Fréttablaðið - 11.05.2012, Page 6

Fréttablaðið - 11.05.2012, Page 6
11. maí 2012 FÖSTUDAGUR6 Meira í leiðinniWWW.N1.IS GERÐU HJÓLIÐ KLÁRT FYRIR SUMARIÐ 20% AFSLÁ TTUR ÚT M AÍ* C o m m an d er II Pi lo t R o ad 3 * GILDIR AF ÖLLUM MÓTÓRHJÓLADEKKJUM - Fjarlægir inngróin hár sem myndast við rakstur eða vaxmeðferð - Virkar á innan við sólahring - Má nota á bikiní línu, undir hendur og á fætur - Fjarlægir rakstursbólur Lausnin þín við inngrónum hárum! INGROW GO 20% afsláttur í Lyfjum og heilsu 7. maí - 31. maí BANDARÍKIN, AP Trúhneigðir íhalds- menn í Bandaríkjunum hafa brugð- ist illa við yfirlýsingu Baracks Obama forseta, sem á miðvikudags- kvöld sagðist fylgjandi hjónabönd- um samkynhneigðra. Þeir standa þétt að baki Mitt Romney, forsetaefni Repúblikana- flokksins, sem hefur verið andvíg- ur hjónaböndum samkynhneigðra og ítrekaði andstöðu sína í gær. Samkynhneigðir og stuðnings- menn þeirra ráða sér hins vegar ekki fyrir gleði og segja Obama hafa tryggt sér atkvæði þeirra allra í forsetakosningunum í nóvember. Sjálfur segist Obama gera sér grein fyrir því, að ómögulegt sé að vita hvaða áhrif þetta hafi á niður- stöður þeirra kosninga. „Það væri erfitt að færa rök fyrir því að þetta myndi ég gera til að ná pólitískum ávinningi, því satt að segja er ekki ljóst hvernig stjórn- málin munu bregðast við,“ sagði hann. Víða um heim mæta samkyn- hneigðir þó enn harðri mótstöðu, andúð og ofbeldi. Kínversk stjórnvöld litu til dæmis á samkynhneigð sem geð- sjúkdóm allt til ársins 2001, og enn er farið með samkynhneigð þar í landi „eins og hún sé ekki til“, segir Xiong Jing, baráttukona fyrir rétt- indum samkynhneigðra. Hún segir að þar í landi sé bæði óraunhæft og ómögulegt að ná því fram að stjórn- völd viðurkenni hjónabönd samkyn- hneigðra. Í Taílandi er ástandið ekki mikið skárra, þótt ferðamenn fái þá mynd af landinu að þar sé samkynhneigð- um sýnt umburðarlyndi. „Ég var að missa vonina í baráttunni fyrir lögleiðingu hjónabands samkyn- hneigðra í Taílandi,“ segir Natee Teerarojjanapongs, sem barist hefur fyrir réttindum samkyn- hneigðra þar í landi, „en nú ýtir stuðningur Baracks Obama við mér og hvetur mig til að halda áfram.“ Yfirlýsing Obama hefur einnig skilað þeim árangri, að John Key forsætisráðherra rauf langvarandi þögn sína og sagði að stjórnin muni „við tækifæri“ skoða hvort hjóna- bönd samkynhneigðra verði leyfð. Í Ástralíu situr Julia Gillard for- sætisráðherra hins vegar föst við sinn keip og segist eftir sem áður andvíg hjónaböndum samkyn- hneigðra. gudsteinn@frettabladid.is Orð Baracks Obama vekja sterk viðbrögð Stuðningsyfirlýsing Bandaríkjaforseta við hjónabönd samkynhneigðra hefur vakið sterk viðbrögð víða um heim, bæði þeirra sem eru sammála honum og hinna sem eru andvígir. Víða sæta samkynhneigðir enn harðri andstöðu. BARACK OBAMA Bandaríkjaforseti hefur, fyrstur Bandaríkjaforseta, lýst yfir stuðningi við hjónabönd samkynhneigðra. NORDICPHOTOS/AFP DANMÖRK Af þeim 32 lyfja- og hjálpartækjafyrirtækjum sem dönsk skattayfirvöld hafa rann- sakað eiga alls 29 von á að þurfa að greiða 50 milljónir danskra króna, jafngildi rúms milljarðs íslenskra króna, í skatt vegna gjafa til lækna, að því er segir á fréttavefnum bt.dk. Fulltrúi skattayfirvalda, Rasmus Ander- sen, segir fyrirtækin hafa reynt að komast hjá skattgreiðslum þegar þau buðu læknum með á ráðstefnur á lúxushótelum. Andersen tekur sem dæmi ráðstefnur fyrir lækna á lúxus- hótelum í Dubai með gistingu og kvöldverði án endurgjalds. Í sumum tilfellum hafi læknarn- ir einnig fengið leyfi til þess að hafa maka með á kostnað lyfjafyr- irtækjanna. Fyrirtækin geti ein- ungis dregið frá kostnað vegna fyrirlesara. Af hinu verði þau að greiða skatt. Að sögn Andersens voru jafnframt mörg dæmi um að læknum hefðu verið gefnar gjafir. Skattayfirvöld hafa ekki tekið ákvörðun um hvort skattar lækna og maka sem farið hafa með í lúx- usferðirnar verði hækkaðir. -ibs Dönsk skattayfirvöld rannsaka lyfja- og hjálpartækjafyrirtæki: Skattar vegna gjafa til lækna LYF Læknar í Danmörku hafa þegið gjafir lyfjafyrirtækja. VIÐSKIPTI Hagar hf., sem meðal annars eiga og reka verslanir Bónuss og Hagkaupa, högnuðust um 2,3 milljarða króna á síðasta rekstrarári sínu sem lauk í lok febrúar 2012. Alls seldi félagið vörur fyrir 68,5 milljarða króna sem er aukning um 1,8 milljarð króna frá árinu áður. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagns- liði og skatta var um 4,2 milljarðar króna. Þetta kemur fram í ársreikningi Haga sem birtur var í gær. Þar segir einnig að félagið ætli sér að greiða 0,45 krónur á hlut í arð á árinu 2012 vegna frammistöðu á síðasta rekstrarári. Alls nemur hlutafé félagsins 1.218 milljónum og því ætti arðgreiðslan að nema 548 millj- ónum króna. Heildareignir Hagasamstæðunnar nema 23,4 millj- örðum króna og eiginfjárhlutfall hennar var 26,6 pró- sent í lok tímabilsins. Hagar voru skráðir á hlutabréfamarkað í desember síðastliðnum. Skráningargengið var 13,5 krónur á hlut en gengið hefur hækkað mikið síðan þá. Í lok dags í gær var það 18,45 krónur á hlut, en hafði þó fallið um 2,9 prósent yfir daginn eftir að uppgjörið var birt. Stærstu einstöku eigendur Haga eru Búvellir slhf., með 12,7 prósenta eignarhlut, og Gildi lífeyrissjóður sem á 10,2 prósenta hlut. - þsj Hagnaður Haga var 2,3 milljarðar á síðasta rekstrarári: Hagar greiða hálfan milljarð í arð HAGAR Á MARKAÐ Á meðal stærstu eigenda Haga, er Hagamelur ehf. Eigendur þess eru Hallbjörn Karlsson, Árni Hauksson, Sigurbjörn Þorkelsson og TM. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Eru ný kaupaukakerfi starfs- manna bankanna tímabær? Já 9,7% Nei 90,3% SPURNING DAGSINS Í DAG: Munt þú versla í verslunum Iceland þegar þær opna hér? Segðu þína skoðun á Vísi.is NEYTENDAMÁL Hagsmunasam- tök heimilanna og talsmaður neytenda lögðu í gær fram nýja lögbannskröfu þar sem farið er fram á að stöðvuð verði öll inn- heimta greiðsluseðla áður gengis- tryggðra lána. Sýslumaður hafnaði lögbanns- kröfu þessa efnis nýverið á þeim forsendum að hún væri ekki nægilega skýrt afmörkuð. Emb- ættin tvö una ekki þeim úrskurði og í nýju kröfunni er nánari skýring á því við hvaða gengis- tryggðu lán er átt. - jhh Aðgerðir vegna gengislána: Vilja lögbann á innheimtuseðla KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.