Fréttablaðið - 09.01.2012, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 09.01.2012, Blaðsíða 42
9. janúar 2012 MÁNUDAGUR18 sport@frettabladid.is patrekur jóhannesson skoraði fyrsta mark Íslands í úrslitakeppni Evrópumóts þegar hann kom Íslandi í 1-0 á móti Svíþjóð í fyrsta leik liðsins á EM í Króatíu í leik sem fór fram 21. janúar 2000. Patrekur skoraði markið sitt með langskoti á fyrstu mínútu leiksins. Ísland var með frumkvæðið í upphafi leik en Svíar breyttu stöðunni úr 5-5 í 13-6 á tíu mínútum og unnu að lokum öruggan 31-23 sigur. eM í handbolta 2012 7 dagar Fróðleikur á Fimmtudögum Fjársýsluskattur, kaup á rafrænni þjónustu og virðisaukaskattskvaðir 12. janúar | kl. 8:30 | Borgartúni 27 rafræn þjónusta og fjársýsluskattur – breytingar á virðisaukaskattsumhverfi fyrir- tækja og einstaklinga ásamt öðrum nýlegum breytingum á virðisaukaskattsumhverfinu. utanumhald virðisauka skattskvaða og nýlegar breytingar í framkvæmd. Skráning og nánari upplýsingar á kpmg.is Enska bikarkeppnin: Man. City-Man. Utd 2-3 0-1 Wayne Rooney (10.), 0-2 Danny Welbeck (29.), 0-3 Wayne Rooney, víti (39.), 1-3 Aleksandar Kolarov (48.), 2-3 Sergio Aguero (65.) Rautt spjald: Vincent Kompany, Man. City (12.). Chelsea-Portsmouth 4-0 1-0 Juan Mata (48.), 2-0 Ramires (84.), 3-0 Ramires (86.), 4-0 Frank Lampard (90.+3). Sheff. Wed.-West Ham 1-0 1-0 Chris O’Grady (87.) Peterborough-Sunderland 0-2 0-1 Sebastian Larsson (48.), 0-2 James McClean (58.) Barnsley-Swansea 2-4 Gylfi Þór Sigurðsson hóf leik á bekk Swansea en kom af bekknum á 59. mínútu. Everton-Tamworth 2-0 1-0 John Heitinga (4.), 2-0 Leighton Baines, víti (78.). Fulham-Charlton 4-0 1-0 Clint Dempsey (8.), 2-0 Clint Dempsey (60.), 3-0 Clint Dempsey víti (81.), 4-0 Damien Duff (87.) Gillingham-Stoke City 1-3 1-0 Danny Kedwell (16.), 1-1 Jonathan Walters (34.), 1-2 Cameron Jerome (43.), 1-3 Robert Huth (49.) Hull City-Ipswich Town 3-1 Ívar Ingimarsson var ekki í leikmannahópi Ipswich og leystur undan samningi eftir leik. Macclesfield-Bolton 2-2 0-1 Ivan Klasnic (6.), 1-1 Colin Daniel (16.), 2-1 Arnaud Mendy (67.), 2-2 David Wheater (77.) Grétar Rafn Steinsson lék ekki með Bolton. Milton Keynes Dons-QPR 1-1 1-0 Dean Bowditch (65.), 1-1 Heiðar Helguson (89.) Heiðar kom af bekknum hálftíma fyrir leikslok. Newcastle-Blackburn 2-1 0-1 David Goodwillie (35.), 1-1 Hatem Ben Arfa (69.), Jonas Gutierrez (90.). Reading-Stevenage 0-1 Brynjar Björn Gunnarsson sat á bekknum allan leikinn hjá Reading. Tottenham-Cheltenham 3-0 1-0 Jermain Defoe (24.), 2-0 Roman Pavlyuchenko (43.), 3-0 Giovani dos Santos (87.) WBA-Cardiff 4-2 Aron Einar Gunnarsson var hvíldur hjá Cardiff. Coventry-Southampton 1-2 Derby-Crystal Palace 1-0 Swindon-Wigan 2-1 DRÁTTUR í 32-lIðA úRSlIT: Brighton/Wrexham - Newcastle Sunderland - Middlesbrough Dagenham & Redbridge - Southampton Hull City - Crawley MK Dons/QPR - Chelsea West Brom - Norwich Blackpool - Sheffield Wednesday Arsenal/leeds - Aston Villa Stevenage - Notts County Watford Tottenham liverpool - Manchester United Derby - Stoke City Everton - Fulham Macclesfield/Bolton - Swansea Sheffield United v Birmingham/Wolves Nottingham Forest/leicester - Swindon úrslit HANDBolTI Íslenska karlalands- liðið stóð sig vel á æfingamóti í Danmörku um helgina. Liðið lagði Slóvena, gerði jafntefli við Pól- verja og tapaði svo gegn Dönum í úrslitaleik í gær þar sem lykil- menn fengu að hvíla. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari var nokkuð sáttur með helgina er Fréttablaðið heyrði í honum eftir Danaleikinn. „Það er margt gott í þessu og annað sem þarf að laga. Það er sem betur fer hægt að laga það,“ sagði Guðmundur en hann var mjög ánægður með varnarleikinn í mótinu. „Hann var að halda lengstum mjög vel og við vorum að skora mikið úr hraða upp hlaupum. Sóknar leikurinn fór batnandi með hverjum leik og var virkilega góður í Dana leiknum. Við erum að gera okkur seka um of marga tækni feila og svo erum við að fá á okkur óþarfa tveggja mínútna brott vísanir. Það kostar mikið í stórum leikjum,“ sagði Guðmundur en Ingimundur Ingimundar son og Sverre Jakobs son stóðu vaktina fyrir miðri vörn megnið af fyrstu tveimur leikjunum en Ingimundur fékk svo að hvíla í gær þar sem hann er ekki alveg heill heilsu. Vignir Svavars son leysti hann af hólmi í gær og stóð sig vel að sögn Guðmundur. Ingimundur var ekki einn um að hvíla í gær því Guðjón Valur Sigurðsson fékk líka að hvíla þar sem hann er með „tak“ í lærinu að sögn þjálfarans. Guðmundur vildi því ekki taka neina áhættur með þá sem og Alexander Petersson sem hvíldi lengstum. „Hann er þreyttur,“ sagði Guðmundur. Guðjón, Alexander og Arnór Atla son, sem er með brjósklos, fá nú að hvíla fram á miðvikudag. Þeir Aron Pálmars son og Arnór skiptu með sér miðju- og skyttu- stöðunni um helgina. „Þeir gerðu það ágætlega. Við þurfum samt að fá meira frá Aroni sem og Alexander.“ Þjálfarinn segir að frammi- staðan um helgina hafi verið fín og staðið undir hans væntingum. „Ég var í rauninni bara óánægður með einn hálfleik af sex. Það var fyrri hálfleikur gegn Póllandi. Vörnin er að standa heilt yfir vel en markvarslan hefði mátt vera betri. Hún var ekkert sérstök en ekki léleg heldur. Þeir félagar í markinu eiga meira inni samt. Ég er því bærilega sáttur með þessa helgi en við verðum að nýta vikuna vel til þess að laga það sem þarf fyrir EM.“ Strákarnir koma nú heim, æfa vel og spila svo æfingaleik gegn Finnum á föstudag áður en þeir fara til Serbíu á laugardag. „Það er sitt lítið af hverju sem við þurfum að laga í þessari viku. Ég er samt þokkalega sáttur við hvar liðið er statt eftir þessa helgi. Maður veit samt aldrei fyrr en út í mótið er komið. Við erum að bæta okkur en betur má ef duga skal.“ henry@frettabladid.is LIÐIÐ ER Á RÉTTRI LEIÐ Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari er þokkalega sáttur við ástandið á landsliðinu þegar vika er í fyrsta leik á EM í Serbíu. Liðið stóð sig vel í Danmörku um helgina. Þrír leikmenn fá hvíld næstu daga vegna meiðsla. líflegur Guðmundur fær hér gula spjaldið í gær. FRéttABLAðIð/OLE nIELSEn átök Arnór Atlason fær hér óblíðar móttökur frá varnarmönnum Dana í leik liðanna í gær. FRéttABLAðIð/OLE nIELSEn FóTBolTI Það kom öllum á óvart í gær þegar tilkynnt var að Paul Scholes, miðjumaður Manchester United, hefði ákveðið að taka fram skóna á ný. Leikmaðurinn hafði ákveðið að hætta knattspyrnu iðkun eftir síðasta tíma bil en hann virðist hafa séð eftir þeirri á kvörðun. Scholes mun hafa hitt Alex Ferguson, knattspyrnu stjóra liðsins, og beðið um að koma til baka. „Ég hef í raun séð eftir þeirri ákvörðun að hætta lengi. Það gleður mig mikið að stjórinn hafi enn trú á mér og telji að ég geti styrkt liðið. Mér hlakkar bara til að takast á við næstu mánuði og hjálpa klúbbnum að ná árangri.“ „Undanfarnar vikur hefur Scholes æft með varaliðinu og verið duglegur í lyftingar- salnum,“ sagði Alex Ferguson í viðtali eftir leikinn. „Hann kom til mín og sagðist sjá eftir því að hafa lagt skóna á hilluna. Þetta eru bara frábærar fréttir fyrir félagið og hann kemur á fullkomnum tímapunkti þar sem erfiðir mánuðir eru framundan.“ Leikmenn Man. Utd vissu ekkert af málinu fyrr en Scholes birtist í búningsklefa United í gær. - sáp Scholes reif fram skóna: Sá eftir því að hafa hætt Mættur aftur Scholes spilaði í treyju númer 22 í gær en hann var alltaf númer 18 áður en hann hætti. nORDIC PHOtOS/GEtty IMAGES FóTBolTI Manchester - liðin mættust í 3. umferð enska bikarsins á Etihad - vellinum í gær. Þeir rauð- klæddu náðu að innbyrða góðan sigur, 3-2, í hreint mögnuðum leik en Man. Utd var 3-0 yfir í hálfleik. Heimamenn í City neituðu að gefast upp og skoruðu tvö mörk í síðari hálfleik en lengra komust þeir ekki. Manchester City lék einum manni færri nánast allan leikinn en Vincent Kompany fékk að líta beint rautt spjald þegar hann fór í væga tveggja fóta tæklingu gegn Nani. „Þetta rauða spjald breytti alveg gangi leiksins en við fengum samt sem áður tæki færi í lokin til að jafna metin. Við ætlum okkur að á frýja þessu rauða spjaldi og vonandi dregur enska knatt- spyrnu sam bandið það til baka,“ sagði Mancini, knatt spyrnu stjóri Man. City, eftir leikinn í gær. „Liðið hélt greinilega að þetta væri komið í hálfleik og við vorum alltof kærulausir í þeim síðari. Þeir voru skynsamir í seinni hálf- leiknum og biðu rólegir eftir því að við gerðum mistök. Við áttum að vinna þennan leik meira sann- færandi,“ sagði Ferguson, knatt- spyrnustjóri United, eftir leikinn. - sáp Man. Utd lagði erkifjendurna í City í bikarnum í gær: Áttum að vinna stærra hetjan Wayne Rooney skoraði tvö góð mörk fyrir United í gær. nORDIC PHOtOS/GEtty

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.