Fréttablaðið - 14.03.2012, Page 4

Fréttablaðið - 14.03.2012, Page 4
14. mars 2012 MIÐVIKUDAGUR4 GENGIÐ 13.03.2012 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 228,3162 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 126,52 127,12 198,11 199,07 165,98 166,9 22,321 22,451 22,264 22,396 18,615 18,725 1,5311 1,5401 194,15 195,31 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is SVÍÞJÓÐ Fyrsta barnið sem kemur í heiminn á Norðurlöndunum eftir að ófrjóvgað egg hefur verið fryst og geymt fæddist í Gauta- borg fyrir viku. Sænskir fjölmiðlar greina frá að þessi nýja meðferð hafi verið prófuð á tæknifrjóvgunarstof- unni Fertilitetscentrum. Fjórar konur eru þungaðar eftir að hafa fengið þessa meðferð. Algengt er að frysta egg sem þegar hafa verið frjóvguð en í þessum tilfellum hafa eggin verið frjóvguð eftir á. - ibs Eitt fætt, fjögur á leiðinni: Ný frjósemis- meðferð virkar Í Fréttablaðinu á mánudag birtist greinin Skart innblásið af þorsk- beinum. Opnunarhófið sem þar er talað um fer ekki fram næstkomandi fimmtudag heldur 22. mars. Beðist er velvirðingar á þessu. Opnunartími verslunar: Opið virka daga frá kl. 08-18. Vagnhöfði 23 - S: 590 2000 benni.is - verslun@benni.is ”Láttu okkur þekkja það, við höfum reynsluna“ SAFETY SEAL dekkjaviðgerðarsett Verð kr. 8.990- T-Max spil - stærð frá 2500-15.000 pund Verð frá kr. 32.900- Jeppafólk athugið! Ranglega var greint frá því í Frétta- blaðinu á mánudag að allir íslenskir nýrnaþegar á síðasta ári hefðu fengið nýru úr lifandi aðstandendum. Árið 2011 fengu fimm Íslendingar nýru úr látnum gjöfum, en aðgerðirnar voru framkvæmdar í Gautaborg. Beðist er velvirðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT EFNAHAGSMÁL Aukin ásókn í skammtímaskuldabréf hér á landi og aukinn áhugi á útgáfu slíkra bréfa, að því er virðist gagngert til að nýta glufu í gjaldeyrishöftum, olli stjórnvöldum og Seðlabanka áhyggjum og kallaði á aðgerðir að sögn Arnórs Sighvatssonar, aðstoðarseðla- bankastjóra. Á ð u r e n lög um hert gjaldeyris- höft voru sam- þykkt aðfara- nótt þriðjudags höfðu fjárfestar undanþágu til að flytja út gjaldeyri sem fékkst með greiðslum og verðbótum af skulda- bréfum. Næsti gjalddagi á skamm- tímaskuldabréfum var á morgun, fimmtudag, og þá hefðu sjö millj- arðar króna komið til greiðslu sem hefði mátt flytja óhindrað úr landi ef ekki hefðu komið til lagabreyt- ingarinnar. Annað eins hefði svo komið til greiðslu í haust. Aðspurður um hvort ekki hafi verið fyrirsjáanlegt, þegar höftin voru sett á á sínum tíma, að þessi glufa myndi verða til vandræða sagði Arnór að vitað hafi verið af glufunni. „Síðustu mánuði hefur þetta hins vegar verið að vinda upp á sig þar sem erlendir aðilar hafa verið að auka eignarhald sitt á skuldabréf- um. Þeir hafa svo notað þessa leið til að kaupa gjaldeyri og svo notað afraksturinn til þess að kaupa aftur skuldabréf. Þannig stækka þeir sjóðinn stöðugt og hagnast mikið með hverjum hring.“ Arnór segir að það sem áður hafi verið talið viðráðanlegt ástand hefði getað breyst til hins verra og útgáfa skuldabréfa sem væru sérstaklega til þess fallin að not- færa sér glufuna hefðu getað vald- ið útflæði gjaldeyris sem erfitt sé að spá fyrir um. „Ef það myndi gerast yrði grund- völlur þess að vera með höft í raun brostinn,“ segir Arnór. Varðandi hinn hluta laganna, sem laut að því að fella niður und- anþágu þrotabúa föllnu bankanna til að færa gjaldeyri út úr landi, segir Arnór að um sé að ræða aðgerð sem eigi að koma öllum til góða. „Okkar ætlun er alls ekki að hefta útgreiðslur slitastjórna til erlendra kröfuhafa. Við erum þvert á móti að reyna að finna leiðir til að þær geti átt sér stað, án þess að það valdi óstöðugleika sem gæti meðal annars skaðað þeirra eigin hagsmuni. Við teljum að þarna fari saman hagsmunir þeirra, þjóðar- búsins og almennings, en það þarf að samræma aðgerðir þannig að úr verði heildaráætlun sem stenst.“ Steinunn Guðbjartsdóttir, for- maður slitastjórnar Glitnis, sagði í samtali við Fréttablaðið að stjórnin myndi nú skoða hvort eða hvaða áhrif lagasetningin myndi hafa á Glitni. „Ég á ekki von á að þetta muni hafa nein stórkostleg áhrif,“ sagði Steinunn. Nokkur umræða hefur spunn- ist um áhrif lagasetningarinnar á ímynd landsins út á við. Aðspurður segist Arnór ekki telja að aðgerðin muni hafa neikvæð áhrif. „Okkar áætlun hefur notið trausts erlendis, meðal annars hjá lánsmatsfyrirtækjunum. Höft- in eru neikvæður þáttur í þeirra mati, en hins vegar er áhættan við að losa þau með óskipulegum hætti enn neikvæðari.“ thorgils@frettabladid.is Aukin sókn í gjaldeyris- glufur kallaði á aðgerðir Aðstoðarseðlabankastjóri segir að svo hafi virst sem fjárfestar hafi gagngert og í auknum mæli nýtt sér glufur í gjaldeyrishöftum til að hagnast mikið. Með aðgerðaleysi hafi grundvöllur haftanna brostið. ARNÓR SIGHVATSSON VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 20° 18° 11° 12° 15° 15° 8° 8° 20° 16° 19° 19° 27° 10° 17° 14° 6°Á MORGUN Strekkingur með NA- strönd, annars hægari. FÖSTUDAGUR Fremur hægur vindur um allt land. -2 -2 -4 -4 -5-3 -2 1 10 3 3 3 2 2 2 2 2 2 -2 2 3 5 6 20 23 7 23 7 4 6 3 3 4 HVASSVIÐRI eða jafnvel stormur verður með suður- ströndinni í dag og vaxandi vindur annars staðar. Slydda og síðan rigning verður sunnan- og austan- lands og talsverð úrkoma þar. Norð- an til fer að snjóa eftir hádegi. Það frystir á morgun. Ingibjörg Karlsdóttir veður- fréttamaður HERT Á HÖFTUNUM Stjórnvöld ákváðu að fella niður undanþágur á gjaldeyrishöftum til að stemma stigu við auknu útflæði gjaldeyris vegna greiðslna af skulda- bréfum. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY „Þetta var í takt við það sem maður hefði búist við,“ segir Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, í gær eftir fyrsta daginn á markaði undir nýjum reglum. „HFF14- flokkurinn lækkaði um 14% og svo var hækkun á lengri endanum. Þetta var nokkurn veginn í takt við væntingar.“ Páll segir að vitað hafi verið að fjár- festar hafi sótt í ákveðinn flokk skulda- bréfa til að koma fjármunum úr landi. „Og eins og aðrir vorum við meðvituð um ásókn í þennan flokk bréfa af þessari ástæðu. En þetta er í rauninni ekkert nýtt. Mér finnst þetta ekki hafa kallað á að grípa inn í og breyta forsendum viðskipta sem þegar hafa átt sér stað. Mín skoðun er sú að ýmsar mildari leiðir hafi staðið til boða til að ná tilsettum árangri, til dæmis með því að undanskilja þessa flokka bréfa sem um ræðir. Þarna finnst mér óvarlega farið.“ „Mildari leiðir stóðu til boða“ PÁLL HARÐARSON LÖGREGLUMÁL Ársæll Valfells, lektor í við- skiptafræði við Háskóla Íslands, þarf að skila Kristínu Ingólfsdóttur, rektor skól- ans, greinargerð vegna þáttar síns í leka á trúnaðargögnum úr Landsbankanum. Kristín segist ekki geta svarað því að svo stöddu hvernig mál Ársæls snertir Háskólann og störf hans þar. „Meira get ég ekki sagt fyrr en við höfum farið yfir málið. Það er hjá lögreglu og við vitum ekkert hvar það er statt í því ferli,“ segir rektor og upplýsir að hún hafi í gær rætt málið í síma við Ársæl sem staddur sé erlendis. Hún reikni með að fá greinar- gerð hans á næstu dögum. Ársæll upplýsti í fyrradag að honum hefðu borist trúnaðargögn úr Lands- bankanum og hann komið þeim á rit- stjórn DV að fyrirmælum Gunnars Andersen, þáverandi forstjóra Fjár- málaeftirlitsins. Gögnin geymdu banka- upplýsingar um Guðlaug Þór Þórðarson alþingismann. Ársæll er sjálfur fyrr- verandi starfsmaður Landsbankans. Yfirlýsing Ársæls, þar sem hann lýsir þætti sínum í upplýsingalekanum, hefur enn sem komið er ekki haft áhrif á stöðu hans hjá Háskólanumn. „Á meðan málið er í skoðun og hjá lögreglu þá sjáum við ekki ástæðu til að bregðast frekar við,“ segir háskóla- rektor. - gar Krefst skýringa af lektor sem sentist með trúnaðargögn fyrir Gunnar Andersen: Lektorinn skýri leka til DV fyrir rektor ÁRSÆLL VALFELLS Lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands aðstoðaði við að koma trúnaðar- gögnum um alþingismann í hendur óviðkomandi. LÖGREGLUMÁL Pólverji, sem grun- aður er um rán í úraverslun Mic- helsen á Laugavegi í október í fyrra, var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald til 21. mars. Mað- urinn var handtekinn í Sviss í síð- asta mánuði ásamt félaga sínum sem einnig er grunaður um aðild að ráninu. Martin Tomasz Lech var fyrir skömmu dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavík- ur fyrir þátt sinn í ráninu. Talið er að fjórir menn hafi framið ránið og gengur fjórði maðurinn laus. Talið er að hann sé í Póllandi. Framseldur frá Sviss: Rolex-ræningi í gæsluvarðhald HINN GRUNAÐI Var leiddur fyrir dómara í Héraðsdómi í gær.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.