusta.
Talsverður munur var á viðhorfum
karla og kvenna. Konur hugsa mun
meira um hollustu matar en karl-
ar og þær eru miklu líklegri til að
kaupa fituskertar kjötvörur.
Þegar fitu- og saltmagn er
minnkað í unnum kjötvörum verða
ýmsar breytingar á vörunni, sér-
staklega í áferð en einnig í bragði,
lykt og útliti. Það getur því verið
flókið að minnka salt og fitu án
þess að það breyti vörunni of mikið
og í mörgum tilfellum er nauð-
synlegt að setja í staðinn önnur
efni sem gegna svipuðu hlut-
verki. Ýmis efni hafa verið notuð
í stað fitu í unnum kjötvörum og
koma flest þeirra úr plöntum.
Trefjar hafa verið notaðar en
einnig sterkja og sojaprótein. Öll
þessi efni eru mun orkuminni en
fita og geta því fækkað hitaein-
ingum í vörunum talsvert. Aftur
á móti finnst mörgum neytendum
neikvætt að nota önnur efni í stað
fitu. Af þeim efnum sem spurt var
um eru neytendur, og þá sérstak-
lega konur, jákvæðastir fyrir trefj-
um en sterkjan er óvinsælust. Ekki
er hægt að staðhæfa hvað veldur
þessu en neytendur eru oft íhalds-
samir og ekki hrifnir af breytingum
á hefðbundnum matvörum.
Við vöruþróun skipta pakkn-
ingar og merking þeirra miklu
máli. Neytandinn velur út frá útliti
vörunnar og því hvaða upplýs-
ingar koma fram á pakkningum.
Neytendur voru spurðir um hvaða
upplýsingum þeir leituðu eftir við
val á kjötvörum. Ekki kemur á
óvart að nánast allir athuga verð,
kjöttegund, dagsetningu og magn.
Flestir athuga líka upprunaland
og skoða innihaldslýsingu. Örlítið
færri athuga fitumagn, vörumerki
og næringargildi. Saltmagn og
það hversu umhverfisvæn varan
er rekur lestina en konur hafa þó
meiri áhuga en karlar á því að
vita hvort varan er umhverfisvæn.
Fitumagn virðist þannig skipta
neytendur meira máli en saltmagn.
Íslenskir neytendur vilja kaupa
íslenskt. Þeim finnst mjög jákvætt
að vara sé úr íslensku hráefni og
leita eftir upplýsingum um upp-
runaland á pakkningum. Þeir eru
líka mjög jákvæðir fyrir fituminni
kjötvörum og telja þær hollari en
þær hefðbundnu. Þegar kjötvörur
eru þróaðar þarf að hafa í huga að
fyrir neytandann skiptir mestu máli
að maturinn sé bragðgóður. Verð
skiptir einnig máli en minna þó.
Neytendur hugsa um hollustu kjötv-
ara en eru ekki tilbúnir að skipta út
bragðgæðum fyrir hollustu.
Vilja neytendur hollari kjötvörur?
Aðalheiður Ólafsdóttir
sérfræðingur hjá Matís
Námskeið í lífefldri ræktun á Sólheimum og í Skaftholti
Dagana 27.-29. nóvember verður haldið námskeið á Sólheimum og í Skaftholti í lífefldri (bíodýnam-
iskri) ræktun undir handleiðslu Hollendingsins Henk-Jan Meyer. Á námskeiðinu verður fjallað um þau
gæði sem vottunarstaðallinn „Demeter“ stendur fyrir og unnið verður með landbúnaðarnámskeið Rudolfs
Steiner.
Gisting er í boði fyrir þátttakendur á Sólheimum og í Skaftholti. Nánari upplýsingar um námskeiðið má fá
í síma 486-6002, auk þess sem hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið skaftholt@simnet.is.