Fréttablaðið - 01.02.2012, Síða 33
MIÐVIKUDAGUR 1. febrúar 2012 29
Nýtt
Moisture Surge Intense - Skin Fortifying Hydrator
Öflugt og styrkjandi rakakrem
Ef þér finnst húðin alltaf þarfnast meiri raka, ef veturinn er vandræðatími,
prófaðu þá nýja Moisture Surge Intense rakakremið.
Glæsilegur kaupauki fylgir ef keyptar eru vörur frá Clinique
fyrir 4.900 kr. eða meira dagana 1.-7. febrúar.*
*meðan birgðir endast
dagar í LYFJU
Það hefur varla farið framhjá
nokkrum manni að stjörnurnar
Seal og Heidi Klum hafa sótt um
skilnað eftir sjö ára hjónaband.
Seal hefur þó ekki setið auðum
höndum frá því að tilkynnt var
um skilnaðinn fyrir rúmri viku,
því hann hefur verið á fullu
við að kynna nýju plötuna sína
beggja vegna Atlantshafsins.
Hann hefur farið ófáum orðum
um hjónaband sitt og skilnaðinn
í viðtölum og hefur meðal annars
sagt að það sé ekki útilokað að
þau hjónin muni ná sáttum á ný.
Athygli hefur vakið að R&B
söngvarinn hefur enn ekki tekið
niður giftingarhringinn, og því
greinilegt að hann hefur ekki
gefið upp alla von þrátt fyrir að
hjónabandið hafi staðið á brauð-
fótum í nokkra mánuði. - trs
Enn með
hringinn
GIFTINGARHRINGURINN Á SÍNUM STAÐ
Þrátt fyrir að þau séu búin að sækja um
skilnað er Seal greinilega ekki tilbúinn
að leggja árar í bát.
Það er enn bið í að ofurparið Brad Pitt og Angel-
ina Jolie gangi upp að altarinu. Parið, sem er talið
eiga von á sínu sjöunda barni, hefur áður gefið
það út að þau munu ekki ganga í það heilaga fyrr
en jafn réttur allra hafi verið tryggður og hjóna-
bönd samkynhneigðra verði leyfð.
Pitt tjáði sig þó um það í viðtali við The
Hollywood Reporter nýlega að það væri erf-
itt að halda þetta út. Hann sagði pressuna
frá börnunum þeirra verða sífellt meiri, auk
þess sem þau hefðu sjálf mikla löngun til að
bindast hvort öðru á þennan hátt en þau eru
búin að vera saman í á sjöunda ár.
Í viðtali á SAG verðlaunahátíðinni
síðastliðinn sunnudag sagðist Pitt sjá eftir
því að hafa tjáð sig um þessa löngun hans
til að ganga að eiga barnsmóður sína.
Ekkert brúðkaup
Sjarmatröllið Keith Urban fór
eflaust sæll og glaður heim af
Sveitatónlistarverðlaunahátíðinni
í Ástralíu síðastliðið laugardags-
kvöld með tvo verðlaunagripi í
höndunum.
Urban var valinn besti söngv-
ari ársins auk þess sem plata
hans, You Gonna Fly, hlaut verð-
laun sem best selda platan hjá
Sanity fyrirtækinu. Lítið hefur
farið fyrir söngvaranum á undan-
förnum vikum, en hann er enn að
jafna sig eftir aðgerð á hálsi sem
hann gekkst undir í nóvember
síðastliðinn. Hann er þó væntan-
legur aftur á svið fljótlega.
Sveitasöngkonan Beccy Cole
hlaut einnig tvö verðlaun á hátíð-
inni, en hún var valin besta söng-
kona ársins auk þess sem þær
Kasey Chambers fengu verðlaun
fyrir besta samspil radda á árinu
með dúett sínum Millionaires.
Eftirsóttustu verðlaun kvölds-
ins, plata ársins, féllu í skaut
Adam Harvey fyrir plötu hans
Falling Into Place.
Sveitasöngv-
arar verð-
launaðir
KEITH URBAN Fór heim með tvo gull-
gítara.
– Lifið heil
Fyrir
börnin
í Lyfju
www.lyfja.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
5
81
01
0
1/
12
Gildir 1.-15. febrúar 2012.
20%
afsláttur
af allri Biomega línunni.