Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.03.2012, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 14.03.2012, Qupperneq 20
KYNNING − AUGLÝSINGBílar & fjármögnun MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 20122 Hvar: Batman þættirnir Hvenær: 1965-1968 Hönnuður: George Barris Byggður á: 1955 Lincoln Futura Sumir telja leðurblökubíllinn úr sjónvarps- þáttunum um Leðurblökumanninn frá 7. áratugnum slái eftirbátum sínum að öllu leyti við. Bíllinn var að stærstum hluta byggður á hvítum, sportlegum hugmyndabíl frá Ford, Lincoln Futura Show Car, sem var frum- sýndur á bílasýningunni í Chicago árið 1955. George nokkur Barris hafði yfirumsjón með breytingum bílsins fyrir þættina sem varð straumlínulagaðri og skrautlegri eftir að skipt var um húdd, púströrum bætt við og hann lakkaður svartur og rauður og merki Leður- blökumannsins var límt á sitthvora hliðina. Þótt ótrúlegt kunni að virðast fékk Barris aðeins þrjár vikur til að breyta bílnum þar sem Fox flýtti framleiðslu þáttanna talsvert. Hann birtist bandarískum sjónvarpsáhorfendum árið 1966 og sló samstundis í gegn. Fararskjóti Leðurblökumannsins Nú styttist óðum í frumsýningu Dark Knight Rises, þriðju og síðustu kvikmyndar Christophers Nolan um ævintýri Leðurblökumannsins. Alls kyns tryllitækjum bregður fyrir eins og vænta má og þar á meðal endurbætt bifreið svarta riddarans sem hefur tekið miklum breytingum í áranna rás. Batman Forever. Batman and Robin. Helsti aukabúnaður: Bíllinn er meðal annars búinn fjaðurbúnaði undir sætum sem skýtur farþegum upp í loftið þegar hætta steðjar að, reykvél, ratskjá og innbyggðum múrbrjót til að brjóta niður hurðir eða veggi. Hvar: Batman og Batman Returns Hvenær: 1989 og 1992 Hönnuður: Anton Furst Byggður á: Chevrolet Impala Leðurblökubíllinn fékk heldur betur andlits- lyftingu í kvikmyndum leikstjórans Tims Burton, Batman og Batman Returns, í lok níunda áratugarins og byrjun þess tíunda. Anton Furst hafði umsjón með hönnun á sviðsmynd fyrri myndarinnar og bílsins og sótti innblástur í Art Deco stíl. Að þessu sinni var bíllinn byggður á tveimur gerðum Chevrolet Impala sem General Motors framleiddi á sjötta og sjöunda áratugnum, með vél úr nýrri gerð af Chevrolet og að viðbættri sérsmíðaðri ávalri yfirbyggingu sem gaf bifreiðinni tignarlegt yfirbragð. Helsti aukabúnaður: Byssur að framan, eldvarpa að aftan, sprengjuvörpur, ratsjá, hlífðarskildir og flóttahylki. Hvar: Batman Forever og Batman and Robin Hvenær: 1995 og 1997 Hönnuður: Barbara Ling Byggður á: Chevrolet Impala og svo Delahaye 165 og Jagúar D Warner Bros. réði fyrrum gluggaskreytinga- manninn Joel Schumacher til að leikstýra þriðju kvikmyndinni um Leðurblökumanninn árið 1995, Batman Forever. Ástæðan var mikil gagnrýni á þá dökku mynd sem Tim Burton dró upp af heimi ofurhetjunnar og var talin eiga þátt í dræmri miðasölu Batman Returns. Schumacher fékk það hlutverk að nálgast við- fangsefnið á léttari og „áhorfendavænni“ hátt. Breytingarnar náðu meðal annars yfir leður- blökubílinn sem Barbara Ling stýrði. Útkoman varð bíll búinn skrautlegum ljósabúnaði sem undirstrikaði ávalari línur og meira skraut og vindskeið sem átti að vísa í útlit leðurblaka (vængi og fleira) þótt sumum fyndist bíllinn minna frekar á reður á fjórum hjólum. Ling gerði breytingar á bílnum fyrir seinni mynd Schumachers (sem fólu meðal annars í sér lengri bíl) og byggði á Delahaye 165 sem Figoni et Falaschi framleiddi 1938 og Jagúar D kappakstursbíl frá miðjum sjötta áratugnum. Helsti aukabúnaður: Ratskjár, byssur, sprengjuvörpur og dráttarkrókur sem skýst úr framanverðri bifreiðinni og gerir henni kleift að keyra lóðrétt upp byggingar. Hvar: Batman Begins, Dark Knight og Dark Knight Rises Ár: 2005, 2008 og 2012 Hönnuðir: Christopher Nolan og Nathan Crowley Byggður á: Skriðdreka, Hummer og Lam- borghini Murciélago Christopher Nolan settist í leikstjórastól fimmtu myndarinnar um Leðurblökumanninn eftir að Schumacher gerði næstum út af við seríuna með innihaldslausu skrautsýningunni Batman and Robin. Nolan sá sér ekki annað fært en að byrja á byrjuninni með því að kanna fortíð Leðurblökumannsins í myndinni Batman Begins og nálgast viðfangsefnið á „raunsærri“ hátt en áður. Í takt við þá hug- mynd hannaði Nolan nýjan og svartan kraftmikinn bíl alsettan hlífðarskjöldum í samvinnu við Nathan Crowley þar sem skrið- drekar voru hafðir að fyrirmynd. Sjálfur hefur Crowley sagt Lamborghini Murciélago vera annan áhrifavald, að minnsta kosti á yfirbygg- inguna, en Bruce Wayne, maðurinn á bakvið Leðurblökumanninn, sést einmitt aka á einum slíkum í myndinni. Bíllinn er svipaður að stærð og Hummer og búinn 350 kúbiktommu Chevrolet-vél sem skilar 500 hestöflum. „Skrið- drekinn“ birtist í framhaldinu Dark Knight og ljósmyndir úr þeirri þriðju, Dark Knight Rises, gefa til kynna að illmennið Bane og skó- sveinar hans muni líka aka á slíkum bílum. Helsti aukabúnaður: Bíll- inn er búinn byssum, hlífðarskjöldum, ratskjá og þotuhreyfli sem nota má til að láta hann stökkva 2,70 metra lóðrétt upp í loftið og/eða 120 metra lárétt. Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson, benediktj@365.is, s. 512-5411 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. KAFFIKORGINN Í HANDSÁPUNA Olíu og smurningu getur verið erfitt að ná af höndum eftir langan dag á verkstæðinu. Mikil notkun á kemískum kornasápum þurrkar húðina. Hún getur sprungið svo sýking á greiðari leið inn í líkamann. Í staðinn mætti búa til náttúrulega kornasápu úr því sem til fellur á kaffistofunni, sem fer bæði betur með hendurnar og umhverfið. 1 msk malað kaffi, eða kaffikorgur úr uppáhell- ingnum frá í gær. 3 msk sykur en hann er iðulega innan seilingar á kaffistofunni. 2 msk ólífuolía eða 1 msk. lint smjör ef engin ólífuolía finnst. Blandið sykri og kaffikorg saman í skál og síðan olíunni eða smjörinu. Nuddið á blautar hendurnar þar til óhreinindin hafa leyst upp og skolið svo með volgu vatni.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.