Fréttablaðið - 14.03.2012, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 14. mars 2012 15
Þann 29. febrúar birtist í Frétta-blaðinu grein eftir Hjörleif
Finnsson, heimspeking og þjóð-
garðsvörð, þar sem vangaveltur
um Náttúruminjasafn Íslands eru
viðraðar. Umfjöllun um Náttúru-
minjasafn Íslands er þakkarverð
og ljóst að greinarhöfundur hefur
áhuga á safninu.
Náttúran og fræðslan um hana
Nálgunin við náttúruminjasafnið
í Kalkútta er áhugaverð, helst
vegna þess að þar lýsir greinar-
höfundur því sem öll náttúru-
minjasöfn bjóða gestum sínum
upp á: sýnishornum úr náttúrunni.
Sýningar náttúruminjasafna eru
yfirleitt tvenns konar, annars
vegar föst sýning sem oftast er
virðuleg eins og sú rykfallna
sem greinar höfundur nefnir, hins
vegar tímabundnar þemasýning-
ar sem greinarhöfundur gæti hafa
farið á mis við meðan á heimsókn-
inni stóð. Óvíst er hvað hugmynda-
fræði nýlenduherra liðinna tíma
og löngun og vilji Vesturlandabúa
til að drottna yfir umhverfi sínu
snertir enn ómótað Náttúruminja-
safn Íslands á 21. öld. Fyrri aldir
höfðu í för með sér mikla mögu-
leika fyrir náttúruminjasöfn,
enda engar reglur sem takmörk-
uðu öflun muna og aðgangur safn-
anna að náttúruminjum því góður.
En hvað breyttist? Hafa náttúru-
minjasöfn dregið úr söfnun? Nei,
því fer fjarri. Ef skoðuð eru söfn
grannþjóða Íslands kemur annað í
ljós. Sýna menntakerfi grannþjóð-
anna náttúruminjasöfnum minni
áhuga en fyrr? Nei, skipulagðar
heimsóknir nemendahópa þykja
ómissandi í fræðslu um einmitt
náttúruna.
Staðreyndin er sú að þó svo að
fróðlegt og skemmtilegt sé að
ganga um náttúruna er lítill hluti
hennar aðgengilegur almenningi
í raun. Greinarhöfundur hefur
eflaust hugmyndir um hvernig
almenningur gæti kynnt sér til
dæmis fiska sem lifa á meira dýpi
en sem nemur tveimur metrum
úti í náttúrunni, fugla sem fólk
sér sjaldnast nema úr fjarlægð
og krefst þjálfunar að greina eða
jarðfræðifyrirbrigði sem ekki
hver sem er þekkir. Þetta gera
náttúruminjasöfnin í þágu almenn-
ings. Þau færa náttúruna heim í
hús og kynna hana almenningi.
Eflaust hefur greinarhöfundur
líka hugmyndir um hvernig færa
mætti þá sem ekki komast fyrir
eigin atbeina út í náttúruna. Er
náttúran kannski ekki fyrir þann
þjóðfélagshóp? Fyrir náttúru-
minjasöfnum er það fólk hluti
almennings og hefur rétt á að
skoða náttúruminjar.
Náttúruminjasafn Íslands
Greinarhöfundur nefnir rétti-
lega að Náttúruminjasafn Íslands
hafi fræðslu- og miðlunarhlut-
verk, en rangt er að stofnunin hafi
fyrst og fremst þessu hlutverki
að sinna, helsta hlutverk hennar
er að vera safn. Þá vakna eflaust
spurningar, svo sem: Hvað er safn
og hvað gerir safn? Söfn safna
munum, greina þá, skrá og varð-
veita. Menningarlegi þátturinn,
sem greinarhöfundur talar um,
er afrakstur ferlisins sem safn-
munurinn gengur í gegnum áður
en hægt er að fræða nokkurn um
hann.
Rannsóknir Náttúruminjasafns-
ins beinast að náttúruminjum sem
verða að safnmunum, ekkert er
loðið þar. Fagfólk náttúruminja-
safna, sem sinnir munum safn-
anna, er að langmestu leyti sér-
fræðingar á sviði flokkunarfræði
og skiptir litlu hvort um ræðir dýr,
plöntur eða jarðfræðilega muni,
allt þarf að greina áður en ákvörð-
un um framtíðardvöl munarins
liggur fyrir.
Þegar greinarhöfundur fjallar
um náttúrufarsrannsóknir ætti
hann ef til vill að staldra við.
Fleiri stofnanir en Náttúrufræði-
stofnun Íslands sinna náttúrufars-
rannsóknum, til dæmis Hafrann-
sóknastofnun, Veiðimálastofnun,
Veðurstofan, náttúrustofurnar,
Íslenskar orkurannsóknir og allar
þykja þarfar.
Ef ekki er lengur þörf fyrir
náttúruminjasöfn sem starfa eftir
aldalöngum hefðum, og gefist
hafa vel hingað til, hvað á þá við
um önnur söfn eins og Þjóðminja-
safn Íslands? Má með sömu rökum
segja að gestum þess nægi að
finna sér gömul hús og skoða þau
og innviði þeirra, nú eða gamlar
rústir og róta svolítið sjálfir til til-
breytingar? Listasöfn eru þá held-
ur ekki þörf, almenningur getur í
staðinn fengið sér viðeigandi áhöld
og lagt stund á eigin listsköpun.
Framtíðin
Engum dylst sú ömurlega staða
sem Náttúruminjasafn Íslands er
í. Veigamikill þáttur í vandræð-
um þess er einmitt skortur á hús-
næði sem hýst getur stofnun er
á að sinna þeim þáttum sem lög
um safnið segja til um. Greinar-
höfundur þarf ekki að samsinna
stefnu náttúruminjasafna í starf-
semi sinni, hins vegar missir
greinin marks þar sem hann virð-
ist ekki hafa kynnt sér hlutverk,
tilgang og starf náttúruminjasafna
almennt svo og Náttúruminjasafns
Íslands.
Náttúruminjasöfn eru ekki
bara sýningar á munum úr nátt-
úrunni. Þau eru setur þekking-
ar og vísinda, enda er ekki nema
örlítill hluti safneignar þeirra
til sýnis. Náttúruminjasöfn eiga
þakkir skildar fyrir þátt sinn í
þeirri þekkingu sem til staðar er
um náttúruna. Þau veita innsýn
í hið liðna með hinni miklu söfn-
un náttúruminja sem orðið hefur
fyrir atbeina þeirra síðustu tvær
til þrjár aldir. Það sem sést í nátt-
úrunni í dag er óvíst að verði til
staðar á morgun.
Náttúruminjasafn Íslands – Tímabært?
Náttúruminjasafn
Georg Friðriksson
starfsmaður
Náttúruminjasafns
Íslands
Náttúruminja-
söfn eru ekki bara
sýningar á munum úr
náttúrunni. Þau eru setur
þekkingar og vísinda …
500
000
000
240.000.000
+260.000.000
Tvöfaldur fyrsti vinningur stefnir í 240 milljónir og Ofurpotturinn
stefnir í 260 milljónir. Ekki gleyma að vera með! Fáðu þér miða
fyrir klukkan fimm í dag á næsta sölustað eða á lotto.is
Tvöfal
dur
1. vinn
ingur
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM!
MIÐINN GILDIR 14. MARS 2012
A. 12 14 17 21 41 48
B. 05 16 23 36 37 38
C. 07 09 13 22 34 38
D. 03 06 19 24 25 31
E. 11 19 21 25 38 42
F. 01 25 35 36 39 46
G. 18 19 20 23 28 46
H. 22 27 29 39 40 42
RÖ
ÐI
N
KO
ST
AR
70
K
R.