Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.04.2012, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 11.04.2012, Qupperneq 6
11. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR6 HJÓL FYR IR ALLA FJÖLSKYL DUNA FRÁBÆR T ILBOÐ Á E LDRI ÁRGERÐU M AF HJÓL UM 20% AFSL ÁTTUR AF AUKABÚN AÐI Á HJÓ L 59.995 70.995 DANMÖRK Danski sagnfræðingur- inn Thomas Wegener Friis segist vera í þann mund að afhjúpa stór- felldar njósnir þekkts Dana fyrir Stasi, austur-þýsku leyniþjón- ustuna. Friis kveðst ekki vera reiðu- búinn að birta nafn njósnarans að svo stöddu og segist fyrst þurfa aðgang að Rosenholz-skjalasafn- inu sem bandaríska leyniþjón- ustan, CIA, fékk við sameiningu þýsku ríkjanna. Það er mat Friis að þar kunni lykillinn að danska njósnamálinu að vera. Vísinda- menn hafa ekki aðgang að þessu skjalasafni en stjórnvöld geta farið fram á að fá upplýsingar úr því. Það hafa stjórnvöld í bæði Þýskalandi og Frakklandi gert. Hópur danskra sagnfræðinga hefur hins vegar gagnrýnt Friis og starfsaðferðir hans. Forsætis- ráðherra Danmerkur, Helle-Thorn- ing Schmidt, telur dönsk stjórnvöld ekki þurfa að sækja um aðgang að safninu. Á fundi með fréttamönnum í gær sagði hún að teldu menn sig búa yfir upplýsingum um glæpsam- legt athæfi ættu þeir að snúa sér til lögreglunnar og í þessi tilviki til dönsku leyniþjónustunnar. - ibs Danskur sagnfræðingur vill aðgang að skjölum í eigu CIA vegna njósnamáls: Þekktur Dani bendlaður við Stasi FORSÆTISRÁÐHERRA Helle-Thorning Schmidt telur ekki þörf á að leita til CIA. NORDICPHOTOS/AFP LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Akra- nesi handtók í páskavikunni þrjá ökumenn undir áhrifum fíkni- efna. Við húsleit á heimili eins þeirra fundust um 30 grömm af kannabisefnum og við húsleit hjá öðrum fundust nokkur grömm af amfetamíni í neyslupakkningum auk tæplega 100 þúsund króna í peningum. Maðurinn gat ekki gert grein fyrir fjármununum og voru þeir því gerðir upptækir. Þá var fjórði maðurinn tekinn grunaður um ölvun við akstur. - kh Dópaðir bílstjórar á Akranesi: Meintur dóp- sali tekinn BESSASTAÐIR Þóra Arnórsdóttir og Ástþór Magnússon eru einu for- setaframbjóðendurnir sem þegar hafa safnað þeim lágmarksfjölda meðmælenda sem þarf til að fram- boðið teljist gilt. Hinir eru mis- langt komnir með söfnunina og sumir ekki einu sinni byrjaðir. Þóra lýsti því yfir á laugar- daginn að hún hefði náð tilskildu marki í öllum landsfjórðungum. Þá voru þrír dagar síðan hún tilkynnti um framboð sitt. Áður en listunum er skilað til innanríkisráðuneytisins, sem þarf að gerast í síðasta lagi 25. maí, þarf að láta yfirkjörstjórnir á hverjum stað votta að þeir sem ritað hafa nafn sitt á listann séu kosninga- bærir. Fréttablaðið hafði samband við aðra sem lýst hafa yfir framboði til að grennslast fyrir um hvar undir- skriftasöfnunin stæði. „Ég held að ég sé örugglega kom- inn með lágmarksfjöldann,“ segir Ástþór, sem er enginn nýgræð- ingur þegar kemur að forseta- kosningum. Hann ætli þó að safna nokkrum til viðbótar til öryggis og listunum verði skilað fljótlega. Bara Ástþór og Þóra búin að safna nógu Tveir af þeim sem lýst hafa yfir framboði til forseta Íslands eru búnir að safna lágmarksfjölda meðmæla. Hinir fjórir hafa einn og hálfan mánuð til stefnu. Borðaðir þú páskaegg um páskana? JÁ 75,3% NEI 24,7% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ert þú ánægð(ur) með hraða netsins á heimili þínu? Segðu þína skoðun á visir.is LANDHELGISGÆSLAN Viðgerðir á varðskipinu Þór munu taka lengri tíma en upphaflega var áformað. Nú er stefnt að því að skipið verði afhent fyrir lok apríl, en upphaf- lega stóð til að taka skipið aftur í notkun í byrjun mánaðarins. Vegna galla í annarri af aðal- vélum skipsins þurfti að skipta um vélina, og var það gert í Noregi á kostnað Rolls Royce, framleiðanda vélarinnar. Hrafnhildur Stefánsdóttir, upp- lýsingafulltrúi Landhelgisgæsl- unnar, segir að vélin sé nú komin í skipið, og prófanir fari fram í þessari viku og þeirri næstu. Hún segir ekkert sérstakt hafa komið upp sem seinkað hafi viðgerðum á skipinu, áætlanir hafi einfaldlega ekki staðist. Þór var smíðaður í Síle og kom hingað til lands í október í fyrra. Skömmu síðar urðu skipverjar varir við óeðlilegan titring í ann- arri aðalvélinni, og þar sem ekki gekk að gera við hana þurfti að skipta um vél. Varðskipið Ægir hefur staðið vaktina á meðan Þór er í slipp. Til stendur að leigja Ægi til eftirlits- starfa á Miðjarðarhafi í sumar. - bj Viðgerð á varðskipinu Þór mun taka lengri tíma en áætlanir gerðu ráð fyrir: Þór væntanlegur seint í apríl Í VIÐGERÐ Þór stoppaði stutt við á Íslandsmiðum eftir að hann kom til landsins þar sem galli fannst í annarri af aðalvélum skipsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR LÖGREGLUMÁL Kona kærði nauðg- un að morgni páskadags á Ísa- firði. Lögreglan handtók í kjöl- farið karlmann og yfirheyrði hann vegna málsins. Manninum var sleppt að lokinni yfirheyrslu. Lögregla staðfestir að kæran hafi borist og segir málið í rann- sókn. Ekki fást nánari upplýsing- ar um málavöxtu að svo stöddu. Mikill fjöldi fólks sótti Ísafjörð heim um páskahelgina, en þar fór meðal annars fram tónlistarhá- tíðin Aldrei fór ég suður. Lög- regla taldi þó ekki rétt að tengja nauðgunina við hátíðina, enda fjöldi annarra viðburða í bænum um helgina. - bj Kærði kynferðisbrot á Ísafirði: Lögregla rann- sakar nauðgun NOREGUR Stuðningur Norðmanna við Evrópusambandsaðild hefur aldrei mælst minni en um þessar mundir. Ný könnun sýnir að þrír af hverjum fjórum myndu hafna ESB-aðild nú. Einungis fimmtán prósent svarenda sögðust styðja aðild. Í frétt Aftonposten segir að það sem heyri helst til tíðinda í þess- um niðurstöðum sé að andstaða sé að aukast í öllum þjóðfélags- hópum. Meðal hinna tekjuhæstu, sem hingað til hafa verið jákvæð- astir, er nú 71% andsnúið aðild. Andstaðan er minnst í Ósló og nágrenni þar sem 24% segjast hlynnt aðild. - þj Andstaða við ESB í Noregi: Þrír af fjórum vilja ekki í ESB „Sjálfboðaliðar allt í kringum landið eru að safna og eftir því sem ég best veit gengur það bara mjög vel,“ segir Guðný Lilja Odds- dóttir, sem starfar fyrir framboð Herdísar Þorgeirsdóttur prófess- ors. Söfnuninni sé þó ekki lokið en markmiðið sé að ljúka henni í apríl. Jón Lárusson, lögreglumaður á Selfossi, segir söfnun sína ganga ágætlega. „Þetta er ekki komið en það styttist í það, geri ég mér vonir um.“ Hann segir að sér hafi eðli- lega gengið best á Suðurlandi en hitt sé í vinnslu. „Fólk virðist vera með missterkar maskínur á bak við sig,“ segir hann. Ólafía B. Rafnsdóttir, sem starfar fyrir framboð Ólafs Ragn- ars Grímssonar, sitjandi forseta, segir söfnunina þetta árið verða með svipuðu sniði og í hin skiptin þegar Ólafur hefur verið í fram- boði. Söfnunin gangi þó vel og standi yfir um land allt. „Ég gef mér svona þrjár til fjórar vikur í að klára þetta,“ segir hún. Sjötti frambjóðandinn, Hannes Bjarnason úr Skagafirði, hefur greint frá því í fjölmiðlum að hann komi til landsins frá Noregi í lok mánaðar og hefji meðmæla- söfnun sína þá. stigur@frettabladid.is ■ Kosið verður laugardaginn 30. júní. ■ Framboðsfrestur rennur út 25. maí. ■ Sex hafa þegar lýst yfir framboði. ■ Hver frambjóðandi þarf að safna 1.500 til 3.000 meðmælendum. ■ Meðmælendurnir þurfa að skiptast svona eftir landshlutum: 1.206 til 2.412 úr Sunnlendingafjórðungi (sem inniheldur meðal annars höfuð- borgarsvæðið og Suðurnes og er því langfjölmennastur), 66 til 131 úr Vestfirðingafjórðungi, 166 til 332 úr Norðlendingafjórðungi og 62 til 125 úr Austfirðingafjórðungi. Um kosningarnar BESSASTAÐIR Forsetabústaðurinn er umsetinn þessi dægrin. Sex manns vilja búa þar og starfa næstu fjögur árin. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /VILH ELM Heimir & Kolla vakna með þér í bítið Fréttir, fróðleikur og frábær tónlist alla virka morgna kl. 6.50 – 9.00 KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.