Fréttablaðið - 11.04.2012, Side 34
Netfang auglýsingadeildar
auglys ing ar@markadurinn.is
Veffang visir.is
Netfang
rit stjorn@markadurinn.is
Sími 512 5000 Fax 512 5301
Þorgils Jónsson
BANKAHÓLFIÐ
Þorsteinn Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja
ERLENT MYNDBAND
Ótrúlegur vöxtur
Instagram
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur og
frábær tónlist alla virka
morgna kl. 6.50 – 9.00
Þráinn á tökkunum og
Gissur með fréttirnar
Oft er sagt að peningar séu hreyfiafl
heimsins. Með nægu fjármagni á flest
að vera mögulegt ef rétt er á haldið.
Áherslan er auðvitað á niðurlagið:
Ef rétt er á haldið.
Eitt allra besta dæmið um vanmátt
auðmagnsins út af fyrir sig er að finna
í nýlegri samantekt á síðunni Transfer-
league þar sem borin eru saman
útgjöld liðanna í ensku úrvalsdeildinni
í leikmannakaupum frá árinu 2006.
Þar kemur í ljós að fyrrverandi
meistaraefni Manchester City trjóna
þar langefst með hin þykku veski
eigenda sinna, bæði hvað varðar
heildarupphæð sem hefur farið í
leikmannakaup, 532 milljónir punda,
og upphæð að frádreginni sölu á leik-
mönnum, sem í þeirra tilfelli nemur
um 428 milljónum punda.
Chelsea fylgir þar á eftir, nokkuð
langt á eftir, með 156 milljónir nettó,
en því næst kemur stórveldið forn-
fræga Liverpool sem hefur keypt leik-
menn fyrir 83 milljónum punda meira
en það hefur selt.
Þar á eftir koma liðin Tottenham,
Aston Villa, Sunderland og Stoke.
Manchester United er svo í áttunda
sæti, með um 51 milljón punda í
mínus, en er þó í fimmta sæti þegar
kemur að heildarútlátum til leik-
mannakaupa.
Þetta kallar á pælingar um rekstur
og afraksturinn sem hlýst af því að
dæla út svo fádæma háum fjár-
hæðum.
Látum vera að félög sem hafa
ótakmarkaða fjármuni ausi út fé til að
kaupa leikmenn til að bæta hópinn
ef ásættanlegur árangur næst af
þeim sökum. Chelsea getur ef til vill
verið sátt við einn meistaratitil, þrjá
bikartitla og einn deildarbikartitil.
Manchester City getur sömuleiðis
mögulega prísað sig sælt með sinn
eina bikartitil ef málsvörnin er sú, að
uppbygging frá grunni taki óumflýjan-
lega nokkurn tíma, en varla er eini
titill Liverpool frá hausti 2006, deildar-
bikarinn síðasta vor, ásættanlegur
árangur fyrir ofangreinda upphæð.
Á hinum enda jöfnunnar er
Lundúnaveldið Arsenal sem er í 31
milljónar punda gróða í leikmanna-
kaupum á þessu árabili. Engir bikarar
hafa þó farið í gljáfægða skápana á
Emirates, flestum stuðningsmönnum
og mörgum leikmönnum til mikils
hugarangurs.
Hið fornkveðna spakmæli að kapp
sé best með forsjá sannast hins vegar
best á ríkjandi (og að öllum líkindum
verðandi) meisturum Manchester
United. Fimm úrvalsdeildartitlar á
síðustu sex árum, auk Evróputitils
og annars smálegs, ætti að vera
viðunandi niðurstaða samkvæmt
flestöllum bókum.
Niðurstaðan virðist hins vegar vera
sú að ábyrgð og áræðni undir styrkri
stjórn er góð og árangursrík blanda í
fótbolta eins og öllum rekstri.
Á vissan hátt er gaman til þess að
vita (fyrir ákveðinn hóp stuðnings-
manna altjent) að á þessum síðustu
og verstu tímum í knattspyrnusögunni
eru það ekki peningar sem öllu ráða.
Þeir hjálpa vissulega ef rétt er með
farið, en sigur á vellinum fæst ekki
keyptur, til lengri tíma litið.
Boltinn og „bissness“