Fréttablaðið - 11.04.2012, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 11.04.2012, Blaðsíða 2
11. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR2 BANDARÍKIN Fyrstu prófunum á nýjum flugbíl sem verið hefur í hönnun undanfarin ár lauk í Bandaríkjunum nýverið. Bíllinn, sem uppfyllir allar kröfur sem gerðar eru til bæði bíla og flug- véla, flaug í um átta mínútur í um 400 metra hæð í fyrsta fluginu. Flugbílnum er ætlað að vera valkostur fyrir þá sem vilja bæði keyra og fljúga á sama farartæk- inu. Í bílnum eru sæti fyrir tvo, og er hægt að brjóta saman væng- ina og leggja bílnum í venjulegt bílastæði, að því er segir í til- kynningu frá fyrirtækinu Terra- fugia. Til stendur að gera ítarlegar prófanir á flughæfni flugbílsins á árinu, og stefnir fyrirtækið á að selja fyrstu bílana áhugasömum kaupendum á næsta ári. Þegar hafa um 100 pantað sér flugbíl þó að enn eigi eftir að sníða agnúa af hönnuninni. Bíllinn þarf ríflega 500 metra langa flugbraut til að hafa sig á loft svo áhugamenn um þann ferða- máta sem þetta frumlega farar- tæki býður upp á verða að notast við flugvelli til að takast á loft. Verðmiðinn ætti þó að tryggja að bílarnir verði ekki sérlega algeng sjón, því hver bíll mun kosta jafn- virði nærri 36 milljónum króna. - bj Ætla að selja fyrstu eintökin af flugbíl að loknum prófunum á næsta ári: Flugbíllinn á loft í fyrsta skipti Á FLUG Flugbíllinn hefur flugþol fyrir ríflega 1.000 kílómetra flugferð. Um 800 kílómetrar eru milli Íslands og Færeyja. MYND/TERRAFUGIA.COM Gísli, er góður gróði af svona gróðri? „Jú, en þetta er aðallega gott krydd i tilveruna.“ Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi ræktar sínar eigin kryddjurtir og segir það hafa talsverðan sparnað í för með sér. FRAKKLAND Ikea í Frakklandi hefur viðurkennt að hafa njósnað um viðskiptavini og starfsmenn, að því er greint er frá á viðskipta- vefnum E24. Franska blaðið Le Canard Enchaine birti í febrúar síðast- liðnum meintan tölvupóst stjórn- enda Ikea til einkaspæjara. Voru þeir beðnir um að kanna hvort nöfn yfir 200 einstaklinga væri að finna í lögregluskýrslum auk annarra skýrslna. Lögreglan hefur hafið rann- sókn á notkun fyrirtækisins á persónulegum upplýsingum og gerð hefur verið húsleit í aðal- stöðvum Ikea nálægt París. - ibs Húsleit hjá húsgagnarisa: Ikea gengst við njósnumNOREGUR Búi eldisfiskur við þrengsli fyrir slátrun fjölgar bakteríum í honum hraðar en í fiski sem hefur nóg rými. Bragð- ið verður jafnframt verra og einnig lyktin. Þetta sýna niður- stöður vísindamanna við rann- sóknastofnunina Nofima. Vísindamennirnir skiptu eldis- laxi í þrjá hópa. Einn fékk mikið rými, annar var í þrengslum 20 mínútum fyrir slátrun og þröngt var um þann þriðja í 20 klukku- stundir fyrir slátrun. Laxinn sem varð fyrir mestu streitunni varð óhæfur til neyslu þremur dögum fyrr en saman- burðarhóparnir. Munurinn á gæðunum var mestur þegar fisk- urinn var hrár, að því er greint er frá á vefnum 24 timer. - ibs Norsk rannsókn á eldi: Streita fjölgar bakteríum í eldisfiski SPURNING DAGSINS www.rokkurhaedir.is Föstudaginn 13. apríl? Haltu þér fast! Þriðja bókin í bókaflokknum um krakkana í Rökkurhæðum er væntanleg. Ekki fyrir myrkfælna! ...Engin tilviljun! SVEITARSTJÓRNIR Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks í Kópavogi, segir allar úthlutanir bæjarins á styrkjum til afreks- íþróttafólks vera „fullkom- lega gegnsæj- ar og fylgja ákveðnum reglum“. Þetta segir í bókun sem Ómar setti fram í tilefni bókunar Guð- ríðar Arnar- dóttur úr Sam- fylkingu um að mikilvægt sé að móta skýrari reglur um úthlutun styrkjanna og að þeir eigi ekki að vera háðir geðþóttaákvörðunum kjörinna fulltrúa. „Þetta er bara rangt hjá Ómari Stefánssyni,“ bókaði Hjálmar Hjálmarsson, fulltrúi Næst besta flokksins, og Ómar svaraði með lokabókun: „Þetta er ekki rétt hjá Hjálmari Hjálmarssyni.“ - gar Rétt eða rangt í Kópavogi?: Hart deilt um gegnsæi styrkja SVEITARSTJÓRNIR Þrír bæjarfulltrú- ar fyrrverandi meirihluta í Kópa- vogi átelja Guðrúnu Pálsdóttur, sem þau réðu sjálf sem bæjar- stjóra sumarið 2010, vegna útgáfu starfsleyfis til skemmtistaðarins Goldfinger. Guðríður Arnardóttir úr Sam- fylkingu, Hjálmar Hjálmarsson úr Næst besta flokknum og Guðný Dóra Gestsdóttir frá Vinstri græn- um lögðu fram fyrirspurn á fundi bæjarráðs 29. mars síðastliðinn vegna útgáfu á starfsleyfi til Gold- finger. „Óskað er eftir upplýsing- um og rökstuðningi vegna ákvörð- unar fyrrverandi bæjarstjóra að kalla ekki saman umsagnaraðila vegna starfsleyfis til Goldfin- ger þrátt fyrir að bæjarráð hafi samþykkt þetta einróma á fundi sínum,“ segir í bókun þremenning- anna sem vitna til bókunar bæjar- ráðsins frá 9. desember 2010: „Bæjarráð felur bæjarstjóra að kalla saman til fundar lögbundna umsagnaraðila að málinu og að umræddir aðilar (fulltrúar sveit- arstjórnar, heilbrigðiseftirlits, slökkviliðs, vinnueftirlits, bygg- ingarfulltrúi og lögregla) vinni saman umsögn um málið.“ Bæjaryfirvöld eru aðeins einn umsagnaraðilanna. Það er hins vegar sýslumaður sem gefur út starfsleyfið sjálft og það fékk Goldfinger eftir að engin umsögn hafði borist frá Kópavogsbæ í febrúar í fyrra. Áður hafði lög- maður hjá bænum og lögmanns- stofa sem bærinn leitaði til komist að þeirri niðurstöðu að bæjar- stjórn hefði ekki lögmæta ástæðu til að leggjast gegn útgáfu leyfis- ins. Guðríður, Hjálmar og Guðný Dóra segjast í bókun sinni „telja ámælisvert að samþykkt bæjar- ráðs hafi verið virt að vettugi og leyfi hafi verið veitt án frekari umfjöllunar af kjörnum fulltrúum Kópavogsbæjar“. Ástæður þess að ákveðið hafi verið í bæjarráði í desember 2010 að kalla alla umsagnaraðila um starfsleyfisveitinguna saman til fund- ar segja bæjar- fulltrúarnir hafa verið lögreglu- skýrslu, viðtöl í fjölmiðlum við Ásgeir Davíðs- son, eiganda Goldfing- er, og vef skemmtistaðarins „þar sem konur sýna nekt sína og drykkir seldir á allt að 190.000 krónur“. Bæjarfulltrúarnir þrír undir- strika að allir bæjarráðsmenn hafi staðið að samþykktinni um að kalla umsagnaraðilana saman til fundar vegna Goldfinger. „Var einhugur um að skoða frekar starf- semi staðarins og að ganga úr skugga um að ekki sé verið að gera út á nekt starfsmanna og farið sé að lögum.“ Fréttablaðið fékk ekki svar í gær frá Guðrúnu Pálsdóttur vegna fyrirspurnar bæjarfulltrúanna. gar@frettabladid.is Sögð hafa óhlýðnast vegna nektarstaðar Bæjarfulltrúar minnihlutans í Kópavogi vilja skýringar á því að þáverandi bæjarstjóri fór ekki að samþykkt um að kalla til umsagnaraðila vegna útgáfu sýslumanns á starfsleyfi fyrir staðinn Goldfinger. Þar sýni starfsfólkið nekt sína. GOLDFINGER Bæjarfulltrúar segja vef skemmtistaðarins og viðtöl við eiganda hans ásamt lögregluskýrslum hafa gefið tilefni til nánari skoðunar á staðnum áður en starfsleyfið var endurnýjað. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA GUÐRÍÐUR ARNAR- DÓTTIR GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR BESSASTAÐIR Ástþór Magnússon, sem lýst hefur yfir framboði til forseta Íslands, skoraði í gær á fjöl- miðla að veita öllum frambjóðend- um jafnan aðgang til að kynna sín stefnumál. Ástþór sakaði fjölmiðla um að ráðskast með lýðræðið með sér- hagsmuni eigenda sinna eða „valda- elítunnar“ að leiðarljósi í yfirlýs- ingu sem hann sendi fjölmiðlum í gær. Ástþór segir að framboði Þóru Arnórsdóttur sé „meistaralega leik- stýrt“ af leikstjóranum sem búið hafi til „grínkarakterinn Silvíu Nótt og borgarstjórann Jón Gnarr“. Hann sagði framboð Þóru, sem hann nefndi raunar ekki á nafn, virðast „gert út af klíkum bak við fjölmiðlana og valdstjórnina“. Ástþór ítrekaði í gær stefnumál sín, sem hann hefur haldið á lofti frá því að hann bauð sig fram til for- seta árið 1996. Í yfirlýsingu segir að hann vilji færa valdið í auknum mæli til fólksins með því að virkja málskotsrétt forseta í öllum meiri háttar deilumálum. Þannig geti þjóðaratkvæðagreiðslur orðið eðli- legur hluti lýðræðisins fremur en dramatískar leiksýningar. - bj Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi segir fjölmiðla ráðskast með lýðræðið: Skorar á fjölmiðlana að sinna öllum GAGNRÝNI Ástþór sagði fráleitt að segja að fjölmiðlar mismuni ekki frambjóð- endum, og vísaði í leiðara Fréttablaðsins í gær máli sínu til stuðnings. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SVEITARSTJÓRNIR Björn Pálsson sem annast hefur ritun Sögu Þorláks- hafnar mun nú hafa náð að losa sig úr öðru verkefni sem hafði tekið drjúgan tíma hjá honum og einbeitir sér nú að því verkefni að ljúka handritinu um Þorlákshöfn. Þetta kom fram á síðasta fundi ritnefndarinnar þar sem Björn lagði fram handrit að sjöunda kafla og breyttan og bættan sjötta kafla. „Búið er að afhenda ritnefnd handrit að öllum köflum nema fimmta kafla sem fjallar um fyrirtækin,“ segir af fundi rit- nefndar þar sem rætt var um þá hugmynd að gera stuttan útdrátt og þýða yfir á ensku og jafnvel fleiri tungumál. „Eru nefndarmenn sammála um að slíkt geri bókina söluvænlegri á margan hátt,“ segir í fundargerð ritnefndar. - gar Kraftur í sögu Þorlákshafnar: Söluvænni með ágripi á ensku ÓMAR STEFÁNSSON VÍSINDI Hávaxnar konur eru í örlítið meiri hættu á að fá krabbamein í eggjastokkum en lágvaxnari kynsystur þeirra samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. Rannsóknin leiddi einnig í ljós að konur sem eru of þungar eiga frekar á hættu að fá krabbamein í eggjastokka en konur í kjör- þyngd, samkvæmt frétt BBC. Yfir 100 þúsund konur tóku þátt í rannsóknum sem notaðar voru til grundvallar þessum nið- urstöðum. - bj Krabbamein í eggjastokkum: Háar og þungar í meiri hættu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.