Bændablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | fimmtudagur 3. desember 2009
6 4 9
6
2 3 7
2 1 5 3
7 9 4 1
8 7 6
5
4 2 5
9 2
6 3
2 7 3
5 8 1
2 8 9 4
3 5 8
9 1 4
8 4
6 5
3
3 6 9 1
5 2
1 5 2
4 5
6 4 8
9 4
8 7 6 3
9
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn-
ar. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og
heldur ekki innan hvers reits sem
afmarkaður er af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú
sem er lengst til vinstri er léttust og
sú til hægri þyngst en sú í miðjunni
þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni
www.sudoku.com og þar er einn-
ig að finna fleiri þrautir ef þessi
skammtur nægir ekki.
Líf og lyst
Með hefðbundinn sunnudagshrygg á jólunum
María Rós Newman býr á
Hnappavöllum í Öræfum
þar sem hún sér um að koma
póstinum til skila í sinni sveit.
Henni finnst lestur á mat-
reiðslubókum enn skemmti-
legri en sjálf matseldin og
þar sem María Rós hefur
mjög gaman af brauðbakstri
ákvað hún að gefa lesendum
Bændablaðsins uppskrift að
heilhveitibollum og girnilegu
ostasalati með.
„Sem húsmóðir í sveit er mats-
eld ekki spurning um áhugamál
heldur þörf. Uppáhaldsmaturinn
minn er heimagert kindahakk í
hinum ýmsu útgáfum, endalaust
er hægt að finna nýjar uppskrift-
ir með hakki.
Ég er farin að hlakka til
jólanna, þá fá stóru börnin frí
úr sinni vinnu og koma heim
svo fjölskyldan getur verið öll
saman. Á jólunum var ég vön að
fá reykt svínakjöt en maðurinn
minn var vanur steiktum lamba-
hrygg. Fyrstu árin reyndi ég að
breyta til og hafa innbakaðan
lambahrygg til að hafa jólamat-
inn öðruvísi en sunnudagshrygg-
inn, en ég gafst fljótlega upp á
því og ákvað að henda hrygg inn
í ofninn upp á gamla mátann og
njóta þess í staðinn að vera með
börnunum mínum allan daginn.
Til þess að gera jólamatinn sér-
stakan þá ákvað ég að steikja
ekki lambahrygg frá september
og fram að jólum og þá eru líka
allir á heimilinu farnir að hlakka
til að fá þennan mat.“
Heilhveitibollur
4 tsk. þurrger
5 dl. volgt vatn
1 ½ tsk. salt
100 g smjör
200 g heilhveiti
500 g hveiti
egg til penslunar
Aðferð:
Bræðið smjörið í 3 dl. af vatni
og kælið örlítið. Setjið heil-
hveiti, salt og ger í skál. Hrærið
smjörvatnið saman við, bætið
hvíta hveitinu smám saman út í,
hrærið og hnoðið. Smyrjið skál
með matarolíu og setjið deigið
í, lokið með plastfilmu og látið
hefast í 20 mínútur.
Hnoðið upp deigið og rúllið því í
lengjur. Skerið í þá stærð sem þið
viljið hafa bollurnar og setjið þær
á smurða plötu eða bökunarpapp-
ír. Látið hefast í 20 mínútur í við-
bót og penslið með eggi. Stillið
ofninn á 200°C gráður og bakið
í um 15 mínútur.
(Ef þið eruð svo lánsöm að
eiga brauðvél er aðferðin sú að
setja smjörvatnið fyrst, síðan
mjölið og stilla vélina á deig.
Síðan er aðferðin sú sama nema
að það þarf ekki að láta bollurn-
ar hefast aftur en þá er gott að
setja bollurnar inn í kaldan ofn
og setja svo hitann á).
Ostasalat
1 dós sýrður rjómi
½ lítil dós mayones
1 dós ananaskurl, mínus safi
1 græn paprika
1 rauð paprika
vínber
púrrulaukur
1 mexíkóostur
1 hvítlauksostur
Aðferð:
Brytjið niður papriku, vínber,
púrrulauk og osta. Setjið í skál
og bætið ananaskurli saman
við. Blandið síðan að endingu
majonesi saman við. Gott er að
láta salatið standa eilítið áður en
borið er fram með nýbökuðum
heilhveitibollum.
ehg
MATARKRÓKURINN
Anna hefur alla sína tíð búið
á Magnússkógum en Lolli er
frá Gilsfjarðarmúla í Gilsfirði.
Við tókum við búskapnum hér
árið 2001 af foreldrum Önnu,
þeim Halldóri Guðmundssyni
og Guðrúnu Guðmundsdóttur.
Fyrstu árin leigðum við jörð-
ina en keyptum hana síðan árið
2005 og höfum á þeim tíma fjölg-
að fénu úr um 400 í það sem það
er í dag. Við vorum bæði mjög
ung þegar við byrjuðum að búa,
Anna einungis 21 árs og Lolli 27
ára, en við höldum að þetta hafi
bara gengið nokkuð áfallalaust
hjá okkur. Við erum allavega
þeirrar skoðunar að fleira ungt
fólk ætti að fá að upplifa það sem
við höfum fengið að upplifa.
Býli?
Magnússkógar 3.
Staðsett í sveit?
Í botni Hvammsfjarðar í
Dalabyggð.
Ábúendur?
Ólafur Bragi Halldórsson (Lolli)
og Anna Berglind Halldórsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýr)?
Við eigum tvö börn saman,
Ármann Frey 4 ára og Halldór Óla
2 ára. Svo á Lolli 9 ára gamlan son,
Björgvin Braga. Einnig eru tveir
ómissandi vinnumenn á bænum og
eru það hundarnir Patti og Dropi.
Stærð jarðar?
Um 140 ha á láglegndi, þar af um
40 ha ræktaðir. Síðan er um 500 ha
fjalllendi.
Tegund býlis?
Sauðfjárbú með nokkra grasmótora
til að smala á.
Fjöldi búfjár og tegundir?
Um 720 fjár og 17 hestar.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Anna byrjar morguninn á að sparka
kallinum fram úr rúminu og klæða
strákana sem fara með skólabílnum
í leikskólann. Síðan er gengið til
þeirra verka sem liggja fyrir hverju
sinni. Þessa dagana er verið að rýja
síðustu ærnar.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin?
Önnu finnst leiðinlegast að þrífa
fjárhúsin á vorin en Lolla finnst
leiðinlegast að gera við ónýtar
girðingar. En skemmtilegast er að
sjá afraksturinn koma af fjalli og
fara á hrútasýningar.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár?
Áframhaldandi sauðfjárbúskap
með bættum afurðum, stækkun
húsakosts og heimavinnslu afurða.
Hvaða skoðun hafið þið á félags-
málum bænda?
Við erum nú það ung og óreynd
í bransanum að reynsla okkar í
félagsmálum bænda er ekki mikil,
maður tjáir sig bara meira við vini
og kunningja. En hér í sýslunni
höfum við mjög virkt Félag sauð-
fjárbænda en staða Bændasamtaka
Íslands er óneitanlega mjög erfið
um þessar mundir.
Hvernig mun íslenskum land-
búnaði vegna í framtíðinni?
Við höfum fulla trú á honum með
aukinni heimavinnslu, fækkun
milliliða og utan aðildar að ESB.
Einnig þarf líka að verða meiri ný-
liðun í bændastéttinni. Það er allt of
erfitt fyrir ungt fólk að byrja að búa.
Hvar teljið þið að helstu tæki-
færin séu í útflutningi íslenskra
búvara?
Með hlýnun andrúmslofts, aukn-
um þurrkum og þar af leiðandi
uppskerubresti, skapast óneit-
anlega þörf fyrir okkar vöru, þ.e.
lambakjöt. Að ekki sé nú talað um
hreinleikann.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, súrmjólk, smjör, ostur og egg.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu?
Lambalæri og gott meðlæti.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin?
Eftirminnilegast er þegar Ármann
Freyr, aðeins tveggja ára gam-
all, baðaði einn hvolpinn upp úr
úrgangsolíu um það leyti sem átti
að fara að sýna hann. En viti menn
hann seldist! Einnig gleymist það
seint þegar áburðarreikningurinn
fór fyrst yfir tvær milljónir.
Magnússkógar 3, Hvammssveit
Bærinn okkar
Anna og Lolli í góðu stuði á hrúta-
sýningu. Til hliðar má sjá þrjá dug-
lega vinnumenn, talið frá vinstri:
Björgvin Bragi, Halldór Óli og
Ármann Freyr.
Börn Maríu Rósar þau Elín Helga og Páll Sigurgeir eru hér stolt með nýbakaðar
heilhveitibollur.