Fréttablaðið - 01.02.2012, Síða 30
1. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR26
folk@frettabladid.is
Bardagaíþróttir sækja stöð-
ugt í sig veðrið á Íslandi.
Strákar hafa verið í meiri-
hluta þeirra sem iðka sport-
ið, en áhugi stelpna hefur
aukist mikið undanfarið.
HEILSA „Við erum rosalega ánægð-
ir með þessa aukningu,“ segir Jón
Viðar Arnþórsson, formaður bar-
dagaíþróttaklúbbsins Mjölnis.
Áhugi kvenfólks á bardaga-
íþróttum hefur stóraukist undan-
farin misseri. Jón Viðar hjá Mjölni
segir mikla fjölgun hafa átt sér
stað frá því að klúbburinn flutti
í kastalann svokallaða, sem hýsti
áður starfsemi Loftkastalans. „Við
byrjuðum með stelputíma í vetur
og þannig náðum við að halda
enn þá betur í þær,“ segir Jón og
bætir við að box og glímutími sé í
boði sérstaklega fyrir stelpur, en
í öðrum tímum eru að sjálfsögðu
bæði kynin.
En hvað veldur þessum aukna
áhuga?
„Það er erfitt að segja, þær
eru bara að uppgötva hvað þetta
er skemmtilegt. Þetta er fyrir
alla, ekki bara stráka – það held-
ur líka betur betur í strákana að
hafa stelpurnar,“ segir Jón Viðar
í léttum dúr.
Sigursteinn Snorrason hjá Com-
bat Gym tekur í sama streng og
finnur fyrir auknum áhuga hjá
stelpunum. „Stelpurnar sækja í
aðeins öðruvísi greinar en strák-
arnir,“ segir hann og bætir við að
fáar stelpur séu í blönduðum bar-
dagalistum, en á móti séu þær um
helmingur iðkenda taekwondo í
Combat Gym. „Þetta hefur þró-
ast svona í gegnum árin, aðallega
vegna þess að okkar helsta afreks-
fólk í taekwondo eru tvær stelpur.“
Sigursteinn segir algengt að
stelpur komi saman í hópum,
ólíkt strákunum sem koma oftast
einir eða með einn félaga með sér.
„Stelpurnar eru að fatta að þetta
snýst bara ekki um að setja á sig
hanska og lemja hverja aðra.“
atlifannar@frettabladid.is
Fleiri stelpur læra að slást
NOTA SNJALLSÍMA Í VERSLUNARFERÐUM Ný rannsókn sýnir fram á
að fólk notar snjallsíma í síauknum mæli í verslunarferðum sínum. Samkvæmt rann-
sókn bandarísku miðstöðvarinnar The Pew notaði rúmur helmingur snjallsímaeigenda
símana sína til að rannsaka á netinu vörurnar sem þeir voru að skoða.
TÆKNI Svo virðist sem fólki þyki
auðveldara að ljúga í gegnum texta-
skilaboð en með öðrum samskipta-
leiðum.
David Jingjun Xu, aðstoðarpró-
fessor við Viðskiptaháskólann í
Wichita, stýrði nýverið rannsókn á
170 nemendum sínum og var þetta
útkoman. Jingjun Xu setti nem-
endunum það fyrir að reyna að
selja hlutabréf með mismunandi
hætti, í persónu, í síma, með mynd-
spjalli eða með því að senda texta-
skilaboð. Nemendunum var sagt
að þeir myndu hljóta peningaverð-
laun fyrir góða sölu auk þess sem
þeim voru gefnar þær upplýsingar
að verðbréfin myndu fljótlega falla
um helming.
Þegar kaupendur bréfanna voru
spurðir um sannsögli þeirra sem
höfðu selt þeim bréfin var niðurstað-
an greinileg. Þeir sem áttu í sam-
skiptum með textaskilaboðum voru
allt að 95 prósent líklegri til að ljúga
að viðskiptavinum sínum en þeir
sem höfðu haft samskipti í gegnum
myndspjall, 31 prósent líklegri en
þeir sem áttu samskipti í persónu
og 18 prósent líklegri en þeir sem
töluðu saman í gegnum síma.
Það borgar sig því augljóslega
ekki að nota textaskilaboð ef sann-
leikans er óskað. - trs
Auðveldara að ljúga
með smáskilaboðum
ÓHEIÐARLEGAR? Góðar líkur eru á að þessar stúlkur séu að ljúga að viðtakendum
smáskilaboðanna.
SLEGIST Í MJÖLNI Ljósmyndari Fréttablaðsins leit inn á stelpuæfingu í Mjölni í
gærkvöldi þar sem ekkert var gefið eftir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BYRJENDATÍMAR Í BOÐI
■ Fólk á ýmsum aldri stundar bardagaíþróttir.
■ Mjölnir, Combat Gym og fleiri bardagaklúbbar eru með byrjenda-
námskeið, þar sem farið er yfir undirstöðuatriðin.
■ Á heimasíðum klúbbanna má finna nánari upplýsingar.
MATUR McDonalds hefur nú gefið það út að fyrir-
tækið sé hætt að nota umdeildan nautakjötskraft
í hamborgarana sína.
Krafturinn hefur verið kallaður „bleikt slím“
og er í stuttu máli nautakjötsafgangar sem hafa
verið lagðir í bleyti í ammoníum í þeirri von að
gera þá örugga til áts og bragðgóða.
Veitingastaðirnir Taco Bell og Burger
King gáfu líka út fyrir nokkru
að þeir væru hættir að nota
kraftinn í matinn sinn.
Það má þakka stjörnukokkinum
Jamie Oliver fyrir þessar breyting-
ar, en hann bað keðjur opinberlega um
að taka „slímið“ úr umferð.
Bleikt slím úr umferð
lífsstíll
lifsstill@frettabladid.is
26