Bændablaðið - 11.03.2010, Blaðsíða 22

Bændablaðið - 11.03.2010, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | fimmtudagur 11. mars 2010 Félag ferðaþjónustubænda og Ferðaþjónusta bænda hafa nú látið hanna nýtt bókunarkerfi fyrir bændur sem gerir þeim kleift að hafa mun betri yfirsýn yfir stöðu bókana hjá sér. Kerfið er tengt við bókunarkerfi Ferða- þjónustu bænda sem gerir starfs- fólki þar auðveldara um vik að sjá hvar er laust rúm hverju sinni. Síðast en ekki síst auðveldar kerf- ið ferðafólki um víða ver öld sem sækja vill íslenskar sveit ir heim að skipuleggja ferðir sínar, bóka og greiða fyrir gistingu og aðra þjónustu í gegnum netið. Eins og málið snýr við þeim síð astnefndu geta þeir nú farið inn á heimasíður Ferðaþjónustu bænda, sveit.is eða farmholidays. is, og leitað að bæjum til að gista á. Á síðunum er mjög öflugt landa- kortakerfi sem auðveldar leitina og gerir fólki kleift að skoða aðstæður á hverjum bæ. Síðan er hægt að fá upplýsingar um laust gistirými og aðra þjónustu sem er í boði, mál- tíðir, hestaleigu, veiðileyfi eða aðra afþreyingu. Þannig er í raun hægt að skipuleggja ferðir sínar um landið eftir þessu kerfi og að lokum greiða fyrir það í gegnum örugga greiðslumiðlun. Að lokinni greiðslu fá þeir send ferðagögn og upplýsingar á netinu. Með því að tengjast Ferða- þjón ustu bænda í gegnum þetta bók unar kerfi geta bændur fylgst með fram boði á gistingu, bæði hjá sjálfum sér og á öðrum ferðaþjón- ustubæjum. Bókanir birtast sam- stundis í miðlægu bókunarkerfi Ferðaþjónustu bænda og þar geta starfsmenn ávallt fylgst með fram- boðinu. Hingað til hafa þeir þurft að treysta á upplýsingar úr tölvu- pósti eða síma. Hver bær er með sína undir- síðu á heimasíðum Ferðaþjónustu bænda. Þar geta bændur sett upp með auðveldum hætti glugga fyrir bókunarvélina. Þeir bændur sem eru með eigin heimasíður geta einnig fengið bókunarglugga inn á þær. Þessu til viðbótar er nú í boði svonefnd Gistibók en það er hót- elbókunarkerfi þar sem hægt er að skrá inn upplýsingar um nöfn og þjóðerni gesta, fjölda og aðrar athugasemdir, verð fyrir gistingu og fleira. Þessa Gistibók er hægt að nálgast yfir netið úr hvaða tölvu sem er og í henni getur bóndinn jafnt séð stöðuna fram í tímann og fengið yfirlit yfir bókanir aftur í tímann. Í Gistibókinni er hægt að útbúa gistináttaskýrslur til að senda Hagstofunni og hún tengist bók- haldskerfum sem auðveldar rekstr- arbókhaldið. –ÞH Á markaði Markaðssíða Bændablaðsins hefur ekki látið sitt eftir liggja í umfjöll- un um Evrópumál og landbúnað á undanförnum misserum. Skýrsla rannasóknastofnana landbúnaðar- ins í Finnlandi og Svíþjóð (MTT og SLI) frá 2007 um mat á áhrifum norðlægs stuðnings í Finnlandi og Svíþjóð er áhugaverð lesning fyrir áhugafólk um þetta viðfangsefni (og má finna í heild sinni á verald- arvefnum). Í henni er víða komið við en hér verður að þessu sinni aðeins drepið á breytingar á við- skiptum með landbúnaðarvörur í Svíþjóð og samanburð á framleiðni í norðurhéruðum Skandinavíu við suðlægari hluta ESB Í skýrslunni er lagt mat á breyti- leika í framleiðni í landbúnaði eftir héruðum í Finnlandi og Svíþjóð samanborið við Danmörku. Dan- mörk er notuð sem viðmiðunar- svæði þar sem framleiðsluskilyrði eru talsvert hagstæðari og bændur þurfa ekki á sama hátt að glíma við erfið skilyrði líkt og kollegar þeirra í þeim héruðum Norður Finnlands og Norður Svíþjóðar þar sem Norðlægur stuðningur er greiddur. Niðurstöður samanburðarins eru sýndar í meðfylgjandi töflu. Framleiðni landbúnaðar í Dan- mörku er sett sem einn og fram- leiðni samanburðarhéraðanna sem hlutfall af því. Niðurstöðurnar sýna yfirburði landbúnaðar í Danmörku, Suður Svíþjóð kemst næst í fram- leiðni, þó aðeins með 80% af fram- leiðni dansks landbúnaðar. Lægst er framleiðnin í Norður Svíþjóð 58% af framleiðni dansks land- búnaðar og lítið eitt hærri í Norður Finnlandi, 61% af framleiðni dansks landbúnaðar. Svæði Framleiðni - hlutfall Danmörk 1,00 Suður Finnland 0,71 Mið Finnland 0,70 Mið vestur Finnland 0,70 Norður Finnland 0,61 Suður Svíþjóð 0,81 Mið Svíþjóð 0,80 Norður Svíþjóð 0,58 Meðfylgjandi tafla gefur yfirlit yfir viðskiptajöfnuð búvara frá Svíþjóð árin 1995 og 2005, nei- kvæð tala þýðir að innflutningur er meiri en útflutningur. Glöggt má sjá að innflutningur búvara jókst stórlega á 10 ára tímabili. Svíþjóð hefur ekki sambærilega yfirburði í búvöruframleiðslu og Danmörk og Þýskaland og því er kemur nið- urstaðan ekki á óvart í ljósi þess að viðskipti með búvörur urðu tolla- laus frá fyrsta degi aðildar að ESB. Nettó útflutningur búvara (í milljónum evra) frá Svíþjóð eftir löndum 1995 og 2005 Land Kjöt og kjötvörur Mjólkurafurðir Egg 1995 2005 1995 2005 1995 2005 Finnland 8,5 11,7 14,5 3,3 -1,7 -2,4 Danmörk -75,9 -245,4 -7 -63,6 0,1 -1,7 Þýskaland -13,3 -135 -8,6 -54 0 -0,5 Önnur ESB lönd -42,2 -160,7 -38,3 -89,1 -0,1 -2,6 Önnur lönd -19,7 -28,5 21 66,2 1,8 4,1 Samtals -142,6 -557,9 -18,4 -137,2 0,1 -3,1 Heimild: An Evaluation on the impact of Nordic aid schemes in Northern Finland and Sweden, skýrsla frá því í nóvember 2007. Erna Bjarnadóttir hagfræðingur Bændasamtaka Íslands eb@bondi.is Evrópumál Í Markaðspunktum Greiningar deildar Arion banka mánudaginn 8. mars segir að á árinu 2009 hafi mælst 6,5% samdráttur í landsfram- leiðslu sem er lítillega undir spá deildarinnar um 7,5% samdrátt á árinu. Mismunurinn endurspeglast í minni samdrætti í einkaneyslu ásamt hagstæðari utanríkisviðskiptum. Þessar tölur sýna ekki eins mikið hrun og í fyrstu var talið, þrátt fyrir að samdráttur í landsframleiðslu sé einn sá mesti sem mælst hefur þá er samdrátturinn minni en ætla mætti miðað við þjóðarútgjöldin. Þessi nið- urstaða endurspeglast í breyttri neyslukörfu heimila frá hruni, þar sem vægi innlendra vara hefur aukist á kostnað innfluttra. Slíkt hefur jákvæð áhrif á utanríkisviðskipti (vegna minnkandi innflutnings) og þar með á hagvöxtinn. EB 6,5% samdráttur í landsframleiðslu Kjötmark- aður í ESB Í mars hefti Agra focus kemur fram að innflutningur ESB á nautakjöti jókst um 9,1% á árinu 2009. Bæði Argentína og Uruguay juku útflutning sinn til ESB. Á móti dróst nautakjöts- framleiðsla í ESB saman um 5,9% frá janúar 2009 til nóvem- ber 2009. Útflutningur frá ESB hefur að sama skapi dregist saman um 14,9% á sama tíma, mestur samdráttur varð í útflutn- ingi nautakjöts til Rússlands, bæði í magni og verðmætum. Verð á nautakjöti í ESB í febrúar sl. var sem hér segir: Ungnaut 328 evrur/100 kg, lækkun um 2,1% á ársgrundvelli. Verð á kjöti af uxum var 301 evra/100 kg, lækkun um 2,6% á 12 mán- aði tímabili. Verð á kýrkjöti var 222 evrur/100 kg, lækkun um 2,9% og verð á kjöti af kvígum var 312,59 evrur 100 kg, lækkun um 4%. Talsmenn kjötiðnaðar- ins hafa bent á þessar breytingar, minnkandi framleiðslu nauta- kjöts í löndum ESB og vaxandi innflutning frá Suður-Ameríku. EB Áhrif ESB-aðildar í Svíþjóð og Finnlandi www.fishpal.com         Vil tu sel ja sta ng vei ði? Viltu selja erlendum veiðimönnum stangveiði, gistingu og fæði? Nánari upplýsingar gefur Jón Sigurðsson Sími: 534-8082 Netfang: info@fishiceland.com Heitasta fermingargjöfin! Vinsælu flís Hestaskjóls ábreið- urnar eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn, hlýjar, léttar og auðvelt að þvo. Sérmerktar eftir óskum kaupanda. Sendum gegn póstkröfu Sími: 438 1026 Gsm: 865 7451 (Halldís) Frá undirritun samninganna. Á myndinni eru, frá vinstri: Hafrún Þor valds- dóttir, deildarstjóri söludeildar Orkuveitu Reykjavíkur, Þórhallur Bjarna- son, formaður SG og Magnús Kristjánsson, framkvæmdastjóri Orku söl- unn ar. Garðyrkjubændur semja um raforkukaup Samband garðyrkjubænda hefur gert rammasamninga við Orkusöluna og Orkuveitu Reykjavíkur til fimm ára sem eru til hagsbóta fyrir ylræktendur með afsláttarkjörum á orkunni. Nýmæli samninganna eru að allir félags- menn SG geta gengið inn í þá, hvort sem þeir framleiða gúrkur, garð- plöntur, kartöflur eða blóm. Samningarnir taka sem sagt yfir alla notkun, svo sem notkun heimilisrafmagns og kæla sem sumir notast töluvert við. ˆ  $      " $  Auðveldar og flýtir fyrir bókunum yfir netið Bóka gistingu Dagsetning frá Dagsetning til VELDU DAGSETNINGAR: Bókunarglugginn sem birtist á heima síðu býlisins. 20% 15% 10% 5% 0 -5% -10% -15% -20% -25% Landsframleiðsla og þjóðarútgjöld á árunum 1981-2009.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.