Fréttablaðið - 01.02.2012, Side 2
1. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR2
FÓLK „Grafan var til hérna í
nágrenninu en var ógangfær og
allt fast í henni. Við fengum hana
fyrir slikk en það fór mikill pen-
ingur og vinna í að taka hana
í gegn,“ segir Eggert Sigurður
Kristjánsson, 27 ára Hólmvík-
ingur, sem tók
upp á því ásamt
pabba sínum,
að taka í gegn
gamla gröfu
og búa til snjó-
mokstursvél.
Vélin, sem
er af gerðinni
Fiat Allis, er frá
upphafi áttunda
áratugar síðustu
aldar og komst aftur á götuna í
desember síðastliðnum.
„Við nefndum hana Drottn-
inguna. Sumir vildu að hún fengi
nafnið Kyoto því hún reykti svo
mikið, en ég benti þeim á að það
geri Margrét Danadrottning líka.
Nafnið var því samþykkt.“
Eggert segir ekki nægilega
mikið að gera í mokstrinum svo
hafa megi af því lifibrauð. Það sé
dagamunur á því hversu mikið sé
að gera. Þeir feðgar eru sjálfstætt
starfandi verktakar með alls kyns
vélar, og hafa meðal annars unnið
fyrir Hólmavíkurhrepp auk þess
að sinna verkefnum fyrir fyrir-
tæki og einstaklinga.
Í frítíma sínum hefur Eggert
meðal annars unnið á sumarbú-
staðajörðum þar sem hann lagar
til landslagið með traktorsgröfu.
Auk þess þykir honum gaman að
gera við snjósleða og hefur verið
duglegur í því, enda snjósleða-
sportið í miklu uppáhaldi. Eggert
er félagi í snjósleðaklúbbnum
Strandatröllin, en hann segist vera
algjörlega sleðasjúkur og nota öll
tækifæri til að fara á snjósleða.
Faðir Eggerts, Kristján Guð-
mundsson, hefur lengi verið í véla-
bransanum og á fyrirtækið Strand-
frakt ehf., auk þess sem hann
vinnur hjá flutningafyrirtæki.
Eggert hefur því verið alinn upp
í vélabransanum og hefur mikinn
áhuga á flestu sem tengist vélum.
Hann er nýfluttur aftur heim frá
Noregi þar sem hann vann á jarð-
ýtu og gröfu. „Það mætti eiginlega
segja að ég væri vélkynhneigður,“
segir Eggert. tinnaros@frettabladid.is
EGGERT SIGURÐUR
KRISTJÁNSSON
Drýgir tekjurnar á
spúandi Drottningu
Eggert Sigurður Kristjánsson og faðir hans, Kristján Guðmundsson, tóku í gegn
gamla ógangfæra gröfu og breyttu henni í snjómokstursvél til að drýgja tekjurn-
ar. Vélin var nefnd Drottningin í höfuðið á Margréti Þórhildi Danadrottningu.
SPURNING DAGSINS
SÓMIR SÉR VEL Eggert segir ekki nægilega mikið að gera til að hann hafi lifibrauð af
snjómokstrinum, en hann hafi gaman af honum.
FYRIR OG EFTIR Ekki leit hún nú vel út blessuð grafan þegar hafist var handa við að
gefa henni nýtt líf.
ÚKRAÍNA, AP Hátt í sextíu manns
höfðu í gær látist af völdum mik-
illa kulda í austanverðri Evrópu
síðustu daga.
Í Úkraínu höfðu þrjátíu manns
látist, flest útigangsfólk. Þar í
landi hafði 21 fundist látinn úti á
götu, fimm létust á sjúkrahúsum
og fjórir á heimili sínu.
Meira en fimm hundruð manns
hafa verið fluttir á sjúkrahús í
Úkraínu vegna ofkólnunar eða
kals.
Í Póllandi höfðu fimm manns
dáið vegna kuldans síðasta sólar-
hringinn og var þá fjöldi látinna
kominn upp í fimmtán þar í landi.
Í Rúmeníu mátti rekja tvö
dauðsföll til vetrarríkisins og að
minnsta kosti einn hefur látist í
Rússlandi vegna kuldanna.
Frostið fór niður í 27 gráður í
suðaustanverðu Póllandi í gær og
var því spáð að frostið þar færi
niður í 29 gráður í nótt. Í Úkraínu
var spáð 28 gráðu frosti.
Mikil snjókoma hefur víða fylgt
kuldunum. Yfirvöld hafa opnað
neyðarskýli fyrir heimilislaust
fólk og boðið fólki upp á heita súpu.
Fólk er varað við að vera utandyra
og hundruð hafa leitað sér hjálpar
vegna kals. - gb, bj
Kuldar í austanverðri Evrópu bitna illa á heimilislausu fólki:
Tugir hafa látist í vetrarhörkum
KULDALEGT Í SOFÍU Í höfuðborg Búlgaríu setja vetrarhörkurnar svip sinn á mannlífið.
NORDICPHOTOS/AFP
REYKJAVÍKURBORG Meirihluti Besta
flokksins og Samfylkingar í vel-
ferðarráði hefur beðist afsök-
unar á því að of seint var leitað
álits hagsmunaðila á borð við
eldri borgara
og aðstandend-
ur Alzheimer-
sjúklinga á
breytingum á
gjaldskrám vel-
ferðarsviðs.
„Velferðar-
ráð allt sam-
þykkti bókun
þann 27. októ-
ber 2011 þar
sem tekið var undir tillögu full-
trúa Vinstri grænna um að leitað
skyldi umsagna hagsmunasam-
taka vegna gjaldskrárhækkana
áður en gjaldskrár yrðu afgreidd-
ar í borgarstjórn. Það var ekki
gert fyrr en eftir að borgarstjórn
samþykkti gjaldskrár á fundi
sínum 15. nóvember. Það voru
mistök,“ segir meirihlutinn og
biðst afsökunar. - gar
Velferðarráð Reykjavíkur:
Fórst fyrir að
spyrja aldraða
BJÖRK
VILHELMSDÓTTIR
LÖGREGLUMÁL Ellefu ára drengur í
Melaskóla ógnaði börnum á skóla-
lóðinni með stórum hníf í gær og
hótaði þeim lífláti. Að sögn lög-
reglu forðuðu börnin sér þegar
drengurinn veittist að þeim, en
atvikið átti sér stað þegar 5., 6. og
7. bekkur Melaskóla voru úti í frí-
mínútum.
Engan sakaði og að sögn lög-
reglu gerðist þess ekki þörf að
afvopna drenginn. Lögregla var
kölluð til og er málið nú komið
inn á borð barnaverndaryfir-
valda. - sv
Barnaverndarmál í Melaskóla:
Drengur otaði
hníf í skólanum
Lára Margrét Ragnarsdóttir,
hagfræðingur og fyrrverandi
alþingismað-
ur, er látin 64
ára að aldri.
Hún varð
bráðkvödd á
heimili sínu
á sunnudag.
Lára skilur
eftir sig þrjú
uppkomin
börn.
Lára lauk stúdentsprófi frá
MR árið 1967 og viðskipta-
fræðiprófi frá Háskóla Íslands
árið 1977. Þá stundaði hún
framhaldsnám í heilsuhag-
fræði og stjórnun við Háskól-
ann og Verslunarháskólann
í Björgvin á árunum 1979 til
1981. Lára var kjörin á þing
fyrir Sjálfstæðisflokkinn í
alþingiskosningunum árið
1991 og sat á þingi til ársins
2003.
Lára Margrét
Ragnarsdóttir
látin
LÖGREGLUMÁL Tólf umferðar-
merkjum hefur verið stolið úr
hinum nýju Bolungarvíkurgöng-
um, en ekki er vitað hvenær
þjófnaðurinn átti sér stað. Þá
hefur tveimur merkjum til við-
bótar verið stolið af þjóðveginum
í Ísafjarðardjúpi. Þetta kemur
fram á bb.is.
Merkin eru 840 þúsund króna
virði. Umferðarmerkin úr göng-
unum voru öll upplýsingamerki
á bláum grunni með hvítum
stöfum. Skiltin við þjóðveginn
voru merkt „Önnur hætta“ og
„Impossible“. Lögreglan á Ísa-
firði biður þá sem hafa upplýs-
ingar um málið að hafa samband
í síma 450 3731. - þeb
Fjórtán skilti horfin:
Umferðarskiltum
stolið úr göngum
NÁTTÚRUVERND Svandís Svavars-
dóttir, umhverfisráðherra, hefur
staðfest friðlýsingu Kópavogs-
bæjar á þeim hluta Skerjafjarðar
sem er innan bæjarmarka sveitar-
félagsins.
Þá hafa fulltrúar Kópavogs-
bæjar, Náttúrufræðistofu Kópa-
vogs og Umhverfisstofnunar gert
með sér samning um umsjón og
rekstur hins friðlýsta svæðis
sem nær til fjara og grunnsævis
fjarðarins.
Markmiðið með friðlýsingunni
er að vernda lífríki við ströndina,
í fjöru og á grunnsævi. Jafnframt
er stefnt að því að vernda útivistar-
og fræðslugildi svæðisins.
Öll önnur sveitarfélög við
Skerjafjörð, utan Reykjavíkur,
vinna nú að friðlýsingu fjarðarins.
Garðabær reið á vaðið og friðlýsti
þann hluta fjarðarins sem er innan
bæjarmarka Garðabæjar í október
2009. Þá hafa fulltrúar Álftaness
undirritað viljayfirlýsingu um
friðlýsingu svæðisins.
Hjá Reykjavíkurborg er vilji til
þess að tengja vinnuna við endur-
skoðun á aðalskipulagi sem kynna
á í sumar. Þá spila vangaveltur um
framtíðarstaðsetningu Reykja-
víkurflugvallar inn í ákvörðunina
sem og hugmyndir um vegteng-
ingu yfir fjörðinn. - mþl
Önnur sveitarfélög við Skerjafjörð, utan Reykjavíkur, vinna að friðlýsingu:
Kópavogur friðlýsir hluta Skerjafjarðar
KÓPAVOGI Í GÆR Guðrún Pálsdóttir,
bæjarstjóri Kópavogs, og Svandís
Svavarsdóttir umhverfisráðherra.
Svandís, þurfa þingmenn ekki
að hugsa út fyrir rammann?
Jú, og virkja í sér náttúruna.
Illa gengur að ná saman um þings-
ályktunartillögu um Rammaáætlun um
vernd og nýtingu náttúrusvæða, en
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra
var meðal þeirra sem kynntu áætlunina
síðasta haust.
EFNAHAGSMÁL Vöruskiptajöfnuður
við útlönd var jákvæður á síðasta
ári um sem nam 104,5 milljörðum
króna, samkvæmt bráðabirgða-
tölum Hagstofu.
Vöruskiptajöfnuðurinn var 15,4
milljörðum lakari en árið áður.
Árið 2011 voru vörur fluttar út
fyrir 626,4 milljarða, en innflutn-
ingur nam 521,9 milljörðum.
Útflutningur jókst um tæp tólf
prósent milli ára, en innflutning-
ur jókst um tæp fimmtán prósent.
Iðnaðarvörur, meðal annars
ál, námu um 54 prósentum
útflutnings og sjávarafurðir
um 40 prósentum, en verðmæti
sjávarafurða jókst um 14,4
prósent milli ára. - þj
Vöruskiptajöfnuður 2011:
Aukning á inn-
og útflutningi