Bændablaðið - 03.12.2009, Side 12

Bændablaðið - 03.12.2009, Side 12
12 Bændablaðið | fimmtudagur 3. desember 2009 Sigurgeir Þorgeirsson ráðuneyt- is stjóri í sjávarútvegs- og land- búnaðarráðuneytinu var í upp- hafi nóvember skipaður formað- ur samningahóps Íslands gagn- vart Evrópusambandinu um land bún aðarmál. Bændablaðið tók Sigur geir tali af því tilefni og forvitnaðist um stöðu viðræðna um að ild arsamninga við sam- bandið. Sigur geir segir að mikil vinna sé framundan enda megi búast við því að landbúnaðar- mál verði hvað erfiðust viður- eignar í samningum við Evr ópu- sambandið. Land bún að ar kerfi Íslands er um margt ólíkt því sem er í ESB auk þess sem mála- flokkurinn er mjög víðfeðmur. Sigurgeir segir að vinna við landbúnaðarhluta samninganna hafi í raun hafist í september þegar spurningalista sambandsins var svarað. Nú sé beðið eftir því að ráðherraráðið komi saman og sam- þykki að hefja aðildarviðræður en eins og þekkt er má ætla að af því verði ekki fyrr en á næsta ári. Nú hefur verið gengið formlega frá skipan landbúnaðarhópsins og kom hann saman til fyrsta fundar síðast- liðinn þriðjudag. Fáum ekki styrk til að rækta ólífur! Sigurgeir segir að vinna hóps- ins hefjist á því að greina löggjöf ESB um landbúnað og byggðamál og bera saman við innlenda lög- gjöf. „Þegar og ef samþykkt verður að hefja við okkur viðræður þá er fyrsti kaflinn í því ferli að greina löggjöf ESB þar sem fulltrúar sam- bandsins fara yfir þá hluta sem lúta að landbúnaðar- og byggðamálum. Þá þarf landbúnaðarhópurinn að vera búinn að glöggva sig á þeim gögnum til þess að geta meðtek- ið og jafnframt spurt fulltrúa ESB frekar um álitamál. Það er því gríðarlega mikil vinna framundan fyrir hópinn að glöggva sig á og læra löggjöf sambandsins, átta sig á því hvað af þessum reglugerðum og tilskipunum hafa eitthvert gildi fyrir okkur. Við getum ekki hent til hliðar reglugerðum um ólífur, svo dæmi sé nefnt, því að allt sem felur í sér rétt til styrkja á tegundum sem við höfum ekki tök á að rækta hér hljótum við að hafa í huga og halda til haga vegna möguleika á að fá sambærilega styrki út á aðra fram- leiðslu. Vonandi getum við lagt til hliðar allstóran hluta reglugerða og laga sem við þurfum engar áhyggj- ur að hafa af. Sértækar reglugerð- ir um aðstæður annars staðar sem ekki geta varðað okkar hagsmuni, til að mynda. Seinni hlutinn í þessu ferli er sá að við munum svo fara yfir innlenda löggjöf varðandi þessa málaflokka. Þá eigum við að vera búin að sigta út hvað það er helst sem ber í milli í okkar lög- gjöf og þeirra. Í framhaldi af því, og þegar unnin hefur verið skýrsla um samanburð á lögunum verður síðan mótuð kröfugerð fyrir aðild- arsamningana. Það er sem sagt ekki fyrr en að þessum ferli loknum að hinar eiginlegu samningaviðræður geta hafist.“ Grundvallarmunur á land bún- aðarkerfi Íslands og ESB – Er hægt að meta hvenær það getur orðið? „Ég held að það geti aldrei orðið fyrr en næsta haust. Það má leiða að því líkur að landbúnaðarvið- ræðurnar geti orðið tímafrekastar og þess vegna verður vafalaust lagt kapp á að þær hefjist sem fyrst svo þær tefji ekki viðræðurnar í heild. Um hversu langan tíma þær gætu tekið er ómögulegt að segja.“ – Á hvað þarf að leggja megin- áherslu varðandi landbúnaðarmál, þegar og ef til samningaviðræðna kemur? „Við vitum að það er ákveð- inn grundvallarmunur á land- búnaðarkerfinu hér og í Evrópusambandinu. Við eigum það reyndar sameiginlegt að styrkja landbúnað nokkuð dyggilega bæði með fjárframlögum og tollvernd. Ef við göngum í Evrópusambandið lendum við inn fyrir þeirra tollam- úra, en þeir eru þó lægri en okkar. Grundvöllur sambandsins er síðan tollfrjáls verslun milli landa innan þess. Í því sambandi komum við til með að vilja halda uppi einhverjum vörnum og viðfangsefni samning- anna verður að verja samkeppnis- stöðu og möguleika íslensks land- búnaðar til þess að þrífast eins og áður eða betur. Samningsmarkmið okkar hljóta að miða að því annars vegar að tryggja sjúkdómavarnir, bæði fyrir fólk, búfé og plöntur og hins vegar að tryggja efnahagslega stöðu og vaxtarmöguleika íslensks landbúnaðar.“ Líklegt að lagt verði upp með kröfur um tollvernd og bann við innflutningi Frá upphafi hefur verið gert ráð fyrir að tollvernd á landbúnaðar- vörur falli niður við inngöngu í Evrópusambandið. Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra hefur hins vegar sagt í ræðu og riti að ljóst sé að látið verði reyna á hvort Ísland geti haldið uppi tollvernd fyrir íslenskar land- búnaðarafurðir. Sömuleiðis hefur ráðherra lagt áherslu á að tryggja þurfi áframhaldandi bann og tak- markanir á innflutningi lifandi dýra og hrávöru eins og gert er ráð fyrir í matvælafrumvarpinu sem liggur fyrir þinginu. Sigurgeir vildi ekki tjá sig efnislega um slík samnings- markmið en gera má ráð fyrir að það verði veganestið sem samn- inganefndin tekur með sér. Horft til finnska samningsins Finnskir bændur hafa kvart- að undan því að ekki sé eðlilegt að landinu sé skipt upp þegar kemur að stuðningi við bændur, en aðildarsamningur þeirra við Evrópusambandið gerir ráð fyrir því. Bændasamtökin hafa lagst ein- dregið gegn því að slík skipting yrði tekin upp hér á landi. Sigurgeir telur líklegt, að það verði áherslu- atriði í samningunum að landinu verði ekki skipt í svæði með mis- jöfnum stuðningi. „Við erum norð- an við 62. breiddargráðu og Ísland er allt harðbýlt svæði á alþjóðleg- an mælikvarða (e. Less favourable area). Hér hefur ekki verið vilji til að skipta landinu með tilliti til mis- munandi hárra styrkja, og það held ég að hafi ekkert breyst.“ – Verður litið til samnings Finna við Evrópusambandið, og einnig samnings Norðmanna sem svo var felldur, í viðræðunum? „Við hljótum að kynna okkur þá mjög vel, ekki síst finnska samn- inginn, það sem þar náðist fram og það kerfi sem Finnar búa við. Ég ætla ekki að fullyrða að það verði lagt algjörlega til grundvallar en ég held að við hljótum að hafa þann samning til hliðsjónar að verulegu leiti í okkar starfi.“ – Í finnska samningnum eru ákvæði um að finnska ríkið geti stutt verulega við innlendan land- búnað, auk þeirra styrkja sem koma frá Evrópusambandinu. Er ekki ljóst að við munum gera slíkar kröfur einnig? „Við hljótum að gera kröfur á þeim nótum að við getum sem best tryggt áframhaldandi hag íslensks landbúnaðar og sóknarmöguleika hans. Það hljóta að vera samnings- markmiðin og það felur í sér að við þurfum frekar meiri en minni heim- ildir en Finnar í þessum efnum.“ Verður framleiðendum hvítakjötsins fórnað? Álit meirihluta utanríkisnefndar varðandi landbúnaðarmál í aðild- arumsókn hlýtur að verða leið- arsteinn samninganefndarinnar en þar er tekið fram að skýr stuðning- ur við mjólkurframleiðslu og annan hefðbundinn búskap verði eitt af samningsmarkmiðum Íslands. Af orðalagi meirihlutaálitsins má ráða að meirihluti utanríkisnefndar hafi tekið þá afstöðu að ekki verði sett sem skilyrði í aðildarviðræðum að til komi stuðningur við svínarækt og alifuglarækt við inngöngu í Evrópusambandið. Sigurgeir vildi ekki tjá sig sérstaklega um þetta orðalag en sagði að lögð yrði áhersla á að verja íslenskan land- búnað í heild sinni við samninga- borðið. Það mætti hins vegar færa fyrir því gild rök að með inngöngu í Evrópusambandið hlytu þessar greinar svo þung högg að þau gætu tæpast staðið undir þeim. Er það í fullu samræmi við þá afstöðu sem Bændasamtökin og forsvarsmenn þessara búgreina hafa sett fram um að Evrópusambandsaðild muni veikja landbúnað á Íslandi verulega í heild sinni. fr Samningsmarkmið að tryggja heilbrigði og efnahagslega stöðu Sigurgeir Þorgeirsson fer fyrir samninganefnd Íslands um landbúnaðarmál gagnvart Evrópusambandinu. Áhersla verður lögð á að landinu verði ekki skipt í svæði með tilliti til stuðnings við landbúnað Laugardaginn 21. nóvember síð astliðinn var sagt frá því í frétt í Morgunblaðinu að Ís land uppfyllti ekki verklags- reglur um gerð hagskýrslna. Einkum ætti þetta við um hag- tölur í landbúnaði þar sem Bændasamtökin sjá um skýrslu- gerð. Bændasamtökin væru hags munaaðilar í málinu og ótækt samkvæmt reglum Evr- ópu sambandsins að þau sæju um þá vinnu. Ástæða skrif- anna var sú að hingað til lands kom sendinefnd á vegum Evr- ópusambandsins til fundar við sérfræðinga Hagstofu Íslands. Í fréttinni var jafnframt vitnað í Magnús S. Magnússon skrif- stofustjóra hjá Hagstofunni sem að taldi að vegna þessa gæti þurft að vinna tölfræðina sem á baki gögnum liggur frá grunni. Það gæti valdið því að viðræður við Evrópusambandið myndu tefjast, í það minnsta sá hluti þeirra sem að lýtur að landbún- aðarmálum. Sigurgeir segist telja ólíklegt að svo verði. „Ég held að það sem kemur fram í þessari frétt sé heldur ofsagt. Ég hygg hins vegar að það sé alveg rétt að í framtíð- inni þurfi að skipuleggja söfnun á hagtölum öðruvísi en nú er gert. Þá finnst mér líklegast og eðlileg- ast að Hagstofan verði ábyrg fyrir slíkri hagtölusöfnun þó að það kunni að verða einhver stjórn- sýslustofnun á vegum ráðuneyt- isins sem safnar grunngögnum, í raun og veru þeim grunngögnum sem Bændasamtökin halda utan um í dag. Þetta finnst mér líkleg- asta uppbyggingin. Það er líka rétt að það komi fram að ég tel að þessi þróun verði hvort held- ur sem við gerumst aðilar að ESB eða ekki. Í raun og veru hefðum við átt að vera búin að taka upp samræmda hagtölusöfnun sam- kvæmt EES-samningnum en það hefur dregist hér.“ Sigurgeir segir að það muni örugglega koma til skoðunar á næstunni hvort og hvernig hagtölusöfnun í landbúnaði verði breytt. Sum þau stjórn- sýsluverkefni sem Bænda sam- tök in sinni séu í raun ekki á hendi samtakanna lögum sam- kvæmt heldur séu þau unnin í umboði og með samningum við Matvælastofnun. Sigurgeir segist telja það æskilegra, ekki síst fyrir Bændasamtökin, að færa þau verkefni inn í stjórnsýslustofnun hjá ríkinu, enda liggi þegar fyrir ákvörðun um tilfærslu sumra verkefnanna. Slíkar breytingar hljóti þó óhjákvæmilega að taka tíma. Sigurgeir telur þó ekki að þessi staða muni tefja samninga- ferlið. „Ég held að það sé ofsagt að það séu líkur til þess að ágrein- ingur um gerð hagskýrslna verði settur á oddinn sem deilumál og geti þess vegna stöðvað eða tafið viðræður við ESB. Ráðuneytið treystir Bændasamtökunum sem fagaðila fyrir þessari vinnu. Ég tel ólíklegt að það verði gerð krafa um einhverja skyndibreytingu á því ef við útskýrum nákvæmlega á hverju þetta byggist. Það breyt- ir ekki því að til framtíðar hygg ég að hagtölusöfnun verði færð í opinbera stofnun. Ég tel ljóst að áður en kemur að lokum samn- ingsferilsins verðum við að sýna fram á að við séum að byggja upp einhvern þann strúktúr sem stenst kröfur ESB hvað þetta varðar. Við þurfum að sýna fram á getu okkar og áætlun um að safna þessum gögnum og vinna úr þeim samkvæmt stöðluðum og við- urkenndum aðferðum.“ – Þýðir það ekki að breyta þarf lögum um framleiðslu, verð- lagningu og sölu búvara? Er slík vinna hafin í ráðuneytinu? „Án þess að ég ætli að fullyrða neitt um það tel ég líklegt að það verði að breyta þessum lögum, jú. Slík vinna er hins vegar ekki hafin í ráðuneytinu. Það eru engar eig- inlegar samningaviðræður hafnar. Það breytir ekki því að ég held að óhjákvæmilegt sé að menn byrji fljótlega að leggja drög að því hvernig koma eigi þessum stjórnsýsluverkefnum fyrir til framtíðar, með tilliti til þess að við getum uppfyllt ESB-reglur. Menn hljóta hins vegar að byggja það kerfi þannig upp að það geti þjónað þörfum okkar jafnt utan sem innan Evrópusambandsins,“ sagði Sigurgeir Þorgeirsson. Ólíklegt að samningaviðræð- ur tefjist vegna hagskýrslna Flest bendir þó til að breyta verði fyrirkomulaginu Þann 1. desember kom út nýtt Hrútaspil þar sem finna má allar mik- ilvægustu upplýsingar um efnilegustu hrúta landsins. Hentar spilið jafnt fyrir bændur og spilaáhugafólk því ásamt kynbótaupplýsingum er þetta einnig venjulegur spilastokkur. Sunnudaginn 13. desember verð- ur haldið Íslandsmeistaramót í Hrútaspili á Þjóðminjasafninu klukkan 14. Hrútaspilið er að berast í allar betri verslanir þessa dagana en frek- ari upplýsingar má fá hjá stefan@hrutaspilid.is Sigurgeir Þorgeirsson ráðuneytisstjóri og formaður samninganefndar um landbúnaðarmál í aðildarviðræðum við Evrópusambandið.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.