Bændablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 10
10 Bændablaðið | fimmtudagur 3. desember 2009
Vatnavinir eru ímyndarverkefni
á landsvísu en ákveðið var að
hefja verkefnið á Vestfjörðum og
myndaður var klasi um það síð-
ast liðið vor. Hópurinn kallar sig
Vatnavini Vestfjarða og saman-
stendur af landeigendum, ferða-
þjónum, arkitektum og öðrum
áhugamönnum sem sameinast í
því að þróa vestfirskt aðdráttarafl
tengt vatni. Vatnavinir Vestfjarða
ætla að flagga vestfirskum nátt-
úruperlum og leyfa þannig ferða-
mönnum að upplifa þær og menn-
ingu svæðisins í gegnum náttúru-
laugar og vellíðunarþjónustu sem
hópurinn mun þróa næstu árin.
Vestfirðir einkennast af fjölda
heitra náttúrulauga og hafa umsjón-
armenn þeirra sameinast um að
nýta þær á sjálfbæran hátt, með það
að markmiði að Vestfirðir verði til
fyrirmyndar á landsvísu hvað varð-
ar uppbyggingu á heilsutengdri
ferðaþjónustu.
Þema hópsins er heitt og kalt
vatn. Sjór, vatn og jarðvarmi hafa
mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn
sem njóta þess að slaka á í heit-
um laugum og ferðast um í leit að
nýrri og ógleymanlegri upplifun.
Markmið verkefnisins er að þróa
náttúruvæna ferðaþjónustu og gera
náttúruperlur okkar Vestfirðinga
sýnilegri. Í verkefninu er áhersla
lögð á að framkvæmdir í kringum
heilsulindir, baðstaði og náttúru-
laugar séu vandaðar og vel skipu-
lagðar. Reynt verður að ljúka nauð-
synlegustu framkvæmdum fyrir
næsta sumar á útvöldum stöðum,
sem allar falla að langtíma framtíð-
arsýn heilsutengdrar ferðaþjónustu
á Vestfjörðum.
Verkefnið er fjórskipt eftir
svæð um. Svæðin eru sunnanverðir
Vestfirðir, Strandir, Ísafjarðardjúp
og Reykhólasveit. Mikilvægt er að
hlúa að séreinkennum hvers svæðis
fyrir sig. Í markaðssetningu verður
áhersla lögð á sérstöðu hvers svæð-
is og stuðlað að því að fá ferða-
menn til að heimsækja öll svæðin.
Um er að ræða fyrstu skrefin til
frekari uppbyggingar á næstu árum
með áherslu á fjölgun ferðamanna
á þeim baðstöðum sem þegar eru
til en hafa fram að þessu lítið verið
kynntir innanlands og utan.
Vatnavinir Vestfjarða ætla ekki
aðeins að hvetja fólk til að nýta
náttúrulaugarnar á Vestfjörðum
held ur ætlar hópurinn að þróa há-
gæða heilsuferðaþjónustu með
fram tíðarsýn um uppbyggingu
stærri heilsulinda á 1-2 stöðum og
verður grunnur lagður að þeirri
þróunarvinnu með verkefninu. Um
er að ræða langtímaverkefni sem
mun krefjast þolinmæði, fjármagns
og viljafestu margra til að verða að
veruleika.
Anna G. Sverrisdóttir er vatna-
vinur og ferðamálaráðgjafi og segir
hún verkefnið stuðla að því að nýt-
ing á heita vatninu fyrir ferðamenn
verði meiri og markvissari í því
skyni að styrkja Ísland sem ferða-
mannaland og ekki síst heilsu-
land. Þannig megi styrkja ferða-
mennskuna um allt land og skapa
sérstöðu á ákveðnum svæðum.
Arkítektar, iðnhönnuðir og aðrir
sem að verkefninu koma hafa
unnið tillögur fyrir baðstaðina tólf
sem kynntir voru á þinginu, en þeir
eru: Heitu pottarnir á Drangsnesi,
Gvendarlaug í Bjarnarfirði, Kross-
neslaug við Norðurfjörð, Lauga-
land og Reykjanes við Ísa fjarð ar-
djúp, Galtarhryggslaug í Heydal,
Reykjarfjarðarlaug í Reykjar firði
syðri, Krossholtalaug á Birki mel,
Hellulaug í Flókalundi, Djúpa dals-
laug í Djúpadal og Þaraböðin á
Reykhólum. Auk þess kemur Villi-
mey að verkefninu með vöruþróun
varðandi jurtaböð og slíkt. Á tíu af
þessum stöðum er þegar starfsemi
en uppbygging að hefjast á þeim
síðasttalda. Anna sagði að til stæði
að styrkja það sem fyrir er, en
leggja svolítið meira í það og gera
það heildstæðara og skapa hverjum
stað sérstöðu, þannig að upplifunin
verði sú að hver staður sé sérstakur.
Anna sagðist að lokum vilja hrósa
góðu starfi Atvinnuþróunarfélags
Vestfjarða við verkefnið og þá ekki
síst góðu samstarfi við verkefnis-
stjórann, Viktoríu Rán Ólafsdóttur.
Afrakstur umfangsmikillar hug-
mynda- og undirbúningsvinnu fyrir
verkefnið var kynntur á vinnuþingi
í Bjarnarfirði núna í nóvember.
Á þinginu var rætt um verkefnið
frá ýmsum hliðum og endað á því
að móta framtíð þessa viðamikla
klasa. Meðal þess sem fram fór á
vinnuþinginu var opnun heimasíð-
unnar vatnavinir.is. Þá voru bað-
staðirnir tólf á Vestfjörðum kynntir,
staða þeirra í dag og möguleikar til
framtíðar. Undirbúningi á vegum
At vinnuþróunarfélags Vestfjarða
og Vatnavina er lokið og verkefnið
því töluvert á veg komið.
Hermann Ottósson, forstöðu-
maður fræðslu- og ráðgjafarsviðs
hjá útflutningsráði, er meðal þeirra
sem fluttu erindi og tóku þátt í
starfi vinnuþingsins. Hann segir
verkefnið vel á veg komið og er
ánægður með árangur þingsins og
þátttöku Vestfirðinga: „Ég held
að það sé búið að lyfta ákveðnu
grettistaki hérna. Vinna Vatnavina
finnst mér vera með alveg sér-
stökum ágætum, það er komin hér
ákveðin heildarmynd á flesta stað-
ina sem koma til greina og verið
er að vinna með áfram, sem ein-
hvers konar laugar sem á að þróa
sem baðstaði. Ég held að það sem
við þurfum kannski að gera næst
sé að þróa þá vöru sem á að vera
á hverjum stað fyrir sig og til þess
held ég að þurfi að koma nokkuð
breitt lið að.“ Hermann eygir ýmsa
möguleika fyrir Vestfirði í verkefn-
inu en vill þó gjalda varhug við að
farið sé of geyst í hlutina. „Ég held
að Íslendingar séu búnir að fá alveg
nóg af því á síðustu árum að það
sé verið að vekja einhverjar falsk-
ar vonir um að hér munu evrur og
dollarar detta af himnum ofan og
allar laugar og kirnur og koppar á
Vestfjörðum fyllast með tilkomu
þessara baðstaða. Þetta er þróun-
arferli sem tekur ákveðinn tíma
og það tekur tíma að markaðssetja
hlutina og koma þeim í það horf
sem fólk vill sjá, þannig að það
mun ekkert afgerandi gerast í þessu
máli fyrr en eftir einhver ár,“ sagði
Hermann. kse
Vatnavinir kynna tólf
vestfirska baðstaði
Krossneslaug við Norðurfjörð á Ströndum.
Perlufesti náttúrubaða Vatnavina á Vestfjörðum. Bláu punktarnir sýna bað-
staðina.
Skissa af væntanlegum sjávarböðum á Drangsnesi.
Hellulaug – náttúrubað rétt við Flókalund.
Þannig gætu Þaraböðin á Reykhólum litið út.
Skissa af sjávarböðum við Reykjanes.
Galtarhryggslaug í Heydal gæti litið
svona út.
Gvendarlaug í Bjarnarfirði