Bændablaðið - 03.12.2009, Qupperneq 10

Bændablaðið - 03.12.2009, Qupperneq 10
10 Bændablaðið | fimmtudagur 3. desember 2009 Vatnavinir eru ímyndarverkefni á landsvísu en ákveðið var að hefja verkefnið á Vestfjörðum og myndaður var klasi um það síð- ast liðið vor. Hópurinn kallar sig Vatnavini Vestfjarða og saman- stendur af landeigendum, ferða- þjónum, arkitektum og öðrum áhugamönnum sem sameinast í því að þróa vestfirskt aðdráttarafl tengt vatni. Vatnavinir Vestfjarða ætla að flagga vestfirskum nátt- úruperlum og leyfa þannig ferða- mönnum að upplifa þær og menn- ingu svæðisins í gegnum náttúru- laugar og vellíðunarþjónustu sem hópurinn mun þróa næstu árin. Vestfirðir einkennast af fjölda heitra náttúrulauga og hafa umsjón- armenn þeirra sameinast um að nýta þær á sjálfbæran hátt, með það að markmiði að Vestfirðir verði til fyrirmyndar á landsvísu hvað varð- ar uppbyggingu á heilsutengdri ferðaþjónustu. Þema hópsins er heitt og kalt vatn. Sjór, vatn og jarðvarmi hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn sem njóta þess að slaka á í heit- um laugum og ferðast um í leit að nýrri og ógleymanlegri upplifun. Markmið verkefnisins er að þróa náttúruvæna ferðaþjónustu og gera náttúruperlur okkar Vestfirðinga sýnilegri. Í verkefninu er áhersla lögð á að framkvæmdir í kringum heilsulindir, baðstaði og náttúru- laugar séu vandaðar og vel skipu- lagðar. Reynt verður að ljúka nauð- synlegustu framkvæmdum fyrir næsta sumar á útvöldum stöðum, sem allar falla að langtíma framtíð- arsýn heilsutengdrar ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Verkefnið er fjórskipt eftir svæð um. Svæðin eru sunnanverðir Vestfirðir, Strandir, Ísafjarðardjúp og Reykhólasveit. Mikilvægt er að hlúa að séreinkennum hvers svæðis fyrir sig. Í markaðssetningu verður áhersla lögð á sérstöðu hvers svæð- is og stuðlað að því að fá ferða- menn til að heimsækja öll svæðin. Um er að ræða fyrstu skrefin til frekari uppbyggingar á næstu árum með áherslu á fjölgun ferðamanna á þeim baðstöðum sem þegar eru til en hafa fram að þessu lítið verið kynntir innanlands og utan. Vatnavinir Vestfjarða ætla ekki aðeins að hvetja fólk til að nýta náttúrulaugarnar á Vestfjörðum held ur ætlar hópurinn að þróa há- gæða heilsuferðaþjónustu með fram tíðarsýn um uppbyggingu stærri heilsulinda á 1-2 stöðum og verður grunnur lagður að þeirri þróunarvinnu með verkefninu. Um er að ræða langtímaverkefni sem mun krefjast þolinmæði, fjármagns og viljafestu margra til að verða að veruleika. Anna G. Sverrisdóttir er vatna- vinur og ferðamálaráðgjafi og segir hún verkefnið stuðla að því að nýt- ing á heita vatninu fyrir ferðamenn verði meiri og markvissari í því skyni að styrkja Ísland sem ferða- mannaland og ekki síst heilsu- land. Þannig megi styrkja ferða- mennskuna um allt land og skapa sérstöðu á ákveðnum svæðum. Arkítektar, iðnhönnuðir og aðrir sem að verkefninu koma hafa unnið tillögur fyrir baðstaðina tólf sem kynntir voru á þinginu, en þeir eru: Heitu pottarnir á Drangsnesi, Gvendarlaug í Bjarnarfirði, Kross- neslaug við Norðurfjörð, Lauga- land og Reykjanes við Ísa fjarð ar- djúp, Galtarhryggslaug í Heydal, Reykjarfjarðarlaug í Reykjar firði syðri, Krossholtalaug á Birki mel, Hellulaug í Flókalundi, Djúpa dals- laug í Djúpadal og Þaraböðin á Reykhólum. Auk þess kemur Villi- mey að verkefninu með vöruþróun varðandi jurtaböð og slíkt. Á tíu af þessum stöðum er þegar starfsemi en uppbygging að hefjast á þeim síðasttalda. Anna sagði að til stæði að styrkja það sem fyrir er, en leggja svolítið meira í það og gera það heildstæðara og skapa hverjum stað sérstöðu, þannig að upplifunin verði sú að hver staður sé sérstakur. Anna sagðist að lokum vilja hrósa góðu starfi Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða við verkefnið og þá ekki síst góðu samstarfi við verkefnis- stjórann, Viktoríu Rán Ólafsdóttur. Afrakstur umfangsmikillar hug- mynda- og undirbúningsvinnu fyrir verkefnið var kynntur á vinnuþingi í Bjarnarfirði núna í nóvember. Á þinginu var rætt um verkefnið frá ýmsum hliðum og endað á því að móta framtíð þessa viðamikla klasa. Meðal þess sem fram fór á vinnuþinginu var opnun heimasíð- unnar vatnavinir.is. Þá voru bað- staðirnir tólf á Vestfjörðum kynntir, staða þeirra í dag og möguleikar til framtíðar. Undirbúningi á vegum At vinnuþróunarfélags Vestfjarða og Vatnavina er lokið og verkefnið því töluvert á veg komið. Hermann Ottósson, forstöðu- maður fræðslu- og ráðgjafarsviðs hjá útflutningsráði, er meðal þeirra sem fluttu erindi og tóku þátt í starfi vinnuþingsins. Hann segir verkefnið vel á veg komið og er ánægður með árangur þingsins og þátttöku Vestfirðinga: „Ég held að það sé búið að lyfta ákveðnu grettistaki hérna. Vinna Vatnavina finnst mér vera með alveg sér- stökum ágætum, það er komin hér ákveðin heildarmynd á flesta stað- ina sem koma til greina og verið er að vinna með áfram, sem ein- hvers konar laugar sem á að þróa sem baðstaði. Ég held að það sem við þurfum kannski að gera næst sé að þróa þá vöru sem á að vera á hverjum stað fyrir sig og til þess held ég að þurfi að koma nokkuð breitt lið að.“ Hermann eygir ýmsa möguleika fyrir Vestfirði í verkefn- inu en vill þó gjalda varhug við að farið sé of geyst í hlutina. „Ég held að Íslendingar séu búnir að fá alveg nóg af því á síðustu árum að það sé verið að vekja einhverjar falsk- ar vonir um að hér munu evrur og dollarar detta af himnum ofan og allar laugar og kirnur og koppar á Vestfjörðum fyllast með tilkomu þessara baðstaða. Þetta er þróun- arferli sem tekur ákveðinn tíma og það tekur tíma að markaðssetja hlutina og koma þeim í það horf sem fólk vill sjá, þannig að það mun ekkert afgerandi gerast í þessu máli fyrr en eftir einhver ár,“ sagði Hermann. kse Vatnavinir kynna tólf vestfirska baðstaði Krossneslaug við Norðurfjörð á Ströndum. Perlufesti náttúrubaða Vatnavina á Vestfjörðum. Bláu punktarnir sýna bað- staðina. Skissa af væntanlegum sjávarböðum á Drangsnesi. Hellulaug – náttúrubað rétt við Flókalund. Þannig gætu Þaraböðin á Reykhólum litið út. Skissa af sjávarböðum við Reykjanes. Galtarhryggslaug í Heydal gæti litið svona út. Gvendarlaug í Bjarnarfirði

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.