Bændablaðið - 11.03.2010, Blaðsíða 28

Bændablaðið - 11.03.2010, Blaðsíða 28
28 Bændablaðið | fimmtudagur 11. mars 2010 6 2 4 3 8 3 5 5 8 6 8 4 2 5 9 2 7 1 7 9 6 4 9 6 8 7 4 3 5 4 1 3 7 8 9 1 5 4 6 3 9 2 6 1 6 1 2 8 9 5 7 8 4 5 3 5 8 4 2 3 7 7 3 9 2 8 9 6 Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn- ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem er lengst til vinstri er léttust og sú til hægri þyngst en sú í miðjunni þar á milli. Hægt er að fræðast nánar um Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni www.sudoku.com og þar er einn- ig að finna fleiri þrautir ef þessi skammtur nægir ekki. Líf og lyst Afríkubúar nota gjarna chili-ald- in í sína matargerð ásamt hvít- lauk og engifer sem gefa matnum sannarlega góðan keim. Á aust- urströnd Afríku eru töluverð ind- versk áhrif og því er við hæfi að gefa hér uppskrift að bragðgóðu naan-brauði með hvítlaukskeim, sem passar einstaklega vel með afríska hrísgrjónakjúklingnum þar sem kryddtegundirnar fyrr- nefndu eru í aðalhlutverki. Afrískur hrísgrjónakjúklingur 1 kg kjúklingabitar, gjarna leggir, læri og vængir salt pipar 2 msk. olía 2 laukar, saxaðir fremur smátt 2-3 hvítlauksgeirar 1 chili-aldin, fræhreinsað og saxað 1 msk. rifin engiferrót 1 dós tómatar, saxaðir 700 ml sjóðandi vatn, eða eftir þörfum 1 msk. kjúklingakraftur 300 g hrísgrjón (helst basmati) 2-3 paprikur, helst mismunandi litar væn lúka af spínati eða 75 g frosið spínat e.t.v. cayenne-pipar Aðferð: Kryddaðu kjúklinginn með pipar og salti. Hitaðu olíuna í víðum, þykkbotna potti eða á stórri pönnu með þéttu loki og brúnaðu kjúk- linginn vel á öllum hliðum við háan hita. Taktu hann svo upp og settu á disk. Lækkaðu hitann og láttu lauk- inn krauma í olíunni í 5-8 mínútur án þess að brúnast. Settu á meðan hvítlauk, chili-aldin, engifer og tómata í matvinnsluvél og láttu hana ganga þar til allt er orðið að mauki. Helltu tómatmaukinu í pott- inn. Hrærðu sjóðandi vatni og kjúk- lingakrafti saman við. Settu kjúk- linginn út í, hitaðu að suðu og láttu malla í um 10 mínútur. Hrærðu þá hrísgrjónunum saman við og settu lok á pottinn, helst svo þétt að nær engin gufa sleppi út. Láttu malla við mjög hægan hita í um 10 mín- útur. Fræhreinsaðu á meðan papr- ikurnar og skerðu þær í ræmur. Settu þær í pottinn, settu lokið aftur á hann og láttu malla áfram í um 10 mínútur, eða þar til hrísgrjónin eru mjög meyr og grænmetið soðið. Settu spínatið út í og láttu það malla í 1-2 mínútur. Smakkaðu rétt- inn og bragðbættu hann eftir þörf- um, bættu við cayenne-pipar ef þú vilt hafa hann krassandi. Berðu réttinn fram í pottinum og hafðu með honum gott brauð, gjarna naan-brauð eða pítubrauð, penslað með örlítilli olíu og hitað í ofni eða undir grilli. (Úr Matnum hennar Nönnu) Naan-brauð með hvítlaukskeim hálfur pakki þurrger (5g) 2 dl vatn 50 g sykur 1 dl mjólk 1 egg, vel hrært (allt að því þeytt) 2 tsk. salt 600 g hveiti um 50 g brætt smjör Aðferð: Blandið saman sykri og vatni, hrærið gerinu saman við og látið hefast í 10 mínútur. Bætið síðan mjólkinni, hrærðu egginu og salt- inu saman við blönduna. Blandið hveitinu saman við þar til deigið er orðið mjúkt, það þarf ef til vill ekki að nota allt hveitið. Hnoðið deigið í um fimm mínútur og leyfið því að hefast í klukkustund undir klút. Hnoðið deigið saman aftur og skiptið því í bolta á stærð við golf- kúlur. Leyfið kúlunum að hefast í 30 mínútur undir klút. Fletjið litlu kúlurnar út og gott er að grilla þær í 2-3mínútur á hvorri hlið. Gott er að pensla þær með smjöri fyrir og þegar grillað er og til að bragðbæta brauðið enn frekar er gott að pressa örlítinn hvítlauk út í smjörið fyrir penslun. ehg Afrísk og indversk áhrif MATARKRÓKURINN Afrískur hrísgrjónakjúklingur er kraftmikill réttur þar sem hvítlaukur, engi- fer og chili-aldin gefa sterkt og gott bragð. Á Hala í Háfshverfi gamla Djúpárhrepps býr Jón V. Karlsson og í Brautartungu þau Jóhann Jónsson og Bettina Wunsch og sonur þeirra Níls Bjarni. Býli? Tvíbýlið Hali og Brautartunga. Staðsett í sveit? Í Háfshverfi, gamla Djúpárhrepps. Ábúendur? Jón V. Karlsson, Hala, Jóhann Jónsson og Bettina Wunsch, Brautartunga. Fjölskyldustærð (og gæludýr)? Jóhann er sonur Jóns, en þau Bettina og Jóhann eiga soninn Níls Bjarna. Þar eru þrír basenji- hundar (afrískir veiðihundar), dísupar, kakarikipar, finkupar, spakan dísukarl (toppur), dúfur, tveir kettlingar, tveir border collie hundar. Stærð jarðar? Um 40 hektara tún, um 6 hektara kartöflugarðar, 400 hektara beiti- land. Tegund býlis? Blandaður búskapur. Fjöldi búfjár og tegundir? Um 300 vetrarfóðraðar kindur, 100 hross, 15 holdagripir og níu geitur. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Við byrjum daginn á þvi að fóðra skepnurnar. Tvisvar í viku vinnum við kartöflur og keyrum þær svo til Reykjavíkur. Jóhann er svo að byggja þessa dagana. Bettina hreyf- ir hestana þegar tími gefst til. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Ef allt gengur vel er ekkert starf leiðinlegt, en það er alltaf leiðinlegt þegar skepnur deyja. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Tíminn mun leiða það í ljós. Hvaða skoðun hafið þið á félags- málum bænda? Erfitt hefur reynst hjá bændum að standa saman. Hvernig mun íslenskum land- búnaði vegna í framtíðinni? Það fer eftir því hvort við förum í ESB eða ekki. Hvar teljið þið að helstu tæki- færin séu í útflutningi íslenskra búvara? Kartöflum...hehe. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Léttmjólk, sojamjólk, ostur, græn- meti, egg, smjör. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Við gátum ekki ákveðið okkur um það en SS pylsur með öllu eru alltaf vinsælar, allvega hjá köllunum. Eftirminnilegasta atvikið úr búskapnum? Þegar fyrsti kiðlingurinn fæddist – sem var þá líka fyrsti kiðlingurinn sem fæddist í gamla Djúpárhreppi. Bærinn okkar Brautartunga/Hali Fyrsti kiðlingurinn sem er borinn í gamla Djúpárhreppi. Dagur. Níls með afrísku veiðihundana.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.