Fréttablaðið - 01.02.2012, Page 6
1. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR6
SÝRLAND, AP Arabalöndin og Vestur-
lönd eru sammála um að Bashar al-
Assad Sýrlandsforseti eigi að fara
frá völdum sem allra fyrst.
Þau stóðu saman að ályktun
þess efnis, sem rædd var í
öryggis ráði Sameinuðu þjóðanna
síðdegis í gær, en Rússar virtust
ekki líklegir til að greiða henni
atkvæði sitt. Þeir hafa neitun-
arvald í ráðinu, eins og Banda-
ríkjamenn, Bretar. Frakkar og
Kínverjar.
Rússar sögðu hættu á því að
ályktunin leiði af sér borgara-
styrjöld í Sýrlandi. Þar hefur þó
í reynd geisað borgarastyrjöld
vikum saman.
Æ fleiri hermenn gerast lið-
hlaupar úr sýrlenska hernum
og ganga til liðs við uppreisnar-
menn. Hörð átök hafa geisað víða
um land og um helgina brutust
út í fyrsta sinn harðir bardag-
ar í höfuðborginni Damaskus.
Stjórnarhernum tókst að hrekja
uppreisnarmenn frá úthverfum
Damaskus, en átökunum er engan
veginn lokið.
Hundruð manna hafa fallið í
bardögum síðustu daga og hafa
átökin harðnað verulega síðan
eftirlitsmenn Arababandalagsins
boðuðu brottför sína frá landinu í
síðustu viku.
Eftirlitsmennirnir sögðust ekki
sjá sér fært að koma ástandinu
í lag og hurfu því á brott nú í
byrjun vikunnar.
Sameinuðu þjóðirnar telja að
hátt í 5.500 manns hafi látið lífið
síðan mótmælin gegn Assad for-
seta hófust snemma á síðasta ári.
Átökin í gær voru einna
hörðust í hverfinu Baba Amr í
borginni Homs, þar sem upp-
reisnarmenn hafa frá upphafi
mótmælanna verið öflugir.
Sjónarvottar sögðust hafa
heyrt skothríð og sprengingar
klukkustundum saman auk þess
sem þykkan reyk mátti sjá í fjar-
lægð. Talið var að reykurinn
bærist frá olíuleiðslu, sem hafi
orðið fyrir sprengju, en óljóst var
um málavöxtu.
Ályktunin, sem rædd var í
öryggisráði Sameinuðu þjóð-
anna, er byggð á friðaráætlun
sem Arababandalagið lagði fram
en Assad forseti hefur hafnað.
Samkvæmt henni er Assad
hvattur til þess að hætta aðgerð-
um gegn mótmælendum í land-
inu og láta völd sín í hendur vara-
forseta landsins. Síðan eigi að
mynda þjóðstjórn sem fengi það
verkefni að efna til kosninga.
gudsteinn@frettabladid.is
er sá
fjöldi
sem
Sameinuðu þjóðirnar áætla
að hafi fallið síðan mótmælin
hófust snemma á síðasta ári.
5.500
LÚXEMBORG Atvinnuleysi í ríkjum
Evrópusambandsins og á evru-
svæðinu náði hámarki undir lok
síðasta árs og hefur ekki verið
hærra á þessari öld.
Í ríkjum Evrópusambandsins
mældist atvinnuleysið 9,9 prósent í
nóvember og desember, en það var
9,5 prósent fyrir ári. Á evrusvæð-
inu var hlutfallið hærra, eða 10,4
prósent, en í fyrra var það slétt tíu
prósent.
Hagstofa Evrópusambandsins,
Eurostat, telur að tæplega 24
milljónir manna innan ESB hafi
verið án atvinnu í desember. Þar
af hafi 16,5 milljónir verið í evru-
ríkjunum sautján, og 5,5 milljónir
atvinnulausra voru undir 25 ára
aldri.
Minnst var atvinnuleysið í
Austur ríki, Hollandi og Lúxem-
borg, frá 4,1 prósenti til 5,2 pró-
senta. Atvinnuleysið er mest á
Spáni, í Grikklandi og Litháen.
Á Spáni voru tæp 23 prósent án
atvinnu í desember.
Í fjórtán aðildarríkjum var
minna atvinnuleysi nú í desember
en fyrir ári og í tólf þeirra var
atvinnuleysið meira. Á Írlandi stóð
atvinnuleysið í stað milli ára. - þeb
Tæpar 24 milljónir manna innan ESB voru án vinnu í lok síðasta árs:
Atvinnuleysi í hámarki í Evrópu
Atvinnuleysi eftir
löndum
Mest atvinnuleysi
Spánn 22,9 %
Grikkland 19,2 %
Litháen 15,3 %
Minnst atvinnuleysi
Austurríki 4,1 %
Holland 4,9 %
Lúxemborg 5,2 %
Atvinnuleysi hér á síðasta ársfjórðungi
Ísland 6,0 %
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Miele eldhústæki
Stríðið í Sýrlandi
rætt í öryggisráði
Hart var sótt að Rússum í gær að samþykkja ályktun gegn Sýrlandi í öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna. Rússar sögðu ályktunina ótæka, hún gæti leitt til
borgarastríðs í Sýrlandi. Í raun hefur borgarstríð geisað þar vikum saman.
LIÐHLAUPA FAGNAÐ Sýrlenskir mótmælendur fagna liðhlaupa úr hernum sem hefur
gengið til liðs við þá. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ert þú orðin/n þreytt/ur á fann-
fergi þessa vetrar?
Já 56,4%
Nei 43,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ert þú fylgjandi því að lögum
um líffæragjafir verði breytt
þannig að gengið sé út frá sam-
þykki látinna?
Segðu þína skoðun á visir.is
NOREGUR Um það bil 15 prósent
af vinnandi fólki í Noregi eru
erlendir ríkisborgarar. Þetta
kemur fram í fjölmiðlum þar í
landi, en samkvæmt upplýsing-
um frá skattayfirvöldum voru
2.560.000 starfandi í fyrra og þar
af voru 387.103 útlendingar.
Erlendu starfsfólki hefur
fjölgað verulega eftir gildistöku
Evrópureglna árið 2004. Tveir
hagfræðingar við Viðskipta-
háskólann í Osló segja þessa
þróun hafa verið jákvæða fyrir
norskt efnahagslíf, enda sé
að mestu um að ræða faglært
starfsfólk frá Austur-Evrópu og
Svíþjóð. - þj
Vinnumarkaðurinn í Noregi:
15% vinnandi
eru útlendingar
ÖFLUGUR VINNUMARKAÐUR Stór hluti
vinnandi fólks í Noregi er útlendingar.
FRÉTTABLAÐIÐ/BJÖRGÓLFUR HÁVARÐSSON
REYKJAVÍKURBORG Skrifstofustjóri velferðarsviðs
Reykjavíkur segir það ekki hlutverk sviðsins að
finna viðmælendur fyrir fjölmiðla. Þetta kemur
fram í svari Huldu Styrmisdóttur vegna fyrir-
spurnar í borgarráði eftir frétt Ríkisútvarpsins um
að lagt hefði verið fyrir starfsmenn velferðarsviðs
að svara ekki fjölmiðlum sjálfir.
Þann 11. janúar fengu forstöðumenn og stjórn-
endur á velferðarsviði tölvupóst. „Það er vinnu-
regla að vísa öllum fyrirspurnum eða óskum frá
fjölmiðlum fyrst til upplýsingafulltrúa,“ segir
meðal annars í póstinum sem Hulda kveður hafa
verið sendan að beiðni stjórnenda sviðsins. Tilefnið
hafi verið ósk fjölmiðils um að taka viðtöl við not-
endur þjónustu velferðarsviðs á einni starfsstöðva
þess.
„Mikilvægt er að samræmi sé í viðbrögðum for-
stöðumanna varðandi tiltekna þætti, þar með talið
aðgengi að starfsstöðvum og samskipti við fjöl-
miðla,“ segir í svari skrifstofustjórans við fyrir-
spurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokks og
Vinstri grænna. Ástæðan sé eðli þjónustunnar.
„Þeir sem njóta þjónustu velferðarsviðs standa
oftast höllum fæti vegna veikinda, fötlunar,
öldrunar, félagslegra erfiðleika eða af öðrum ástæð-
um og er það skylda velferðarsviðs að verja þá, þar
með talið gagnvart fjölmiðlum.“ - gar
Velferðarsvið borgarinnar hleypir ekki fjölmiðlum að starfsstöðvum og starfsfólki:
Verja skjólstæðinga gegn fjölmiðlum
VELFERÐARSVIÐ Fjölmiðlar fá almennt ekki aðgang og starfs-
fólkið vísar á upplýsingafulltrúa varðandi svör við spurningum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SVÍÞJÓÐ Nær þriðji hver sænskur
læknastúdent leggur stund á
læknisfræðinámið utan Svíþjóð-
ar. Áður fóru flestir til Danmerk-
ur í læknisfræði en nú hafa ný
Evrópusambandslönd, eins og til
dæmis Rúmenía, orðið vinsæl.
Á vef Svenska Dagbladet segja
stúdentar sem eru í háskóla í
Cluj Napoca frá svindli og mútu-
greiðslum. Einn kveðst óttast
tilhugsunina um að einhverjir
þeirra eigi eftir að starfa innan
heilbrigðisgeirans í Svíþjóð.
Rektor skólans segir að grip-
ið hafi verið til aðgerða vegna
svindls. - ibs
Sænskir læknanemar:
Þriðjungur fer
utan til náms
NOREGUR Tveir menn voru í gær
dæmdir í sjö og þriggja og hálfs
árs fangelsi vegna ráðabruggs
um hryðjuverk gegn Jyllands-
Posten í Danmörku og teiknar-
anum Kurt Westergaard. Þriðji
maðurinn hlaut fjögurra mánaða
fangelsi fyrir að hafa aðstoðað
við að útvega sprengiefni.
Þremenningarnir neituðu allir
að hafa verið með áætlanir um
hryðjuverk. Við réttarhöldin lagði
saksóknari fram gögn sem bentu
til að einn hinna dæmdi hefði
verið í æfingabúðum al-Qaeda í
Pakistan. - ibs
Skipulögðu hryðjuverk:
Margra ára
fangelsisdómar
SKIPULAGSMÁL Alls bárust 68 til-
lögur í hugmyndasamkeppnin um
Ingólfstorg og Kvosina. Fimm til-
lögur verða valdar til að taka þátt
í framkvæmdasamkeppni sem
er seinna þrepið. Fá þeir tvær
milljónir króna hver til að útfæra
tillögur sínar.
„Þátttakendur munu þá vinna
frekar úr hugmyndum sínum um
hönnun hótels og almennings-
rýma innan reitsins,“ segir í til-
kynningu frá Reykjavíkurborg.
Að loknu seinna þrepi verður
hulunni svipt af nöfnum allra
keppanda og niðurstaða dóm-
nefndar birt og haldin sýning
á öllum tillögum sem bárust í
báðum þrepum. - gar
68 tillögur um Ingólfstorg:
Fimm fá tvær
milljónir hver
INGÓLFSTORG Vinningshafar munu
útfæra tillögur sínar.
UMHVERFISMÁL Snæfellsnes hefur
fengið umhverfisvottun sína end-
urnýjaða. Tilkynning frá Eart-
hCheck-vottunarsamtökunum um
að vottun hefði náðst fyrir 2012
barst 16. janúar, segir í frétt frá
Náttúrustofu Vesturlands.
Snæfellsnes hefur haft
umhverfisvottun á starfsemi
sinni frá árinu 2008. Til þess að
viðhalda slíkri vottun er krafist
vöktunar á auðlindanýtingu og
ýmsum umhverfisþáttum auk
stöðugra úrbóta í umhverfis- og
samfélagsmálum. - shá
Umhverfisvottun frá 2008:
Snæfellsnes fær
vottun að nýju
KJÖRKASSINN