Fréttablaðið - 11.05.2012, Síða 8

Fréttablaðið - 11.05.2012, Síða 8
11. maí 2012 FÖSTUDAGUR8 ÍS LE N SK A SI A. IS I C E 5 84 52 0 2/ 12 Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi á sunnudags morgnum kl. 10–12 Sprengisandur kraftmikill þjóðmálaþáttur FRÉTTASKÝRING Hvernig verður aðkoma ríkisins að leigu Huangs Nubo á jörðinni Gríms- stöðum á Fjöllum? Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo rær nú að því öllum árum að fá heimild til að leigja stærstan hluta Grímsstaða á Fjöllum til að byggja þar hótel og ýmiss konar afþreyingu fyrir ferðamenn. Enn á hann þó eftir að komast í gegn- um nálarauga íslenskra stjórn- valda. Þar sem erlendir ríkisborgarar og félög í þeirra eigu mega ekki leigja jarðir á Íslandi þarf Huang undanþágu frá þeirri reglu áður en hægt verður að semja um leigu á landinu. Ívilnunarsamningur við ríkið var kynntur í síðustu viku í ríkisstjórn í kjölfar samþykk- is ívilnunarnefndar um erlend- ar nýfjárfestingar. Í þeim samn- ingi er mælt með því að Huang fái að byggja upp á um 300 hekt- ara svæði ýmiss konar mannvirki fyrir vistvæna ferðamennsku. Sveitarfélög á svæðinu hafa, eins og fram hefur komið, þegar samið um kaup á 72,19 prósent- um af jörðinni að því gefnu að leyfi fáist til að leigja Huang jörð- ina. Stærstur hluti þess sem út af stendur, 25 prósent, er í eigu íslenska ríkisins. Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþró- unarfélags Eyjafjarðar, segir að öllum landeigendum bjóðist að selja sinn hluta á sama verði og sveitarfélögin hafi samið um við eigendur um 72 prósent jarðarinn- ar. Þeim sé þó algerlega í sjálfs- vald sett hvort þeir taki því boði. Ögmundur Jónasson innanrík- isráðherra og þingmaður Vinstri grænna, hefur lagst alfarið á móti því að Huang fái að leigja landið. Samflokksmaður hans, Steingrím- ur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, fer með eignarhlut ríkisins á fjórðungi jarðarinnar. Steingrímur getur þó ekki í gegnum þann eignarhlut komið í veg fyrir að aðrir landeigendur leigi Huang jörðina, segir Þor- valdur. Hafi ríkið ekki áhuga á að selja sinn hlut hefjist viðræður um uppskiptingu jarðarinnar. Náist ekki samkomulag um upp- skiptingu getur hluti landeigenda farið fram á að slík skipti verði gerð. Þá eru kallaðir til matsmenn sem skipta landinu upp með sann- gjörnum hætti. Þorvaldur segist þó ekki hafa trú á því að það verði raunin í þessu tilviki, eðlilegra væri að ná samningum um skipt- in við ríkið. Samkvæmt drögum að samningi milli félags í eigu sveitarfélaga á svæðinu, sem mun kaupa landið, og félags Huangs Nubo, mun 99 prósent landareignarinnar verða að fólkvangi. Eitt prósent jarðar- innar verður ætlað til einkanota fyrir byggingar og aðra aðstöðu sem þeim tengist, segir Þorvaldur. „Með þessum gjörningi, ef af verður, get ég fullyrt að almenn- ingur mun hafa ríkari rétt til umgengni um landið en hann hefur í dag,“ segir Þorvaldur. „Ef þetta verður lýst fólkvangur hefur almenningur rétt á að ganga þarna um. Það er verið að auka rétt fólks til umgengni á landinu, sem í dag er einkalóð. Jafnframt mun verða unnið markvisst að umhverfisvernd og eflingu sjálf- bærrar þróunar á lífríki lands- ins, en það er í samræmi við vilja sveitarfélaga á svæðinu sem vilja hlúa að vistvænni ferðamennsku.“ Til stendur að Huang fái afnota- rétt á stærstum hluta jarðarinnar til 40 ára. Sá hluti sem fer undir byggingar verður þó leigður til 99 ára eins og tíðkast um byggingar- lóðir, segir Þorvaldur. Í samningsdrögunum skuld- bindur Huang sig enn fremur til að stuðla að viðhaldi lífríkisins og uppgræðslu lands þar sem mark- miðið sé að styðja við og efla nátt- úrulega þróun lífríkisins. Þorvaldur segir algerlega skýrt að leigutakinn hafi engin réttindi til að nýta náttúruauðlindir sem kunni að finnast á Grímsstöðum. Undantekningin sé vatn og aðrar auðlindir sem hann geti nýtt fyrir þá þjónustu sem hann muni byggja upp á svæðinu. brjann@frettabladid.is Geta krafist uppskipta á Grímsstöðum Þó ríkið eigi 25% af Grímsstöðum á Fjöllum getur það ekki komið í veg fyrir að aðrir eigendur leigi Huang Nubo sinn hluta. Samkvæmt drögum að leigusamningi verður nær öll jörðin að fólkvangi. UMDEILD EIGN Deilt hefur verið um hvort heimila eigi kínverska fjárfestinum Huang Nubo að leigja jörðina Grímsstaði á Fjöllum. MYND/SIGGA HALLGRÍMS Aðgengið tryggt Fólkvangar eru samkvæmt skil- greiningu í Náttúruverndarlögum svæði sem sveitarfélög skipuleggja og ætluð eru til útivistar og almenningsnota. Ólíkt þjóðgörð- um bera sveitarfélögin kostnað við stofnun og rekstur fólkvangsins. Með því að gera landsvæði að fólkvangi er aðgengi almennings að svæðinu tryggt, auk þess sem óheimilt verður að spilla nátt- úrunni.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.