Bændablaðið - 03.12.2009, Qupperneq 5

Bændablaðið - 03.12.2009, Qupperneq 5
5 Bændablaðið | fimmtudagur 3. desember 2009                      Jólahlaðborð Bændaferða Nú eru jólahlaðborðin í algleymingi en fyrir skömmu héldu Bænda ferðir sitt árlega jólahóf þar sem tæplega 400 gestir gæddu sér á íslensk- um jólamat. Þessar skrautbúnu konur starfa allar fyrir Bændaferðir, utanlandsdeild Ferðaþjónustu bænda, en þær heita Áslaug M. Magnúsdóttir, Sól veig Skaftadóttir, Hugrún Hannesdóttir og Hólmfríður Bjarnadóttir. Á milli þeirra síð- astnefndu stendur kampakátur Kristinn Sigurðsson farþegi og við- skiptavinur Bændaferða til margra ára. Nýr bæklingur Bændaferða er kominn út en þar er að finna allar upplýsingar um framboð ferða á næsta ári. Verður Hrísey undir- lögð af lúpínu og skógarkerfli? Samkvæmt skýrslu sem rædd var í umhverfisnefnd Akureyrar í vik- unni eru vandamál vegna lúpínu og skógarkerfils í Hrísey það mikil að ef ekkert verður að gert mun eyjan verða undirlögð af þessum plöntum innan 50 ára. Lagt er til að kynna skýrsluna fyrir íbúum Hríseyjar í byrjun næsta árs. Þá var formanni umhverfisnefndar falið að ræða við umhverfisráðherra um vandann vegna gríðarlegrar útbreiðslu áður- nefndra plantna. Umrædd skýrsla, um kortlagningu gróðurs í Hrísey, sem Náttúrufræðistofnun Íslands vann að beiðni umhverfisnefndar, var lögð fram á fundinum. Borgþór Magnússon forstöðumaður vist- fræðideildar Náttúrufræðistofnunar kynnti skýrsluna.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.