Fréttablaðið - 11.04.2012, Síða 41
MIÐVIKUDAGUR 11. apríl 2012
Listvinafélag Hallgrímskirkju 30. starfsár
MESSA Í C-MOLL
& REQUIEM
HALLGRÍMSKIRKJU
LAUGARDAGINN 21. OG SUNNUDAGINN 22. APRÍL KL. 17
A 4 500 / 3 500 M á
ÞÓRA EINARSDÓTTIR - HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR
AUÐUR GUÐJOHNSEN - ELMAR GILBERTSSON - MAGNÚS BALDVINSSON
MÓTETTUKÓR HALLGRÍMSKIRKJU 30 ÁRA - KAMMERSVEIT HALLGRÍMSKIRKJU
stjórnandi: HÖRÐUR ÁSKELSSON
Nýtt landslag - nýjar áskoranir
HÁSKÓLINN Á BIFRÖST
Staða landbúnaðar á Íslandi í breyttum heimi
Ráðstefna á Bifröst föstudaginn 13. apríl
Ráðstefnunni er ætlað að kynna og miðla því sem efst er á baugi í ríkjandi
þróun landbúnaðarumhverfisins hér á landi og erlendis. Býr framtíðin
í óbreyttu ástandi? Ef ekki, hverju þarf að breyta í núverandi landbúnaðar-
stefnu til að tryggja bændum eðlileg kjör og sókn til fjölþættari atvinnu-
tækifæra, innan eða utan ESB? Sérfræðingar á sviði landbúnaðar-, neytenda-
og matvælamála halda fyrirlestra og hagsmunaaðilar úr ólíkum undirgreinum
atvinnugreinarinnar segja frá reynslu sinni.
Fyrirlesarar 10:30 - 12:30
10:30 - 10:40 Bryndís Hlöðversdóttir,
rektor Háskólans á Bifröst
10:40 – 11:05 Þórólfur Matthíasson,
hagfræðingur, prófessor við Háskóla Íslands
11:05 - 11:35 Veli-Pekka Talvela, yfirmaður
alþjóðamála hjá landbúnaðar- og
skógræktarráðuneyti Finnlands
11:35 - 12:00 Daði Már Kristófersson,
náttúruauðlindahagfræðingur, dósent við
Háskóla Íslands
12:00 – 12:30 Kristín Vala Ragnarsdóttir,
jarðefnafræðingur, forseti verkfræði- og
náttúruvísindasviðs HÍ
Ýmis erindi 13:30 - 15:30
Landssamband kúabænda:
Baldur Helgi Benjamínsson,
framkvæmdastjóri LK
Neytendasamtökin:
Brynhildur Pétursdóttir (NS)
Lífræn ræktun og matvælaframleiðsla
Eygló Björk Ólafsdóttir, Móðir jörð,
Vallanesi
Fulltrúi launþega:
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ
Landssamband sauðfjárbænda:
Sindri Sigurgeirsson sauðfjárbóndi
15:30–16:30 Hringborðsumræður
(panel)
Framsögumenn taka þátt í
hringborðsumræðum. Gestum
boðið að taka þátt í umræðum
og leggja fram spurningar.
Nánari upplýsingar og skráning á bifrost.is og í síma 545 1200.
Skráningargjald 3000 kr. – hádegisverður innifalinn.
12:30-13:30 Hádegismatur
Color Me Records er nýtt útgáfu-
fyrirtæki sem sérhæfir sig í
íslenskri raftónlist. Það eru fjór-
menningarnir Áskell Harðar-
son, Björn Gauti Björnsson, Jón
Eðvald Vignisson og Steindór
Grétar Jónsson sem standa að
útgáfunni.
Fyrsta plata Color Me Records
kom út á dögunum, stuttskífa eftir
B. G. Baarregaard sem nefnist
Nude Disco. B. G. Baarregaard
á sjálfur tvö lög á plötunni, auk
þess sem þar er að finna endur-
hljóðblandanir eftir Jón Edvald og
Steindór Jónsson.
Útgáfunni verður fagnað á
Kaffibarnum í kvöld klukkan 21
og munu listamenn plötunnar
sjálfir sjá um að þeyta skífum. - trs
Ný tónlistarútgáfa
COLOR ME RECORDS Það eru þeir Áskell Harðarson, Björn Gauti Björnsson, Jón
Eðvald Vignisson og Steindór Grétar Jónsson sem standa að útgáfunni.
Söng- og leikkonan Miley Cyrus
hefur sætt nokkurri gagnrýni
fyrir holdafar sitt undanfarnar
vikur. Einhverjir halda því fram
að söngkonan þjáist af lystarstoli
en Cyrus hefur vísað gagnrýn-
inni á bug.
„Það eina sem ég þjáist af er
glúten- og mjólkuróþol. Þetta
hefur ekkert með þyngd að gera,
aðeins heilsu mína. Glúten er
óhollt og í dag borðaði ég páska-
máltíð sem var holl og saðsöm.
Heilbrigði er hamingja,“ skrifaði
Cyrus á Twitter-síðu sína. Þar
mælti hún jafnframt með því
að aðdáendur hennar prófuðu
glútenlaust fæði í nokkra daga.
Er með glútenóþol
HEILBRIGÐ OG HRAUST Miley Cyrus
segist hafa grennst vegna þess að hún
má ekki borða glúten eða mjólkurvörur.
NORDICPHOTOS/GETTY
Justin Timberlake hannaði
sjálfur trúlofunarhringinn sem
hann gaf unnustu sinni, Jessicu
Biel, en samkvæmt US Weekly er
stúlkan ekki alltof hrifin af hönn-
un unnustans.
Timberlake ráðfærði sig fyrst
við stílista Biel um útlit og lögun
hringsins en ákvað að lokum að
hanna hringinn eftir eigin höfði.
„Stílisti Jessicu veit hvað hún vill
og hvað fer henni best. Justin tal-
aði við hana fyrst en ákvað svo að
hanna hringinn sjálfur án þess að
ráðfæra sig við hana. Jessica er
ánægð með hringinn en hann er
mjög á skjön við hennar persónu-
lega stíl,“ hafði tímaritið eftir
heimildarmanni.
Ber sérhann-
aðan hring
PASSAR EKKI Trúlofunarhringur Jessicu
Biel klæðir ekki hennar persónulega stíl.
NORDICPHOTOS/GETTY