Fréttablaðið - 11.04.2012, Page 38
11. apríl 2012 MIÐVIKUDAGUR18
mini
Ny
r og
skemm
tilegu
r
va
lkostu
r
*Pantanir þurfa að berast
fyrir 15:00 daginn áður
Nú bjóðum við okkar frábæru pítur sem smárétti fyrir
öll stór og smá tilefni. Mini píturnar eru afgreiddar á
hentugum bökkum í þremur útfærslum*
Klassík: Buff, kjúklingabringa,
grænmeti, lamb og beikon
Exótík: Sjávarréttir, lax,
kalkún-beikon og kebab
Mix: Roastbeef, buff,
skinka og kjúklingalundir
Skipholti 50 C
Pöntunarsími: 562 9090
www.pitan.is
2.990.-
12 mini pítur
klassí
k
mix
exótí
k
KAUPTHING MANAGER SELECTION
Société d'Investissement à Capital Variable
14, boulevard Royal – L-2449 LUXEMBOURG
R.C.S. Luxembourg B 72.942
(the „Sicav“)
ANNUAL GENERAL MEETING OF SHAREHOLDERS
The Board of Directors is pleased to convene the shareholders of KAUPTHING MANAGER SELECTION to attend
the annual general meeting to be held at the registered office of the Sicav on 30 April 2012 at 11.00 a.m. with the
following agenda:
1. Report of the Board of Directors and of the Independent Auditor
2. Approval of the financial statements as at 31 December 2011
3. Allocation of the results
4. Discharge to the Directors
5. Renewal of the mandate of the Independent Auditor
6. Statutory elections
7. Miscellaneous
The shareholders are advised that no quorum for the statutory general meeting is required and that decisions
will be taken by simple majority of the votes cast. Proxies are available at the registered office of the Sicav.
Shareholders, who wish to attend the annual general meeting, are requested to inform the Board of Directors
(Fax nr: +352 49 924 2501 – ifs.fds@bdl.lu) at least five calendar days prior to the annual general meeting.
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggva-
dóttur
Hvernig hafðirðu það nú um páskana? Fórstu eitthvert? Fékkstu gott veður?
að þessu spyrja vinnufélagarnir þegar fólk
skreiðist aftur til vinnu eftir fríið. Þetta var
enda langt frí, fimm heilir dagar og því tals-
vert lengra en jólafríið var núna síðustu jól.
HÁTÍÐLEIKI páskanna er einhverra hluta
vegna minni í margra augum en jólahá-
tíðin. Fólk notar páskana til að ferðast, fara
á skíði eða í fjallgöngur og víða eru hátíðir
haldnar um landið sem laða að ferðafólk.
Fólk skýst í bústað, liggur í pottinum
eða les. Þá nota einhverjir tímann
til að ljúka verki sem lengi hefur
beðið. Einhver steikti kleinur og
annar stóð í stórhreingerningum.
Þetta árið lágu líka margir í flensu,
kannski ekki sjálfviljugir samt.
PÁSKAFRÍIÐ var langþráð
eftir dimmustu mánuði
ársins sem voru alveg frí-
lausir. Febrúar meira að
segja einum degi lengri
en oft áður í þokkabót.
Fram undan eru þó bjart-
ari tímar. Strax í næstu
viku er einn frídagur,
þegar sumarið kemur! Og
í maí einum saman eru þrír
frídagar. Þjóðhátíðardaginn
ber reyndar upp á sunnudag
í ár en þá verður komið svo gott veður og
stutt í sumarfríið að það tekur því ekki að
ergja sig á því.
STAKIR frídagar í miðri vinnuviku eru
kannski ekki öllum jafn heppilegir og eru
meira að segja þyrnir í augum sumra. Þá
las ég á Vísi í gær að „Þjóðarframleiðsla í
Bretlandi myndi aukast um nítján milljarða
punda á ári ef lögbundnir frídagar yrðu
afnumdir.“ Það var einnig látið fylgja með í
fréttinni að það jafngilti um 3.800 milljörð-
um íslenskra króna!
VONANDI lesa íslenskir valdhafar ekki
þessa frétt hugsaði ég, dauðhrædd um að
þarna sæju þeir von um aura í tóman ríkis-
kassann. Ég vil alls ekki horfa þessum
augum á frídagana, það er hvað þeir kosta
og hvað væri hægt að græða ef þeir væru
ekki til. Mér finnst betra að horfa á hvað
þeir gefa þreyttum, eða erum við ekki dott-
in af topp tíu listanum yfir hamingjusamar
þjóðir heims?
FRÉTTINNI um bresku frídagana fylgdi
líka að ekki þætti ráðlegt að afnema þá með
öllu. Það mætti þó dreifa frídögunum jafnar
yfir árið og það er ég alveg til í að skoða.
Helst þyrfti að búa svo um hnútana að lög-
bundnir frídagar lendi aldrei á sunnudegi.
Einhvern tímann verður að vera tími til að
baka kleinur.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. vera til, 6. mannþyrping, 8. meðal,
9. eldsneyti, 11. tveir eins, 12.
afspurn, 14. gistihús, 16. í röð, 17.
viður, 18. skelfing, 20. klaki, 21. spil.
LÓÐRÉTT
1. frásögn, 3. gangþófi, 4. ölvun, 5.
máttur, 7. sáttir, 10. arinn, 13. sigað,
15. dó, 16. stal, 19. ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lifa, 6. ös, 8. lyf, 9. gas, 11.
ll, 12. umtal, 14. hótel, 16. tu, 17. tré,
18. ógn, 20. ís, 21. kani.
LÓÐRÉTT: 1. sögu, 3. il, 4. fyllerí, 5.
afl, 7. samhuga, 10. stó, 13. att, 15.
lést, 16. tók, 19. nn.
Pondus kynnir:
í dag:
Karlmannslíkami
heldur sér ekki við
sjálfur! Það þarf að
hlúa að honum
og byggja
upp! Matur er
lykilatriði í því
samhengi!
Öll næringarefnin sem
karlmaðurinn þarf má
finna í pitsu, pilsner og
poppi!
Byrja
öll á P!
Praktíst!
Maðurinn má
aldrei komast í
kynni við salat!
Borð-
aðu!
Það hefur
dramatískar
afleiðingar í för
með sér!
Gott að
vita!
Ég sagði mömmu
að ég gæti bara
borðað mat sem
byrjar á „H“ í dag.
Hún er þegar búin að
elda hamborgara og
hrísgrjónagraut í vikunni,
þannig að í kvöld verður
örugglega...
Eða
hakka-
buff.
Ég er hættur
við. Ég ætla
að borða
heima.
Þá er friÐurinn úti
Ég get ekki
ákveðið í
hvað ég á
að fara!!
Er ekki gott að
vera með allt
þetta ónotaða
pláss í hausnum?
Já, ég vil
halda því
opnu fyrir
íþróttaáhorf.
Njótum frídagsins