Fréttablaðið - 11.04.2012, Blaðsíða 14
11. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR14
Vaktsími:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Allan sólarhringinn
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hermann Jónasson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Fyrsta kvennaverkfallinu á Íslandi
lauk á þessum degi fyrir réttri öld
þegar atvinnurekendur féllust á kröf-
ur fiskverkakvenna í Hafnarfirði um
hærri laun.
Um nokkurt skeið höfðu konur
gengið í sömu störf og karlar í verka-
mannavinnu – báru kola- eða saltpoka
á bakinu eða börur með saltfiski á
móti karlmanni
– en höfðu allt að
þriðjungi til helm-
ingi lægri laun en
karlar. Í Hafnar-
firði fengu konur
fimmtán aura á
tímann en karlar
30 fyrir dagvinnu
en í eftirvinnu var
launamunurinn enn
meiri. Í mars 1912
var fiskverkakonum nóg boðið og
kröfðust þær hækkunar upp í 18 aura,
um 60 prósent af launum karla, auk
hækkunar á yfirvinnutaxta. Á það
féllust atvinnurekendur ekki og lögðu
þá um 100 fiskvinnslukonur í Hafn-
arfirði niður störf. Verkfallið stóð í
um mánuð en hinn 11. apríl 1912 náð-
ust samningar, þar sem atvinnurek-
endur féllust á kröfur kvennanna að
mestu leyti.
„Samtök og þolgæði sigra allar
þrautir,“ sagði Kvennablaðið sigri
hrósandi þennan dag. „Þær [verka-
konurnar] hafa farið skynsamlega
og hóflega að, því hafa samtök þeirra
orðið alstaðar vel þokkuð.“
Kristín Ástgeirsdóttir, sagnfræð-
ingur og forstjóri Jafnréttisstofu,
bendir á að hafnfirskar fiskverkakon-
ur höfðu að vísu lagt niður störf hluta
úr degi árið 1907 en verkfallið 1912
sé þó jafnan álitið fyrsta kvennaverk-
fallið hér á landi.
„Þetta er með allra fyrstu verkföll-
unum á Íslandi almennt og merkis-
atburður í jafnréttis- og verkalýðs-
baráttunni, þótt honum hafi ekki
verið haldið mikið á lofti,“ segir hún.
„Hann ætti að minnsta kosti að vera
á vitorði miklu fleiri.“
Kristín segir að þótt óréttlætið
hafi verið himinhrópandi hafi þurft
mikla djörfung til að ráðast í þess-
ar aðgerðir, enda fyrir tíma fyrstu
verkalýðssamtaka kvenna. „Það væri
mjög fróðlegt að vita hverjar forystu-
konurnar í þessari aðgerð voru því
það hefur ekki þurft lítið áræði til að
hrinda þessu í framkvæmd.“
Í Kvennablaðinu er Verkmanna-
félag Hafnarfjarðar sagt hafa stutt
konurnar „með ráðum og dáð“ en
Kristín bendir á að konur hafi síðar
neyðst til að stofna sín eigin verka-
lýðsfélög þar sem þær voru óvel-
komnar í félög karla.
„Karlar vildu ekki hleypa konum
inn í verkalýðsfélög, vegna þess að
þeir óttuðust samkeppni um vinnu,
og vegna ríkjandi hugmynda um
að konur væru ekki fyrirvinnur
heldur ættu þær að vera heima við
að sinna búi og börnum. Margar
konur voru þó ógiftar og ekkjur sem
þurftu að vinna fyrir sér og sínum.
Vegna þessarar andstöðu þurftu
konur því að stofna sín eigin félög
en urðu fyrir vikið mjög sýnilegar
í verkalýðsbaráttunni lengi fram-
an af. Á þessu varð breyting þegar
verkalýðsfélögin sameinuðust; þá
fór minna fyrir konunum í forystu
verkalýðsbaráttunnar.“
Kristín segir merkilegt að heilli öld
eftir að konur lögðu fyrst niður störf
til að krefjast hærri launa, hafi kyn-
bundið launamisrétti enn ekki verið
upprætt.
„Sú hugmynd að karlar eigi að hafa
hærri laun en konur er ótrúlega sterk
og rótgróin,“ segir Kristín. „Með
sama áframhaldi gætum við allt eins
þurft að bíða önnur hundrað ár þar til
fullt launajafnrétti næst. En kvenna-
verkfallið í Hafnarfirði 1912 er holl
áminning um samtakamáttinn og því
sem hann getur fengið áorkað.“
bergsteinn@frettabladid.is
timamot@frettabladid.is
52
KRISTÍN
ÁSTGEIRSDÓTTIR
OFBAUÐ LAUNAMISRÉTTIÐ: ÖLD LIÐIN FRÁ FYRSTA KVENNAVERKFALLINU
Fiskverkakonur fá sitt fram
Réttarhöldin yfir nasistaforingjanum Adolf
Eichmann hófust á þessum degi árið 1961.
Eichmann var fæddur í Solingen í Þýska-
landi árið 1906. Árið 1932 gekk hann til
liðs við SS-sveitir nasista og komst fljótt til
metorða innan þeirra. Árið 1942 ákváðu
framámenn þriðja ríkisins að gyðingum
í Evrópu skyldi útrýmt og tók Eichmann
þátt í því. Áður en seinni heimsstyrjöldin
var úti höfðu milljónir gyðinga látið lífið í
útrýmingarbúðum nasista.
Eichmann var handsamaður af Banda-
ríkjamönnum eftir stríð en slapp úr haldi
fyrir Nürnberg-réttarhöldin og flúði til
Argentínu.
Síðla á 6. áratugnum komst ísraelska
leyniþjónustan á snoðir um hvar Eich-
mann hélt sig og rændi honum árið 1960.
Árið 1961 hófust réttarhöld yfir Eichmann
í Jerúsalem sem lyktaði með því að hann
var dæmdur til dauða og hálfu ári seinna
var hann hengdur í maí 1962.
ÞETTA GERÐIST: 11. APRÍL 1961
Réttað yfir Adolf Eichmann
JEREMY CLARKSON, sjónvarpsmaður með bíladellu og Íslandsvinur, er 52 ára í dag.
„Við vitum að smábílar eru af hinu góða. En það sama á við um lýsi og útihlaup.“
SAMTAKAMÁTTUR „Þau nýmæli urðu hljóðbær fyrstu dagana í marz s.I. að allar fiskiverkunar-
konur í Hafnarfirði hefðu gert verkfall,“ sagði í frétt Kvennablaðsins 11. apríl 1912.
Við þökkum innilega auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns míns og föður okkar,
HANS ÁGÚSTS GUÐMUNDSSONAR
BECK.
Birna Sif Björnsdóttir
Björn Smári, Viðar Nói
og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginkona mín,
VALDÍS MAGNÚSDÓTTIR
Munaðarhóli 10, Hellissandi,
lést á Landspítalanum 3. apríl. Útförin fer
fram frá Ingjaldshólskirkju, Hellissandi,
laugardaginn 14. apríl kl. 11.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurður Kristjónsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
HRAFNHILDUR GRÍMA
THORODDSEN
Rauðalæk 35, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli
að morgni skírdags, 5. apríl. Jarðarförin
fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
13. apríl, kl. 13.00.
Tryggvi Viggósson Snjólaug Anna Sigurjónsdóttir
Guðmundur Viggósson Líney Þórðardóttir
Regína Viggósdóttir
Gunndóra Viggósdóttir Ásgeir Arnoldsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma
og langamma,
BERGÞÓRA GUNNARSDÓTTIR
Heiðargerði 3, Reykjavík,
sem andaðist á öldrunardeild Landspítalans
í Fossvogi 1. apríl síðastliðinn, verður
jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn
13. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Unicef á Íslandi.
Ragnheiður Hermannsdóttir Magnús Jóhannesson
Bergþóra Magnúsdóttir
Jóhannes Páll Magnússon Berglind Ósk Pálsdóttir
og Ragnheiður Björt Þórarinsdóttir
Okkar ástkæri
JÓNAS ÞORSTEINSSON
frá Ytri-Kóngsbakka,
lést í faðmi fjölskyldunnar þriðjudaginn
27. mars. Útför fer fram frá Stykkishólmskirkju
laugardaginn 14. apríl klukkan 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi.
Aðalheiður Bjarnadóttir
Þorsteinn Jónasson Kristín Rut Helgadóttir
Bjarni Jónasson Ólafía Hjálmarsdóttir
Agnar Jónasson Svala Jónsdóttir
Guðbjörg Guðbjartsdóttir Kristinn Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, bróðir, stjúpfaðir
og afi,
PÁLL ÞORGRÍMS JÓNSSON
Yrsufelli 11,
lést að kvöldi 3. apríl á Landspítalanum
í Fossvogi. Jarðarförin fer fram 16. apríl frá
Fella- og Hólakirkju klukkan 13.00.
Esther María Ragnarsdóttir
Jón Brynjar Jónsson
Ragnar Einarsson
og barnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGIBJÖRG KOLBEINSDÓTTIR
Sóltúni 12, Reykjavík,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
við Hringbraut, þriðjudaginn 3. apríl. Útförin
fer fram frá Áskirkju, þriðjudaginn 17. apríl
kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er
bent á KFUM og KFUK og Samband íslenskra kristniboðsfélaga.
Margrét Árný Sigursteinsdóttir Sigurður Leifsson
Þórir Sigursteinsson Birna Einarsdóttir
Gunnar Hersveinn Friðbjörg Ingimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.