Fréttablaðið - 07.02.2012, Side 23
ÞRIÐJUDAGUR 7. febrúar 2012 3
„Brettamennska sameinar úti-
vist og hreyfingu. Ég kynntist sjó-
brettamenningu í Bandaríkjunum
þar sem sjóbrettaiðkun er oftar en
ekki notuð sem líkamsrækt. Sportið
gefur erfiðustu líkamsræktarkerf-
um ekkert eftir því það útheimtir
gríðarleg átök fyrir skrokkinn, en
það álag finnur maður ekki fyrr en
eftir á.“
Sjóbretti eru dregin áfram af
báti, svipað og sjóskíði, en þó er um
gjörólíkt vatnasport að ræða.
Á ensku kallast sjóbretti
„wakeboard“, en íslensk þýðing á
orðinu „wake“ er kjölfar og í kjöl-
farinu gerast einmitt ævintýrin.
„Á sjóbretti er maður frjálsari
en á sjóskíðum og nýtir kjölfar-
ið sem stökkpall til að leika sér á
bárum vatnsins og stökkva á því.
Sjóbrettamennsku fylgir því mikill
atgangur og fjör,“ útskýrir Mummi
og mælir með sportinu fyrir bæði
kynin og allan aldur.
„Mjög auðvelt er að ná tökum á
sjóbretti því enga líkamlega krafta
þarf til að standa á því og minni
jafnvægiskúnsta krafist en á snjó-
bretti þar sem maður hefur góðan
stuðning af taumi úr bátnum. Þá
er lítil sem engin slysahætta á sjó-
bretti og mjúkur hafflötur sem
tekur við ef maður dettur af brett-
inu,“ segir Mummi sem stundar sjó-
bretti í Hafnarfjarðarhöfn, Vest-
mannaeyjahöfn, á Þingvallavatni,
Skorradalsvatni og fer stundum
hringinn um landið til að stunda
sjóbretti í fögrum fjörðum landsins.
„Við sjóbrettaiðkun hefur maður
virkilega fagra útsýn til landsins og
mikil stemning að tjalda við vötn
og nærri sjó með bát og bretti í far-
angrinum. Þeir sem stunda sport-
ið hérlendis gera það á öllum árs-
tímum, því þótt íslenskt veðurfar
sé síbreytilegt eru aðstæður til sjó-
brettaiðkunar góðar, sjórinn ekki
of kaldur og gallarnir hlýir og ein-
angrandi.“
Frá vori til hausts fer Mummi
með einstaklinga og hópa á sjó-
bretti, en hann rekur einnig versl-
unina Jaðarsport.is í Hafnarfirði.
„Íslendingar búa flestir við vatn
eða sjó og því hentar sjóbrettaiðk-
un landsmönnum einkar vel. Því
fylgir tímasparnaður að geta skellt
sér niður á höfn og auðvelt að taka
hring með bátnum, um leið og sjó-
brettaiðkun kallar ekki á kjörað-
stæður eins og snjó í fjalli, ákveðna
ölduhæð eða vind til að stunda það.“
Sjá nánar um skemmtileg jaðar-
sport og brettaheiminn á www.jad-
arsport.is.
thordis@frettabladid.is
Guðmundur „Mummi“ Vigfússon í rétta gallanum og með sjóbrettið klárt við bátinn.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Framhald af forsíðu
Einfaldasta leiðin til að minnka saltneyslu er að borða meira af ferskmeti og nota
annað krydd en salt til að bragðbæta matinn. Dæmi um saltsnauð krydd eru lauk-
ur, hvítlaukur, pipar, engifer, basilíka, oreganó, timían, mynta, kóríander og sítróna.
Heimild: Lýðheilsustöð
Dauðsföll vegna malaríu á
heimsvísu gætu verið tvöfalt
fleiri en áður hefur verið talið.
Þetta eru niðurstöður nýrrar
rannsóknar sem birtist í breska
læknablaðinu The Lancet.
Í rannsókninni sem fjármögnuð
var af The Bill and Melinda Gates
Foundation kemur fram að 1,24
milljónir manna hafi látist af völd-
um malaríu árið 2010. Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin áætlaði hins
vegar að 655.000 dauðsföll hefðu
orðið 2010.
Rannsóknin sýndi þó að dauðs-
föllum vegna malaríu fer fækk-
andi í heiminum. Fjöldi dauðsfalla
hefði aukist frá 995.000 manns
árið 1980 upp í 1,82 milljónir árið
2004 en þá fallið niður í 1,24 millj-
ónir árið 2010.
Fækkunin eftir árið 2004 er
rakin til þess að þá fóru alþjóðleg
hjálparsamtök að einbeita sér að
sjúkdómum eins og alnæmi, mal-
aríu og berklum. Þá draga rann-
sakendur þá ályktun að dauðs-
föllum vegna malaríu muni fækka
niður í færri en 100.000 á ári eftir
árið 2020.
Sjá nánar á www.bbc.co.uk.
Malaría leggur
tvöfalt fleiri að velli
Moskítóflugan ber malaríu milli manna.
telpurS onuK rStaðurinn - Ræktin
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
BM Mótun - Æfingakerfi Báru Magnúsdóttur
Ný námskeið að hefjast
innritun í síma 581 3730
Frjáls
aðgangur að
opna kerfinu
og tækjasal
Í BM Mótun er aðaláherslan lögð á styrk, liðleika og góðan
líkamsburð. Upphitun í tækjasal 20 mín., mótun 40 mín.
Aðeins 15 í hóp. Hentar öllum aldursflokkum.
6 vikna námskeið - mánudaga og miðvikudaga kl 16:40
þriðjudaga og fimmtudaga kl 9:00
þriðjudaga og fimmtudaga kl 10:30. Kennari: Bára Magnúsdóttir.
Verð kr. 19.900.
Barnagæsla - Leikland JSB
Velkomin í okkar hóp!
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
telpurS onuK r
Staðurinn - Ræktin
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
RopeYoga
Frjáls
aðgangur að
opna kerfinu
og tækjasal
Heildrænt hug- og heilsuræktarkerfi. Sérstök áhersla lögð á miðjuna
– kvið og bak. Hentar öllum aldurshópum og líkamsgerðum. Þú finnur
strax árangur eftir fyrstu æfinguna án þess að reyna of mikið á þig.
Lokuð 6 vikna námskeið 2x í viku í 60 mínútur:
Þriðjudaga og fimmtudaga kl 6:15, 10:30 og 12:00 / Mánudaga og miðvikudaga kl 16:30
Frjáls aðgangur að opna kerfinu og tækjasal. Verð kr. 14.900.
Barnagæsla - Leikland JSB
Velkomin í okkar hóp!
Ný námskeið að hefjast
innritun í síma 581 3730
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is
telpurS onuK rStaðurinn - Ræktin
Viltu ná kjörþyngd og komast í form?
Ný námskeið að hefjast
innritun á fullu í síma 581 3730
Velkomin í okkar hóp!
Fundur fyrir alla TT flokka sunnudaginn 19. febrúar kl. 16:30
15% afsláttur fyrir þær konur sem halda áfram!
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
TT tímar í boði:
6:15 A mánu-, miðviku- og föstudagar
7:20 C mánu-, miðviku- og föstudagar
10:15 D mánu-, miðviku- og föstudagar Barnapössun
14:20 G mánu-, miðviku- og föstudagar
16:40 H mánu-, miðviku- og föstudagar Barnapössun
17:40 I mánu-, miðviku- og föstudagar Barnapössun
18:40 J mánudagar kl. 18:40, miðviku- og fimmtudagar kl. 18:25
18:25 TT3 mánudagar kl 18:25 og miðvikudagar kl. 19:25 - (16-25 ára)
NÁMSKEIÐUM
FYLGIR
FRJÁLS MÆTING
Í TÆKJASAL