Fréttablaðið - 11.04.2012, Side 8

Fréttablaðið - 11.04.2012, Side 8
11. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR8 Umhverfisstyrkir Landsbankans landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn Samfélagssjóður Landsbankans veitir fimm milljónir króna í umhverfisstyrki. Markmið umhverfisstyrkja er að styðja við umhverfis- og náttúruvernd. Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2012. Verkefni sem einkum koma til greina:  Verkefni á sviði náttúruverndar, t.a.m. skógrækt, landgræðsla og hreinsun landsvæða.  Verkefni er tengjast rannsóknum á náttúrugæðum.  Verkefni er styðja betra aðgengi fólks að náttúru landsins.  Verkefni er nýtast til verndar landsvæðum, t.d. vegna ágangs búfénaðar eða ferðamanna.  Verkefni er auka þekkingu og vitund almennings á umhverfismálum.  Verkefni er hvetja til umhverfisvæns hátternis. Umsóknarfrestur Umsóknarfrestur vegna umhverfisstyrkja er til og með 30. apríl 2012. Dómnefnd verður skipuð sérfræðingum á sviði náttúru- og umhverfis- verndar. Sótt er um umhverfisstyrki rafrænt, á landsbankinn.is. Samfélagssjóður Landsbankans hefur það hlutverk að veita styrki til verðugra verkefna. Árlega eru veittar fimm tegundir styrkja: Afreksstyrkir, námsstyrkir, nýsköpunarstyrkir, samfélagsstyrkir og umhverfisstyrkir. Nánari upplýsingar á landsbankinn.is 1. Hvar er tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður haldin um hverja páska? 2. Hver vann Mastersmótið í golfi sem fram fór um helgina? 3. Eftir hvaða tónlistarmann er lagið Allt varð hljótt sem hljómar í kvikmyndinni Hungurleikunum? SVÖR: 1. Á Ísafirði 2. Bubba Watson 3. Ólaf Arnalds GUY FIERI HEIMSÆKIR EINSTAKA VEITINGASTAÐI Í DINERS, DRIVE-INS & DIVES Á FOOD NETWORK | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á WWW.STOD2.IS ÞRÓUNARAÐSTOÐ Söfnun UNICEF fyrir vannærð börn á Sahel- svæðinu í Afríku hefur gengið vonum framar þar sem tólf millj- ónir króna hafa safnast á einni viku. „Við erum afar þakklát fyrir stuðninginn og það mikla traust sem UNICEF er sýnt,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, fram- kvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, í tilkynningu. „UNICEF er á staðnum í öllum átta ríkjunum á Sahel-svæðinu þar sem þurrkar og uppskeru- brestur hafa sett börn í lífshættu. UNICEF hefur þekkingu, reynslu og getu til að bjarga lífi van- nærða barna og reynslan sýnir að 95% vannærðra barna sem fá meðhöndlun á þessu svæði lifa af. Flest börnin ná sér á einungis fáeinum vikum,“ segir Stefán jafnframt. Fjármunirnir munu koma að góðum notum þar sem framlögin sem þegar eru komin duga fyrir 214.000 skömmtum af vítamín- bættu jarðhnetumauki. Um milljón barna á það á hættu að láta lífið vegna vannæringar í kjölfar þurrka og uppskerubrests á svæðinu. Upplýsingar um hvernig leggja má af mörkum til þessa málefnis má finna á unicef.is - þj Söfnun UNICEF fyrir vannærð börn á Sahel-svæðinu í Afríku gengur framar vonum: Tólf milljónir hafa safnast á Íslandi NJÓTA GÓÐS AF FRAMLÖGUM Hundruð þúsunda barna eiga nú um sárt að binda á Sahel-svæðinu í Afríku. Íslendingar hafa látið tólf milljónir króna af hendi rakna þeim til aðstoðar. MYND/UNICEF FLÓTTAMANNABÚÐIR HEIMSÓTTAR Kofi Annan heimsótti Yayladagi-flóttamannabúð- irnar í Tyrklandi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SÝRLAND, AP Stjórnvöld í Sýrlandi halda áfram árásum á svæði þar sem uppreisnarmenn eru og er talið að um sextíu manns hafi látið lífið í slíkum árásum í gær. Áður höfðu sýrlensk stjórnvöld samþykkt friðaráætlun sem gerði ráð fyrir því að vopnahlé hæfist í gær. Stjórnvöld sögðust í gær hafa dregið sig til baka á sumum svæð- um. Það er þó ekki tekið trúan- legt enda ekkert sem bendir til þess. Fréttir bárust af bardögum í mörgum borgum, meðal annars í borginni Homs, sem hefur orðið hvað verst úti á því rúma ári sem liðið er frá því að uppreisnin gegn Bashar Al-Assad forseta hófst. Kofi Annan, sérstakur erind- reki Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins í málefnum Sýrlands, sagði í gær að sýrlensk stjórnvöld hefðu ekki sýnt vilja til friðar. Þó væri friðaráætlun hans enn í fullu gildi og hægt væri að bjarga henni. Hann hvatti stríð- andi fylkingar til þess að hætta bardögum undir eins. Þá sagði hann undanfarna daga hafa átt að vera tækifæri fyrir stjórn- völd til að senda sterk skilaboð um frið í samræmi við sex þrepa friðaráætlun hans. „Ég hef miklar áhyggjur af þróun mála,“ segir í bréfi hans til Öryggisráðs SÞ síðan í gær. Samkvæmt friðaráætluninni átti að hefja vopnahlé í gær og öll vopnuð átök áttu að hætta algjör- lega á morgun. Í framhaldinu áttu uppreisnarmenn og stjórnvöld að hefja viðræður um lausn málsins. „Þetta er áætlun sem Öryggis- ráðið hefur stutt. Þetta er áætlun sem Sýrlendingar hafa stutt og samkvæmt upplýsingum frá upp- reisnarmönnum eru þeir einnig tilbúnir að styðja áætlunina ef stjórnvöld standa við að draga herlið sitt til baka,“ sagði Annan í heimsókn sinni í flóttamanna- búðir í Tyrklandi, við landamæri Sýrlands, í gær. Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna tók undir með Annan í gær. Á næstunni kæmi í ljós hvort ráðið þurfi að herða aðgerðir sínar gegn sýrlenskum stjórnvöld- um. Það væri mikið áhyggjuefni að undanfarna daga hafi ofbeldi ekki aðeins haldið áfram í landinu heldur hafi það aukist. Walid Muallem, utanríkis- ráðherra Sýrlands, sagði í gær að vopnahlé ætti að miðast við komu alþjóðlegra eftirlitsmanna til landsins. Þrátt fyrir það hafi stjórnvöld hafið brottflutning her- liðs frá sumum svæðum landsins. Þá sagði Muallem að þrátt fyrir jákvæðar aðgerðir hafi „and- staða vopnaðra hryðjuverkahópa“ aukist dag frá degi. Muallem er í Rússlandi. thorunn@frettabladid.is Engin merki um friðarvilja Sýrlensk stjórnvöld héldu árásum sínum áfram í gær, þrátt fyrir að samkvæmt samþykktri friðar- áætlun hafi vopnahlé átt að hefjast. Kofi Annan og Öryggisráð SÞ hafa miklar áhyggjur af ástandinu. VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.