Fréttablaðið - 11.04.2012, Blaðsíða 43
MIÐVIKUDAGUR 11. apríl 2012 23
AÐALFUNDUR N1 HF.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl.14:30 á fundardegi.
Tillögur fundarins liggja fyrir á skifstofu félagsins hluthöfum til kynningar tveimur vikum fyrir fundinn.
Kópavogi 23. mars 2012
Stjórn N1 hf.
Aðalfundur N1 hf. 2012 verður haldinn á 20. hæð í turninum, Smáratorgi, Kópavogi, fimmtudaginn
12. apríl nk. og hefst kl. 15:00.
DAGSKRÁ:
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á hinu liðna starfsári.
2. Ársreikningur félagins lagður fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um meðferð hagnaðar félagins á reikningsárinu.
4. Ákvörðun stjórnarlauna, undirnefnda stjórnar
og þóknun til endurskoðenda.
5. Starfskjarastefna félagsins.
6. Stjórnarkjör.
7. Kjör endurskoðenda.
8. Tillögur um kaup á eigin hlutum.
9. Önnur mál löglega fram borin.
RÉTTA DEKKIÐ
BREYTIR ÖLLU
IE-deild karla:
Grindavík-Stjarnan 83-74
Grindavík: J’Nathan Bullock 24/10 fráköst,
Þorleifur Ólafsson 16/7 fráköst, Giordan Watson
10/4 fráköst/7 stoðsendingar, Ólafur Ólafsson 9,
Ryan Pettinella 7/6 fráköst, Sigurður Gunnar Þor-
steinsson 7/8 fráköst, Páll Axel Vilbergsson 5/4
fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 3/5 stoðsendingar,
Ómar Örn Sævarsson 2.
Stjarnan: Keith Cothran 22/6 fráköst, Renato
Lindmets 14/4 fráköst/6 stoðsendingar, Jovan
Zdravevski 11, Justin Shouse 11/4 fráköst/8
stoðsendingar, Fannar Freyr Helgason 9/5 fráköst,
Marvin Valdimarsson 5, Dagur Kár Jónsson 2
Enska úrvalsdeildin:
Blackburn-Liverpool 2-3
0-1 Maxi Rodriguez (12.), 0-2 Maxi Rodriguez
(16.), 1-2 Yakubu Aiyegbieni (35.), 2-2 Yakubu
Aiyegbieni, víti (60.), 2-3 Andy Carroll (90.+1).
Rautt spjald: Doni, Liverpool (25.).
STAÐAN:
Man.United 32 25 4 3 78-27 79
Man. City 32 22 5 5 75-26 71
Arsenal 32 19 4 9 63-41 61
Tottenham 33 17 8 8 57-38 59
Newcastle 33 17 8 8 50-42 59
Chelsea 33 16 9 8 56-38 57
Everton 33 13 8 12 38-34 47
Liverpool 33 12 10 11 40-36 46
Fulham 33 11 10 12 43-43 43
Norwich City 33 11 10 12 46-52 43
Sunderland 33 11 9 13 42-41 42
Stoke City 33 11 9 13 32-45 42
WBA 32 11 6 15 39-43 39
Swansea City 32 10 9 13 35-41 39
Aston Villa 32 7 14 11 35-44 35
Bolton 32 9 2 21 36-65 29
QPR 32 7 7 18 35-56 28
Blackburn 33 7 7 19 45-70 28
Wigan 32 6 10 16 30-57 28
Wolves 32 5 7 20 34-70 22
Spænska úrvalsdeildin:
Barcelona-Getafe 4-0
1-0 Alexis Sanchez (12.), 2-0 Lionel Messi (43.),
3-0 Alexis Sanchez (73.), 4-0 Pedro (75.)
Barcelona er nú aðeins einu stigi á eftir Real
Madrid í spænsku deildinni en hefur leikið einum
leik meira.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Andy Carroll varð loks-
ins hetja hjá Liverpool í gær er
hann skoraði sigurmarkið gegn
Blackburn í skrautlegum leik.
Liverpool komst 0-2 yfir en þá
missti liðið markvörðinn Doni af
velli. Inn kom markvörður númer
þrjú hjá félaginu, Brad Jones.
Blackburn nýtti sér liðsmuninn
vel og náði að jafna, 2-2. Seinna
markið kom úr víti eftir ótrúleg
mistök Jones sem mátti þakka
fyrir að hanga inn á vellinum.
Blackburn pressaði grimmt í
lokin en Carroll stal stigunum
fyrir Liverpool með smekklega
skallamarki í einni af fáum sókn-
um Liverpool í síðari hálfleik.
- hbg
Dramatískur sigur Liverpool:
Carrol hetja
Liverpool
SVEKKTUR Doni, markvörður Liverpool,
fékk að líta rauða spjaldið í gær.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
KÖRFUBOLTI Grindvíkingar eru
komnir með forystu í undanúr-
slitaeinvígi sínu gegn Stjörnunni
í Iceland Express-deild karla í
körfuknattleik.
Stjarnan komst yfir 3-1 með
þriggja stiga körfu Keith Cothran
en eftir það voru heimamenn í bíl-
stjórasætinu. Liðið hafði þriggja
stiga forskot, 38-35 í hálfleik, og
nær komust gestirnir aldrei þrátt
fyrir að halda í við Grindavík.
„Þetta var jafnt og flatt út allan
leikinn. Við náðum aldrei alvöru
áhlaupi á þá og það var eingöngu
okkur að kenna. Við köstuðum
boltanum ítrekað frá okkur og
okkar bestu skotmenn fá opin
skot endurtekið en þau bara duttu
ekki í dag,“ sagði Teitur Örlygs-
son, þjálfari Stjörnunnar, sem
telur sína menn eiga heilmikið
inni.
Grindvíkingar hafa mikla
breidd og eru erfiðir við að eiga
í háloftunum þar sem Bullock,
Pettinella og Sigurður Þorsteins-
son eru fyrirferðarmiklir.
Grindvíkingar fengu níu daga
frí eftir að hafa sigrað Njarð-
vík 2-0 í átta liða úrslitum Helgi
Jónas Guðfinnson, þjálfari
Grindavíkur, sagði hafa reynst
nokkuð erfitt að viðhalda mark-
vissum æfingum til að byrja með.
„Þetta var svolítið ströggl. Ég
tala ekki um þann tíma sem við
vissum ekki hver andstæðingur-
inn yrði,“ sagði Helgi sem var
sáttur við varnarleikinn í gær-
kvöldi en ekki sóknarleikinn.
„Við þurfum að bæta okkar leik
ef við ætlum í úrslit,“ sagði Helgi
Jónas ákveðinn.
- ktd
Grindavík vann fyrsta leikinn gegn Stjörnunni í undanúrslitum IE-deildar karla:
Grindavík vann fyrstu orrustuna
AUGUN Á BOLTANUM Stjörnumaðurinn Justin Shouse reynir hér að verjast Grindvík-
ingnum Giordan Watson. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL