Fréttablaðið - 11.04.2012, Page 4
11. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR4
Aukin þekking – góð fjárfesting til framtíðar
Kynntu þér viðskiptafræði með vinnu í Háskóla Íslands.
Kynningarfundur miðvikudaginn 11. apríl kl. 16:00 í stofu 102 Gimli
www.vmv.hi.is
NOREGUR Ný skýrsla tveggja geðlækna sem
kynnt var í gær kemst að þeirri niðurstöðu að
norski fjöldamorðinginn Anders Behring Brei-
vik hafi verið með réttu ráði þegar hann myrti
77 manns í tveimur hryðjuverkaárásum hinn
22. júlí síðastliðinn og sé enn heill á geði.
Mat læknanna Terje Tørrisen og Agnars
Aspaas gengur þvert á annað sakhæfismat sem
gert var í lok síðasta árs þar sem tveir aðrir
geðlæknar komust að þeirri niðurstöðu að Brei-
vik hefði verið haldinn geðklofa með ofsóknar-
hugmyndum og því ekki ábyrgur gjörða sinna
þegar hann framdi illvirki sín.
Geir Lippestad, lögmaður Breiviks, sagði
í samtali við fjölmiðla í gær að umbjóðandi
hans væri ánægður með niðurstöðuna, en hún
hefði þó verið viðbúin. Breivik hefði þótt mikil-
vægt að fá jákvætt sakhæfismat, en hann varð
æfur þegar hann var úrskurðaður ósakhæf-
ur og sagði í bréfi til fjölmiðla að hann væri
ekki veikur á geði og höfundar þeirrar skýrslu
hefðu skáldað meirihlutann af því sem þar kom
fram.
„Nú undirbýr hann yfirlýsinguna sem hann
hyggst flytja fyrir réttinum,“ hefur Afton-
posten eftir Lippestad um Breivik. „Yfirleitt
fer þetta fram þannig að verjandi spyr og sak-
borningur svarar, en svo verður ekki að þessu
sinni. Hann hefur ákveðnar skoðanir á því
hvernig hann tjáir sig og hann mun gera það
á sinn hátt.“
Gert er ráð fyrir að vitnisburður Breiviks
taki um fimm daga, en Lippestad segir að hann
muni jafnvel biðja um aukinn tíma. Hann seg-
ist ekki geta spáð fyrir um hvað muni koma
fram í vitnisburði Breiviks, en segir að ekki sé
reiknað með að hann muni tjá eftirsjá.
„Hann mun sennilega segja að hann hefði
átt að ganga lengra. Það er erfitt að útskýra,
en ég gef þetta upp til að undirbúa það sem
koma mun.“
Nýja sakhæfismatið mun ekki ógilda hið
fyrra og verða bæði lögð fyrir dóminn sem
mun skera úr um hvort hann sé sakhæfur.
Verði hann úrskurðaður ósakhæfur mun hann
verða dæmdur til vistar á geðsjúkrahúsi.
Geðlæknarnir tveir sem kynntu skýrslu
sína í gær tiltóku engin smáatriði úr niður-
stöðum sínum. Þeir byggðu mat sitt á viðtöl-
um við Breivik og þriggja vikna stöðugu eftir-
Sakhæfismat gleður Breivik
Nýtt sakhæfismat kemst að þeirri niðurstöðu að fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik sé heill á geði.
Matið gengur þvert á fyrra mat sem sagði Breivik með geðklofa. Hann segist sjálfur ánægður með úrskurðinn.
■ Breivik var ekki veikur á geði eða ómeðvitaður um gjörðir sínar áður en hann framdi glæpina sem
hann er sakaður um
■ Breivik var ekki veikur á geði og þjáðist hvorki af ranghugmyndum um umhverfi sitt né truflunum á
meðvitund á meðan hann framdi glæpina og á ekki við þroskahamlanir að stríða
■ Breivik var ekki veikur á geði þegar mat geðlæknanna fór fram
■ Mikil hætta er á að Breivik muni aftur grípa til ofbeldisverka.
Heimild: Aftonposten.no
Meginniðurstöður sakhæfismats:
FAGNAR MATI Anders Behring Breivik fagnar því að geðlæknar hafa úrskurðað hann sakhæfan, þvert á fyrra
mat. Dómurinn mun taka afstöðu til sakhæfisins, en Breivik undirbýr nú vitnisburð sinn. Lögmaður Breiviks
segir hann sjá eftir að hafa ekki náð að ganga lengra. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
liti með honum á geðsjúkrahúsinu Illa þar sem
hann hefur verið í haldi frá því að hann framdi
ódæðin.
Meginniðurstaðan er þó að Breivik hafi
sannar lega verið sjálfrátt, bæði fyrir og á
meðan hann framdi glæpina og eins meðan
á matinu stóð. Þeir taka einnig fram að
talsverðar líkur séu á því að að hann muni beita
ofbeldi á ný fái hann tækifæri til þess.
Nú eru einungis fimm dagar þangað til rétt-
arhöldin hefjast og þau munu að öllum líkindum
standa í tíu vikur. thorgils@frettabladid.is
Miðstöðin ekki í HÍ
Í fyrirsögn fréttar um þróun mið-
stöðvar fyrir doktorsnám hér á landi í
gær var sagt að slík miðstöð ætti að
vera við Háskóla Íslands. Það er ekki
rétt, heldur er lagt til að miðstöðin
yrði sjálfstæð en byggð á grunni mið-
stöðvar fyrir framhaldsnám, sem er
starfrækt við HÍ.
LEIÐRÉTT
EVRÓPUMÁL Stefán Haukur
Jóhannesson, aðalsamninga-
maður Íslands, ræðir stöðu mála
og næstu skref
í aðildarvið-
ræðum Íslands
og Evrópu-
sambandsins á
opnum fundi í
Evrópustofu við
Suðurgötu í dag.
Fjórða ríkja-
ráðstefna
Íslands og ESB
fór fram fyrir
skemmstu þar
sem fjórir samningskaflar voru
opnaðir og var tveimur þeirra
lokað strax. Nú hafa viðræður
hafist um 15 af 33 samningsköfl-
um.
Fundurinn hefst klukkan 17, en
Stefán mun svara spurningum
gesta að loknu erindi sínu. - þj
Aðildarviðræður við ESB
Stefán Haukur
á opnum fundi
STEFÁN HAUKUR
JÓHANNESSON
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
20°
15°
13°
12°
13°
7°
11°
11°
21°
13°
19°
12°
30°
10°
14°
15°
6°Á MORGUN
Strekkingur með S-
strönd annars hægari.
FÖSTUDAGUR
Hægur eða fremur
hægur vindur. 3 0
-3
-3-2
4 3
-2-1
-1
4
4
4
4
0
-1
0
4
-2
2
3
20
10
10
12
9
7
7
6
8
15
8
8
KÓLNAR
Það fer hægt
kólnandi á landinu
næstu daga en
jafnframt verður
nokkuð bjart og
úrkomulítið, með
þeirri undan-
tekningu að í dag
verður rigning eða
slydda suðvestan
og vestan til fram
eftir degi.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
BANDARÍKIN Nánast er öruggt að
Mitt Romney verði forsetafram-
bjóðandi Repúblikanaflokksins,
eftir að Rick Santorum dró sig út
úr kosningabaráttunni í gær.
Santorum tilkynnti um ákvörð-
un sína í Gettysburg í gær. Hann
sagði að framboði sínu væri lokið
og kosningabaráttunni hætt. „Við
munum halda áfram að berjast
og sigra Barack Obama forseta,“
sagði Santorum, sem stóð á svið-
inu ásamt fjölskyldu sinni. Hann
hafði vonast til þess að halda
áfram fram yfir forkosningarn-
ar í Pennsylvaníu 24. apríl en
ákvað að hætta nú vegna veik-
inda þriggja ára gamallar dóttur
sinnar.
Santorum sagðist hafa komist
lengra með framboð sitt en nokk-
ur hefði átt von á. Athygli vakti að
Santorum lýsti ekki yfir stuðningi
við Romney eða minntist yfirhöf-
uð á hann í ræðu sinni.
Romney brást við fréttunum
í gær og sagði Santorum hafa
verið hæfan og verðugan keppi-
naut. Fátt virðist nú geta stöðvað
Romney í því að hljóta útnefningu
flokksins á flokksráðstefnunni
í ágúst. Hann er með helmingi
fleiri kjörmenn en Santorum, sem
var næsti maður á eftir honum.
Newt Gingrich sagðist í gær
ekki ætla að draga sig í hlé, held-
ur gefa repúblikönum „alvöru
valkost“ í haust. Ron Paul er ekki
heldur hættur í framboði. - þeb
Nánast öruggt að Mitt Romney hljóti útnefningu Repúblikanaflokksins:
Rick Santorum dregur sig úr kosningabaráttunni
RICK SANTORUM Frambjóðandinn til-
kynnti að hann væri hættur að sækjast
eftir útnefningu flokksins í Gettysburg í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Virkjanalón að fyllast
Flest virkjanalón Landsvirkjunar eru
á góðri leið með að fyllast þrátt fyrir
að vorleysingar séu ekki hafnar á
hálendinu. Nefnir Guðmundur Björns-
son hjá Landsvirkjun sem dæmi að
Hálslón standi nú 20 metrum hærra
en á sama tíma í fyrra. Þá sé Þórsvatn
átta og hálfum metra hærra en um
þetta leyti í fyrra og komið í sömu
stöðu og það var um mánaðamótin
júní-júlí á síðasta ári.
ORKUMÁL
GENGIÐ 10.04.2012
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
230,424
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,05 128,67
202,66 203,64
167,32 168,26
22,487 22,619
22,065 22,195
18,866 18,976
1,5771 1,5863
196,79 197,97
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR
SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is