Bændablaðið - 22.10.2009, Síða 21
23 Bændablaðið | fimmtudagur 22. október 2009
Með Hjalta Gestssyni er genginn
hinn síðasti úr hópi þeirra snjöllu
einstaklinga sem mótuðu íslenskt
búfjárræktarstarf, bæði faglega og
félagslega, um og fyrir miðja síð-
ustu öld. Sérstaða Hjalta í þeim
hópi var sú að hann lagði hönd á
plóg í öllum megingreinum búfjár-
ræktarinnar; nautgripa-, sauðfjár-
og hrossarækt.
Ég hef ekki þá þekkingu á
íslenskri hrossarækt að ég sé réttur
maður til að fjalla um hlut Hjalta
á því sviði. En á fyrstu starfsárum
sínum var hann einnig öflugur liðs-
maður í ræktunarstarfinu þar.
Í nautgriparæktinni tók hann
við starfi Páls Zóphóníassonar að
auka enn frekar útbreiðslu þekkt-
ustu ræktunarlína í kúastofninum,
Klufta- og Mýrdalsstofnunum.
Óbrotgjarnasti bautasteinn Hjalta í
nautgriparæktinni er þó fastmótun
á stefnu um útlit íslenskra naut-
gripa, sem hann reisti árið 1951
með dómstiga sínum fyrir útlitsmat
nautgripa. Dómstigi Hjalta er enn
grunnurinn að því sem þar er notað.
Þá er ónefnd forysta hans um upp-
byggingu á kynbóta-, afkvæma-
rannsókna- og tilraunastöðinni í
Laugardælum. Um alla þessa starf-
semi byggði hann öflugt félagskerfi
og nautgriparæktarsamböndin tvö,
sem lengi störfuðu á Suðurlandi,
voru hið félagslega vopn Hjalta í
nautgriparæktarstarfinu og sköp-
uðu festu og traust.
Þegar ég hóf störf í nautgripa-
rækt nokkru fyrir 1980 hafði hann
látið af störfum á þeim vettvangi,
þannig að ég kynntist honum þar
fyrst og fremst sem ómetanlegum
fræðara um eldri tíð.
Í sauðfjárræktinni varð ég hins
vegar þeirrar gæfu aðnjótandi að
hafa hann sem samstarfsmann um
árabil. Þar bera hæst í minning-
unni ógleymanleg sýningaferðalög
á Suðurlandi. Í mörgum sveitum
voru sýningardagarnir eins konar
sveitarhátíð. Einnig voru orðnar
margar ferðir okkar vítt um land
vegna skoðunar á úrvalsgripum
fyrir sæðingarstöðvarnar. Hjalti var
fyrstur manna til að koma á skipu-
legu starfi í sambandi við skoðun
lambhrúta.
Hjalti átti auðvelt með það, með
sínum einstöku hæfileikum til að
lýsa gripum á kraftmiklu máli, að
fanga hug viðstaddra og láta þá
hrífast með. Hann gat því skap-
að sterkari sýningastemmingu en
flestir. Augnablikin þegar Hjalti
tyllti sér á garðabandið og lýsti
glæsigrip fyrir framan sig í krónni
af innlifun og nákvæmni eru áreið-
anlega fjölmörgum greypt í minni.
Á þessum ferðum naut ég jafn-
framt frásagna hans um menn og
málefni í sunnlenskum byggðum,
auk fræðslu um sögu sauðfjárrækt-
arinnar á svæðinu.
Hjalti varð snemma á starfsferli
sínum einn dyggasti samverkamað-
ur Halldórs Pálssonar í sauðfjár-
ræktarstarfi á Íslandi. Hjalti byggði
upp og mótaði á Suðurlandi sterk-
ara félagslegt kerfi í sauðfjárrækt-
inni en þekktist annars staðar á
landinu. Það afl, sem hann virkj-
aði á þennan hátt, skilaði feikilega
miklum árangri. Um þetta má fræð-
ast í ágætu riti Hjalta, sem hann
vann þegar hann hafði lokið far-
sælu starfi sínu á þessu sviði, sem
stóð á sjötta áratug.
Faglegt starf Hjalta var þannig
með ólíkindum mikið og skilaði
ómældum árangri. Hjalti gerði sér
glögga grein fyrir hinu tvískipta
eðli búfjárræktarstarfsins í sauð-
fjár- og nautgriparæktinni. Annar
meiðurinn er hinn félagslegi grunn-
ur, sem þarf að vera traustur og öfl-
ugur. Hinn að vekja metnað og dug
einstakra ræktenda með keppni,
sem í búfjárræktinni verður öðru
fremur í tengslum við sýningar-
starf. Hann hafði gríðarlega mikla
hæfileika á báðum þessum sviðum
og náði þannig að skapa þá her-
kvaðningu bænda í búfjárræktinni
á Suðurlandi, sem skilaði frábærum
árangri á löngum starfsferli hans.
Hér verður ekki fjallað um gríð-
armikið starf Hjalta sem fram-
kvæmdastjóra Búnaðarsambands
Suðurlands um langt árabil. Það
var á mesta framfaraskeiði land-
búnaðar á Íslandi og öflugt starf
sambandsins átti sinn ómælda þátt
í þeim gríðarlega miklu framför-
um sem þá urðu. Glögg sýn og trú
Hjalta á getu íslensks landbúnaðar
skipti þar verulegu máli.
Hjalta minnist ég samt ofar öllu
fyrir mikla forystuhæfileika og fá-
gæta frásagnarhæfileika hans. Þar
bera hæst í minningunni ómet-
anlegar stundir á heimili hans
og Karenar á Reynivöllum 10.
Kvöldin að loknum löngum sýn-
ing ar dögum þar sem notið var frá-
bærr ar gestrisni og veitinga Karen-
ar og fágætrar frásagnargáfu Hjalta
eru ógleymanlegar stundir í minn-
ingunni.
Að leiðarlokum eru þakkir færð-
ar fyrir ómetanlegt samstarf og
kynni við þennan mikla öðling,
sem nú er kvaddur.
Börnum Hjalta og öðrum að-
stand endum færi ég innilegar sam-
úðarkveðjur.
Jón Viðar Jónmundsson
Það var á fögrum vordegi fyrir 30
árum, ég kominn á Reynivelli 10
snemma morguns og Hjalti ferð-
búinn. Í morgunsólinni var ekið
upp í Hreppa, því að ég hafði þegið
boð Hjalta um að hann kynnti fyrir
mér hluta Árnessýslu um leið og
hann sinnti ýmsum erindum fyrir
búnaðarsambandið. Við höfðum
þekkst allt frá 1967, verið öðru
hvoru í sambandi á 8. áratugnum,
farið saman á ráðstefnur Bú fjár-
ræktarsambands Evrópu og átt
gott samstarf þegar Hjalti sat á
Búnaðarþingi. En þó er þessi vor-
dagur sérlega minnisstæður því að
þá kynntist ég Hjalta best.
Skemmst er frá að segja að ég
fræddist mikið um búskapinn á
svæðinu, komið var á bæi og rætt
við bændur, Hjalti sífellt að miðla
mér, ungum ráðunaut, af mikilli
þekkingu og víðtækri reynslu. En
kærust er minningin um heimsókn-
ina í fjárhús Hjalta uppi á Hæli,
undir kvöld. Þar var jarðsam-
bandið, tengslin við upprunann og
grasrótina sem aldrei rofnuðu. Ekki
vorum við lengi í húsunum því að
á Selfossi beið Karen með kvöld-
matinn sem var í raun veisla. Við
Hjalti héldum okkur mest við sam-
eiginlegt áhugamál, sauðfjáreign,
en Karen tókst auðveldlega, með
alkunnri röggsemi og glaðværð, að
gera umræðurnar við matarborð-
ið fjölbreytilegri. Minningin um
Karen er mér einnig mjög kær.
Árin liðu og Hjalti, sem hafði
unnið íslenskum landbúnaði mjög
vel, bæði sem búvísindamaður og
félagsmálamaður, sinnti hugðarefn-
um sínum alla tíð af brennandi
áhuga. Hreif aðra með eins og hann
hafði áhrif á mig í ferðinni góðu og
við fleiri tækifæri. Hann var í for-
ystusveit frumkvöðla í sauðfjár-
rækt, nautgriparækt og hrossarækt
og var m.a. mikill fengur að bók-
inni Sauðfjárrækt á Suðurlandi,
sem hann skráði á efri árum. Hjalti
átti létt með að koma fyrir sig orði,
sagði sögur betur en flestir, flutti
ræður sem eftir var tekið og skrifaði
fjölda afbragðs minningargreina.
Það var alltaf ánægjulegt að fá
Hjalta í heimsókn í Bændahöllina,
spjallað inni á skrifstofu um
vandamál líðandi stundar en inni á
kaffistofu slegið á léttari strengi, og
fyrr á tíð var söngmaðurinn Hjalti
fljótur að koma af stað fjölda-
söng, t.d. í Búnaðarþingsveislum.
Síðast reyndar fyrir aðeins þrem-
ur árum, þegar Hjalti var heiðr-
aður níræður með málþingi um
íslenska búfjárrækt og samfundum
í góðra vina hópi á eftir, á Hótel
Sögu. Ég veit að margir starfsmenn
Bændasamtaka Íslands deila þess-
um góðu minningum með mér.
Ég og Svanfríður kona mín vor-
um viðstödd endurvígslu Skaft-
holtsréttar í lok júlí í sumar en þar
hefur Kristján, tengdasonur Hjalta,
verið framarlega í flokki þeirra
sem staðið hafa að endurbygg-
ing unni svo að til fyrirmyndar er.
Hápunkturinn var að hitta Hjalta,
enn með hugann við féð og bú-
skap inn, í sveitinni sem honum var
svo kær og í réttinni sem hann átti
fjárvon í, haust hvert, allt frá barn-
æsku. Þá vissum við ekki að við
vorum að kveðja Hjalta í hinsta
sinn en minningin lifir góðu lífi –
Hjalti í Skaftholtsrétt.
Hugheilar samúðarkveðjur
send um við öllum ástvinum og að-
stand endum. Blessuð sé minning
Hjalta Gestssonar.
Ólafur R. Dýrmundsson
Minning
Hjalti Gestsson
Fæddur 10. júní 1916 – dáinn 6. október 2009
Fyrsta skóflustungan að nýrri reiðhöll á Selfossi
Guðjón Sveinbjörnsson frá Uppsölum, næstelsti heiðursfélagi Hesta-
mannafélagsins Sleipnis á Selfossi, og Kolbrún Björk Ágústsdóttir, átta
ára, tóku fyrstu skóflustunguna að nýrri reiðhöll á Selfossi laugardag-
inn 17. október að viðstöddu fjölmenni. Reiðhöllin mun rísa á næstu
tveimur mánuðum á félagssvæði Sleipnis. Hér eru þau Guðjón og Kol-
brún ásamt Guðna Ágústssyni sem sér um fjármál nýju hallarinnar og
Guðmundi Lárussyni, formanni Sleipnis, þegar fyrsta skóflustungan
var tekin. MHH
H
ÍV
T
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
0
9
-
1
4
9
2
AÐEINS
1% FITA
20%
ÁVEXTIR
N Ý R J Ó G Ú R T D R Y K K U RM S . I S
NÝR JÓ
GÚRT
DRYKK
UR
3%
HVÍTUR
SYKUR
AÐEINS ENGINSÆTUEFNI