Fréttablaðið - 07.02.2012, Síða 13

Fréttablaðið - 07.02.2012, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 7. febrúar 2012 Róbert R. Spanó prófessor og forseti lagadeildar HÍ HUGLEIÐINGAR UM LÖG OG RÉTT Börnin og lögin Lög eiga að tryggja sann-gjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn sem hópur í samfélaginu eiga mikið undir því að Alþingi og stjórnvöld nái þessum mark- miðum auk þess sem ábyrgð for- eldra er mikil. Þau eru því ávallt fullorðnum háð. Er því afar brýnt að málefni barna séu jafn- an í brennidepli í réttarkerfinu, í sífellu sé leitast við að gera betur, styrkja stöðu þeirra, efla vitund og þekkingu um aðstæð- ur þeirra og velferð. Er þetta áréttað í 3. mgr. 76. gr. stjórnar- skrárinnar þar sem fram kemur að börnum skuli tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem vel- ferð þeirra krefst. Mótunarár barna eiga að vera tími öryggis, umhyggju og gleði. Áföll sem verða í lífi barns geta fylgt því til æviloka. Í samræmi við áðurnefnt stjórnarskrárákvæði er leitast við að tryggja réttarvernd barna með margvíslegum hætti í lögum. Þar má nefna menntalöggjöfina, barnalög, barnaverndarlög og refsilöggjöfina. Um þessar regl- ur væri hægt að hafa mörg orð. Að þessu sinni verður aðeins farið nokkrum orðum um nýleg- ar breytingar á almennum hegn- ingarlögum í átt að aukinni refsi- vernd barna og fjallað sérstaklega í því sambandi um athyglisverðan dóm Hæstaréttar frá 19. janúar sl. Nýlegar breytingar á ákvæðum hegningarlaga um kynferðisbrot gegn börnum Á árinu 2005 fór þáverandi dóms- og kirkjumálaráðherra þess á leit við Ragnheiði Braga- dóttur, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, að hún tæki saman drög að frumvarpi til laga um breytingu á tilteknum ákvæðum almennra hegningar- laga. Endurskoðunin varðaði m.a. ákvæði laganna um kynferðisbrot gegn börnum. Með frumvarpi því sem Ragnheiður útbjó, sem var ítarlega og vel rökstutt, var m.a. lagt til að hugtakið nauðgun yrði rýmkað mjög frá því sem áður hafði gilt og að ungur aldur þol- enda myndi virka til þynging- ar við ákvörðun refsingar fyrir nauðgun. Þá var lagt til að upphaf fyrningarfrests kynferðisbrota miðaðist við átján ára aldur brota- þola, en ekki fjórtán ár eins og áður hafði verið. Við þingmeðferð frumvarpsins var raunar ákveð- ið að ganga lengra hvað varðaði flest alvarlegustu kynferðisbrot gegn börnum og fyrningarfrestur vegna þeirra afnuminn með öllu. Í greinargerð þeirri sem Ragn- heiður Bragadóttir vann við áður- nefnt frumvarp var sérstaklega rakið að beindist brot að ungum börnum, t.d. fjögurra til átta ára, væru ýmis dæmi þess í réttar- framkvæmd að eingöngu væri dæmt fyrir brot gegn viðeigandi ákvæðum um kynferðisbrot gegn börnum. Nauðgunarákvæðinu væri þá ekki beitt jafnframt þar sem svo virtist talið að ekki væri beitt ofbeldi eða hótun um það. Tekið var dæmi um hæstaréttar- dóm frá árinu 1996 þar sem maður hafði samræði og önnur kynferð- ismök við dóttur sína frá því hún var sjö ára og allt þar til hún varð tíu ára. Var tekið fram í greinar- gerðinni að þetta væri „gagnrýn- isverð niðurstaða“. Í þessu sam- bandi var bent á það að nokkuð augljóst væri að þegar svo ungt barn ætti í hlut ætti hinn brotlegi alls kostar við það. Sú valdbeiting eða hótanir sem hann notaði til að fá fram kynmök væru því oft mun minni en þyrfti til þess að ná valdi á fullorðinni manneskju. Barnið væri hins vegar enn varnarlaus- ara og ætti erfiðara með að verj- ast, skildi jafnvel ekki það sem fram færi. Það væri því eðlilegt að tekið væri tillit til þess að barn ætti í hlut þegar metið væri hvort beitt væri ofbeldi eða hótunum í skilningi nauðgunarákvæðisins. Slík lögskýring væri alveg í sam- ræmi við skilgreiningu ofbeldis í ákvæðinu, þar sem í það væri lagður „mjög rúmur skilningur og engar kröfur [væru] gerðar um líkamlega áverka.“ Framangreint frumvarp varð að lögum nr. 61/2007 og var við samþykkt laganna í öllum meginatriðum fylgt tillögum Ragnheiðar Bragadóttur prófess- ors. Með dómi Hæstaréttar 19. janúar sl. reyndi á þau sjónarmið um beitingu nauðgunarákvæðis hegningarlaga í tilviki barns sem rakin voru hér að framan, en að honum verður nú vikið. Dómur Hæstaréttar 19. janúar 2012 X var m.a. ákærður fyrir fjórtán tilvik kynferðisbrota gegn telpu á aldrinum sjö til átta ára sem áttu samkvæmt ákæru sér stað á heimili hans þar sem telpan dvaldi oft vegna tengsla ákærða við móður hennar. Í einu þessara tilvika var X ákærður fyrir hátt- semi sem taldist varða beint við nauðgunarákvæði 1. mgr. 194. gr. hegningarlaga og henni lýst þann- ig í ákæru að X hafi sett getnaðar- lim sinn inn í kynfæri telpunnar og ekki látið af háttseminni þótt telpan bæði hann um að hætta. Í héraðsdómi var ekki fallist á að þessi lýsing ákæru gæti svarað til nauðgunar, þ.e. að ákærði hafi við kynferðismökin beitt, eins og segir í ákvæðinu: ofbeldi, hótun- um eða annars konar ólögmætri nauðung eða sviptingu sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti. Því hafi heldur ekki komið til álita hvort 194. gr. hegningarlaga gæti tekið til slíkra kynferðismaka við ung börn. Niðurstaða Hæstaréttar var réttilega á annan veg og vel rök- studd. Þar segir að efni 194. gr. hegningarlaga hafi verið rýmkað verulega með lögum nr. 61/2007. Er svo bætt við að vegna ungs aldurs síns hafi brotaþoli verið varnarlaus gagnvart ákærða sem hafi átt alls kostar við hana og notfært sér yfirburðastöðu sína til að koma fram kynferðislegum vilja sínum gagnvart henni, en í þeirri háttsemi hafi falist ofbeldi af hans hálfu. Þarna styðst Hæsti- réttur að hluta til orðrétt við for- sendur þær sem fram koma í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum nr. 61/2007 og áður er rakin. Ekki leikur vafi á því að Hæsti- réttur hafi í dóminum beitt nauðg- unarákvæðinu með þeim hætti sem ráð var fyrir gert með sam- þykkt laganna frá 2007. Með dóm- inum hefur það fræðilega viðhorf fengið staðfestingu að túlka verði ofbeldishugtak nauðgunarákvæð- isins á þann veg að það geti tekið til þess þegar maður brýtur gegn barni með því að hafa samræði við það og nýtir sér þannig yfir- burðastöðu sína. Dómurinn hefur að því leyti talsvert fordæmis- gildi við úrlausn mála í framtíð- inni. Loks skal þess getið að telja verður að með honum hafi Hæsti- réttur að hluta til vikið frá eldri úrlausn í máli frá 23. apríl 2008, sem ekki gefst tóm til að rekja hér nánar. Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar Landsbankinn landsbankinn.is 410 4040 Sjóðurinn árfestir í dreifðu safni skuldabréfa, hlutabréfa og hlutdeildarskírteina. Grunnárfesting sjóðsins er í verðbréfum með ábyrgð ríkisins. Þannig verður áhættan meiri en í hreinum ríkisskuldabréfasjóðum og vænt ávöxtun til lengri tíma hærri. Reglubundinn sparnaður Með reglubundnum sparnaði í sjóðum getur þú byggt upp eignasafn með áskri frá 5.000 kr. á mánuði. Enginn munur er á kaup- og sölugengi í áskri. Sparnað í sjóðum má alltaf innleysa. Eignabréf – Eignasamsetning 01.01.2012 Eignasamsetning ræðst af árfestingarstefnu og markaðsaðstæðum hverju sinni. Fjárfestingarstefnu má finna í útboðslýsingu á landsbankinn.is. Fyrirvari: Eignabréf er árfestingarsjóður samkvæmt lögum nr. 128/2011 og lýtur eirliti Fjármálaeirlitsins. Landsvaki hf. er rekstrarfélag sjóðsins og Landsbankinn hf. vörslufélag hans. Áhætta fylgir ávallt árfestingu í sjóðum þar sem gengi þeirra getur bæði hækkað og lækkað. Ávöxtun í fortíð gefur ekki vísbendingu um framtíðarávöxtun. Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna í útboðslýsingu eða útdrætti úr henni á landsvaki.is eða landsbankinn.is. Fjárfestum er bent á að kynna sér útboðslýsinguna áður en árfest er í sjóðnum, en þar er meðal annars ítarleg umöllun um árfestingarstefnu sjóðsins og áhættu sem felst í árfestingu í honum. Eignabréf er nýr blandaður árfestingarsjóður sem hentar vel fyrir reglubundinn sparnað. Sjóðurinn hentar vel í langtímasparnað fyrir ein staklinga sem vilja ávaxta hluta af sparnaði sínum í öðrum verðbréfum en ríkisskuldabréfum. Komdu við í næsta útibúi, hringdu í 410 4040 eða sendu okkur póst á armalaradgjof@landsbankinn.is. Nýr kostur í sparnaði Skuldabréf, víxlar og aðrar kröfur með ríkisábyrgð 83% Hlutabréf9% Reiðufé7% Innlán hjá ármálafyrirtækjum 1%

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.