Fréttablaðið - 11.05.2012, Qupperneq 1
veðrið í dag
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Sími: 512 5000
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Föstudagur
skoðun 16
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Fólk
Lífið
11. maí 2012
110. tölublað 12. árgangur
VELLÍÐAN
„Í dag er ég miklu betri og ég þakka það að miklu leyti
GENGIÐ MEÐ VAGNA OG KERRUR
Barnavagnavika Ferðafélags Íslands og VÍS hófst á mánudag
og lýkur í dag. Um er að ræða 60-90 mínútna gönguferðir,
með léttum æfingum, teygjum og slökun, fyrir foreldra og að-
standendur barna í barnavögnum og kerrum. Í dag verður farið
frá Húsdýragarðinum og hefst gangan klukkan 12.15.
F anney, sem er einn eiganda fjöl-skyldufyrirtækisins Organic, var greind með vefjagigt fyrir átján árum. Hún hefur breytt mataræði sínu mikið frá því sem áður var. „Það hefur haft gríðarlega mikið að segja fyrir mig,“ segir Fanney „Í dag er ég miklu betri og þakka það að miklu leyti bættu mataræði. Allir verkir eru minni, ég tek aldrei verkjalyf, ég er léttari og líður einfaldlega betur á líkama og sál. Það er alveg satt að maður er það sem mað-ur borðar, fæðan er undirstaða alls.“Fanney segir sjúkdóminn ekki vera einu ástæðu þess að hún tók upp hráfæði. „Þetta gerðist barsmát
Uppistaðan í hráfæði er ávextir, hnetur, fræ og söl. Það eru engin dýr eða dýraafurðir inni í mataræðinu. „Þetta er ákveðin matreiðsluaðferð, maturinn er ekki hitaður upp fyrir 46 gráður. Við eigum þurrkofn sem „eldar“
matinn á löngum tíma. Ég geri til dæmis
hrökkkex sem er í átta klukkutíma inni
í ofninum.“
Fanney segir fjölskylduna fá öll þau
næringarefni sem hún þarf úr fæðunni.
„Við tökum reyndar B-12 vítamín í vökvaformi en annars uppfyllir matar-
æðið allar næringarþarfir okkar “Þó þett
HRÁFÆÐI ER MÁLIÐBETRI HEILSA Fanney Sigríður Friðfinnsdóttir hefur tekið mataræði sitt og
fjölskyldu sinnar í gegn á undanförnum árum og borðar nú einungis hráfæði.
Það hefur stórlega bætt líðan Fanneyjar en hún er með vefjagigt.
HOLLUSTA
Fanney segir hráfæðis-mataræði hafa bætt líðan sína stórlega en hún er með vefjagigt.MYND/VILHELM
Grillað fillet á spjóti, marinerað í hvítlauk,
ólífuolíu, tímian & dijon sinnepi, borið fram á
salatbeði með hægelduðum rauðlauk, ristuðum
sveppum, bakaðri kartöflu & hvítlauks dressingu
kr.
NÝ
TT
11. MAÍ 2012
NEXT TOP MODEL
Á ÍSLANDI
DORRIT ELSKAR
ÍSLENSKA HÖNNUN
BAK VIÐ
BÚÐARBORÐIÐ
Græddu á gulli
á Grand Hótel
föstudag, laugardag,
sunnudag og mánudag
Staðgreiðum
allt gull,
silfur, demanta
og vönduð úr.
Upplýsingar og tímapantanir,
Sverrir s. 661-7000 • sverrir@kaupumgull.is
ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒ
ƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒƒ
ƒ
ƒƒƒ
ƒƒƒƒƒƒƒƒ
ƒƒƒ
ƒ
ƒƒƒƒ
ƒƒƒƒƒƒƒƒ
ƒƒ
ƒ
ƒ
ƒ
FÓLK Anna Rakel Ólafsdóttir,
fatahönnunarnemi við Istituto
Marangoni hönnunarskólann
í París, er í hópi tíu hönnuða
sem komnir
eru í úrslit í
árlegri keppni
á vegum nær-
fataframleið-
andans Tri-
umph.
Anna Rakel
segir keppnina
vera spennandi
tækifæri fyrir
hönnunarnema
eins og hana enda hafi hún lært
ýmislegt nýtt með þátttökunni
og að auki hlotið mikla umfjöll-
un í frönskum fjölmiðlum sem
fylgjast vel með framgangi
keppninnar.
„Stór mynd af verkinu mínu
birtist meðal annars í tímarit-
inu Le Figaro og það er líka
verið að vinna heimildarmynd
um keppnina.“ - sm / sjá síðu 34
Hönnun Önnu vekur athygli:
Komin í úrslit í
nærfatakeppni
ANNA RAKEL
ÓLAFSDÓTTIR
Fleiri stúlkur í kokkinn
Konum í matreiðslunámi
hefur fjölgað síðustu þrjú ár.
fólk 26
FÓLK Unnar Helgi Daníelsson
Beck hefur stofnað fyrirtækið
Memo Iceland sem sérhæfir
sig í að festa
ævintýri ferða-
manna á Íslandi
á filmu.
Fyrirtækið
er með marga
færa tökumenn
og klippara í
vinnu sem búa
til stuttar heim-
ildarmyndir
sem ferða-
mennirnir geta
tekið með sér og sýnt vinum og
vandamönnum. „Þetta er glæný
hugmynd og þjónusta sem vantaði
og markaðssetning fyrir Ísland í
leiðinni,“ segir Unnar Helgi sem
hefur fengið góð viðbrögð frá
ferðamönnum.
- áp / sjá síðu 34
Festir ferðalög á filmu:
Glæný þjónusta
fyrir ferðamenn
UNNAR HELGI
DANÍELSSON BECK
DÁLÍTIL VÆTA vestanlands en
þurrt austan til fram eftir degi en
lítilsháttar úrkoma þar seinni hluta
dags. Vindur fremur hægur og hiti
á bilinu 5 til 10 stig.
VEÐUR 4
7
6 7
9
9
VIÐSKIPTI Til stendur að breyta nær
öllu því landi sem kínverski fjár-
festirinn Huang Nubo vill leigja
á Grímsstöðum á Fjöllum í fólk-
vang. Þetta kemur fram í drögum
að samkomulagi við sveitarfélögin
á svæðinu, sem undirbúa kaup á
72,19 prósentum jarðarinnar af
landeigendum.
Verði svæðið gert að fólkvangi
verður almenningi heimilt að nota
það til almennrar útivistar, auk
þess sem náttúran á svæðinu mun
njóta sérstakrar verndar sam-
kvæmt drögum að samkomulagi
milli sveitarfélaga og Huangs.
Málinu er þó langt frá því lokið.
Í samningsdrögunum kemur
fram að allt að 99 prósent af land-
areigninni verði gerð að fólkvangi
eða þjóðgarði, segir Þorvald-
ur Lúðvík Sigurjónsson, fram-
kvæmdastjóri Atvinnuþróunar-
félags Eyjafjarðar, sem ásamt
Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga
hefur unnið að undirbúningi máls-
ins fyrir hönd sveitarfélaganna.
Hann segir að á því eina pró-
senti sem eftir standi komi til með
að verða byggingar sem Huang
hyggst reisa.
„Með þessum gjörningi, ef af
verður, get ég fullyrt að almenn-
ingur mun hafa ríkari rétt til
umgengni um landið en hann
hefur í dag,“ segir Þorvaldur. „Ef
þetta verður lýst fólkvangur hefur
almenningur rétt á að ganga þarna
um. Það er verið að auka rétt fólks
til umgengni á landinu, sem í dag
er einkalóð.“
Samkvæmt samningsdrögun-
um munu sveitarfélögin kaupa ríf-
lega 72 prósent landareignarinn-
ar Grímsstaða á Fjöllum. Stærstur
hluti þess lands sem ekki stendur
til að kaupa, um 25 prósent, er í
eigu ríkisins. „Öllum öðrum eig-
endum býðst að selja sveitarfélög-
unum á sama verði og þau kaupa
þennan hluta á, en þeir þurfa þess
ekki,“ segir Þorvaldur.
Hann segir að þrátt fyrir að
ríkið eigi fjórðung landsins geti
það ekki í gegnum þann eignarhlut
komið í veg fyrir að aðrir eigendur
leigi út sinn hluta af landinu.
- bj / sjá síðu 8
Vill að Grímsstaðir
verði að fólkvangi
Í drögum að samningi vegna fyrirhugaðrar leigu Huangs Nubo á Grímsstöðum
á Fjöllum kemur fram að 99 prósent landsins verði gerð að fólkvangi. Þó ríkið
eigi fjórðung landsins getur það ekki stöðvað aðra eigendur í að leigja landið.
Með þessum gjörningi
get ég fullyrt að al-
menningur mun hafa ríkari
rétt til umgengni um svæðið
en hann hefur í dag.
ÞORVALDUR LÚÐVÍK SIGURJÓNSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI ATVINNUÞRÓUNAR-
FÉLAGS EYJAFJARÐAR
UM BORÐ Í ÞÓR Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði afhenti þeim Ögmundi Jónassyni innanríkis-
ráðherra og Georg Lárussyni, forstjóra Landhelgisgæslunnar, ávísun á Þyrlusjóðinn sem gefinn er í tilefni af 40
ára afmæli Ásatrúarfélagsins. Skip og flugvélar Gæslunnar bera öll nöfn goða og gyðja. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Fjörugt áttræðisafmæli
Hjaltalín frumflytur fjögur
ný lög í afmælisveislu
Verkís í Eldborg í kvöld.
tímamót 18
EFNAHAGSMÁL Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins,
segir sameiginlegt fjármálaeftirlit
á EES-svæðinu krefjast stórkost-
legs valdaframsals af hálfu Íslend-
inga verði kerfið innleitt í EES-
samninginn. „Menn verða að gera
sér grein fyrir því hvers konar
risahagsmunir eru undir,“ segir
Bjarni í samtali við Fréttablaðið.
Evrópusambandið hefur sam-
þykkt nýjar reglur um eftirlits-
kerfi með fjármálamörkuðum
innan allra aðildarríkja sambands-
ins. Nýju reglurnar falla undir
EES-samninginn og eiga því við á
Íslandi einnig. Nú er unnið að því
að innleiða reglurnar í samninginn.
Umræða hefur skapast um hvort
nýjar reglur standist stjórnarskrá
lýðveldisins. „Ég tel fráleitt að við
mundum hrökkva til og breyta
stjórnarskránni út af þessari gerð
ESB, það finnst mér alls ekki koma
til greina.“
Bjarni bendir á að Íslendingar
verði að lúta boðum frá Brussel í
efnahagsmálum. „Ef þessar gerð-
ir sem ESB er að fara fram á að
verði innleiddar í EES-samninginn
hefðu verið í gildi þegar banka-
krísan skall á 2008, þá hefðum við
að mestu tekið við fyrirskipunum
frá Brussel.“
Með breytingunum er í fyrsta
sinn farið fram hjá tveggja stoða
kerfi sem byggt hefur verið inn
í EES-svæðið. „Það eitt og sér er
stórmál.“ - bþh, sh / sjá síðu 12
Bjarni Benediktsson segir áform um sameiginlegt fjármálaeftirlit alvarlegt mál:
Stórkostlegt valdaframsal til ESB
Þrír sáu rautt
Þrír Stjörnumenn fengu að
líta rauða spjaldið í leik
Stjörnunnar og Fylkis.
sport 30