Bændablaðið - 11.03.2010, Síða 23

Bændablaðið - 11.03.2010, Síða 23
23 Bændablaðið | fimmtudagur 11. mars 2010 Sjónvarps- og útvarpsmennirnir góðkunnu Sigmar Vilhjálmsson og Jóhannes Ásbjörnsson munu þann 26. mars næstkomandi opna veitingastaðinn Íslensku hamborgarafabrikkuna í sam- starfi við Skúla G. Sigfússon á Höfðatorgi í Reykjavík. Þar verður lögð áhersla á ferskt, íslenskt hráefni og innblástur að sumum réttum matseðilsins feng- inn úr sveitum landsins. „Þessi hugmynd kviknaði hjá okkur fyrir nokkrum árum en þegar kreppan skall á breytti það gildis- mati okkar eins og margra annarra. Einhvern morguninn átti ég erf- itt með að fara á fætur og hugsaði að ég nennti ekki vinnunni minni lengur, hringdi í Jóa og nefndi þetta við hann. Jói tók ótrúlega vel í þetta miðað við hvað hann er íhaldssam- ur,“ segir Simmi brosandi. Eftirréttur úr íslenskri sveit Úr varð að félagarnir sögðu upp störfum sem þeir voru í, Jói í mark- aðsdeild Landsbankans og Simmi sem forstöðumaður markaðssviðs Tals, og hófu vinnu síðastliðið vor við að koma veitingastaðnum í gang. „Þetta hefur verið botnlaus vinna en hugmyndin hjá okkur er að fylla skarð hins sáluga Hard Rock-staðar, þar sem við tökum á móti öllum kúnnahópum. Við verð- um á jarðhæðinni á Höfðatorgi í um 300 fermetra rými og staðurinn tekur 140 manns í sæti. Það verð- ur opið til tíu á kvöldin á virkum dögum og til tólf um helgar, en um helgar munum við bjóða gestum staðarins far niður í bæ eftir mál- tíð. Okkur er mikið í mun að hafa þetta eins íslenskt og hægt er og því mun eingöngu hljóma íslensk tónlist á staðnum, en við vinnum að lagalistum í samstarfi við tonlist. is,“ útskýrir Jói. Þrátt fyrir að 13 hamborgararétt- ir séu á matseðlinum verður einn- ig boðið upp á nokkrar útfærslur af heilsuréttum og eftirrétti úr íslenskri sveit. „Við vorum á ferð um land- ið í sumar og komum við hjá Erlu Ívarsdóttur á Geirlandi við Kirkjubæjarklaustur þar sem við fengum himneska skyrtertu. Hún ljáði okkur uppskriftina, sem við fáum að nota á nýja staðnum. Við notum eingöngu ferskt hágæðahrá- efni í hamborgarana og ekkert fryst hráefni verður notað. Síðan verð- ur sérstakur réttur á matseðlinum, síðasta kvöldmáltíð þeirra Reagan og Gorbatsjov sem þeir snæddu í Höfða hér um árið, sem við köllum „The last supper of the Cold War“, en við höfum fengið uppskriftina í hendur. Þannig að við erum mjög bjartsýnir og Höfðakýrin verður stolt og sómi staðarins við inngang- inn eftir að Tolli listmálari hefur fengið frjálsar hendur til að mála á hana listaverk. Það verður því ekki dónalegt að hafa slíkan verndara yfir staðnum,“ segir Jói og Simmi kinkar kolli því til samþykkis. ehg Íslenskt hráefni í öndvegi Simmi og Jói með Höfðakúna góðu, nýkomna til landsins frá Ameríku, en hún mun prýða nýjan veitingastað þeirra félaga, Íslensku hamborgarafa- brikkuna. Stærð 11,3 x 21,5 m. Verð kr. 5.900.000,- með virðisaukaskatti Stærð 14,3 x 29,9 Verð kr. 9.480.000,- með virðisaukaskatti Þak- og veggjastál 0,5 mm galv. Verð kr. 1.600 m2 0,6 mm galv. Verð kr. 1.980 m2 0,45 mm litað Verð kr. 1.690 m2 0,5 mm litað Verð kr. 2.100 m2 Stallað / litað Verð kr. 2.400 m2 Verðdæmi: Víkurhvarf 5 Í hesthúsum er mikið fjör Því nú skal fara að járna Ef helluskeifur eru ei með í för Fer gamanið að kárna Síminn er 8937050 Smíða og geri við loftræstingar, þakrennur, snjógildrur, Þakgegnumtök, þak og glugga flasningar, reykrör. Geri við vatnskassa millikæla og hitablásara Er staðsettur á Akureyri benniblikk@talnet.is

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.