Fréttablaðið - 11.04.2012, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 11.04.2012, Blaðsíða 26
KYNNING − AUGLÝSING MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2012 Þeir sem ekið hafa á nagla-dekkjum í vetur þurfa að skipta yfir í sumar- eða heils- ársdekk fyrir 15. apríl svo nú er rétti tíminn til að skipta. „Við erum með gott verð á gæðadekkjum og umfelgun,“ segir Arngrímur. „Það eru fimm ár í júní síðan við tókum við þessu fyrirtæki og fyrir utan áðurnefnd gæðadekk bjóðum við flestar gerðir hjólbarða. Ekki þarf að panta tíma, menn geta komið hingað, fengið ný sumar- eða heilsársdekk og við setjum þau undir bílinn,“ segir hann enn fremur. „Það vantar ekkert upp á þjón- ustulundina hjá okkur. Hér er þaulreynt afgreiðslufólk sem veit- ir upplýsingar, ráðgjöf og aðstoð undir stjórn Jóhannesar Jóns- sonar, sem hefur unnið í þessum geira í meira en aldarfjórðung og þekkir hann því eins og lófann á sér. Við flytjum inn hjólbarða fyrir allar gerðir bifreiða, allt frá dekkj- um undir fólksbíla og upp í stór og sterk lyftaradekk sem vega hálft tonn,“ segir Arngrímur. Heildverslunin og verkstæð- ið eru opin alla virka daga frá klukkan 8 til 18. Verkstæðið er opið á laugardögum frá klukkan 10 til 14. Allar nánari upplýsing- ar eru veittar í síma 533-3999 eða á heimasíðu fyrirtækisins, slóðin er betragrip.is. Bridgestone er flagg- skipið hjá Betra gripi Fyrirtækið Betra grip ehf. rekur heildverslun og hjólbarðaverkstæði að Lágmúla 9. Fyrirtækið er umboðs- og söluaðili fyrir Bridgestone-, Firestone- og Dayton-hjólbarða, sem framkvæmdastjórinn Arngrímur Þorgrímsson segir vera með þeim bestu sem völ er á. Betra Grip er bæði heildsala og hjólbarðaverkstæði í Lágmúla 9. MYND/VALLI Arngrímur Þorgrímsson, framkvæmdastjóri Betra grips, ásamt starfsmönnum sínum, Jóhannesi og Jóni. MYND/VALLI Mi k i l u m r æ ða hef u r skapast um umdeild lög sem ganga í gildi 1. júlí í Frakklandi. Lögin skylda öku- menn til að hafa öndunarmæli í vélknúnum ökutækjum sínum en mælarnir gera þeim kleift að mæla áfengismagn í blóði sínu. Brjóti ökumenn lögin verða þeir sekt- aðir um 1.850 krónur. Engu máli skiptir þótt ökumaðurinn drekki ekki áfengi eða ætli ekki að drekka þennan daginn, öllum verður skylt að hafa öndunarmæli meðferðis. Ölvunarakstur vandamál í Frakklandi Ástæður lagasetningarinnar má fyrst og fremst rekja til þess að ölvunarakstur hefur lengi verið vandamál í Frakklandi en um 30% dauðsfalla í umferðinni þar í landi má rekja til ölvunaraksturs. Frakk- ar hafa reynt ýmsar leiðir undan- farin ár til að draga úr ölvunar- akstri. Þær aðgerðir hafa leitt til þess að dauðsföllum í umferðinni hefur fækkað um 40% frá árinu 2001. Þrátt fyrir fjölda dauðsfalla hafa Frakkar sams konar löggjöf varðandi vínandamagn í blóði og f lestar aðrar Evrópuþjóðir sem miðast við 0,5 prómill. Bretar hafa efasemdir Breskir fjölmiðlar hafa fjallað töluvert um nýju lögin enda ferðast margir Bretar yfir sundið til Frakklands á bílum og öðrum farartækjum yfir sumartímann. Mögum finnst lögin óljós og ekki sé víst hvort strangt verði tekið á brotum fyrst um sinn. Ökumönn- um verði jafnvel gefinn nokk- urra mánaða frestur til að venj- ast nýju lögunum og eru þar með ekki sektaðir. Einnig hafa heyrst efasemdarraddir þess efnis að ekki verði búið að framleiða nóg af öndunarmælum til að hægt sé að koma þeim fyrir í öllum ökutækjum tímanlega. Stjórn- völd hafa hvatt ökumenn til að hafa að minnsta kosti tvo mæla í hverju ökutæki og því er um mikið magn að ræða sé tekið til- lit til fjölda ökutækja og fjölda er- lendra ferðamanna sem keyra um landið á hverju ári. En þótt nýju lögin veki mismikla hrifningu virðast þau hafa átt sinn þátt í vitundarvakningu meðal Frakka og annarra nágrannaþjóða um skaðsemi ölvunaraksturs. Öndunarmælar í ökutæki í Frakklandi Í sumar ganga í gildi umdeild lög í Frakklandi sem skylda eigendur ökutækja til að hafa öndunarmæli meðferðis. Franska lögreglan hefur nóg að gera í sumar eftir gildistöku laganna. NORDICPHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.