Fréttablaðið - 11.04.2012, Blaðsíða 31
5 | 11. apríl 2012 | miðvikudagur
Bygma-keðjunni 21. mars síðastliðinn, þó að nafn
fyrirtækisins muni haldast óbreytt. Sigurður
segir að sameiningin við Bygma sé gríðarlega
stórt og gott skref fyrir Húsasmiðjuna. „Hún er
ákveðin viðurkenning á því starfi sem búið er
að vinna hérna undanfarin tvö ár. Þessir aðilar
þekkja þennan rekstur gríðarlega vel og það var
mjög ánægjulegt að þeim fannst við vera búnir
að ná meiri árangri en þeir bjuggust við í við-
snúningi fyrirtækisins. Það sem þetta mun skila
okkur er fyrst og fremst fjárhagslegur styrkur.
Þetta sterka félag verður mikill bakhjarl fyrir
reksturinn á Húsasmiðjunni. Auk þess er mik-
ill samhljómur í framtíðarsýn fyrirtækjanna og
þeir sáu að hjá okkur er framúrskarandi starfs-
fólk sem er búið að vinna frábært starf. Bygma
er fjölskyldufyrirtæki með skýr grunngildi. Það
eru öðruvísi sjónarmið sem ríkja hjá þeim þar
sem horft er til lengri tíma, en ekki með skamm-
tímasjónarmið fjárfestis.“
Hagkvæmari innkaup
Með sameiningunni mun Húsasmiðjan líka fá
aðgang að innkaupaneti Bygma sem mun þýða
mun hagkvæmari innkaup fyrir fyrirtækið. Sig-
urður telur að það muni skila sér á margan hátt
til íslenskra neytenda. „Það verður töluverð hag-
ræðing bæði í innkaupunum sjálfum auk þess
sem við munum geta stytt aðfangakeðjuna tölu-
vert mikið. Við höfum þurft að vera að kaupa
inn í miklu magni og flytja það langar leiðir
sem hefur gert það að verkum að áreiðanleik-
inn á milli sendinga hefur oft ekki verið nægi-
lega mikill. Þetta mun breytast og við munum
geta stytt tímann á milli sendinga, verið með
stöðugra vöruframboð og samkeppnishæfari á
markaðnum. Þetta hefur verið ákveðið vanda-
mál á íslenska markaðinum. Þótt þau fyrirtæki
sem eru á þessum markaði séu stór á íslenskan
mælikvarða þá eru þau það ekki á alþjóðlegan
mælikvarða.
Við munum líka hafa aðgang að nýjum vörum og
nýjum birgjum sem við höfum ekki haft aðgang
að áður. Það mun skila sér á íslenska markaðin-
um þar sem við munum bjóða upp á nýjungar.“
Fengu ekki krónu frá FSÍ
Áður en Bygma keypti fyrirtækið var Húsasmiðj-
an í eigu Vestia, eignarhaldsfélags Landsbank-
ans, og síðar Framtakssjóðs Íslands (FSÍ) eftir að
hann keypti Vestia. Eignarhaldið var mikið gagn-
rýnt af samkeppnisaðilum Húsasmiðjunnar. Þeir
töldu óeðlilegt að banki eða lífeyrissjóðir væru
að halda fyrirtækinu gangandi í samkeppni við
önnur þegar rekstur þess væri ekki að bera sig.
Að sögn Sigurðar virtust eigendurnir í ákveðn-
um vandræðum með að svara þessum ásökun-
um. „Það er gríðarlega mikil samkeppni á þeim
markaði sem við störfum á. FSÍ virtist í vand-
ræðum með að svara fyrir það að það myndi taka
tíma að endurskipuleggja og selja Húsasmiðj-
una. Það er rétt að taka fram í þessu sambandi
að það kom ekki ein króna frá Framtakssjóðnum
inn í Húsasmiðjuna. Þrátt fyrir taprekstur þurft-
um við að reka fyrirtækið fyrir okkar sjálfsafla-
fé. Við vorum með eðlilega rekstrarfjármögnun
hjá Landsbankanum en fyrir utan það þurftum
við að hagræða. Og það gerðum við. Það héldu
margir að FSÍ væru að leggja okkur til peninga.
Það er algjör misskilningur. Við fengum aldrei
eina krónu.“
Um 66% minnkun
Verktakageirinn, sem er helsti viðskiptavinur
byggingavöruverslana á borð við Húsasmiðjuna,
hrundi með íslensku bönkunum haustið 2008. Þar
hefur átt sér stað meiri samdráttur en í nokkr-
um öðrum geira. Sigurður telur að botninum hafi
verið náð og að fram undan sé hægur vöxtur.
„Þetta er búin að vera mikil rússíbanareið. Ef
við tökum heildarveltuna í bygginga- og mann-
virkjagerð þá náði hún hámarki í 350 milljörð-
um króna árið 2007 og fór niður í 320 milljarða
króna árið 2008. Síðan hrundi hún niður í 120
milljarða króna árið 2010. Það er svipuð velta og
var árlega á árunum 1998 til 2003 þegar þensl-
an byrjaði og Húsasmiðjan var seld.
Frá 2007 hefur orðið 66% minnkun á mark-
aðinum og við teljum að hann sé í algjörri lægð
núna. Ef við skoðum fjárfestingu sem hlutfall af
þjóðarframleiðslu þá fór hún upp í 35% árið 2007
og langtímameðaltalið, sem nær aftur til 1945,
var um 25%. 50 ára lágmarkið var áður 15%.
Árið 2010 var sett nýtt lágmark þegar fjárfest-
ingin var 12% af þjóðarframleiðslu. Gögn benda
til þess að við munum ná aftur 15% hlutfalli árið
2013. Það lítur því út fyrir að hagkerfið sé búið
að ná botninum og við séum hægt og rólega að
fikra okkur upp aftur.“
areið
skuldir í árslok 2003 hafi verið rétt um 550 milljónir króna. Í árslok 2004
ið með rekstur eða starfsfólk Húsasmiðjunnar að gera,“ segir Sigurður Arnar
Þýska byggingavörukeðjan Bauhaus hefur verið á leiðinni inn á íslenskan markað um árabil. Efnahagshrunið
frestaði þeim áformum tímabundið en nú er ljóst að starfsemin mun hefjast á allra næstu vikum. Sigurður
segir að Bauhaus muni eðlilega hafa áhrif á markaðshlutdeild Húsasmiðjunnar, sérstaklega á höfuðborgar-
svæðinu. „Þetta er búið að vera yfirvofandi í langan tíma. Bauhaus er staðsett á höfuðborgarsvæðinu og
við reiknum með að innkoma fyrirtækisins muni hafa áhrif á okkur á því svæði. Húsasmiðjan er hins vegar
með rekstur um allt land. Við erum með sextán verslanir um allt land og gegnum því mikilvægu hlut-
verki í atvinnulífinu á landsbyggðinni. Í því er einnig fólgin ákveðin áhættudreifing fyrir okkur enda er um
helmingur af veltu okkar þar. Auk þess er Bygma vant því að vera í samkeppni við Bauhaus, sem hefur verið
á danska markaðinum frá árinu 1988. Þeir eru í dag með fimmtán verslanir á honum á meðan Bygma er
með rúmlega 50. Við teljum okkur því vera vel í stakk búna til að halda áfram að keppa af fullum krafti.“
GETA KEPPT AF FULLUM KRAFTI VIÐ BAUHAUS
Hér sjást
það tækifæri.
Ef við tökum heildar-
veltuna í bygginga-
og mannvirkjagerð
þá náði hún hámarki í 350
milljörðum króna árið 2007
og fór niður í 320 milljarða
króna árið 2008. Síðan hrundi
hún niður í 120 milljarða
króna árið 2010.
Seðlabanki Íslands vill ekki gefa
upp hvert bókfært virði seljenda-
láns sem veitt var við sölu FIH-
bankans haustið 2010 er. Lánið
er ein helsta eign bankans og er
geymt í dótturfélagi hans, Eigna-
safni Seðlabanka Íslands (ESÍ).
Í svari Seðlabankans við fyrir-
spurn Markaðarins segir að „ekki
eru veittar upplýsingar um virði
einstakra bréfa“. Seðlabankinn
eignaðist veð í FIH þegar hann
lánaði Kaupþingi 500 milljónir
evra skömmu áður en bankinn
féll í október 2008.
Höfuðstóll seljendalánsins, sem
upphaflega var sagt um 70 millj-
arða króna virði, átti að leiðréttast
með tilliti til afskrifta FIH fram
til ársloka 2014. Frá miðju ári
2010 hefur FIH afskrifað um 50
milljarða króna. Óbein eign FIH í
danska skartgripaframleiðandan-
um Pandora gat á móti aukið virði
lánsins. Hlutabréf í því félagi hafa
hins vegar hríðfallið í verði og eru
langt frá því að skila Seðlabank-
anum auknum heimtum. Þann 20.
mars síðastliðinn svaraði Seðla-
bankinn skriflega spurningum
Helga Hjörvar, formanns efna-
hags- og viðskiptanefndar, vegna
lánsins. Þar segir að „miðað við
núverandi stöðu eru líkur á að
hluti þess muni tapast“.
Í lok árs 2011 voru eignir ESÍ
metnar á 340,3 milljarða króna,
sem var 21% af heildarefnahag
Seðlabankans. Eignirnar lækk-
uðu um 56 milljarða króna í fyrra.
Í ársskýrslu Seðlabankans segir
að þá rýrnun megi „rekja til inn-
heimtu eigna og niðurgreiðslu
skulda gagnvart Seðlabankan-
um“. Virðisrýrnun krafna var
23,9 milljarðar króna í fyrra en
Seðlabankinn vill ekki gefa upp
hvaða kröfur það eru sem tapað
hafa virði sínu. - þsj
Seðlabanki Íslands:
Neitar að upplýsa
um virði
FIH-seljendaláns
Facebook tilkynnti á mánudag að
það hefði keypt fyrirtækið að baki
ljósmyndadeiliforritinu Insta-
gram. Greiðir Facebook 1 millj-
arð Bandaríkjadala fyrir fyrir-
tækið, eða jafngildi rúmra 127
milljarða króna.
Þessi hái verðmiði á fyrirtæk-
inu hefur vakið nokkra athygli en
fyrirtækið er einungis tveggja ára
gamalt með fjórtán starfsmenn.
Þá býður fyrirtækið þjónustu sína
ókeypis og hefur að því er virð-
ist ekki hannað viðskiptalíkan.
Þjónusta þess hefur aftur á móti
notið gríðarlegra vinsælda meðal
notenda iPhone-snjallsíma. Alls
30 milljónir nota forritið í símum
sínum og er þess vænst að fjöldi
notenda aukist mikið á næstunni
þar sem forritið varð fyrir mjög
skömmu aðgengilegt notendum
Android-snjallsíma.
Instagram gerir notendum
kleift að deila ljósmyndum sem
teknar eru á snjallsíma í gegnum
samfélagsmiðla. Þá geta notend-
ur auðveldlega breytt myndunum
þannig að þær líti út fyrir að vera
teknar til dæmis fyrir nokkrum
áratugum eða þá með Polaroid-
myndavél. Forritið var valið hið
besta fyrir iPhone á árinu 2011.
Í tilkynningu frá Facebook
vegna kaupanna kom fram að
fyrir tækið hygðist ekki koma í
veg fyrir að notendur Instagram
notuðu það í tengslum við aðra
samfélagsmiðla en Facebook. Þá
yrði það áfram rekið sem sérstök
eining. - mþl
Instagram er tveggja ára gamalt fyrirtæki með fjórtán starfsmenn:
Facebook kaupir
forrit á milljarð dala
INSTAGRAM Instagram gerir notendum
snjallsíma kleift að deilda ljósmyndum í
gegnum samfélagsmiðla. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ESÍ Már Guðmundsson seðlabankastjóri er
stjórnarformaður Eignasafns Seðlabanka
Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Arion banki hefur lokið samning-
um um fjármögnun þýska félags-
ins TSP – The Seafood Processor
Gmbh og dótturfélags þess. Um er
að ræða nýtt framleiðslu- og sölu-
fyrirtæki á sviði sjávarafurða og
verður fjármagnið meðal ann-
ars notað í uppbyggingu nýrrar
og fullkominnar verksmiðju sem
framleiða mun vörur á neytenda-
markað, að því er fram kemur í
tilkynningu frá Arion banka.
Þá kemur fram í tilkynning-
unni að félagið verði aðallega með
starfsemi í Þýskalandi og meðal
viðskiptavina þess verði stærstu
smásölukeðjur Þýskalands. Fé-
lagið er að hluta í eigu Íslendinga
og er forstjóri nýja fyrirtækisins
Finnbogi A. Baldvinsson.
Munu framleiða sjávarafurðir á neytendamarkað:
Arion banki fjármagnar
nýtt þýskt fyrirtæki