Bændablaðið - 22.10.2009, Síða 22
24 Bændablaðið | fimmtudagur 22. október 2009
3
9 2 4 1
9 7
6 2 3 5
7 5 1 8
7 6
6 9 4 3
5
3 7
8 1
5 4
5 7 6 4
2 4 9 6
9 8 4 3
5 2
3 7
8 1
2 5 4
3 2
8 9
1 3 8
9 6
2 4 1
5 7
6 1
4 3 8
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn-
ar. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og
heldur ekki innan hvers reits sem
afmarkaður er af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú
sem er lengst til vinstri er léttust og
sú til hægri þyngst en sú í miðjunni
þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni
www.sudoku.com og þar er einn-
ig að finna fleiri þrautir ef þessi
skammtur nægir ekki.
Líf og lyst
Ilmandi góð súpuangan að vetri
Nýverið kom út matreiðslubók-
in Súpa og stóll eftir hönnuðina
Ragnhildi Ragnarsdóttur og
Sigrúnu Sigvaldadóttur í sam-
vinnu við matreiðslumanninn
Snorra Birgi Snorrason. Í bók-
inni eru 30 aðilar fengnir til að
skreyta einfalda, hvíta tréstóla
eftir sínu höfði og var hugmynd
hönnuðanna að opna síðar meir
lítið veitingahús. Það varð ekki
úr en stólarnir hafa farið víða og
hlotið mikla athygli, og í fram-
haldinu þróaðist sú hugmynd að
búa til bók þar sem stólarnir og
súpuuppskriftir myndu sóma sér
vel.
Sveppasúpa með hvítlauk og geita-
osti
1 msk. ólífuolía
1 laukur, saxaður
1 hvítlauksgeiri, afhýddur og saxaður
400 g sveppir, smátt skornir en takið
frá fjóra sveppahatta
1 msk. smjör
1 msk. hveiti
3 msk. sérrí
1 l
grænmetissoð
150 ml rjómi
salt og pipar
kerfill
80 g geitaostur
Aðferð:
Steikið lauk og hvítlauk í fimm
mínútur upp úr ólífuolíunni án þess
að brúna. Bætið sveppum við og
einni matskeið af smjöri og steikið
áfram í tíu mínútur. Hrærið stöðugt
í. Bætið í hveiti og hrærið áfram í
eina mínútu. Bætið sérríi og græn-
metissoði út í og látið sjóða við
vægan hita í 15 mínútur. Maukið
með töfrasprota eða í matvinnslu-
vél. Bætið við rjómanum og sjóð-
ið í tvær til þrjár mínútur. Kryddið
með salti og pipar.
Fyllið sveppahattana með geita-
osti og bakið í ofni við 170°C í
fimm mínútur.
Rauðkálssúpa með roast beef og
piparrótarsósu
1 msk. ólífuolía
400 g rauðkálshöfuð, fínskorið.
Fjarlægið ystu blöðin og stilkinn
2 rauðlaukar, afhýddir og skornir í
sneiðar
1 grænt epli, skrælt, kjarnhreinsað og
skorið í teninga
1 msk. púðursykur
2 hvítlauksgeirar, marðir og saxaðir
3 msk. rauðvínsedik
1 l nautakjötssoð
salt og pipar
600 g nautafillet, sinahreinsað
Aðferð:
Hitið ofninn í 150°C. Setjið epli,
rauðkál, rauðlauk, púðursykur,
hvítlauk, rauðvínsedik og 1/2 bolla
af nautakjötssoðinu í eldfast mót
eða pott. Bætið ólífuolíunni út í,
salti og pipar og blandið vel saman.
Setjið lok eða álpappír yfir og bakið
í u.þ.b. tvær klukkustundir. Skoðið
á 30 mínútna fresti hvort blandan
er of þurr og setjið þá eina mat-
skeið af nautakjötssoðinu saman
við. Takið mótið úr ofninum eftir
tvær klukkustundir og látið standa
með lokinu. Hækkið hitann á ofn-
inum í 200°C. Brúnið nautafillet á
pönnu upp úr ólífuolíu og kryddið
með salti og pipar. Setjið í ofninn
í u.þ.b. 10-12 mínútur eigi kjötið
að vera lítið steikt en 25 mínútur
ef þið viljið að kjötið sé vel steikt.
Takið kjötið út og látið standa í
fimm mínútur áður en það er skorið
í þunnar sneiðar.
Piparrótarsósa
2 tsk. piparrót, rifin
2 tsk. hvítvínsedik
1 tsk. dijonsinnep
1 dós sýrður rjómi, 18%
Aðferð:
Blandið öllu saman og kælið. Setjið
sósuna á toppinn á súpunni þegar
komin er á hvern og einn súpudisk
og njótið vel. ehg
MATARKRÓKURINN
Sveppasúpa með hvítlauk og geitaosti er bragðmikil og öðruvísi súpa
sem sómir sér vel jafnt í fallegu máli eða á djúpum súpudiski. Myndir | Áslaug
Snorradóttir
Í matreiðslu-
bókinni Súpa
og stóll er að
finna margar
girnilegar
súpuupp-
skriftir og
uppskriftir að
mismunandi
soðum.
Ábúendurnir í Hænuvík eiga
ættir sínar að rekja í gamla
Rauðasandshrepp, margar aldir
aftur í tímann. Þau Guðjón og
María tóku við jörðinni árið
1982. Guðjón er alinn upp á jörð-
inni en María er frá næsta bæ,
Sellátranesi.
Býli?
Hænuvík.
Staðsett í sveit?
Sunnanvert við Patreksfjörð í gamla
Rauðasandshreppi.
Ábúendur?
Guðjón Bjarnason og María
Ólafsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra)?
Tvær dætur, Guðný Ólafía og
Bjarnveig Ásta. Tíkin Snotra og
Skotta í þjálfun.
Stærð jarðar?
???.
Tegund býlis?
Sauðfé og ferðaþjónusta..
Fjöldi búfjár og tegundir?
370 vetrarfóðraðar kindur, íslenskar
hænur og aliendur.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Misjaft milli árstíða. Fólk reynir að
sinna skepnum svo í lagi sé og halda
umhverfinu uppi úr skítnum. Svo er
húsakostinum haldið í lagi svo hann
fari ekki í veðrið ef það hvessir illa.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin?
Skemmtilegasta er að fá heimaln-
ingana í brúntertuna í búrnu. Það er
ekkert leiðinlegt, bara mismunandi
skemmtilegt.
Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir
ykkur á jörðinni eftir 5 ár?
Mjög svipað og það er í dag. Ef
Jóhanna fer ekki með okkur inn í
Evrópusambandið.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda?
Enga skoðun vegna þess að hérna
er nánast engin byggð eftir og allt
félagslíf dautt.
Hvernig mun íslenskum landbún-
aði vegna í framtíðinni?
Eftir 10 – 20 ár verður enginn
búskapur á landinu ef verðandi
bændur verða að kaupa framleiðslu-
rétt eins og það er í dag. Þetta er
sjálfkrafa gjaldþrota stefna.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Miklir möguleikar eru í útflutningi á
framleiðsluvörum íslensks landbún-
aðar ef rétt er á málum haldið.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, lýsi, matarolía, ávextir,
hangiflot á bútunginn.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu?
Bútungur með hangifloti og kart-
öflum. Og hangikjöt sem hefur
gleymst í kofanum fram á þorra..
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin?
Þegar Skotta (í þjálfun) pissaði í
skóinn hjá húsbóndanum. Þegar
Blíðukolla (heimalningur) hoppaði
á rúllunum þegar henni leiddist, ef
enginn vildi vera úti hjá henni.
Hænuvík, Patreksfirði
Bærinn okkar
Hlíðarnar Sýnishorn af beitarlandinu í Hænuvík.