Fréttablaðið - 11.05.2012, Síða 19

Fréttablaðið - 11.05.2012, Síða 19
VELLÍÐAN „Í dag er ég miklu betri og ég þakka það að miklu leyti bættu mataræði. Allir verkir eru minni, ég tek aldrei verkjalyf, ég er létt- ari og líður einfald- lega betur á líkama og sál.“ ■ FRAMHALD Á SÍÐU 2 GENGIÐ MEÐ VAGNA OG KERRUR Barnavagnavika Ferðafélags Íslands og VÍS hófst á mánudag og lýkur í dag. Um er að ræða 60-90 mínútna gönguferðir, með léttum æfingum, teygjum og slökun, fyrir foreldra og að- standendur barna í barnavögnum og kerrum. Í dag verður farið frá Húsdýragarðinum og hefst gangan klukkan 12.15. Fanney, sem er einn eiganda fjöl-skyldufyrirtækisins Organic, var greind með vefjagigt fyrir átján árum. Hún hefur breytt mataræði sínu mikið frá því sem áður var. „Það hefur haft gríðarlega mikið að segja fyrir mig,“ segir Fanney „Í dag er ég miklu betri og þakka það að miklu leyti bættu mataræði. Allir verkir eru minni, ég tek aldrei verkjalyf, ég er léttari og líður einfaldlega betur á líkama og sál. Það er alveg satt að maður er það sem mað- ur borðar, fæðan er undirstaða alls.“ Fanney segir sjúkdóminn ekki vera einu ástæðu þess að hún tók upp hráfæði. „Þetta gerðist bara smátt og smátt. Þegar ég varð ófrísk í fyrsta sinn fyrir átta árum varð ákveðin vakning hjá mér og ég fór að hugsa betur um sjálfa mig. Ég vildi að börnin mín lifðu heilsusamlegu lífi. Þetta var samt alls engin u-beygja. Áður vorum við á grænmetisfæði en það eru tvö ár síðan ég og börnin fórum alveg á hráfæði og maðurinn minn er líka meira og minna á því. Þetta er ákveðinn lífsstíll sem hentar okkur afar vel.“ segir Fanney. Uppistaðan í hráfæði er ávextir, hnetur, fræ og söl. Það eru engin dýr eða dýraafurðir inni í mataræðinu. „Þetta er ákveðin matreiðsluaðferð, maturinn er ekki hitaður upp fyrir 46 gráður. Við eigum þurrkofn sem „eldar“ matinn á löngum tíma. Ég geri til dæmis hrökkkex sem er í átta klukkutíma inni í ofninum.“ Fanney segir fjölskylduna fá öll þau næringarefni sem hún þarf úr fæðunni. „Við tökum reyndar B-12 vítamín í vökvaformi en annars uppfyllir matar- æðið allar næringarþarfir okkar.“ Þó þetta mataræði hjálpi Fanneyju segir hún það ekki endilega henta öll- um sem eru með vefjagigt. „Vefjagigtar- sjúklingar eru mjög misjafnir, það sama hentar ekki öllum og hver verður að finna sína leið. Bætt mataræði gagnast þó öllum.“ Fyrirtæki Fanneyjar og fjölskyldu, Organic, framleiðir hráfæðiskökur sem kallast Hnetufreisting, Kókosfreisting og Draumafreisting sem hún segir til- valdar sem eftirrétti eftir pastaréttinn sem hún gefur uppskrift að. ■ lbh HRÁFÆÐI ER MÁLIÐ BETRI HEILSA Fanney Sigríður Friðfinnsdóttir hefur tekið mataræði sitt og fjölskyldu sinnar í gegn á undanförnum árum og borðar nú einungis hráfæði. Það hefur stórlega bætt líðan Fanneyjar en hún er með vefjagigt. HOLLUSTA Fanney segir hráfæðis- mataræði hafa bætt líðan sína stórlega en hún er með vefjagigt. MYND/VILHELM Grillað fillet á spjóti, marinerað í hvítlauk, ólífuolíu, tímian & dijon sinnepi, borið fram á salatbeði með hægelduðum rauðlauk, ristuðum sveppum, bakaðri kartöflu & hvítlauks dressingu kr. NÝ TT Grillhúsið Tryggvagötu og Sprengisandi, sími: 5275000, grillhusid@grillhusid.is, www.grillhusid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.